Morgunblaðið - 10.01.1993, Síða 4

Morgunblaðið - 10.01.1993, Síða 4
4 B MORGUNBLAÐÍÐ SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1993 Norræna cldfjallastöðin vaktar eldfjöll fjær og nær Norræna eldfjallastöðin er til húsa á efstu hæð jarð- fræðahússins á Háskólæ lóðinni. Guðmundur Sig- valdason, sem veitt hefur stöðinni forstöðu frá upphafi, staðfestir að þetta húsnæði sé það eina sem ís- lendingar leggja til stöðvarinnar, 200-300 fermetrar fyrir um 20 manna starfslið. „Þetta hefur verið okkar vandamál og við höfum reynt í 15 ár að fá úr því bætt. Það mál er nú í meðförum hjá ráðuneytinu," segir Guðmundur. Hann bendir á að Norræna eldQallastöðin sé út- flutningsstofnun, veiti 60 milljónum á ári í erlendum gjaldeyri inn í ís- lenskt efnahagslíf. „Það er okkar framlag," segir hann. Við það má bæta að allir fastráðnir starfsmenn, 12 talsins, eru íslendingar. Til við- bótar koma svo ýmiskonar rann- sóknaverkefni sem tengjast eldvirkni á ýmsan hátt. Stöðugildin eru 17 '/2 og að auki alltaf fleiri að störfum, gestir og vísindamenn sem veitt er vinnuaðstaða. Ein þekktasta norræna stofnunin En hvað liggur að baki því að Norðurlöndin kjósa að reka eldfjalla- stöð á íslandi? Hlutverk stöðvarinnar er skilgreint innan ramma norræns samstarfs á þann veg að þar sem um sé að ræða sérstaka þekkingu eða náttúrufræðilegar aðstæður skuli Norðurlöndin standa sameigin- lega að málum í þeim tilgangi að verða gjaldgeng í alþjóðlegum sam- skiptum. Sem dæmi má nefna tvær stofnanir, Nordita-kjamorkueðlis- fræðistofnunina í Kaupmannahöfn, sem byggir á framlagi Nielsar Bohrs. Hins vegar Norrænu eldfjallastöðina í Reykjavík, sem nýtir sér hinar hagstæðu jarðfræðilegu aðstæður á íslandi til þess að gera þessi lönd gjaldgeng á því sviði í alþjóðlegu samstarfí. Þá er eðlilegt að velta fyrir sér hvemig hafí til tekist í 20 ár. Þar má vitna í hið virta alþjóðlega tíma- rit Nature, sem gerði úttekt á rann- sóknasviði norræns samstarfs. Nið- urstaða blaðsins var sú að aðeins tvær stofnanir af þessu tagi séu þekktar utan Norðurlanda, NORD- VOLK eða Norræna eldfjallastöðin og NORDITA í Kaupmannahöfn. Hvert er þá viðfangsefni Norrænu eldfjallastöðvarinnar? „í fyrsta lagi að veita jarðfræðingum á Norður- löndum aðstöðu til rannsókna. Jarð- fræðirannsóknir á Norðurlöndum beinast af eðlilegum ástæðum mest að gömlu bergi, en berg í Skandin- avíu er að stómm hluta orðið til vegna eldvirkni. Hér á Islandi geta þeir séð hvemig þetta berg myndað- ist í árdaga og em því betur í stakk búnir til að skilja jarðsögu heima- lands síns. Við höfum fímm styrk- þega á hveiju ári. Þetta fólk hefur yfirleitt lokið embættisprófí og er annaðhvort að vinna að rannsóknum á viðfangsefnum til doktorsprófs eða em nýbakaðir doktorar. Á þessum 20 ámm höfum við haft 56 styrk- þega. Meðal dvalartími þeirra hér er tvö ár“, segir Guðmundur. í öðm lagi em stundaðar gmnn- rannsóknir, sem auka skilning á þróun og eiginleikum bergkviku í iðrum jarðar og þeim kröftum sem leiða til þess að hraun brýst upp á yfírborðið. Hluti af þeim rannsókn- um erú þess eðlis að nauðsynlegt er að gera sífelldar eða síendurtekn- ar mælingar á völdum eldstöðv- um.