Morgunblaðið - 23.12.1992, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 23.12.1992, Qupperneq 9
seei HMHMaaaa .es HUDAauaivaiM aiaAJHHUoaoM Hluti úr mynd eftir Magritte Hvað er dýrmætast? eftir Sigrúnu Klöru Hannesdóttur Iðunn Steinsdóttir Fjársjóðurinn í Útsölum AB, 1992 Iðunn Steinsdóttir er margverð- launaður barnabókahöfundur. Hún hefur hlotið viðurkenningu Skóla- málaráðs Reykjavíkur og íslensku barnabókaverðlaunin og á þessu ári komst bók hennar Gegnum þymigerðið á heiðurslista IBBY, Alþjóðlegu bamabókasamtakanna. Með þessari sögu bætir Iðunn enn einni stjömu í feril sinn. í sögunni um Fjársjóðinn í Útsöl- um segir aðallega frá tveim bömum sem em ólík og tilheyra tveim mis- munandi þjóðflokkum sem búa í sama landi, Útsölum. Björt er há og ljóshærð eins og ættfólk hennar allt, Mararnir, -en Huldar er lítili og dökkur sem eru einkenni Brek- anna, hins fólksins í Útsölum. Fólk- ið hefur mismunandi venjur við hús og heimilishald en býr samt saman í sátt og samlyndi. Björt og Huldar em mjög góðir vinir og sinna dag- legum störfum sem tilheyra sjávar- útvegi. Þar er breiddur út saltfisk- ur og flaggað hvítu flaggi þegar bömin eiga að mæta á reitunum, rétt eins og börn gerðu á íslandi hér áður um fyrr. En strax í upp- hafi fínnur lesandinn að eitthvað stórfenglegt er í aðsigi og hann er hrifínn inn í spennandi atburðarás sem ekki sér fyrir endann á fyrr Iðunn Steinsdóttir en á síðustu síðu. Útsælir missa leiðtoga sinn og togstreita hefst. Við kynnumst fjölskyldum beggja bamanna, ekki síst ömmu í hjóla- stólnum sem á sér mikinn dýrgrip, Bókina einu. Þetta er eftirlætisbók- in hennar og geymir alla heimsins visku, kunni menn aðeins að lesa hana rétt. Iðunn sækir efni sagna sinna í heim sem hún býr til sjálf og gefur sér allar forsendur leiksins. Þessi saga er að því leyti lík fyrri bók Iðunnar, Gegnum þyrnigerðið, að hún setur söguna á svið þar sem lesandanum er látið eftir að fínna henni stað. Hér er Andi hafsins notaður til að koma til hjálpar, leiða söguna með véfréttum og gefa tón- inn en síðan verða söguhetjumar að ráða í véfréttina og draga sínar ályktanir. í sögunni laðar höfund- urinn fram persónurnar svo þær verði ljóslifandi. Allir em sanngirni beittir. Þeir hafa sínar góðu og slæmu hliðar og þess er gætt að taka ekki afstöðu með eða á móti því sem gerist. Spennan magnast jafnt og þétt, fréttimar af atburð- um í Utsölum gætu verið úr fjöl- miðlum nútímans. Það sem gerir þessa sögu svo heillandi að hana má lesa á margan hátt. Hún getur verið spennandi ævintýri þar sem tvö börn í óþekktu landi em í fjársjóðsleit en vita ekki alveg að hverju þau eru að leita. Sagan hefur líka miklu dýpri merk- ingu. Það má lesa hana sem trúar- lega dæmisögu um manninn og vanhæfni hans að fyrirgefa og horfa fram á veginn í stað þess að rifja sífellt upp gamlar misgjörð- ir og leita hefnda. Það má líka lesa hana sem þjóðfélagsádeilu á þá sem aldrei geta komið sér saman um neitt, jafnvel þótt líf og limir séu í hættu. Höfundur gerir sig aldrei sekan um að bjóða upp á einfaldar lausnir á flóknum vandamálum, en lesandinn er lokkaður áfram þar til hann kemst að sinni eigin niður- stöðu. í hveiju er fjársjóður einnar þjóðar fólginn? Hvað er dýrmætast? Græna bókin Það sækir að mér mynd. Ég var á ferð um Umbríu í hópi góðra vina. Allt í einu nemur fararstjóri staðar, segist ætla að sýna okkur