Morgunblaðið - 10.01.1993, Page 2

Morgunblaðið - 10.01.1993, Page 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ SÚNNUDÁGUR 10. JANÚAR 1993 í sigkatli suður á Azoreyjum með 500 metra háum snarbröttum börmum í kring er nokkur þúsund manna byggð. Þarna er eldgosahætta og skiptir vöktun og aðvörunartími því gífurlegu máli. Aðvörunum eldgos í beinni skjáútsendingu Viðtal við Hörð Halldórsson rafeindatæknifræðing Línuritið sýnir hallamælingar i Kröflu þegar síðasta gosið varð haustið 1984. Fyrst má sjá hvernig jörðin þandist og hækkaði, þar til þensl- an féll skyldiiega niður fjórum tímum áður en byrjaði að gjósa. Það er aðvörunartlminn. eftir Elínu Pólmodóttur í HUGUM þjóðar, þar sem eldgos eru tíð og má eiga von á þeim hvenær sem er, verða eldfjöll viðsjárverðir gripir sem betra er að hafa gætur á. Mögu- leikamir á eldfjallavöktun hafa aukist griðarlega á fáum árum þegar nú er hægt að beita öllum þeim aðferðum sem nútíma- töivutækni býður upp á ásamt þekkingu manna á jarðeðlis- fræði og jarðfræði. En vöktun eídfjalla byggist einmitt á sam- hæfingu allra þessara þátta. í Norrænu eldfjallastöðinni hef- ur í fjöldamörg ár verið unnið að þróun vöktunaraðferða sem miða að því að styrkja öryggi umsagna um aðsteðjandi vá og jafnframt hefur þar verið hann- að vöktunarkerfi sem tryggir að upplýsingar frá fjarlægum sjálfvirkum mælitækjum séu ætíð tiltækar í töivukerfi stofn- unarinnar. Markmiðið er að vís- indamaður geti fengið skilaboð um boðtæki sem gefur frá sér hljóðmerki og sýnir samtímis stafræn skilaboð er gætu verið forboði eldgoss. Það er Hörður Halldórsson, rafeindafræðing- ur á Norrænu eldfjallastöðinni, sem þróar tæknina og stendur vaktina. Við tökum hann tali og viljum vita meira um þessa galdra. E' ldfjöll éru vöktuð í tvennum tilgangi. Vöktunin veitir irs vegar upplýsingar, sem koma að gagni til auk- ins skilnings á innri gerð og atburða- rás í rótum eldstöðvarinnar. En vökt- unin er líka þjónusta við samfélög sem búa við ógn af völdum eld- virkni. Fyrri þátturinn gerir ekki kröfu til skjótrar úrvinnslu gagna, en þjónustan við samfélagið gerir hins vegar kröfu til þess að nothæf- ar upplýsingar séu ætíð fyrir hendi án fyrirvara, enda geta mínútur skipt máli þegar um aðgerðir al- mannavama er að ræða, eins og íslendingum er betur ljóst en flestum öðrum. Á margskiptum tölvuskjá í Nor- rænu eldfjallastöðinni sýnir Hörður Halldórsson mér hvemig ástandið er á fjórum eldfjallasvæðum. Skráð- ar mælingar birtast þar á skjánum í beinni útsendingu. Ekkert sérstakt er að gerast, en ef það væri má með handtaki velja eina myndina og stækka hana til frekari skoðunar og samanburðar. En hvaða linurit eru þetta sem birtast á skjánum? Hörður Halldórsson útskýrir það. Fjögurra stunda aðvörun „Vöktun eldQalla byggist m.a. á hallamælingum, en þær em fólgnar í því að mæla landris, þ.e.a.s. hvem- ig jörðin þenst út undan kvikunni sem safnast saman í svokölluðu kvikuhólfí, rétt eins og þegar blaðra þenst út _við að meira lofti er blásið í hana. í Kröflueldum 1975-1984 urðu menn margs vísari um hegðun þeirrar eldstöðvar og það voru ein- mitt atburðir þar sem urðu hvatinn Hörður Halldórsson að koma fyrir hallamæli suður á Azoreyjum, sem getur sent aðvörun í Norrænu eldfjallastöðina í Reykjavík. Halldór Ólafsson aðstoðar hann. að þróun þessarar mælitækni. At- burðarásin var svo hröð að venjuleg- ar landmælingaaðferðir voru ein- faldlega of tímafrekar til að hægt væri að átta