Morgunblaðið - 23.12.1992, Page 3

Morgunblaðið - 23.12.1992, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1992 B 3 sjúkrahúsinu er afar sterk og líður seint úr minni lesandans. Það er nánast eins og allur tími stöðvist og Kristjana ýtir undir það með frásagnaraðferð sinni. Hún frestar í sífellu að skýra frá sjálfri ákvörð- uninni. Frásögnin er fleyguð brot- um úr fortíðinni sem og líðan og lífi Kristjönu eftir að faðir hennar var látinn. Þessi frásagnaraðferð er raunar einkennandi fyrir alla bókina og tengist því hversu erfitt er að færa hina sársaukafullu reynslu í orð, líf sem ekki lengur er. Kristjana ræðir þetta sjálf á einum stað í bókinni og kemst að þeirri niðurstöðu að í raun geti hún aldrei sagt þessa sögu föður síns. Eftir að faðir hennar tók ákvörðun sína er hver dagur sem líður áminning þess að nær dregur endalokunum, „Zero Hour“. Þessa reynslu fá engin orð fangað. Það er mikil þögn í þessari bók, þögn. sem þó æpir á svör við erfið- um spurningum, mikil einsemd þrátt fyrir fólksmergð, hlýhug og gjöfult viðmót. Kristjana er ein í sorg sinni, hún bregst við föður- missinum með því að útiloka ann- að fólk, útiloka allt. Hún vill vera ein, búa ein í auðri íbúð, lifa nýju lífi því veröldin sem hún þekkti er hrunin til grunna. Eini félagi hennar í einsemdinni er ritvélin hennar og með því að skrifa þessa bók um dauðann á miðju blómstr- andi vori nær hún smám saman tökum á tilverunni á nýjan leik. Zero Hour var tilefnd til bók- menntaverðlauna kanadísku ríkis- stjórnarinnar árið 1991. Einsemd Smásagnasafnið The Guest House hefur að geyma tíu sögur, þar af hafa sjö þeirra birst áður, flestar í kanadískum og amerísk- um bókmenntatímaritum. Þetta eru yfirleitt frekar stuttar sögur sem eiga það sammerkt að í þeim ræður einsemdin ríkjum. Kristjönu lætur vel að lýsa tilfmningum per- sóna sinna, og hún hefur næmt auga fyrir umhverfinu. í fæstum tilfellum gerist mikið en þeim mun sterkara er andrúmsloft sagnanna og lesandinn fær skýra mynd af aðstæðum og lífi hverrar persónu. Kona er í sögumiðju í átta sögum af tíu og í þessum tveimur sögum þar sem sjónarhornið er hjá karl- manni skipta konur miklu máli. Flestar þessara kvenna eru afar einmana, ósáttar við líf sitt og sjálfsmynd þeirra á reiki. Þrátt fyrir að annað fólk komi við sögu eru þær oftast einar, fjarri öðru fólki tilfinningalega. Oftar en ekki eru þær læstar inni í einhveiju munstri sem þær eiga erfitt með að bijóta upp. Ein persónan er raunar bókstaflega læst inni í fangelsi, nánar tiltekið kvenna- fangelsinu á Akureyri. Ein er bundin skyldum við aldrað fo.reldri og aðra hittum við fyrir sem bund- in er átthagafjötrum. Sú er ís- lensk, alin upp norður á Horn- ströndum en flutti til Kanada þeg- ar fólk á íslandi hætti að búa í sveit og fluttist í borg. Ein persón- an finnur stundarlífsfyllingu í óstjórnlegum fatakaupum, lifir fyrir augnablikið þegar nýr rándýr kjóll breytir henni úr Öskubusku í glæsilega prinsessu. Sterkustu sögurnar eru, að mínu mati, sú fyrsta og sú síð- asta: „The Guest House“ og „Chez Jeanette". Aðal beggja eru sterkar persónulýsingar og sterk stígandi sem heldur athygli lesandans fanginni. Titilsagan; „Gistiheimil- ið“, gerist yfir jól í Reykjavík. Danskur maður, sem kennir við skóla á Austfjörðum, ákveður að eyða jólunum á gistiheimili við Snorrabraut án alls tilstands, en með sjálfum sér og bókunum sín- um. A sjálfa jólanóttina verður hann fyrir truflun sem setur allar áætlanir hans úr skorðum. Lokasöguna „Hjá Jeanette" er tæpast hægt annað en að lesa sem sögu úr eigin lífi höfundarins, framhald af Zero Hour. „Hjá Jean- ette“ gerist einnig um jól en í þetta skiptið á ströndu Oregon- fylkis við endalaust Kyrrahafið. Þetta eru fyrstu jól fjölskyldunnar eftir andlát föðurins og til þess að söknuðurinn verði ekki of sár ákveður hún að halda jólin í bú- stað þeirra við ströndina. Dóttirin hefur mjög blendnar tilfinningar til þessarar samveru yfir hátíðirn- ar en kemur sjálfri sér á óvart með því að líða vel og frammi fyrir dimmu hafínu öðlast hún loksins frið í sálinni og sátt við föðurmissinn. Flestar þessara sagna eru áleitnar á sinn hógværa hátt, þær boða engar lausnir enda væri það fjærri stíl og andrúmslofti þeirra. Hver saga er eins og gluggi inn í líf og tilfmningar ókunnrar mann- eskju og Kristjönu tekst býsna vel að vekja áhuga okkar á þessu fólki. Sverrir Páll Erlendsson migerð á alla lund að hún náði ekki að verða sannfærandi í mín- um augum. Síðan taka við sundurleitar sög- ur sem flestar byggjast á skopi, íroníu og ádeilu. 1 fyndnustu sög- unni í þessum hluta, „J.Þ.Á.P." má greina nokkuð sterk áhrif frá Þórarni Eldjárn sem einhveijir myndu kannski telja fullaugljós en saga er ekkert verri fyrir vikið. Síðustu þijár sögur bókarinnar byggja meira á ljóðrænum stíl og einkennast af hverfulleika og dauða. Síðasta sagan, „För“, er hnitmiðuð og vel skrifuð. í henni fetar Sverrir Páll slóð sem hann hefði mátt fylgja í fieiri sögum. Enda fór svo fyrir þessum les- anda að þegar hann hafði lesið sögurnar og byijaði að rýna í þær ögn nánar fannst honum hann oft grípa í tómt. Margar kveiktu eng- an grun; það var eitthvað sem vantaði. Og þó er ekki hægt að segja að sögurnar séu illa skrifað- ar. Sverrir Páll vandar mál sitt og hann getur brugðið fyrir sig ólíkum stílbrögðum með ágætum árangri. Hann er hallur undir húm- orinn, lætur ágætlega að skrifa íronískar sögur en á móti kemur að þegar hann er á þeim buxunum velur hann sér söguefni af litlum metnaði. Þeir hlutir sem hér er hæðst að og deilt á eru nánast orðnir steinrunnir í íslenskum bók- menntum, útjaskað viðfangsefni, klisjur. Má þar nefna snobbkerl- inguna ásámt karlrembunni manninum hennar í „Frumsýn- ingu“. Yfirstéttarfrúna í „Klúbbn- um“. Atkvæðasmölunina í sögunni „Sá dagur“. Um þessi efni og keimlík hefur verið skrifað ótal sinnum og á nákvæmlega sama hátt. Ádeilan er þreytuleg og létt- væg, bætir engu við. Enn ein íslandsbók frá Noregi eftir Óskar Vistdal Á Friðriksstöðum í Noregi búa hjónin Anna Ragnhildur og Atli Næss. Þau reka