Morgunblaðið - 23.12.1992, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.12.1992, Blaðsíða 7
6 B MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESBMBER 1992 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1992 B 7 Sögur Jóhannesar Steinssonar eftir Kristján Kristjánsson Jóhannes Steinsson. Sáluhliðs- menn og veggverjar. Formáli eftir Jón Óskar. Mynd á kápu: Hörður Ágústsson. Offsetfjölrit- un annaðist prentvinnu. Hring- skuggar, 1992. Hér er dálítið sérkennileg bók á ferðinni — bók sem telst kannski ekki til tíðinda í bókmenntaheim- inum eða eiga brýnt erindi við les- endur en hefur samt að geyma fímm ágætlega skrifaðar sögur — sögur sem sýna að höfundurinn bjó ótvírætt yfir skáldskaparhæfileik- um. Þær tilheyra liðnu skeiði, ver- öld sem var, og bera vissulega merki síns tíma, bæði hvað snertir efni og form. Tvær elstu sögurnar voru samdar á fjórða áratugnum, og hin yngsta er frá þeim sjöunda. Alltaf má velta vöngum yfir því sem ekki varð, og í þessu tilfelli, verður sú spurning áleitin hver afraksturinn hefði orðið ef Jóhann- es Steinsson hefði alfarið getað helgað sig ritstörfum. Hugur hans stóð til skáldskapar en aðstæðum- ar gerðu honum erfitt fyrir eins og fram kemur í formála Jóns Ósk- ars þar sem rakinn er f stuttu máli æviferill Jóhannesar. Jóhann- es Steinsson átti samleið með ung- um og upprennandi höfundum, hann var meðlimur í félagi sem stofnað var sumarið 1940 — „fé- lag, sem í daglegu tali nokkurra ungra pilta og stúlkna var oftast nefnt Ungir pennar, en stundum Félag ungra rithöfunda" (bls. 7). Jóhannes sat í stjórn þess félags ásamt Jóni úr Vör og Hannesi Sigf- ússyni. Sögur Jóhannesar eru á vönduðu máli, textinn er þéttur og býr ýmis- legt undir. Hann beitir gjama háði, og er ber einna mest á því í fyrstu sögunni, Sáluhliðsmönnum og veggveijum, sem er hrein og klár skemmtisaga, háðsádeila um fyrir- menn í sjávarþorpinu Selseyri. Kostulegt vandamál kemur upp þegar sóknamefndarformaðurinn og aðaldriffjöður þorpsins, Magnús útgerðarmaður, styttir sér aldur. Rúmlega tíu árum áður hafði prest- urinn í þorpinu, séra Kristján, jarð- sett almúgamann sem réð sér bana og sá var ekki borinn til grafar um sáluhliðið heldur dröslað yfir kirkjugarðsvegginn. íbúamir bíða í ofvæni eftir því hvora leiðina sér- ann muni velja vini sínum og skipa sér í andstæðar fylkingar. Sagan er lipurlega skrifuð og þó að per- sónusköpunin teljist kannski ekki fmmleg þá er séra Kristján ágæt- lega úr garði gerður, sérstaklega lýsingarnar á sálarraunum hans við að reyna fínna lausn á málinu. Næsta saga, Skarfakál, segir af upphafí gróðahyggju í byijun stríðsins. Aðalpersónan er maður með ágætt viðskiptavit en einnig viðkvæma samvisku. Hugmyndin að baki sögunni er heldur veigalítil en húmorinn er lunkinn. Hinar sög- urnar þijár, Heimspeki messa- drengsins. Flöskuskeytið og Rykið á paldrinum byggja á góðlátlegu Jóhannes Steinsson skopi en einkennast þó frekar af mannlegri hlýju. Sagan um messadrenginn sem hefur næstum gleymt nafninu sínu fyrir 65 krónur á mánuði, er eins og Jón Óskar nefnir réttilega í for- mála sínum, „ ... þannig formuð að nokkurri furðu sætir, að ungur maður skyldi skrifa þannig á þeim tíma, þegar ytri atburðarás var eini mælikvarðinn á gildi smásagna hér á íslandi“ (bls. 11). Á yfírborð- inu gerist fátt, lýst er einum sólar- hring í lífí messadrengs sem veit sínu viti en heldur því fyrir sjálfan sig. Hann á sér draum sem rekst óþægilega á við veruleikann og þessar andstæður