Morgunblaðið - 23.12.1992, Síða 4

Morgunblaðið - 23.12.1992, Síða 4
sööí aaaMaeaa .es huoauusivöim aioA.ianuojioM —MORG-UNBLAÐIÐ MIÐVIKUÐAGUR- 28r DESEMBER -1V92- - Náttúrulýsmgar í löngu máli eftir Sigrúnu Klöru Hannesdóttur Helgi Kristjánsson Rebbi fjallarefur Myndskreytingar: Róbert Schmidt Skjaldborg, 1992. Oft hefur verið á það bent að mikill hörgull væri á fræðibókum fyrir böm sem fjölluðu um íslensk málefni. Smátt og smátt er verið að bæta úr þessu _en samt með misjöfnum árangri. Á kápu þessar- ar bókar er sagt „Sagan fjallar um íslenska ijallarefinn og hans erfiðu lífsbaráttu", og aftan á bókinni lát- ið að því liggja að þetta sé bók fyrir alla fjölskylduna. Sagan um Rebba íjallaref er mjög Jöng, alls 180 síður í stóm broti. í raun er rakin ævi lítils yrð- lings frá því foreldrar hans em drepnir á greni og þar til hann hef- ur lifað af fyrsta veturinn. í fyrsta kafla er grenið, heimkynni Rebba, unnið. Líst er hvemig farið er að — biðin eftir því að læðan gefi sig eftir að refurinn hefur verið skot- inn, og loks dauðstríði læðunnar. Augljóst er að það er gert af þekk- ingu. Yrðlingarnir em teknir hönd- um og fluttir til byggða þar sem lítill drengur slær eign sinni á tvo þeirra, Rebba og Móm. Þeir verða þó ekki langdvölum þar. Móra verð- ur undir bíl en Rebbi flýr til fjalla. Það sem eftir er sögunnar er fjallað um mataröflun refsins og hvernig hann kemst af þrátt fyrir óblíð veð- urskilyrði. Aðeins er ýjað að því að borgardrengurinn ungi sé einmana en eftir að Rebbi hverfur til fjalla er ekki á hann minnst meir. Ekki er að efa að höfundurinn þekkir vel lifnaðarhætti refsins. Saga Rebba fjallarefs hverfur þó í ótrúlegu málskrúði. Heilu kaflamir em fjálglegar lýsingar á sveitinni, læknum, vindinum, þokunni, daln- um og svo framvegis. Hnjúkurinn horfir á refaskytturnar og verður að orði „Bregður hveijum á bana- dægri“, (s. 7). Lækurinn hefur sína skoðun á málunum og riíjar upp gamla daga þegar smalamir léku sér með hrossataðsköggla. „Já, þokan glettist við allt og alla. ... Hún þrífur í klettana og kastar þeim til eins og í myndastyttuleik" (s. 74). Vindurinn fær hlutverk riddara á hvítum hesti......,Hann fór með fífuna langar leiðir á vit ævintýranna. Hún fann þar prinsinn sinn og þau giftust og áttu böm og bura“ (s. 46). Gömul brú verður „óðamála af æsingi" við að segja sögu sína (s. 89) og svona mætti gefa óteljandi dæmi. Frásagnar- gleði höfundar er slík að hann get- ur ekki hamið sig. Allt sem honum dettur í hug er sett inn í þessa bók. Málfar sögunnar er mjög ríkt og lýsingar á náttúmnni eru skáldleg- ar. Mörg orð og orðatiltæki em notuð sem ekki liggja almenningi á tungu, síst börnum. Má þar telja orð eins og „bijóstgleypa" (s. 9), frá „blíStur í sárið" (s. 17), „mar- laki“ (s. 37), „sældarvana“ (s. 43), „birtutímann er allt sem skarað skjöldum“ (s. 59) „hvatabuska" (s. 69), að „slyppifengur" (s. 101), og dauð ær er „með feigðartjöld fyrir augum (s. 127), svo einhver dæmi séu tekin. Ekki hefði veitt af að hafa orðaskýringar. Próförk hefur ekki verið nægilega vel lesin og talsvert af prentvillum. Svart-hvítar myndir skreyta bók- ina en ekki em þær beinlínis skemmtilegar. Drengurinn sem stendur við silungsveiðarnar (s. 18) er ekki líkur barni og