Morgunblaðið - 23.12.1992, Page 10

Morgunblaðið - 23.12.1992, Page 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1992 Stykkishólmur 1868 Forsaga Stykkishólms „Listin á að vera ómenguð“ eftir Sigurjón Björnsson Ásgeir Ásgeirsson Ólafur Ásgeirsson Saga Stykkishólms I. Útgefandi Stykkishólmsbær 1992, 429 bls. Þetta rit er fyrsta bindi af þremur sem boðuð eru um sögu Stykkis- hólms. Verkið er samið að tilhlutan Stykkishólmsbæjar og undir umsjón sérstakrar þriggja manna sögu- nefndar. Undirtitill þessa bindis er „Kauphöfn og verslunarstaður 1596- 1845“. í þessum titli felst að frásögn- in er nær einvörðungu verslunar- saga. Geta menn verið sáttir eða ósáttir við það eftir atvikum. Höfund- ar hafa skipt þannig með sér verkum að þeir rita sjálfstæða bókarhluta undir nafni. Ólafur ritar I. hluta, „Skip í Grunnasundsnesi. Forsaga verslunar í Stykkishólmi" (49 bls.) og II. hluta, „Kauphöfn" (115 bls.). III. og síðasta hlutann, „Verslunar- staður" (röskar 200 bls.) ritar svo Ásgeir. Á öftustu_ titilsíðu kemur fram að Ólafur Ásgeirsson hefur haft umsjón með útgáfunni. Árið 1596 verður Stykkishólmur fyrst kauphöfn. En áður en að þeim merkiviðburði kemur þarf höfundur frá mörgu að segja, því að hann rek- ur verslunarsögu og sögu siglinga, einkum hvað Snæfellsnes og Breiða- íjörð varðar, eins langt aftur og auð- ið er. Fara í þá frásögn nálægt 100 bls. Afar efnismikil er sú lesning, þéttpökkuð hvers kyns fróðleik og ber vitni mikilli sagnfræðilegri þekk- ingu. Frekar er þetta tormelt lesn- ing, en vissulega ágætlega vel skrif- uð og vönduð á alla lund. Síðan kem- ur að „kauphöfninni". Ekki gekk átakalaust að koma henni á og síðan gengur á ýmsu. Þetta er tími versl- unareinokunar. Konungur seldi verslunina á leigu einstaklingum eða verslunarfélögum. Um tíma rak hann verslunina sjálfur. Alræmdastir voru hinir svonefndu Hörmangarar um miðbik 18. aldar. Loks var einokun aflétt, fyrst með svonefndri „frí- höndlun" 1788 og ioks fullu verslun- arfrelsi 1855. Frá fríhöndlunartíma- bilinu segir í III. og síðasta hluta bókarinnar. „Fríhöndlun veitti ís- lenskum athafnamönnum tækifæri, sem vart hafði verið fyrir hendi öld- um saman, til að auðgast á verslun- arrekstri. Nokkrum tókst að safna auði, margir urðu bjargálna en marg- ir stóðu að lokum uppi slyppir og snauðir, bæði Islendingar og Danir. Verður nú frá þvi sagt hvernig þeim reiddi af er spreyttu sig á verslunar- rekstri í Stykkishólmi á fríhöndlunar- skeiðinu." Þannig segir á bls. 192 og fjalla þær tæpar tvö hundruð blað- síður bókar sem eftir lifa um þetta efni. Verður nú frásögnin öllu litrík- ari og líflegri og maður kynnist bet- ur einstökum kaupmannspersónum, umstangi þeirra og örlögum. Fyrstur kemur Peter nokkur Hölter, sem rek- ur einstaka hrakfalla- og raunasögu sína í löngu og „dramatísku" skjali. Ólafur Thorlacíus, sá mikli verslun- aijöfur og auðmaður, kemur næstur við sögu. Hans naut þó ekki lengi við og gerðist þá Bogi Benediktsson, oftast kenndur við Staðarfell, faktor Stykkishólmsverslunar fyrir hönd erfingja Ólafs. Á sama tíma verslaði Jón Kolbeinsson í Stykkishólmi. Báð- ir voru miklir auðsafnararar og at- hafnamenn og gekk á ýmsu í sam- skiptum þeirra framan af. Síðar tók Ámi Thorlacíus við föðurleifð sinni, en auður föður hans þvarr að lokum í höndum hans, þó að honum tækist raunar að lifa góðu lífí í norska hús- inu sínu af búskap og smáverslun. Kompaníverslunin svonefnda er þrí- menningarnir Pétur sonur Jóns Kol- beinssonar og tveir synir Boga Bene- diktssonar endaði með ósköpum. En loks náði Hans A. Clausen undirtök- um og varð um langt skeið einvaldur í verslunarrekstri þar vestra. Þegar fram yfír aldamótin 1800 kemur fer að myndast