undur. Ég sá aðeins víðan völl, söluskála og fjölda ferðamanna. Fararstjórinn leiddi okkur að lind. Undrið í hans augum var að það sæist til botnsins, vatnið væri svo tært. íslendingamir störðu á hann, með kjálka studda við bringu, skildum ekki töfína við lindina, rukum að söluskálanum til þess að sleikja ítalskan ís. Fyrr í þessari för höfðum við ve á leið til Vínar. Eftirvænt- ing var í hugum, sungið, meðal annars. „Dóná svo blá svo blá“. Ei við fundum hana ekki, og er við, vonsvikin, tróðum myndavélum í hulstrin aftur, stundi skáldið Gunnlaugur V. Snævarr: Héreru grösug og gróin tún og gruggug um eyramar renn- ur hún sem áður var blá, en það var nú þá, — því Dóná svo blá er nú brún! — í djúpri hryggð starði ég í „skólpræsið" og hugsaði: Ja, þessir útlendingar! Upphátt þorði ég ekki að segja neitt, því vel mátti vera, að einhver í hópnum hefði séð á skjá, hvemig komið var fyrir æskustolti mínu Varmá í Ölfusi. Eitt sinn var hún í huga mér meðal fegurstu áa. Bókin kallar þessar myndir í hug mér, því hún er brennandi spurn: Hvert stefnum við! Ætlum við virki- lega að iáta græðgina teyma okkur, langt fyrir aldur fram, upp í kirkju- garð? Svo meistaralega er bókin gerð, að mér þótti óþægilegt að lesa hana, vonleysið hreinlega steyptist arprýði, vöruþungans, upphrópanir. Þýðing er mjög vel unnin, lipurt, lifandi mál. Það gladdi mig að sjá, í lokin skrána um þá íslenzku aðila sem láta sig náttúmvernd varða, var dauðhræddur um að aðeins yrði til erlendra vísað. * Atriðaorðaskrá fylgir og auðveldar notkun bókar. Prentun og allur frá- gangur til mikils sóma. Hafí útgáfan þökk fyrir bók, sem allt hugsandi fólk ætti að setja í jóla- körfuna sína. eftir Sigurð Ha.uk Guðjónsson yfír mig. Þetta er bók fyrir full- orðna, síðan geta þeir rætt efni henn- ar við böm. Ég sé fyrir mér Eið minn Guðnason, og liðið hans, halda með þessa bók í framhaldsskóla og koma henni inná námskrá. Lindin tær yrði þá kannske lengur til á Is- landi. í 11 köflum varar höfundur okkur við á óvæginn, skerandi hátt, en þó er undirtónninn ætíð vonin að mann- kyn sjái að sér, og móðir jörð hafí enn þrótt til þess að má út kám okkar sem í gullahrúgunni sitjum. Sumar fullyrðingar höfundar get ég alls ekki fallizt á, en þar er ekki við hann að sakast, því að skoðanir sínar setur hann fram á greinargóð- an hátt, rökstyður. Myndimar em listavel gerðar, hugmyndaauðgin eins og snillingi sæmir. Þær em því ekki aðeins bók- Höfundur: Fred Pearce Myndskreyting: Ian Winton Þýðendur: Gunnhildur Óskars- dóttir og Arnþór Þ. Sigfússon Setning og prentun. Prentsmiðjan Oddi hf. Útgefandi: Bjallan hf. Fáguð frumraun í bókarlok. Aftanmáls er fjöldi til- vitnana í heimildir (433), löng skrá yfir heimildir og loks myndaskrá og nafnaskrá. Aftast er kort yfir siglingaleiðir íslenskra kaupskipa til og frá Bandaríkjunum. Vilji maður fetta fingur út í eitt- hvað er það þá helst hversu bókin er algjörlega fræðileg skrifborðs- vinna sagnfræðings. Hún ber þess nokkur merki að höfundur var ijarri atburðum og ekki sjómaður sjálfur. Mér þykir líklegt að sá sem sjóinn hefði þekkt hefði stuðst meira við viðtöl við hina reyndu farmenn og líklega gætt ritunina meira lífi og sjávarseltu. En ekki verður við öllu séð og vafasamt að þetta geti talist marktæk gagn- rýni. eftir SkaftaÞ. Halldórsson Svanur Kristbergsson: Banatorfur. Ljóð. 55 bls. Horn 1992. Ung