Morgunblaðið - 23.12.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.12.1992, Blaðsíða 2
'táÖRGUNBOftííí) MÐVrktiDÁGtM*2&. ÖÉSE»ÉBÉk*‘l$92 í % eftir Guðrúnu Þóru Gunnarsdóttur Kristjana Gunnars: Zero Hour. Minningarbók, 127 bls. Red Deer College Press, Kanada 1991. Kristjana Gunnars: The Guest House. Smásögur, 145 bls. Anansi, Kanada 1992. Kristjana Gunnarsdóttir er ekki þekkt nafn í hinum íslenska bók- menntaheimi en þeim mun betur er hún kynnt meðal kanadískra bókmenntaunnenda. Síðasta ára- tuginn hefur sól Kristjönu Gunn- ars, eins og hún kallar sig þar vestra, skinið æ sterkar og bækur hennar verið tilnefndar til merkra kanadískra bókmenntaverðlauna. Eftir hana hafa komið út fímm ljóðabækur, ein skáldsaga, tvö smásagnasöfn og minningarbók um föður hennar, prófessor Gunn- ar Böðvarsson, sem lést árið 1989. Móðir Kristjönu, Tove, er dönsk en Kristjana er fædd og uppalin á íslandi. Þegar Kristjana var sextán ára gömul flutti fjöl- skyldan búferlum til Oreg- on-fylkis á vesturströnd Bandaríkjanna þar sem faðir hennar gegndi pró- fessorstöðu allt til dauðadags. Undan- fama áratugi hefur Kristjana búið og starf- að í ýmsum fylkjum Kanada, auk þess sem hún hefur tvisvar dvalið um eins árs skeið í senn á íslandi. Fyrir tveimur árum fékk Kristjana mjög eftirsótta prófessorsstöðu í ensku við Edmonton-háskóla í Alberta í Kanada en þar kennir hún enskar bókmenntir og ritlist. Þessi staða gefur henni auk þess gott svigrúm til skrifta enda réðu verk hennar miklu um að hún var tekin fram yfír tugi annarra um- sækjenda. Við íslendingar emm venju- lega stolt af velgengni okk- ar fólks á erlendum vett- vangi og þrátt fyrir að bækur Kristjönu séu ekki til í íslenskri þýðingu, ekki enn í það minnsta, þykir mér tilhlýði- legt að íslenskt bókmenntaáhuga- fólk fái smjörþefínn af tveimur síðustu verkum hennar: Zero Hour (1990) og The Guest House (1992) enda era þau bæði tengd Islandi á marga vegu. Minningar um föður Zero Hour er lítil bók um sára reynslu. Hún fjallar um dauðann, sorgina og baráttuna við að halda áfram að lifa eftir að náinn ástvin- ur hefur fallið frá. Þetta er bók dóttur sem er að kveðja föður, Kristjana Gunnars kveðja það líf sem þau áttu saman en verður aldrei meir. Zero Hour er líka bók um skáldskap, hún sýnir okkur skáld sem festir sorg sína í orð til þess að muna alltaf og syrgja að eilífu, um leið og mað- ur gleymir, hættir maður að syrgja. Það er skáldskapurinn sem hjálpar okkur að fylla á ný tóma- rúmið sem myndast innra með okkur þegar ástvinur hverfur á braut. Máttur orðsins. Sonatorrek Egils Skalla- grímssonar er áhrifamikið dæmi um föður og skáld sem gerir sorg sína ódauð- lega í óði til látins sonar. Það var Sonatorrek sem gaf Agli kraft á ný og ég hef á tilfinningunni að það sama eigi við um Kristjönu og Zero Hour. Frásögn Kristjönu hnit- ast um síðustu vikurnar í lífi föður hennar, um ákvörðun föður hennar um að deyja heima með reisn og neita öllum frekari skurðaðgerðum sem hefðu einungis orðið til þess að lengja erfítt og langt dauðastríð. Aftur kemur tenging við bókmenntaarf- inn, eftir að niðurstöður sjúkrahúsrann- sókna vora ljósar leið sólarhringur þar til faðir henn- ar mælti orð af vörum og þá, án allra málaleng- inga, skýrði hann frá vilja sínum. Þetta var hans aðferð, segir Kristjana, að leggjast undir feld og eiga þög- ula glímu við erf- ið verkefni þar til að lokum að lausnin er fundin. Lýsingin á þess- um langa og þögla sólarhring á h/vflt-? \ ÍSLENSK SKÁLÐKONA ÍKANADA Ö Unglmga- vandamál eftir Sigrúnu Klöru Hannesdóttur Hrafnhildur Valgarðsdóttir. í heimavist. Æskan, 1992. Sögusviðið er heimavistarskóli. Þrír vinir úr sjávarþorpi fara þangað í 10. bekk. í upphafi kynnumst við þeim á heimaslóð. Gústi á stóra fjöl- skyldu sem býr utan við þorpið. Fjöi- skyldulífið er eðlilegt og lítillega sagt frá því. Þröstur er stór og mik- ill og sagt er að