„Þótt eldur sé ekki sýnilegur þá em eldstöðvarnar lifandi," segir Guðmundur. „Mælitækin fylgjast sí- fellt með ástandi eldfjallsins og vakta hegðun þess. Norræna eld- fjallastöðin hefur í mörg ár unnið að þróun slíkrar mælitækni bæði varðandi hönnun nýrra mælitækja en ekki síður með það í huga að nýta boðskiptatækni til að koma nið- urstöðum frá íjarlægum og dreifðum mælitækjum á einn stað með sem skjótustum hætti. Þessi þáttur starf- seminnar fellur undir það sem við viljum kalla hagnýta jarðeldafræði, en hagnýt markmið em ekki síst þau að þjóna samfélaginu með því að segja til um aðsteðjandi vá og finna leiðir til að búa í sæmilegum friði við náttúm eldvirkrar jarðar.“ í umræðum okkar um þetta atriði kemur í ljós að Norræna eldfjalla- stöðin hefur í raun engum skyldum að gegna hvað varðar vöktun ís- lenskra eldfjalla. Raunar hefur engin stofnun á Islandi lagalegar skyldur í þessu efni. Hins vegar em stofnan- ir á íslandi skyldar að veita Al- mannavömum ríkisins allar fyrir- liggjandi upplýsingar sem að gagni mega koma, en það er fmmkvæði og rannsóknaáhugi stofnana og ein- staklinga sem ræður því hvaða upp- lýsingar em til á hveijum tíma. Rannsóknir tengdar vöktun eld- fjalla em þó aðeins hluti af starfi stofnunarinnar. Kjami starfsins er umfangsmiklar gmnnrannsóknir á innri kröftum jarðar og gengi stofnunar- innar á alþjóðlegum vettvangi er alfarið undir því komið hvort við emm virk- ir þáttakendur í sífelldri umræðu um forvitnilegar vísindalegar spurning- ar. Sú umræða fer fram í alþjóðleg- um tímaritum og stofnunin hefur gefíð út á annað hundrað greina á þeim vettvangi. Öflugt alþjóðastarf „Á árinu 1984 var gerð fagleg úttekt á stofnuninni og fengnir til þess alþjóðlegir sérfræðingar. Nið- urstaða þeirra var mjög jákvæð og tillögur þeirra hnigu allar að því að auka starfsemi stofnunarinnar. Efst á óskalista þeirra var nýtt húsnæði, en auk þess vildu þeir fjölga stöðum Guðmundur E. Sigvaldason jarð- fræðingur og auka tækjakost. Norræna ráð- herranefndin gerði hvomtveggja að fjölga stöðum og veita fé til tækja- kaupa, en íslenska nkið hefur enn ekki séð sér fært að útvega stofnun- inni viðunandi húsnæði. Þrátt fyrir góðan tækjakost eru samt mörg tæki það dýr og frek á rekstrarfé að við teljum hagkvæmara að leita samvinnu við erlenda háskóla sem hafa yfir slíkum tækjum að ráða. Þetta em einkum tæki til mjög sér- hæfðra efnagreininga, en samstarfs- verkefnin skapa náin tengsl við stofnanir í Evrópu og Bandaríkjun- um.“ Annað, sem hefur treyst tengslin út á við eru Alþjóðasamtök eldfjalla- stöðva, sem Guðmundur veitti for- stöðu í 10 ár. Þetta em samtök 40-50 eldfjallastöðva um allan heim, sem hafa það að markmiði að efla sameiginleg áhugamál og veita gagnkvæman stuðning, einkum ef illa búin stofnun þarf að gefa um- sögn um aðsteðjandi vá. Norræna eldfjallastöðin hefur með árunum þurft að sinna nokkrum slíkum mál- Viðtal við dr. Guðmund Sig- valdason, forstöðumann Norrænu eldQallastöðvarinnar