vefur Jóhannes inn í textann án þess að þröngva þeim upp á hann. Næstsíðustu setningu sögunnar hefði hann þó að ósekju mátt strika út. Formáli Jóns Óskarfs er ágætur en hefði kannski sómt sér betur sem eftirmáli. Það er svolítið trufl- andi þegar lesandanum eru lagðar línumar áður en lesturinn hefst. Áhrif hirðingja M Djengis Khan. Myndin er talin líkjast honum meir en aðrar myndir. eftir Jóhann Hjálmarsson Saga mannkyns. Ritröð AB. 5. bindi. Hirðingjar og hámenning 1000—1300 eftir Knut Helle. Ás- laug Ragnars og Jóhannes Hall- dórsson íslenskuðu. Almenna bókafélagiðl992. Bækur af þessu tagi, mynd- skreytt sagnfræði, eru ákaflega vinsælar um þessar mundir. Saga mannkyns hefur verið að koma út mörg undanfarin ár og hefur orðið mörgum til glöggvunar á fortíð og samtíð. Hámiðaldir eru þeir tími þegar sérkenni miðalda koma skýrast fram í Evrópu, segir í inngangi bókar. Eitt megineinkenni þróun- arinnar er spenna milli hirðingja og hámenningar, stendur einnig þar. Sagnfræðingurinn Ibn Khald- un (1332—1406) birti mörg fræði um hirðingja, sigra þeirra og ósigra. Innganginn endar höfundurinn á þessum orðum: „Hvað sem öðru leið stuðluðu áhrif hirðingjanna á siðmenningar- samfélögin, sókn þeirra og andstað- an sem þeir vöktu, harla mikið að því að möta þróun samfélags og siðmenningar í gamla heiminum á hámiðöldum. Það er haft hugfast við samningu þessarar bókar.“ Djengis Khan hefur bæði fyrr og síðar verið viðfangsefni sagn- fræðinga og rithöfunda. Sókn hans sem byijaði með því að hann lagði undir sig Mongólíu og eftir það fleiri ríki hófst í lok tólftu aldar. Strax í bernsku var hann í senn kænn og grimmur, reiðubúinn að beita öllum ráðum til að fá að stjórna. Þess er til dæmis getið að á bernskuskeiði hafí hann ásamt bróður sínum myrt hálfbróður þeirra sem gerði sig sekan um að hirða físk sem Djengis veiddi. Sigurvegararnir miklu hafa eftir lýsingum að dæma verið ófrýnilegir og lítt snyrtir, að hætti hirðingja, en þeir áttu sér ákveðin lög og strangar reglur sem fara varð eft- ir. í Iran og Kína stjómuðu þeir af meiri grimmd en dæmi voru um. Það átti fyrir stórveldi Mongóla að liggja að tapa og liðast sundur eins og fleiri stórveldi. Ríki Mong- óla stóð í þijá aldarfjórðunga. Ekki eru hirðingjar þeir einu sem fræðast má um í þessum hluta Sögu mannkyns. Það er til dæmis ómaksins vert að kynna sér sögu nágranna þeirra auk þess að huga að persneskum skáldskap og áhrif- um íslams og kristni á menningu okkar. Kaflár eins og Kristindómurinn auðgar listir og mennt eru skemmtilegir aflestrar. Um trú, menningu og stjórnmálaþróun í Evrópu er ij'allað ítarlega í bókinni. Þar rísa ýmsir þeir varðar sem enn standa. Hvarvetna «r þess gætt, eins og í fyrri bindum, að skemmta lesendum með ýmsu smálegu sem varpar ljósi á heildina og vekur til umhugsunar. Fjölbreytilegt myndaval dregur ekki úr ánægju við lestur Hirðingja og hámenningar. Þýðingin er læsi- leg. STIKLUR UMSKÁLD eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur Lífsmyndir skálds. Æviferill Halldórs Laxness í myndum og máli. Ólafur Ragnarsson og Valgerður Benediktsdóttir tóku saman. Útg. Vaka-Helga- fell 1992 Bókin er gefín út í tilefni níræð- isafmælis Halldórs Laxness í apríl sl. Hún skiptist í sex meginkafla og síðan hver í marga örstutta og eru margir þeirra byggðir á stuttum tilvitnunum í texta Hall- dórs Laxness. Fyrstu hlutamir tveir Uppvaxt- ar- og æskuár 1902—1919 og Mótunar- og þroskaár 1919— 1929 em öllu meira samdir af rit- stjórum