hundurinn, krummi og bærinn í baksýn fá á sig blæ barnateikninga þar sem jjarlægðarskynið er ekki al- veg rétt. Refurinn er ákaflega fallegt dýr og hefði átt það skilið að honum væru gerð betri skil. Myndirnar falla ekki einu sinni að textan- um. Girðing verð- Helgi Kristjánsson ur refnum farartálmi. „Þræðir hennar voru ennþá eins og klær sem virtust tilbúnar að grípa hann“ (s. 35). Á myndinni er girðingin hins vegar svo léleg að hún hangir varla uppi og enginn gaddavír svo neðar- lega að gæti hafa hindrað för refs- ins. Myndin á forsíðu, sem jafn- framt er við upphaf hvers kafla, er sú eina sem er góð. Ég á erfitt að sjá lesendahóp fyr- ir þessa bók. Sagan er alltof löng og lýsingamar of orðmargar til þess að böm gætu notið hennar í náttúm- fræðikennslu. Ef líta á söguna sem skáldsögu þar sem refurinn er aðal- söguhetjan, kafnar frásögnin undir lýsingum sem eru alltof langdregnar jafnvel þó að fyrirbrigðin sem áður em nefnd, brúin, fjallið, þokan, dal- urinn, tunglið, lækurinn og svo framvegis, ættu að vera aukapersón- umar í sögunni. Vonandi eru ein- hveijir ennþá til sem hafa ánægju af því að lesa skáldlegar lýsingar á íslenskri náttúm þar sem allt talar og hefur einhveija skoðun fram að færa. Sögustund fyrir hvem dag eftir Sigrúnu Klöru Hannesdóttur Sijja Aðalsteinsdóttir. Sögustund. 365 valdir kaflar úr íslenskum barnabókmenntum. Mál og menning, 1992. Að undanförnu hefur áhersla ver- ið lögð á nauðsyn lestrar og þess að lesið sé fyrir börn allt frá blautu barnsbeini. Söguhefð er rík í ís- lenskri menningu og kvöldvakan með upplestri og frásögum var menningarmiðlun fyrri tíma. Samt hefur viljað brenna við að börn nú- tímans fari á mis við að þeim séu sagðar sögur eða að fyrir þau sé lesið, aðallega vegna tímaskorts for- eldra. Erlendis hefur fyrir löngu verið reynt að koma til móts við þá sem þurfa að segja sögur og ýmis konar sögubækur gefnar út í þessum tilgangi, t.d. minnist ég stórrar bók- ar sem heitir 365 Bedtime Storíes og var gefin út í Bandaríkjunum fyrir mörgum árum. Nú hafa íslendingar eignast bók sem geymir lestur fyrir hvern dag ársins. Þessi bók er heldur ekki nein smásmíð eða alls 749 blaðsíður. Val á efni í þetta mikla rit var í höndum Silju Aðalsteinsdóttur sem hefur sagt opinberlega að hún hafi verið einráð um valið. Ekki eru gefnar neinar forsendur fyrir valinu og hvorki er í bókinni formáli né eftir- máli, bókin skal skýra sig sjálf. Efnið í bókinni er mjög fjölbreytt og alls eru kaflar eftir 60 höfunda, auk þjóðsagna, efnis úr Islendinga- sögum og öðrum forníslenskum bók- menntum. Mjög er mismikið af efni eftir hvern höfund en samt er mörgu til haga haldið. Þegar efnisvalið er skoðað kemur sumt á óvart, eins og t.d. að aðeins er kafli úr einni af bókum Ragnheiðar Jónsdóttur en Þórbergur Þórðarson á 9 kafla og Sijja Aðalsteinsdóttir einn kemur frá Snorra Sturlusyni. Vinninginn á Magnea frá Kleifum en alls eru 15 kaflar eftir hana. Þessi mælikvarði er þó ekki einhlítur þar sem hver kafli getur náð yfir nokkra daga. Höfundur hefur leitast við að láta efnið fylgja árstíðunum og meira að segja er sérstakur kafli fyrir 29. febrúar, hlaupársdaginn. Þar sem samfelldur kafli úr sömu bókinni nær yfir nokkra daga er le- sanda hjálpað til með því að skotið