sig á gangi mála, auk þess sem þær vom allt of kostnað- arsamar. Hallabreytingarnar eru mældar í tvær stefnur, þ.e.a.s. í norður-suður og austur-vestur, en það er nauðsynlegt til að staðsetja svæðið sem er á hreyfingu. Forboði eldgoss er þegar kvikan brýst út úr kvikuhólfinu. Þá sígur yfírborðið vegna þess að þrýstingurinn á það minnkar og tíminn sem það tekur kvikuna að bijóta sér leið upp á yfir- borðið er sá tími sem við höfum til aðvömnar. Aðvörunartíminn í Kröflu hefur verið allt að fjómm klukkustundum. Það er athyglisvert að vegna þessar- ar mælitækni hefur ekkert af 9 eld- gosum Kröflu komið á óvart. Þegar svo gosið rénar fer jörðin að tútna út aftur. Sjáðu,“ segir Hörður. Og mikið rétt, þarna má sjá svona at- burð á meðfýlgjandi línuriti úr halla- mælingum úr síðasta gosinu í Kröflu haustið 1984. Nútíma aðferðir til að gefa umsögn um líkur á eldgosi byggja á samanburði gagna frá mælitækjum sem í sífellu gefa upp- lýsingar um skjálftavirkni, jarð- skorpuhreyfmgar og efnasamsetn- ingu vatns og lofttegunda. Allar upplýsingar verða að liggja fyrir á einum stað um leið og atburðirnir gerast. Til að koma þessu í fram- kvæmd þarf að nýta möguleika tölvu- og boðskiptatækni til sjálf- virkni. „Þessa sjálfvirku eldfjallavöktun höfum við verið að þróa og nú getum við fylgst með mörgum eldvirkum svæðum á einum tölvuskjá,“ segir Hörður. Hann sýnir mér lítið boð- tæki sem hann er með í vasanum, sem hægt er að láta aðvara með hljóðmerki og stafræn- um boðum. ÖIl þessi tækni hefur verið þró- uð á staðnum, á Nor- rænu eldfjallastöðinni, og aðlöguð íslenskum aðstæðum. Hörður tekur fram að hann hafi sjálfur ekki komið að þessu fyrr en í kjöl- far Kröfluelda og hafi því aðallega séð um sjálfvirkni kerfísins. Ymsir hafí auðvitað lagt hönd á plöginn, m.a. þeir Karl Pálsson rafeindafræðingur og Halldór Olafsson rennismiður, starfs- menn stöðvarinnar. Nú er búið að setja þetta vöktunarkerfi upp á fjórum stöðum, þ.e. í Kröflu, í Vestmanna- eyjum, úti á Azoreyjum og nýlega var það sett upp í Lúxemborg, í svonefndu European Center for Geo- dynamics and Seismology. Þar er rannsóknastöð í stjömufræði, Obser- vatoire Royal de Belgique. Þessi stofnun hefur rannsóknaaðstöðu í gamalli kalknámu í Lúxemborg, þar sem aðstæður til tækjaprófunar eru eins og best gerist í heiminum. Þarna er verið að sameina kraftana á sviði eldfjallavöktunar á svæði Evrópu- bandalagsins. „Við komum inn í þetta samstarf, leggjum til okkar þekkingu og tækni og fáum auðvitað ýmislegt á móti,“ útskýrir Hörður. „Þetta samþróaða vöktunarkerfi á síðan að reyna að setja upp víða í Evrópu. Nú eru t.d. í hópnum Ítalía, Frakkland, Lúxemborg, Bretland, Belgía, Portúgal og Spánn. Við get- um fylgst með kerfinu í Lúxemborg á tölvuskjá hér í stofnuninni eins og áður er sagt. Það eru nánast engar hreyfingar í umhverfínu þar, en áhrif tunglsins á jörðina eru auðmælanleg og koma greinilega fram sem hreyf- ing upp á nokkra tugi nanometra. Við spyg'um svolítið nánar út í tæknina. Á hveijum mælistað er örtölva, sem les af ýmsum skynjur- um. Þessi örtölva getur unnið eins og sjálfstæð eining, sem safnar upp- lýsingum og geymir þær í tölvunni, auk þess sem hún sendir upplýs- ingamar stöðugt frá sér á tveggja mínútna fresti. Örtölvan inniheldur alltaf mælinganiðurstöður síðustu sjö mánuða og ef þörf er á er hægt að fara á staðinn og sækja þær. Hörður er spurður hvort íslenskt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.