bókarinnar og bmgðið upp skýrum og fróðlegum lýsing- um á því samfélagi sem var og hafði að kalla verið „í sömu skorð- um í þúsund ár er landsmenn tóku að vakna til vitundar um framtíð- armöguleika sína og þjóðkenndin að eflast á síðari hluta 19. aldar,“ eins og stendur í upphafí Órædds draums. Smám saman er farið fljótar og hraðar yfír sögu og seinni kaflar — ef ekki er vitnað í texta skáldsins — em oft býsna snubbóttir og svo stuttir að þeir bera nokkurri fljótaskrift merki. Sjálfsagt og rétt ér að taka fram að tilvitnanir í texta Halldórs eru oft valdir af smekkvísi og glóir þar oft á gull. Meginstyrkur þessarar bókar liggur í myndunum í henni sem munu vera alls á fimmta hundrað og hefur án efa verið æði mikið verk að safna þeim saman. Aðdá- endur Halldórs Laxness munu áreiðanlega kunna að meta að sjá lífshlaup hans rakið í þessum myndum því umfram allt er þetta myndabók — textinn er of stutt- aralegur til að bera bókina uppi. í formála skýra ritstjórar hvað fyrir vakir með gerð þessarar bók- ar. Þann formála las ég ekki fyrr en síðast og fannst þá að ég gæti vel við bókina unað eftir að hafa — hvað sem góðu .myndefni líður — lagt hana frá mér töluvert hugsi og í vafa um hvaða hlutverki hún ætti að gegna. Þar segir: „Henni er ekki ætlað að vera tæmandi úttekt á ferli Halldórs. í stað þess sýnir hún brot úr lífí, stiklur. Hér er gerð tilraun til að nálgast skáld- ið með nýjum hætti, í takt við öld hraða og tíma myndmiðlunar. Myndræni þátturinn skipar þann- ig öndvegi í bókinrii og ræður ferð en í texta er sagan sögð og brugð- ið upp svipleiftrum af hugsun Halldórs Laxness.11 En fyrir Laxnesslesendur og aðdáendur texta Nóbelsskáldsins vaknar þá eilítil spurning: getur verið að það fái staðist að mat- reiða þurfí bók um Halldór Lax- Halldór Laxness Aðdáendur Hall- dórs Laxness munu áreiðanlega kunna að meta að sjá lífshlaup hans rakið í þessum myndum því um- fram allt er þetta myndabók ness sem léttan auðveldan rétt, getur verið að menn hafí ekki lengur tíma til að lesa og hrífast af snilldartextum hans nema í smáskömmtum? Vonandi ekki. Illt væri ef það reyndist rétt og ég held að varla nokkuð gefí tilefni til að draga þá ályktun. Bókinni fylgir nafnaskrá, heim- ildaskrá og skrá yfír ljósmynd- ara/eigendur mynda í bókinni. Forseti íslands skrifar formála. Það má lofa útlit og uppsetningu bókarinnar, það er til sóma í alla staði. Kólumbus og sæfarará norðurslóðum eftir Guðmund Heiðar Frímannsson Ian Wilson: Kólumbus í kjölfar Leifs, Fjölva-útgáfan, 1992, 256 bls. Það er liðið hálft árþúsund í ár frá því Genúumaðurinn Kristófer Kólumbus fann Ameríku. Þetta má að vísu ekki skilja svo að Kólumbus hafi fundið land sem enginn hafí vitað af. Allir innbyggjarar þess vissu vel af tilvist þess. En Evrópu- menn vissu ekki af tilvist Ameríku, eða að minnsta kosti mjög fáir Evr- ópumenn. Fundur Ameríku er tímamótaat- burður í sögu Evrópu og raunar Ameríku sjálfrar. Hann markar ákveðið upphaf þess vaxtar og við- gangs Evrópu, sem staðið hefur óslitið síðan. Fyrir þessu eru marg- víslegar ástæður, en kannski er sú mikilvægasta, að Evrópa auðgaðist verulega á þessum fundi. Þeir ræn- ingjar og bandíttar, sem Evrópurík- in gerðu út í þessar ferðir, færðu feng sinn heim. Kólumbus sjálfur hélt sig hafa fundið meginland Asíu, þegar hann kom til eyjanna á Karíbahafi. í tveimur fyrri ferðum sínum vestur um Atlantshaf kom hann einungis til eyjanna á Karíbahafí og fann ekki þau auðæfí, sem hann var að leita að. Þau voru