visir að þorpi í Stykkishólmi. Áð vísu er ekki nema 41 maður skráður á manntali 1801. Þegar þessari sögu lýkur, 1845 eru þeir orðnir 111. Um það leyti telja höfundar að „greina megi nokkur tímamót í sögu Stykkishólms. Verslun ... kemst að heita öll í hendur eins manns ... í Stykkishólmi var að verða til héraðsmiðstöð og að sumu leyti landshlutamiðstöð ... amtmaður tók þar upp aðsetur og síðar sýslumaður Snæfellinga... heilbrigðismiðstöð eftir að apótek tekur til starfa... og héraðs- læknir hefur þar aðsetur ... miðstöð menningarmála eftir að amtsbóka- safnið er þar stofnað ... þjónustumið- stöð handverksmanna ...“ í þessum síðasta kafla segir frá ýmsu fleiru en verslunarmálum bein- línis. Þáttur er um þilskipaútgerð og bráðskemmtilegur þáttur sem nefnist „Höndlunarþjónar, handverksmenn, jagtamenn og kynlegir kvistir", er þar einnig. Þar kennir margra góðra grasa, en einkum verða þó minnis- stæðar frásagnir af mönnum eins og Oddi Hjaltalín, Sæmundi Hólm og Sigurði Breiðfjörð. I lok bókar eru miklar skýringar og skrár (auk fjölmargra neðanmáls- greina inni í bók). Gagnlegur er við- bætir um „mál, vog og gjaldmiðla,,. Heimildir eru vendilega tilgreindar á 15 smáleturssíðum og nafnaskrá fýll- ir 25 bls. Mikill fjöldi ágætra mynda er í bókinni, sumar litmyndir og margar prýðilega gerðar skýringar- myndir, línurit og töflur. Bókin er prentuð á góðan pappír og allur frá- gangur til hins mesta sóma. Þetta upphaf að sögu Stykkis- hólms er þannig veglegt og vandað rit sem allir aðstandendur þess geta verið stoltir af. eftirJón Stefánsson Guðbergur Bergsson metsöiubók. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir ræðir við skáldið. Forlagið, 1992. 227 blaðsíður. Ævisögur eru á góðri leið með að verða skammaryrði í munni bók- menntamanna. Á hveiju ári eru gefnar út ógrynni ævisagna og flest- ar eiga það sameiginlegt að vera óþarfar. Bókmenntalegt gildi þeirra er ekkert, heimilda gildi ekkert. Flestar hafa þær einungis tvennt að markmiði; hala inn mikið af pening- um og vekja athygli á manneskjunni sem segir frá. Það er synd og skömm að svo sé komið fyrir þessari bók- menntagrein, því þegar best lætur flokkast ævisögur bæði undir fagur- bókmenntir og sagnfræði. Auðvitað ætti maður ekkert að vera æsa sig yfír þessu þarflausa og sjálfsupp- hafna þusi sem flestar ævisögur eru; tíminn sér um að varpa þeim í hyl gleymskunnar. En kemst maður hjá því að fnæsa reiðilega þegar sjálfs- ánægð sjónvarpsþula eða hálf- gleymdur söngvari hamast við að ná athygli manns síðustu daga fyrir jól? En inná milli óþarfa ævisagna, leynist alltaf ein og ein þörf. Ég þykist að minnsta kosti vita að þeir séu ófáir sem gleypa Guðberg Bergs- son metsölubók í sig. „Þetta getur ekki orðið ævisaga", er fyrsta setning bókarinnar og í lok hennar segir skáldið, „Ég sagði það í fyrstu að þetta væri ekki ævi- saga ... og þó ... kannski handar- bak á hendi þar sem línur lófans skína í gegn — svo aðrir geta lesið í hann“. Hér er heldur ekki um neina hefðbundna ævisögu að ræða og ég held svei mér þá að hugleiðingar Guðbergs um líf og tilveru, séu fyrir- ferðameiri en æviminningar. Ég hafði reyndar á tilfinningunni, þegar ég las bókina, að skáldið kærði sig ekki um að hleypa Iesandanum of nálægt sér. Skrásetjarinn, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, virðist sam- stiga Guðbergi í að seilast ekki of langt inn í líf skáldsins. Frásögnin er reglulega rofín með spurningum Þóru og einstaka sinnum beinir Gubðergur máli sínu beint til henn- ar. Ég er ekki mjög hrifinn af þess- ari aðferð, hún ber of sterkan keim af blaðamennsku til að koma vel út á bók; hún verður ekki nógu heild- stæð. Spurningar Þóru minntu sum- ar hreinlega