er inn í textann tengingu svo hann þarf ekki einu sinni að hafa fyrir því að segja barninu að á morgun haldi sagan áfram. Eins og áður sagði sækir Silja víða fanga. Eflaust er smekkur þeirra sem lesið er fyrir misjafn og sumt er skemmtilegt sem öðrum leiðist. Þó finnst mér Silja hafa reynt að velja efnið frá því sjónarmiði að það skemmti fremur en fræði. Ég get heldur ekki látið hjá líða að lýsa sérstakri ánægju með val höfundar á þulum og gömlum sagnakveðskap. Þarna eru komnar margar gamlar þulur sem hafa ekki sést á bókum Ljós í skammdegi eftir Erlend Jónsson Guðmundur Guðjónsson, Gunnar Bender: STANGAVEIÐIN 1992. 185 bls. ísafold. 1992. Stangaveiðin er að vanda vegleg bók og myndskreytt. Veiðisögur em þar margar, kannski fleiri en áður. En góð veiðisaga er meira en frásögn af viðureign manns og físks. Hún felur oftar en ekki í sér einhveija lífspeki; auk þess sem hún verður að luma á dálitlum húmor. Hitt veg- ur ef til vill þyngst að hún er náttúr- leg í orðsins fyllsta skilningi. Fmm- maðurinn teiknaði myndir af veiði- dýmm sínum á hellisveggi. íslenskir veiðimenn segja veiðisögur. Atferlið er tvenns konar en eðlið hið sama. En Stangaveiðin er líka alvarlegt rit. Þar er og fjallað um ýmis hags- munamál v.eiðimanna. Til dæmis veiðar í net með ströndum fram. Þess háttar hefur lengi tíðkast. Lax- veiðar í sjó eru þó bannaðar. Lan- deigendum leyfist að veiða silung en alls ekki lax! Éftirlit með netaveiðum hefur verið strangt hin síðari ár. Svo strangt að manni dettur í hug að hér gengi flest með röð og reglu ef lögum væri framfylgt af annarri eins hörku á öðmm sviðum. Vel má meta við ritstjóra Stangaveiðinnar að þeir leyfa rödd landeigenda að heyrast. Jens í. Kaldalóni andmælir — tæpi- tungulaust: „Það er með algerlega ógeðslegustu tilþrifum nokkurra manna að siga lög- reglu hér út um allar norðurstrandir, víkur og voga, á dýrindis björgunar- þyrlum og varðskipum, auk þess að læðast um eyðilendur, byggðir og voga til þess að leita sem þjófaleit að því hvort ég eða þú sem lagt hefur netstubba í landareign okkar ...“ Vissulega hlýtur maður að hafa þó nokkra samúð með málstað Jens í Kaldalóni og annarra bænda. Þeir verða að lifa eins og aðrir. En sport- veiðin er þó aldrei nema leikur. En stangaveiðimenn hafa líka nokkuð til síns máls. Gunnar Bened- er, sem svarar Jens, bendir meðal annars á að samkvæm nýjustu rann- sóknum séu laxastofnar í Atlants- hafí einungis „þrír hundraðshlutar þess sem þeir vora við landnám Is- lands“. Ennfremur minnir hann á að bæði ríkiskassinn og bændur sjálflr hafi dijúgar tekjur af stangaveiðinni. Þama rekast á tvenns konar hags- munir og má segja að báðir hafi rétt fyrir sér — ef málið er virt og metið út frá sjónarhorni hvors um sig. Silungur í ám og vötnum telst ekki til göfugra fiska eins og laxinn. Að krækja í murtukorn eða bleikjub- röndu skoðast aðeins minni manna sport. Viðureign við tvö hundruð gramma titt á bakka Þingvallavatns þætti lélegt efni í veiðisögu. Leyfi til silungsveiða em ódýr miðað við laxveiðileyfín. íþróttin hefur því yfir sér annars konar blæ, ekki eins til- komumikinn en jafnframt afslapp- aðri. Eigi að síður stundar margur maðurinn silungsveiði; flnnst það til- heyra sumrinu. Ekki er þó alltént né alstaðar von