helzt krydd marg- víslegt úr Austurlöndum, sem var mjög verðmætt á þessum tíma, og eðalsteinar. í síðustu ferð sinni komst Kólumbus að norðurströnd Suður-Ameríku, en gerði sér ekki grein fyrir því sjálfur, að hann hefði fundið meginland. Úr þessari síðustu ferð var Kól- umbus fluttur í hlekkjum til Spán- ar, enda virðist honum ekki hafa alls kostar líkað landstjórn Spán- veija í þessum nýju löndum sínum. Hann átti ekki greiðan aðgang að spænsku hirðinni eftir þetta. Orðs- tír Kólumbusar var ekki neitt sér- stakur síðustu ár ævi hans eða fyrstu áratugina eftir að hann dó. Kristófer Kólumbus En smám saman hefur hann orðið einhver þekktasta persóna sögunn- ar. íslendingum hefur kannski aldrei þótt jafn mikið koma til Kólumbus- ar og öðrum þjóðum. Til þess liggur sú eðlilega ástæða, að við höfum vitað af sögunni um Leif heppna, sem fann Vínland. Það gerðist miklu fyrr en Kólumbus fann Ameríku. Okkur hefur því ekki fundizt ferð Kólumbusar sérlega merkileg. í þessari bók er rakið, hvernig sæfarar frá Bristol voru á undan Kólumbusi til Ameríku, en þeir höfðu stundað siglingar til íslands um nokkurt skeið og sóttu lengi á mið við Nýfundnaland. Það sem er merkilegt við þessa atburðarás, er ekki að sæfarar frá Bristol urðu á undan heldur hitt að ljóst er að Kólumbus vissi vel af þessu ferðum og hefur fengið glöggar upplýsingar um þær. En í bókinni er rakið bréf sem Kólumbusi barst frá enskum njósnara en hann vissi glögg skil á ferðum sjómanna í Bristol. Það er er því ljóst að Kólumbus hafði ná- kvæmar upplýsingar um land hinum megin Atlantshafs, áður en hann hélt upp í fyrstu ferð sína. í bókinni er rakið kapphlaupið á milli Kólumbusar og Johns Cabots í leit þeirra að Indlandi sem þeir töldu vera vestan Atlantshafs. Höf- undur getur sér þess til, að Cabot hafi náð að sigla niður með allri austurströnd Norður-Ameríku og hafi hugsanlega verið drepinn af Spánveijum þegar Cabot og menn hans voru komnir á norðurströnd Suður-Ameríku. Hann segir líka frá því hvernig heimsálfan fékk nafnið Ameríka og hvernig ýmsir höfðu verið fyrri til en Kólumbus til Amer- íku. Séð í þessu ljósi verða orðstír og afrek Kólumbusar illskiljanleg. Auðvitað er það ljóst að það þurfti áræði og þor að sigla yfír hafíð. En það var ekki einstætt. Það er í raun fyrst og fremst á þeirri rás viðburða, sem fylgdi landafundun- um sem rykti Kólumbusar er reist. Þótt útsendarar Spánarstjómar til Nýja heimsins hafí verið dæmalaus- ir ofbeldisseggir sem unnu hvert grimmdarverkið á fætur öðru, þá er ljóst, að landafundimir skiptu sköpum í sögu Evrópu. Veröldin var ekki söm eftir þá. Þelta er skemmtileg frásögn af mikilvægum atburðum. Sigurður Líndal lagaprófessor hefur haldið því fram áður að Kólumbus hafí vitað af ferðum íslendinga. Sann- indin í bókinni eru kannski ekki svo nýstárleg en sagan er rakin ágæt- lega og bókin er skemmtileg aflestr-. ar. Hún tengir þennan mikilvæga atburði í veraldarsögunni við Is- landssöguna. Þýðingin hefur tekizt nokkuð vel þótt einum of mikið sé af „gæti hafa“ orðalaginu. Nafnaskrá og heimildaskrá eru í bókinni og annáll landafunda íslendinga, Bristol- manna og Spánveija. En það er allt of mikið af prentvillum á síðum þessarar bókar. Þótt náttúran sé lamin með lurk... eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur Inga Iluld Hákonardóttir: Fjarri hlýju hjónasængur. Öðruvísi ís- landssaga. Útg. Mál og Menning 1992 Ástir, framhjáhald, sifjaspell, við- horf og refsing við aðskiljanlegum brotum, hvort sem