bókaforlagið Iðunni og eins og íslenska forlagið með sama nafni sérhæfir Iðunn sig m.a. í útgáfu bamabóka. Annað sérsvið forlagsins em bækur um ísland, enda eru Anna Ragnhildur og Atli hinir mestu íslandsvinir, hafa kom- ið hingað tvisvar og eru bráðum væntanleg aftur. Þau hafa nefni- lega komið sér upp þeirri góðu lífs- venju að láta ekki ár líða án þess að heimsækja ísland. í júlí síðast- liðnum — einmitt á þeim tíma sem sumarblíðan sá sér fært um að skreppa hingað norður sem snöggv- ast — lögðu þau land undir fót og fór um Vestur- og Norðurland alla leið til Mývatns og þaðan suður á bóginn yfir heiðar um Sprengi- sandsleið. Afrakstur leiðangursins er sú ágæta bók sem kom út á dögunum og ber heitið »Islands- boka«, 60 blaðsíðna kver með skemmtilegum og sláandi svip- myndum af landi og þjóð. Bókin er skreytt teikningum Margrétar Reykdal listakonu, sem er búsett í Ósló. Bókinni er skipt í tíu kafla og fjallar hún m.a. um eldvirkni, jarð- hita, sundmenningu, garðyrkju og hestamennsku. Stiklað er á stóru um sögu landsins, en aðaláherslan er lögð á nútímasamfélagið. í köfl- unum um handritin og bókmennt- irnar er fjallað sérstaklega um Snorra Sturluson og Jón Sveinsson (Nonna), og þátturinn um Óttar svarta er tekinn með sem sýnishorn af íslenskri frásagnarlist. Sagt er frá draugasögum og þjóðtrú, og auðvitað eru Grýla, Leppalúði og jólasveinarnir á sínum stað, þó að höfundar segi frá því að Danakóng- ur hafi bannað að hræða börnin með þessum skrímslum þegar árið 1748. íslenskri tungu og nafnvenju eru einnig gerð góð skil. Það leynir sér ekki í bókinni að Anna Ragn- hildur og Atli eru miklir áhugamenn um grasa- og dýrafræði og fjalla þau sérstaklega um jurta- og fugla- tegundir sem eiga sér ekki hliðstæð- ur annars staðar í Evrópu, eins og eyrarrósina og straumöndina. »Islandsboka« kynnir á mjög skemmtilegan hátt öðruvísi, spenn- andi og fremur óþekkt land þeim lesendum sem hún einkum á erindi við, þ.e.a.s. norskum unglingum. Annars er óhætt að mæla með henni sem tilvalinni íslandskyningu fyrir börn á öllum aldri. A næsta ári ætla Anna Ragnhildur og Atli að snúa sér að íslenskum barnabók- menntum og gefa út »Undan illgr- esinu« eftir Guðrúnu Helgadóttur í norskri þýðingu. Rétt er að bæta við að Atli Næss, sem fæddist árið 1949 og er að mennt cand.mag. í norrænum fræð- um, er einn helsti rithöfundur Nor- egs í lok 20. aldar. Frá því að hann kvaddi sér hljóðs 1975 hefur hann sent frá sér sjö skáldsögur og þijár barnabækur auk fræðslurits um skautaíþrótt í Noregi. Á þessu ári gaf hann einnig út áhugavert greinasafn um m.a. stöðu norskrar menningar í breyttri Evrópu. Árið 1987 haslaði Atli sér völl í fremstu röð í norskum bókmenntum með skáldsögunni »Sensommer« sem byggir á hinni frægu ástarsögu Henriks Ibsens og Emilie Bardach. Árið 1990 treysti hann stöðu sína með skáldsögunni »Kraften som beveger« (Aflið sem hrærir), sem er talin til helstu skáldverka á norsku á níunda áratugnum. Uppi- staða hennar er ævisaga ítalska skáldsins Dantes Alighieris (1265- 