Morgunblaðið - 08.01.1993, Page 20

Morgunblaðið - 08.01.1993, Page 20
20 B MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1993 Tillaga urn ffélagslcga ibuóabyggó Getxir oröiö livati jákvæóra félags- legra samskipta Að mati dómnefndar hefur tillöguhöfundi tekist að uppfylla mark- mið samkeppninnar um samspil nýsköpunar og hagkvæmnissjónar- miða í heildarlausn og telur dómnefnd byggðina geta orðið hvata til jákvæðra félagslegra samskipta og betra mannlifs og mælir með útfærslu hennar í meginatriðum á öllu samkeppnissvæðinu. Þetta er umsögn dómnefndar í samkeppni Húsnæðisnefndar Reykjavíkur um félagslegar íbúðir í Borgarholti II Borgarhverfi í Reykjavík. Alls bárust 37 tillögur í fyrra þrep samkeppninnar. Tók dómnefnd- in 13 til nánari skoðunar og valdi síðan 5 til þátttöku i síðara þrepi keppninnar. í fyrsta sæti var tillaga arkitektanna Þorsteins Helgason- ar og Harðar Harðarsonar. og Klapparáss en skýrleiki skipu- lagshugmyndar hefði dofnað frá fyrra þrepi. Hefði með legu stíga mátt árétta betur tengsl milli svæða. Þróun húsgerða hafi tekist með ágætum svo og að samræma sjónarmið hagkvæmni og nýsköp- unar. Dómnefnd telur útfærslu ein- stakra húsgerða áhugaverða á öðr- um byggingarsvæðum. Húsagerð tillögunnar í fyrsta sæti. Fyrirkomulag þykir gott í aðalat- riðum. Lengi hafa verið uppi hugmyndir um að efna til hugmyndasam- keppni um félagslegar íbúðir þar sem lögð yrði áhersla á góðar og hagkvæmar íbúðir og samþykkti borgarráð að efna til slíkrar sam- keppni á miðju árinu 1991. Fá átti fram hugmyndir um byggingu 150 félagslegra íbúða í Borgarholti II og voru niðurstöður samkeppninnar kynntar skömmu fyrir jól. Hilmar Guðlaugsson formaður Húsnæðis- nefndar Reykjavíkur telur að nefnd- in hafi fengið út úr samkeppninni það sem stefnt var að, þ.e. vandað- ar og góðar íbúðir sem verði hag- kvæmar í framleiðslu. Hafdís Hafliðadóttir arkitekt var formaður dómnefndar og segir hún margt athyglisvert hafa komið fram í tillögunum. Ljóst sé að ekki verði nema hluti þess nýtanlegur til skipulags og bygginga félagslegra íbúða en margt hljóti að geta nýst við byggingar almennra íbúða. Því ættu skipulagsyfirvöld og verktakar að geta sótt efnivið og hugmyndir til arktitektanna og annarra þeirra sem þátt tóku í samkeppninni. Alls standa nærri 150 manns bak við tillögumar 37, arkitektar og nem- ar, landslagsarkitektar, innanhúss- arkitektar, verk- og tæknifræðing- ar, byggingameistari, blaðamaður og ýmsir aðstoðarmenn. Sem fyrr segir áttu arkitektarnir Þorsteinn Helgason og Hörður Harðarson tillöguna sem lenti í fyrsta sæti, í öðru sæti lenti tillaga arkitektanna Sigurðar Halldórsson- ar, Sigbjöms Kjartanssonar, Hans- Olav Andersen og Sigríðar Magnús- dóttur en aðstoð við módelsmíði veitti Edda Einarsdóttir arkitekt. Dómnefndin telur þessar tvær til- lögur uppfylla á sannfærandi hátt markmið samkeppninnar um ný- sköpun og hagkvæmni í heildar- lausn. Þremur næstu tillögum var síðan raðað í 3. til 5. sæti og segir dómnefnd að þar sé að finna áhuga- verðar lausnir á einstökum þáttum viðfangsefnisins. Herslumun vanti hins vegar á að heilarlausn þeirra uppfylli væntingar og sá dómnefnd ekki ástæðu til að gera upp á milli þeirra með því að velja eina fram yfir aðra í þriðja