á mikilli veiði. Vísir menn telja að margan útlending mætti toga hingað til silungsveiða og afla þannig tekna og gjaldeyris fyrir þjóðarbúið — ef skipulega væri á málum haldið og veiðin aukin með ræktun. Stangaveiðin endar alltaf á kafla um silungsveiðina. Myndskreyttur er hann eins og aðrir kaflar bókarinn- ar. En þar blasa ekki við sjónum höfðingjar og heldri menn eins og í laxveiðiköflunum heldur Pétur og Páll og meira að segja — fjöldi barna! Þau em svo ánægð og brosandi, himnaríkisljósin, að manni kemur í hug að þar séu komnir hinir einu sönnu veiðimenn. Silungsveiðin er að vemlegu leyti bundin við stöðuvötn. Þjóðgarðurinn við Þingvallavatn er þar efst á blaði, bæði vegna stærðar vatnsins og ná- lægðar við aðalþéttbýli landsins. En fiskurinn þar er smár, mest murta og svo ein og ein smábleikja. Kannski er það líka rétta stærðin fyrir blessuð börnin! íslensk vötn em hrein og tær eins og loftið yflr landinu. En lifríki þeirra er fábreytt miðað við það sem ann- ars staðar gerist. Svíar fundu vatna- rækju í einhveiju afskekktu vatni þar í landi, háfgert fomaldardýr sem þar hafði orðið innlyksa fyrir þúsundum ára, og fluttu í önnur vötn. Árangur- inn skilaði sér brátt, fiskurinn óx hraðar og veiðin fór vaxandi. Fjöldi veiðanlegra tegunda liflr í stöðuvötnum um víða veröld, hér aðeins tvær, bleikja og urriði. Fæðin Gunnar Bender stafar af einangrun landsins; og svo af hinu hve skammur tími er liðinn frá síðustu ísöld. Spurning er hvort ekki fyrirfinnist vötn sem svo séu einangrað að hættulaust mundi vera að gera þar tilraunir með fleiri teg- undir án þess að stofna í hættu hinu margfræga lífríki sem menn bera svo mjög fyrir brjósti þessi árin. Reyndar gegnir sama máli um árnar, tegundafæðin er þar hin sama, nema hvað þær hafa laxinn fram yfir vötnin. Á borðinu hjá mér liggur frönsk bók um sportveiði þar í landi. Og þar gefur á að líta. Það er eins og maður sé að blaða í heilli fiski- fræði, svo margar em tegundirnar sem þar er lýst. Að senda einhver aðskotadýr hér upp í ámar dettur náttúrlega engum í hug. Nóg er nú samt, mun margur segja, og hugsa til eldisfisksins með trosnaða sporð- inn sem hrellir veiðimenn. Stöðuvötn- in em síður tilfinningamál. Þar væri skaðlaust að reyna. Verð veiðileyfa ber á góma í þess- Guðmundur Guðjónsson ari Stangaveiði eins og fyrri daginn, en það þykir nú vera orðið fullhátt. Lögmál framboðs og eftirspurnar gild- ir þar sem annars staðar. En íslending- ar em þijóskir í viðskiptum og þar af leiðandi litlir kaupmenn. Óseld veiði- leyfi í bestu ánum á dýrasta tímanum lýsa hæpnu viðskiptaviti. En Guðmundur Guðjónsson og Gunnar Bender eru engir nöldrarar, öðru nær, þó þeir skjóti hugleiðingum um hagsmunamál inn á milli veiði- sagnanna vita þeir manna best að skuggar skammdegisins era langir en veiðimennina lengir meira eftir sumri og sól en þjarki um veiðirétt og peningamál. Því leggja þeir áherslu á góða skapið og veiðivonina sem blundar með sérhveijum veiði- manni, jafnt í svartasta skammdeg- inu sem á bjartasta sumardegi. Þeir ganga alltaf beint að efninu og tala mál sem veiðimenn skilja. Þetta er því, yfir heildina séð, notaleg bók og fyrir veiðimenn — sannkallað Ijós í skammdegi!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.