er frá sjónarhóli samfélagsins á hverjum tíma eða/og í lagabálkum. Þessi mikilsháttar mál eru viðfangsefni Ingu Huldar Hákon- ardóttur í viðamikilli bók hennar. Hún rekur sig áfram gegnum ald- imar og er athyglisvert að sjá hvaða lögmál, skráð eða ekki gilda á hveij- um tíma. Hversu mikil breyting fylg- ir til dæmis siðbótinni hér á 16. öld og hve refsingar verða þá grimmúð- legri en í kaþólskum sið þrátt fyrir íhaldssaman hugsunarhátt kaþólsk- unnar og óumdeilanlega siðsemi sem einatt er þó tvöfeldnin uppmáluð. Hjónabönd og viðhorf til hjóna- banda, hvernig til þeirra var stofnað, á hvaða forsendum, átti fólk að vera lukkulegt í hjónaböndum, viðurkenna nautn og ánægju kynlífs eða var hjónabandið bara praktískt band öðr- um eða báðum til fjárhagslegs ávinn- ings? Skipti það einvörðungu máli að vera fijósamur og uppfylla jörðina eða mátti einhvers staðar viðurkenna gleði og gaman? Og ástir í meinum, framhjátökur ríkisbænda og emb- ættismanna með lítilsigldum vinnu- stúlkum, börn fædd í synd en kannski tendruð af ástarbríma. Refsingar fyr- ir „brotin" ýmis hvort sem er á tímum stóradóms þegar karlmenn voru höggnir og konum drekkt eða vandar- högg þóttu næg refsing, stundum eftir því hvemig brotið var vaxið. Og svo sögumar um fólk sem fómaði öllu fyrir ástina, lagðist út og/eða Málverk eftir René Magritte Ofyndinn farsi eftir Súsönnu Svavarsdóttur Svarti prinsinn Höfundur: Iris Murdoch Þýðandi: Steinunn Sigurðardóttir Útgefandi: Iðunn Svarti prinsinn hefst á því að rithöf- undurinn Arnold Baffin hringir til vin- ar síns Bradleys Pearsons, sem líka er rithöfundur, og segist hafa drepið konuna sína. Arnold biður Bradley að koma strax, sem hann og gerir þótt hann sé í rauninni að leggja af stað út úr borginni, London, eitthvert út í sveit, þar sem hann ætlar greinilega að skrifa ódauðlegar bókmenntir. Bradley er fyrrverandi starfsmaður hjá skattinum en hefur skrifað tvær til þijár bækur, sem enga athygli hafa vakið. Arnold er aftur á móti mjög vinsæll höfundur, sem framleiðir eina bók á ári. Upphafið á sögunni lofar ágætlega góðu, eða allt- þar til kemur í ljós að Amold hefur alls ekki drepið konuna sína, heldur hafa þau verið í ósköp venjulegum átökum; hann hefur slegið til hennar í hita leiksins og hún rokið inn í svefnherbergi, læst að sér og svarar manni sínu engu þegar hann reynir að ná sambandi við hana. Og upphefst þar með skáldsaga, sem er endalausar vangaveltur um hvað er list, hvort listin felst í þögninni, eins og Bradley heldur fram (og því eigi menn að vera afskaplega sparir á orð sín og sköpun), eða hvort listin felst í framleiðslunni, eins og hjá Arnold, sem sögumaðurinn Bradley heldur fram að þjáist af ritræpu. Um þetta veltir Bradley endalaust vöngum. Svo eru líka endalausar vangaveltur um hvað er ást og svo koma líf og dauði og tengsl þeirra við skáldskapinn og listina. Sagan er ægilega heimspeki- leg, eitt vitsmunaflæði og skilgrein- ingarþmgl inni í mjög hægfara at- burðarás, þar sem Bradley er stöðugt á leiðinni út úr bænum, en verður stöðugt fyrir ófyrirsjáanlegum töfum. Bradley lýsir sér á mjög jákvæðan hátt, að eigin mati. Segist vera púrít- ani, meinlætamaður, hár, grannur, unglegur, aðlaðandi og gefur í skyn svo ekki verður um villst að hann sé gáfaður og fágaður. Milli hans og Arnolds er einhvers konar ástar/hat- urs samband, Rachel (kona Arnolds) reynir að gerast ástkona Bradleys, sem er fráskilinn fyrir löngu, en eigin- konan Christian er komin aftur til sögunnar, sem