sæti. Ákveðið var að skipta verðlaunafénu, 5,5 millj- ónum króna, jafnt á milli allra þátt- takenda í síðara þrepinu. Þrjár til- lögur til viðbótar voru valdar sem athyglisverðar og taldi dómnefnd þær hafa komið sérstaklega til greina í annað þrep samkeppninnar. í umsögn dómnefndar um tillög- una í fyrsta sæti eftir fyrra þrep samkeppninnar segir að skipulag byggðar sé í aðalatriðum vel leyst, gatnakerfi sé einfalt, lega göngu- stígakerfis rökrétt en vægi ein- stakra stíga og torga þarfnist nán- ari skoðunar. Tillagan sýni marg- víslega möguleika í uppbyggingu húsa sem þarfnist einföldunar í nánari úrvinnslu. í umsögn eftir síðara þrepið segir að höfundi hafi á jákvæðan hátt tekist að vinna úr ábendingum dómnefndar, gatna- og gangstígakerfi hafi verið ein- faldað og úrfærsla torgs og að- lægra opinna svæða sé með ágæt- um. Fyrirkomulag íbúða sé gott í aðalatriðum, innra skipulag eldhúss og baðs þarfnist frekari úrvinnslu en uppfyllt sé krafa um samsetn- ingu og hámarksstærð íbúða þótt útbyggingarmöguleikar tillögunnar væru ekki nýttir. Telur dómnefndin tillöguna uppfylla samspil nýsköp- unar og hagkvæmnissjónarmiða og geta orðið hvata til jákvæðra fé- lagslegra samskipta og betra mann- lífs og mælir með útfærslu hennar í meginatriðum á öllu samkeppnis- svæðinu. í umsögn um síðara þrep tillög- unnar í öðru sæti segir dómnefnd að náðst hafi skemmtileg tengsl milli raðhúsabyggðar í Vestursvæði Síðara þrep tillögunnar í fyrsta sæti eftir þá Þorstein Helgason og Hörð Harðarson. Síðara þrep tillögunnar í öðru sæti í samkeppninni um félagslegar íbúðir í Borgarholti II í Reykjavík. Gámastöóvar Sorpu Fyrírtælij iiin er boölö lilippikoiT Afgreiöslutíma breytl STJÓRN Sorpu hefur samþykkt breytingar á gjaldtöku fyrir sorp frá og með 16. janúar 1993. Til að spara fyrirtækjum sporin hefur verið ákveðið að taka upp sérstök klippikort sem gilda í sex skipti. Þá hefur afgreiðslutíma gámastöðvanna verið breytt og eru þær opnar milli kl. 13 til 20átímabilinu 1. októbertil 14. apríl enfrá 15. apríl til 30. september frá kl. 13 til 22. Ennfremur verða gáma- stöðvar lokaðar til skiptis einn dag í viku um óákveðinn tíma. Helsta breyting á gjaldskrá er sú að lágmarksgjald fyrir úr- gang til móttökustöðvarinnar í Gufunesi hefur verið fellt niður, segir í frétt frá Sorpu. Þar með lækkar gjaldið fyrir smæstu far- mana, þar sem verðlag verður mið- að við þyngd. Eftir sem áður fer kílógjald stiglækkandi því stærri sem farmurinn er. Þá hefur verið ákveðið að frá og með 16. janúar greiði fyrirtæki fyr- ir losun úrgangs á gámastöðvum en þær eiga fyrst og fremst að þjóna almenningi. Hefur komið á óvart hvað fyrirtæki hafa sótt í þessa þjónustu í stað þess að koma með úrganginn í móttökustöð Sorpu. „Til að mæta þessari þörf og spara fyrirtækjunum sporin hefur verið ákveðið að fyrirtæki megi til reynslu losa úrgang á gámastöðv- um gegn greiðslu fastagjalds fyrir hveija losun. Gjaldið verður 1.750 krónur með virðisaukaskatti en ekki verður hægt að borga fyrir einstaka losanir. Þess í stað verða seld sér- stök klippikort á skrifstofu SORPU í Gufunesi sem gilda fyrir sex skipti.“ KAUPA FASTEIGN ER ÖRUGG FJÁR- FESTING if Félag Fasteignasala

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.