um, einkum í Suður-Ameríku og Afríku, en þar að auki hefur stofnun- in staðið að skipulagningu nám- skeiða í ýmsum heimshlutum. Um- fangsmesta verkefnið af þessum toga sem Eldfjallastöðin hefur feng- ist við er á Azoreyjum, þar sem sett var upp vöktunarkerfi hliðstætt því sem þróað var í tengslum við Kröflu- elda. Nánar er farið út í þann þátt í meðfylgjandi viðtali við Hörð Hall- dórsson. Askja sígur og hitnar Guðmundur segir að enda þótt verkefnin sem bíða úrlausnar séu mörg og áhugaverð þá megi ekki dreifa kröftunum um víðan völl. Eld- fjallastöðin reyni að beina kröft- unum að ákveðnum vel skilgreindum viðfangsefnum. Starfíð beinist eink- um að gosbeltinu norðan Vatnajök- uls til að auka þekkingu á eldvirkni þar sem jarðskorpan gliðnar á fleka- mótum. Þá vaknar spurningin hvort nokkuð nýtt hafi komið fram. Guðmundur segir að mjög margt sé nú betur þekkt á sviði bergfræði, jarðeðlisfræði og jarðsögu þessa svæðis. Niðurstöður mælinga á hreyfíngum jarðskorpunnar á þessu svæði bendi til þess að Kröflusvæðið sé smám saman að komast í jafn- vægi eftir Kröfluelda. Einhver ókyrrð er í Öskju. Þar sígur botn öskunnar um 10 sentimetra á ári og merki eru um aukinn jarðhita. Eins má nefna að rannsókn á Herðu- breið sýnir að það mikla fjall er myndað í mörgum gosum á mjög löngum tíma, andstætt því sem kennslubækur segja. Að lokum er Guðmundur beðinn um að líta til framtíðar. Hann segir: „Framtíðarsýn mín er sú að svo fremi sem stofnunin fái að starfa áfram í svipuðu formi sem nú er þá verður aldrei skortur á verkefnum. Tengslin við Háskóla íslands hafa alltaf verið traust, en ég er mjög hlynntur því að stofnunin tengist Háskóla Islands með formlegum hætti og held raunar að það sé tíma- spursmál hvenær það verður. Stofn- unin stendur framarlega á sínu sviði í heiminum og hefur allar forsendur til að stækka og færa út kvíarnar. Forsætisráðherrar Norðurlanda hafa tekið ákveðið frumkvæði í endur- mati og endurskipulagningu norr- æns samstarfs og þeir ieggja til ali samvinna landanna á sviði menning- ar og vísinda verði stóraukin. Við það bind ég miklar vonir. SJÁNÆSTUOPNU Styrkþegar rannsaka fjöll og eldvirkni í Mývatnssveit UNGIR MENN sitja við tæki og tölvuskjái í Norrænu eldfjallastöð- inni. Það eru tveir af styrkþegunum, en stofnunin veitir á hverjum tíma fimm norrænum vísindamönnum rannsóknaaðstöðu. Þótt báðir beini sjónum sínum norður í Mývatnssveit þá eru þeir með mismunandi viðfangsefni. Danski jarðfræðingurinn Henrik Schiell- erup stundar rannsóknir á basalti Bláfjalls og íslenski jarðfræðing- urinn Kristján Jónasson er að vinna doktorsverkefni um líparítið á Kröflusvæðinu. Ekki eru þó allir núverandi styrkþegar að skoða bergmyndanir, því sænskur jarðeðlisfræðingur hefur verið að mæla og skoða gerð jarðskorpunnar í Oxarfirði og skorpuhreyfing- ar á Reykjanesi og annar finnskur að skoða ganga og sprungur á Dalvíkurmisgenginu á Tröllaskaga, þar sem gætir jarðskjálfta- virkni. eir Henrik Schiellerup og Kristján Jónasson hafa í tvö sumur verið að safna efni í Mývatnssveitinni og