gerist í London (orðin bandarísk ekkja). Hún er á höttunum eftir sínum fyrrverandi, auk þess sem dóttir Amolds, Julian, er ástfangin af honum. Bradley tefst í London, vegna komu fyrrverandi eiginkonu sinnar, sem hann þó þolir ekki, og vegna þess að systir hans, Priscilla, er farin frá manni sínum og ætlast til að Bradley sjái um hana. Hún græt- ur allan tímann sem hún er í sög- unni. Inn í söguna blandast Francis, bróðir Christian, en hann er í rauninni tengiliður Bradleys við flestar persón- umar. Bradley þolir Francis ekki, en þegar líða tekur á söguna, getur hann ekki án hans verið. En, eins og ég segi, þá er atburða- rásin ákaflega hæg, atriðin sem fela í sér samskipti persónanna langdreg- in, vangaveltumar um bókmenntir, listina, ástina og svo framvegis langar og margorðar og mér finnst þetta ein- hver jafnleiðinlegasta bók sem ég hef lesið. Þó er formið á henni mjög sér- stakt og 8kemmtilegt. Sagan byijar á inngangi útgefanda bókarinnar (sem er auðvitað sögupersóna), síðan for- mála Bradleys (sem segist vera að skýra frá sannleikanum), svo kemur sagan „endalausa", og að lokum eftir- málar Bradleys, Christians, Francis, Rachelar, Julians og útgefandans. Hvert og eitt þeirra afhjúpar hann á Inga Huld Hákonardóttir storkaði almenningsáliti fyrr og síðar. Er þá ekki drepið nema á örfá at- riði í þessari skilmerkilegu og læsilegu bók. Hún er sagnfræðirit og beitt aðferðum sagnfræðinnar við vinnsl- una en hún er ekki síður skrifuð af skáldlegri leikni og listfengi svo les- andi er afar fjarri því að finnast hann vera að stauta sig í gegnum þurrt fræðirit. Samúð höfundar með því fólki fyrr og síðar sem er verið að fyalla um er mjög augljós og hvað sem líður af- stöðu samfélagsins hveiju sinni setur hún sig ekki í dómarasæti. Nema síð- ur sé. Ég var mjög hrifin af þessari bók og fannst hún virktavel unnin, læsileg og á ákaflega góðu máli. En stundum hvarflaði að mér við lesturinn. Þessi ást sem allt snýst um, hvað er hún að mati höfundarins? Stundúm fannst mér að um of væri horft á holdsins lyst og girnd, það sem slíkt rekur fólk út í á öllum tímum. En að þ’ ' slepptu. Er ástin ekki líka eitthvað fleira? Þar vantaði kannski að Inga Huld legði meira til mála. En að öllu samanlögðu er þetta án efa ein sú “ fróðlegasta og fýsilegasta bók sem ég hef lesið í háa herrans tíð. Iris Murdoch sinn hátt, eða sér bara atburðarásina á annan hátt. Þetta gæti verið mjög skemmtileg aðferð í áhugaverðri sögu, en hún er það bara ekki. Persónum- ar, sem eru skapaðar af Bradley, em leiðinlegar og samskipti þeirra em eins og í farsa eftir Dario Fó, þótt fyndnin sé víðsfjarri hjá Iris Murdoch.-4- En það er alltaf eitthvað að koma upp á, sem Bradley getur ekki séð fyrir. Hann lætur aðra breyta fyrirætlunum sínum, af eðlislægri forvitni rithöfund- arins, sjálfum sér til óbætanlegs tjóns á endanum. Persónur sögunnar banka stanslaust upp á hjá honum, hver á eftir annarri, til skiptis, hittast á óhentugu augnabliki og svo em form- leg bréfaskipti á milli þeirra. Yfir þijú hundmð síður með smáu letri er miklu meira en nóg af því góða. Ég las einhvers staðar að Svarfi prinsinn þætti besta bók Iris Murdbch. Mér er spurn; hvemig er þá restin? Þýðingin er góð; greinilega unnin af mikilli natni og málfar er gott, en allar þessar heimspekilegu vangavelt- ur, aftur og aftur, lon og don, ætluðu að æra mig og ég held mig langi aldrei aftur til að lesa stafkrók eftir þennan höfund.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.