1321) og gerist í Flórens, sem í bókinni er í senn borgríki á miðöld- um og nútíma fjölmiðlasamfélag. í febrúar nk. er Atli Næss vænt- anlegur aftur til íslands í boði Nor- ræna hússins. Þar mun hann kynna bæði íslandsbókina og fleiri bækur eftir sjálfan sig og aðra norska rit- höfunda. Ljósm. Óskar Vistdal Hjónin Atli Næss og Anna Ragnhildur í Bláa lóninu. Sögur úr sveit og borg eftir Eðvarð Ingólfsson Gunnar Gunnarsson: Sterki Böddi og Breki. Myndir: Ólafur Péturs- son. Loksins gat hann ekki annað en hlegið. Myndir: Snorri Sveinn Friðriksson. Gunnar & Gunnar 1992. Það er fremur sjaldgæft að menn sendi frá sér tvær barnabækur sem gerast, að segja má, í svipuðu um- hverfí á sama tíma fyrir sama aldurs- hóp. Það hefur Gunnar Gunnarsson nú gert. Fyrri bókin heitir Sterki Böddi og Breki. Hún fjallar um 10 ára dreng sem flyst úr sveit til höfuðborgarinn- ar með foreldrum sínum. Hann er ekki par hrifinn af því að þurfa að skilja við sveitina sína og er dálítinn tíma að sætta sig við borgarlífíð. Seinni bókin heitir Loksins gat hann ekki annað en hlegið. Hún seg- ir hins vegar frá 9 ára borgardreng sem fer í sumardvöl í sveit. Foreldr- ar hans eru skildir að skiptum og mamma hans farin að vera með nýj- um manni. Aðalpersónan hafði heitið því að „brosa ekki fyrr en mamma og pabbi hefðu sæst heilum sáttum“ (bls. 22). Það heit stendur reyndar ekki nema í sólarhring — þar til Gunnar Gunnarsson bóndinn á bænum gefur honum hest! Gunnar Gunnarsson er mjög góður stílisti. Sögurnar renna ljúflega áfram á kjarnyrtu og blæbrigðaríku máli. Greinilegt er að höfundur þekk- ir vel til sveitalífsins því að bæði skepnum og ýmsum störfum þar lýs- ir hann af mikilli kunnáttu og á fjör- legan hátt. Umhverfislýsingarnar eru þó aðeins rammi utan um ákveðna atburðarás, sálræn átök og spennu. Tengsl söguhetjanna við náttúr- una eru mjög sterk, einkum í fyrri bókinni. Þar dregur höfundur upp margar heillandi myndir af því hvernig aðalsöguhetjan, Böðvar, skynjar bernskustöðvar sínar. Hann er nátengdur lífi og störfum foreldra sinna, jökli, fjöllum og dýrum — og sjóndeildarhringur hans er þar af leiðandi víðari en gengur og gerist hjá borgarbömum. Söguhetjur beggja bókanna, Böð- var og Bangsi, eru þroskaðir miðað við 9 og 10 ára drengi. Helst má að því finna að málfarið er á stöku stað dálítið fullorðinslegt. „Menn sem eru að vaxa þurfa hvíld, mikinn svefn og hæfilega hreyfíngu," segir Skúli, jafnaldri og vinur Böðvars, og á við sjálfan sig (bls. 35). Frekar er ólik- legt að 10 ára drengur tali svona. En þó má segja höfundi til varnar að það er ekki með öllu óþekkt að börn bregði stundum fyrir sig þrosk- aðra máli en gengur og gerist. Hér gefst ekki rúm til að fjalla nánar um þessar sögur. Það sem eftir stendur og öllu máli skiptir er að Gunnari Gunnarssyni hefur tekist að skrifa áhugaverðar, skemmtilegar og vandaðar barnabækur. Ástæða er til þess að hrósa honum fyrir þær og hvetja hann til þess að halda áfram á sömu braut.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.