stundum fylgst að norður, þótt þar vinni hver að sínu. Krist- ján kveðst skoða líparítið í Kröflu- eldstöðinni, efnagreina og steind- argreina það til að fínna út hvern- ig súrt berg myndast í megineld- stöðvum á Islandi. Henrik Schiell- erup, sem er búinn að vera hér í hálft annað ár, kveðst vinna í Blá- fjalli, sem er stapi, og er þar að skoða örsmáar innlyksur í smásæj- um kristöllum í basaltinu. Kristall- inn getur lokað aðskotahluti inni og varðveitt þá óbreytta þótt um- hverfi kristallsins breytist. Þannig gefa innlyksurnar upplýsingar um fyrra umhverfí og segja hluta hor- finnar sögu. Bláfjall er gríðarstórt íjall, 1200 m hátt og líklega 9 kúbikmetrar, . og kvaðst Henrik vera að fínna út hvort það sé mynd- að úr einu gosi eða fleirum og úr hvaða kviku það sé komið. Þá liggur beint við að spyija hvers þeir hafi orðið vísari. Kristján kveðst hafa fundið út að súra berg- ið í Kröflu er lágmarksbráð úr basísku bergi í eða við kvikuhólfið þar undir. „Þetta basíska berg get- ur verið tvennskonar. Annars vegar ummyndað eldra basalt, sem er hitað upp, og hins vegar basaltinn- skot sem er næstum storknað. Um það hvernig súrt berg myndast Morgunblaðið/Þorkell Jarðfræðingarnir Henrik Schiellerup og Kristján Jónasson við rannsóknir sínar í Norrænu eldfjallastöðinni, þar sem'þeir eru styrkþegar. hafa aðallega verið tvenns konar kenningar. Annars vegar að það sé bráð úr skorpunni eða afgangs- vökvi eftir storknun. Hins vegar er svokölluð„kristaldiffrun“. Úr basaltkvikunni falli steindir jafnt og þétt, svo að kvikan sé stöðugt að breytast úr basalti í ísúra kviku og loks í súra kviku. Þetta hefur lengi verið umdeilt og þá líka í Kröflu. Mínar rannsóknir falla að því fyrrnefnda, að það sé bráð,“ segir Kristján, sem hefur unnið að þessu verkefni í hálft annað ár og reiknar með hálfu öðru ári í við- bót, sem er hámarkstími styrkþega við eldfjallastöðina. Hvað gagnsemi snertir kveður hann þetta geta hjálpað til við túlkun á því hvernig kvikuhólfið er uppbyggt og hvað sé að gerast þar. Hvað Bláfjall snertir sagði Hen- rik Schiellerup sína niðurstöðu að bergið komi úr mismunandi kviku- þröm á miklu dýpi. „Það segir okk- ur hvers konar kvika er undir sprungubeltinu á íslandi og þá hvers konar gosefni kemur upp úr möttlinum“, útskýrir hann. Þau ferli sem hann rannsakar fara fram á meira dýpi en Kristjáns eða á 10-15 km dýpi. Hann er semsagt að leiða líkur að uppruna og þróun- arsögu þeirrar berggerðar á Mý- vatnssvæðinu sem héfur tekið hvað minnstum breytingum á leið sinni úr möttlinum. „Eg fann í þessu fj'alli tvenns konar kviku, sem mynduð er á sama tíma í löngu gosi á síðustu ísöld. Það segir okk- ur að mismunandi kvika sé til stað- ar í efri hluta möttulsins." Henrik Schiellerup verður hér þangað til í sumar. Hann reiknar með að fram- tíðar starfsvettvangur hans verði í Noregi, enda vinnur kona hans þar. Þeir Kristján og Henrik eru sam- mála um að ómetanlegt sé að fá svona tækifæri til að stunda rann- sóknir í námslok. Það hafi nýst þeim vel.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.