á prófspurningar. Á blaðsíðu 108 eru þau að ræða um SÚM-félagsskapinn og spyr þá Þóra eins og menntaskólakennari á prófi: „Hvaða aðferðum beitti SÚM- félagsskapurinn til að koma hugsun sinni á framfæri og hver urðu helstu merkjanlegu áhrif hans á kynslóð listamanna á eftir?" Ég er ekki frá því að Þóra hefði mátt vanda betur til við vinnslu bókarinnar. Það er eins og hún gleymi því að þetta er viðtalsbók, ekki blaðaviðtal. Próf- spurningar eru ekki rétta leiðin til að nálgast persónu, enda er Guð- bergur oft og tíðum litlu nær lesand- anum en í venjulegu blaðaviðtali. Þessi vankantur bókarinnar kemur skýrt fram í fyrstu köflunum, þegar Guðbergur rifjar um bernskuna í Grindavík. Hann segir stórskemmti- lega frá týndum krökkum, köldum kennslustundum og Stellulátum. Hlutverk Þóru hefði verið að „plata" fleiri sögur upp úr honum. Mér sýn- ist sem hún hafi hreinlega verið óviss hvernig bókin átti að vera og þess vegna er Guðbergur Bergsson metsölubók, hræringur af æviminn- ingum, skoðunum og gagnrýni skálds. En ég neita því ekki, að vel bragðast hræringurinn á köflum, og framlag Þóru er ekki alvont; það hefði einfaldlega mátt vera betra. Guðbergur á það til að vera skemmtilegur maður og getur sagt vel frá; Franco lifnar við og deyr aftur á síðum bókarinnar; maður finnur lyktina af misheppnaðri bylt- ingarnótt í Portúgal; sér Guðberg fyrir sér sem sextán ára eldhúsdreng hjá bandaríska hernum. Og svo er Ríkislax eftir Stefán Friðbjarnarson Halldór Halldórsson: Laxaveizlan mikla Útgefandi: Fjölvaútgáfan, Reykjavík Káputeikning: Jean Posocco Filmuvinna og prentun: G. Ben. prentstofa hf. Við tölum stundum um okkur, íslendingar, sem skorpuþjóð. Það vinnulag á að vera eitt af sérkenn- um okkar. Við segjumst vinna í skorpum, leggja jafnvel nótt við dag til að koma frá ákveðnum verk- efnum. Og satt er það að við þurft- um oft og tíðum að vinna sjávar- afla, stundum mikinn afla, á skömmum tíma, svo hann skemmd- ist ekki. Afla heyfengs handa bú- smala í dyntóttri og hraðfleygri þurrkatíð. Bjarga búsmala á ör- skotsstundu undan óveðri eða upp úr árklaka. Við vórum einatt í tví- sýnni keppni við tímann um lífs- björg okkar. Við eigum okkur orðtak og segj- um það sem við tökum okkur fyrir hendur að ýmist sé vaðið í ökkla eða eyra. Og þótt kapp sé bezt með forsjá hendir það okkur, oftar en ekki, að vera nær eyranu en ökklanum, bæði í orði og verki. Máski á þetta við um fískeldisævin- týrið, sem kostaði marga milljarða króna, samkvæmt því er Laxaveizl- an mikla greinir? Máski á þetta einnig við um bókina sem hér er til umfjöllunar? Höfundur bókarinnar, Halldór Halldórsson, segir m.a. í inngangi að bók sinni: „Blaðamennskan er mjög lifandi starf, sem gerir kröfur um hraða. En krafan um snör vinnubrögð kann stundum að koma niður á gæðunum. Við ritun bókar blaða- mannsins hefur kannski heldur ekki gefizt æskilegt ráðrúm til skoða nánar ýmsar heimildir og ólíkar hliðar á málum. Fræðimað- urinn hefur hins vegar oftast næg- an tíma. í því liggur munurinn." Þessi fyrirvari, sem lesendur fá í veganesti við upphaf lestrar, fylg- ir þeim lesleiðina á enda. Víkjum þá að kynningu bókar- innar á kápu hennar. Þar segir: „Á hálfum áratug var sóað úr opinberum sjóðum yfír tíu millljörð- um króna í laxeldisævintýrið. Þetta sjóðasukk á stóran þátt í efnahags- erfiðleikum þjóðarinnar. Uppbygg- ingar- og jöfnunarsjóðir tæmdir, bankar og fjárfestingarsjóðir á barmi gjaldþrots. Þjóðin má borga brúsann af glannaskap og féglæfr- um „ábyrgðarlausra“ stjómmála- manna. Hér er sagan öll rakin ...