skáld kveða sér hljóðs á ólíkan hátt og með misjöfnum árangri. Sum hafa hátt og vilja láta að sér kveða. Önnur fara hljóðlega um. Rödd þeirra er íhug- ul og tilfínninganæm, ljóð þeirra alvarleg. Svanur Kristbergsson nefnist ungt ljóðskáld sem sendir frá sér sína fyrstu bók og nefnir hana Banatorfur. Þessi frumraun hans er á ýmsan hátt frambærileg- ur skáldskapur. Það er ástæða til að taka skáldið alvarlega. Þótt fínna megi hnökra á bókinni er skáldið markvisst og íhugult í glímu sinni við viðfangsefnin og ljóðformið. Bókinni skiptir Svanur í tvo hluta. í fyrri hlutanum eru stutt ljóð en síðari hlutinn er flokkun smáljóða. Blær ljóðanna er fremur ljóðrænn og angurvær en þó ekki togstreitulaus. Sum þeirra eru draumkennd með táknum og allt að því súrrealískum myndum. Eigi að síður eru heildaráhrifín einfald- leiki, þannig að bókin virkar heild- stæð og fáguð. Útlit hennar undir- strikar þetta. Bókarkápa er smekkleg og táknræn, pappírinn í bókinni gljáandi og dálítið elligul- ur og upphafsstafir Ijóðaheitanna með skrautskrift. Viðfangsefni Svans eru einnig mjög einsleit. Ljóð hans eru frem- ur sjálfhverf og snúast flest um glímu ljóðmælanda við sjálfan sig og eigin firringu enda þótt hann ávarpi oft aðra persónu. Fjallað er um klofning sjálfsins. í kvæðinu Frá sér er vikið að þessari firr- ingu: „búinn/að fara frá sér// gengur frá/sér“ og í kvæðinu í ijarska er fjallað um þessa gjá á áhrifamikinn hátt: gjá milli okkar þú öskrar á sjálfan þig hendur um hálsinn á fugli með annarri glerbrot í hinni hvar ertu hefurðu yfírgefið mig hvert get ég snúið mér hefurðu aldrei verið hjá mér? Af slíkri fírringu sprettur ein- semd sem er annað mikilvægt yrkisefni en einnig lífsflótti. í kvæðinu Lífið er vikið að honum: „lífið stendur á öndinni/ ég stend bara og stari/ breyti mér í héra/ og hleyp í burtu“. Vitaskuld eru einsemd og flótti engin lausn á klofningi sjálfs og veru. Vegna þessa sambandsleysis er söknuður og sorg í mörgum kvæðunum. í ljóðinu Ágúst er ort um mann sem „óskar/ að hann gæti/ elskað“ og í kvæðinu Vegamót er kuldi ein- semdarinnar túlkaður. „kaldur lík- ami/ steyptir steinar/ frost/ gaddavír/ helvítis gaddavír". Svanur notar sem fyrr getur mikið tákn í ljóðum sínum. Al- gengustu táknin eru hjarta, blóð, tár og fuglar. Stundum tekst hon- um að búa til sterkar ljóðmyndir í kringum þessi tákn. Ljóðið Þá túlkar höfnun á óvenjulegan og frumlegan hátt: þá rétti ég þér hjarta mitt og þú baðst mig um að höggva af þér hendumar Svanur byggir þó of mörg kvæði á sömu táknum og svipuðum hug- myndum þannig að kvæðin veita okkur ekki alltaf nýja vídd eða nýja sýn, heldur miklu fremur endurtekningu. Hér hefði betur farið að fækka ljóðum, einkum þar sem táknin hjarta og blóð koma fram. Svanur kann margt fyrir sér í myndbyggingu. Hann er myndvís og athyglisverð er notkun hans á þverstæðum (paradox) sem ein- kennast af skarpri staðhæfingu í Svanur Kristbergsson gervi mótsagnar svo að hún virð- ist fjarstæða. "Ég læt nægja að nefna hér nokkur dæmi: ég þekki ekkert banvænna en lífið sjálft (11) sorgin er aðeins sönn þegar við syrgjum þá sem lifa (43) lífið lepur dauðann úr skel (49) Banatorfur er fáguð frumraun ungs skálds. Hún ber vott um þroska og metnað til að takast á við alvarleg og erfíð viðfangsefni firringar og einsemdar í nútíma- samfélagi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.