foreldrar hans reki matsölustað en ekkert frekar frá þeim greint. Jónas er þriðji drengur- inn. Látið er að því liggja að hann verði fyrir ofbeldi heima fyrir, hafí verið barinn og lokaður inni langtím- um saman er föður hans mislíkaði við hann. Þegar í skólann kemur lendir Gústi í herbergi með Sævari sem er mjög fínn með sig og hefur augsýni- lega mikil fjárráð. Við sögu koma einnig Ásta, skólasystir þeirra, og Rós, draumadís Gústa. Dútli, hús- vörður skólans, er skemmtilega dregin persóna sem fær einnig tals- vert hlutverk í sögunni. Fljótlega fer að bera á undarlegri hegðun Jónasar sem annars er mjög feiminn. Smátt og smátt fer vini hans að grana að hann sé kominn í eiturlyf því þeir eiga erfítt með að gera sér grein fyrir þeim miklu breytingum sem verða á Jónasi. Sagan lýsir af innsæi þeim blekk- ingaleik sem vinimir stunda við að bera blak af vini sínum gagnvart yfírvöldum skólans svo og spurning- unum um hveiju sé um að kenna, en örlögin verða samt ekki umflúin. Heimur eiturlyfjanna er því miður hlutskipti fjölmargra ungmenna. Höfundi sögunnar tekst vel að lýsa erfiðleikum aðstandendanna, blekk- ingum og sjálfsásökun, en kemst ekki inn í hugskot þess sem ánetj- ast. Líðan þess sem er undir áhrifum og þjáningamar þegar eitrið er hætt að virka eru aðeins sýndar utan frá. Sá sjúki sést aðeins utan frá eins og hann kemur vinum sínum fyrir sjónir. Því miður er sagan ekki jafn heil til enda. í einni svipan er allri sorg- inni og skelfingunni ýtt til hliðar. Lítillega er minnst á undrun þorpsbúa á því sem gerst hefur og látið að því liggja að vinimir séu í erfiðleikum með að skilja hvað hefur skeð en þarna skortir á að umfjöllun- in verði sannfærandi. Árshátíð skól- ans stendur fyrir dyrum og því um annað að hugsa. Uppgjörið verður heldur tilþrifalítið og beinist að því að gefa út skólablað þar sem flett er ofan af þeim sem innleiddi eitrið og koma honum í hendur réttvísinn- ar. Skelfilegir atburðir eru þurrkaðir út á augabragði í ástarævintýri og vel heppnuðum körfuboltaleik. Misjafnar sögur eftir Kristján Kristjánsson Litlar sögur. Sverrir Páll. 217 bls. Kápumynd eftir Friðrik Ó. Friðriksson. Skuggsjá 1992. „Litlar sögur“ Sverris Páls era frekar ólíkar, bæði hvað snertir efni og stfl — og æði misjafnar að gæðum. Yfirleitt er hér um að ræða kyrrlátar raunsæissögur og skop- sögur sem fást við vel þekkt fyrir- bæri úr íslenskum veruleika, utan ein, „Jóhanna", sem hann segir af þýskri stelpu sem verður drottn- ing útigangsfólks og betlara í stór- borg. Sú saga verður fyrir vikið einhvem veginn á skjön við ann- ars „íslenskt“ yfirbragð þessa smásagnasafns. Að öðru leyti er sögunum raðað saman af nokkurri hugkvæmni svo úr verður bók sem hefur að geyma lauslegan þráð, upphaf, óreiðukennda miðju og endi, líkt og fylgt sé æviskeiði mannsins. Mismunandi raddir hljóma í sögunum, sögumenn eru nokkrir og á ýmsum aldri en að baki þeim rís söguhöfundur sem stundum tranar sér óþarflega framarlega í textann, verður ágengur og hættir til að leggja lesandanum línumar. Fyrsta sagan, „Austur", er brotakennd frásögn af friðsælli ökuferð austur yfír Vaðlaheiði, tvinnuð saman við minningabrot og dálítið einhæfa lýsingu á mik- illi hljómkviðu. Þessi saga leynir reyndar á sér og má greina í henni ákveðið samræmi þegar betur er að gáð. Heldur hæpið þótti mér þó það orðaval í upphafí sögunnar þegar Sverrir talar um „fótabún- að“ þess gula! Þá koma tvær sögur úr bemskuheimi sem vitund fullorð- ins manns vakir yfír; sú fyrri seg- ir af litlum strák í sveit og hin síðari af strák í síldarþorpi. í þeirri fjórðu er sögumaðurinn 16 ára „vandræðaunglingur“, Gunnar, sem segir frá raunum sínum og „björgun" á heldur einfeldnings- legan máta. í stflnum er gerð til- raun til að líkja eftir hugarheimi unglings en frásögn hans fannst mér raunar svo yfírþyrmandi dæ-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.