“. Fiskeldi hófst hér á landi um eða upp úr árinu 1970. Þar fóru fyrir ýmsir framtaks- og hugsjónamenn. „Æðið“, sem rannsóknarblaðamað- Halldór Halldórsson urinn nefnir svo, hefst áratug síðar: „Þá sáu menn allt í einu gull í físk- eldinu og í stað örfárra stöðva á skrá vóru þær orðnar 125 árið 1988, þar af 20-30 með mikil umsvif." Hvað brást í þessari „dýrustu tilraun íslenzkrar atvinnusögu"? Þannig spyr höfundur og svarar sér sjálfur í Laxaveizlunni miklu. Svar hans kristallast máski, þegar grannt er gáð, í einu orði, ríkis- Iaxi, sem spanna á pólitíska ofan- hríð í atvinnugreinina, þ.e. opinbera forsjá og meinta pólitíska lánsfjár- stýringu til hennar. Höfundur viðurkennir að „verð- fall á laxi á erlendum mörkuðum hafi vissulega haft mikið að segja, þegar rekstrarerfíðleikar fóru að segja til sín.“ Meginástæða ófar- anna, að hans dómi, er þó ónógur undirbúningur, of skammur þró- unarferill, eða með öðrum orðum of hraður akstur á heildina litið, miðað við akstursskilyrði, einkum að því er varðar fjárfestingu. Þegar höfundur tíundar „nokkr- ar meginástæður" þess, hvers vegna fór sem fór um fiskeldið, notar hann orð eins og „léleg heimavinna, skortur á rannsókn- um, léleg gæði, lítið markaðsstarf, tilviljanakend lán og styrkir úr áhættusjóðum, póitísk afskipti og þrýstingur á sjóðina, sjúkdómar, allar viðvaranir hunzaðar" o.fl. hliðstæð. Ekki eru allir smiðir lélegir smið- ir þótt fáeinir kunni að hafa fimm þumalputta á hendi. Ekki er heldur hægt að setja alla, sem komu við sögu fiskeldis, undir einn og sama hatt meints æviritýris, sem endaði í margra milljarða bagga á samfé- laginu. Slík alhæfing stenzt ekki. Hún er heldur ekki ekki kjarni þess- arar bókar. Höfundur gerir hins vegar mikið mál úr meintri pólitískri stýringu lánsfjár til fiskeldisfyrirtækja. Orð- rétt: „Raunar enduðu stóru fyrir- tækin flest ævina í „fyrirtækinu" RÍKISLAXI, sem starfsmaður Lánasýslu ríkisins/Framkvæmda- sjóð, og starfsmenn Byggðasjóðs hafa umsjón með“. Ljótt er ef satt er, stendur einhvers staðar. Og fyrirgreiðslupólitík er svo sem ekki óþekkt fyrirbæri á Fróni, hvort sem menn hafa nú vaðið hana í ökkla eða eyra hjá fyrirbærinu Ríkislaxi, sem höfundur kýs að nefna svo. En jafnvel þó að við gefum okk- ur þá niðurstöðu, sem að sjálfsögðu er skot út í loft ævintýrisins, að helftin af þeim dæmum, sem höf- undur rekur um opinbera/pólitíska lánsfjárstýringu, sé á sandi byggð, nægir það sem eftir stendur til að rökstyðja þá kenninguna, að við- skiptabankar, fjárfestingarsjóðir og aðrar meðferðarstofnanir áhættufjármagns og sparifjár fólksins í landinu eigi ekki að vera í opinberri/pólitískri umsjá, heldur einkareknar og lúta lögmálum arð- semi og markaðar. í bókarkynningu á Laxaveizlunni miklu er höfundur kynntur sem „naskur rannsóknarblaðamaður," sem sjálfsagt er rétt mat. Bókin er þar með flokkuð undir það vinnu- lag, sem „rannsóknarblaða- mennska" stendur fyrir í hugum fólks. Það, ásamt fyrirvara höfund- ar, sem fyrr getur, fær lesendur trúlega til að gariga með hægð og varúð um „laxeldisævintýrið", eins og það er sviðsett í bókinni. Fisk- eldi er og engan veginn úr atvinnu- sögu þjóðarinnar, þrátt fyrir ýmis víti, sem stöku skorpumaður óð í eyru, og til varnaðar þurfa að verða í framtíðinni. Þrátt fyrir þessa fyrirvara er bókin bæði forvitnileg og fróðleg lesning. Hún kemur víða við og skilur eftir spurningar og umhugs- unarefni, sem ekki er hægt að hunza í samfélagi, er verður að taka sjálfu sér tak, ef það ætlar að standast harðnandi lífskjaras- amkeppni við umheiminn. Og þar gildir fyrst og síðast að virða lög- mál markaðarins. Ríkislaxinn og áætlunarbúskapurinn hafa nefni- lega hvarvetna, þar sem þessi fyr- irbæri koma að einhveiju ráði við sögu þjóðanna, leitt til efnahags- legs hruns og almennrar fátæktar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.