Morgunblaðið - 10.01.1993, Side 6

Morgunblaðið - 10.01.1993, Side 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 10. JANUAR 1993 UMHVERFISMÁL/G^/^r íþróttagrein verid þáttur umhverfisfrœbslu? Aðnááttum MEÐ VAXANDI áhuga á öllum þáttum umhverfismála hefur svo- kallaður ratleikur orðið æ vinsælli um alla Evrópu, en hann á sér nokkuð langa sögu. Að minnsta kosti hefur hann verið stundaður á Norðurlöndum frá lokum síðustu heimsstyrjaldar. Hér á landi hefur hann hins vegar lítið verið stundaður af almenningi, engin félög um hann stofnuð svo sem flestar aðrar íþróttagreinar. Þó er ratleikur viðurkennd íþróttagrein víða og stundaður af öllum aldursflokkum. Ástæðan fyrir því að ratleikurinn hefur ekki náð neinni út- breiðslu hér á landi er ef til vill sú að erlendis fer hann að mestu fram í skóglendi og þess vegna ekki þótt tiltækur hér. Nú er hins vegar svo komið að víða hérlendis eru all víðáttumiklir skógar orðnir svo vel vaxnir að þeir uppfylla öll skilyrði. Þá stendur varla á öðru en félagslegri skipulagningu og vettvangsvali svo við getum orðið virkir þátttakendur með öðrum þjóðum. Skipulagningu svæða er svo hagað eftir mismunandi þörfum og óskum þátttak- enda. Flestir munu sjálfsagt kjósa að líta á ratleikinn sem keppnis- íþrótt. Aðrir vilja hafa á honum minni hraða og fara hægar í sakirnar, jafnvel skipta áföngum á nokkra daga. INoregi til dæmis hafa verið stofnuð landssamtök fyrir þessa íþrótta- og útivistargrein og þau samtök eru síðan aðilar að alþjóð- legum samtökum sem gangast fyrir árlegum ráðstefnum og keppni þjóða í milli. Rúmlega 40 þjóðir eru í þess- um samtökum en fremstir í flokki eru þetta árið Norðurlandaþjóð- irnar (utan ís- lands) og Sviss- lendingar, sem urðu hlutskarpastir á síðasta móti alþjóðasamtakanna. Svo enn sé vitnað til Noregs má geta þess að um 80 þúsund manns taka árlega þátt í ratleikj- um sem skipulagðir eru á 300 stöð- um víðs vegar um landið, flestir með keppnisandann í fyrirrúmil í aðalatriðum er leikurinn í því fólginn að komast á milli merktra staða í skógi eða á víðavangi, fót- gangandi, á sem stystum tíma með kort af svæðinu þar sem inn á eru merktir áfangastaðimir. Þess utan hafa menn áttavita að styðjast við. Þegar svo kemur á hina merktu staði er settur sér- stakur stimpill á kort, sem þar er fyrir því til sönnunar að þátttak- andinn hafi farið þar um, áður en leitin hefst að þeim næsta. Og síð- an koll af kolli. Stundum getur vissulega verið erfítt að finna þessa merktu staði, en þá reynir á hæfíleikana til að lesa af kortinu og nota áttavitann rétt. En hvern- ig svo sem því er varið komast menn ekki hjá því að gefa um- hverfínu vandlega gaum - gróðri, dýralífí, vötnum, ám og lækjum - öllum staðháttum sem umhverfíð hefur upp á að bjóða. Leikurinn er í því fólginn að horfa, skoða, veita athygli - lesa í náttúruna eins og hún birtist. Eftir slíka yfirferð er viðkomandi margs fróðari. Hann veltir því ósjálfrátt fyrir sér hvaða öfl eru að verki á svæðinu og menn læra að gleðjast yfír grósku og þeirra fjölbreytni sem í um- hverfínu felst. Menn verða virkir náttúruunnendur. Reyndar er þessi útivistar-íþrótt ekki bundin við sumartímann. Hjá frændþjóðum okkar á Norðurlönd- um er leikurinn ekki síður iðkaður á vetrum þegar gefur snjó og þá fara menn um á skíðum. Þá ber líka margt athyglisvert fyrir augu. Græna byltingin svokallaða hef- ur aukið vinsældir ratleikja í Evr- ópu. Full ástæða virðist vera til að vekja áhuga á þessari íþrótta- grein líka hér á landi. í hita rat- leiksins kynnast menn landinu og umhverfínu um leið og þeir læra að komast leiðar sinnar með hjálp landakorts og áttavita. eftir Huldu Voltýsdóttur lÆUNiSFRÆDl/Hvemig voru heilbrigbismál á vegi stöddfyrir 115 árumf LýÖamdn og líknarár EFTIR AÐ þjóðskáldið séra Matthías yfirgaf Kjalnesinga og fluttist frá Móum var hann rit- stjóri „Þjóðólfs" í fjögur ár en tók síðan að sér sálusorgun Rangvellinga og settist að í Odda árið 1880. + Inýárskveðju ritstjórans 1878 standa þessar ljóðlínur: Gleðilegt nýár, göfuga þjóð! gleðilegt nýár, menn og fljóð! náðar-sól yfir silfurhár; sigurmark yfir gullnar brár; læknis-ár yfir lýða mein; liknar-ár yfir tár og vein En hvernig var umhorfs hér í heil- eftir Þórorin brigðismálum á Guðnoson Því herrans án þegar skáldið bað um læknis- og líknarár þjöð sinni til handa? Á öllu landinu voru að- eins tvö sjúkrahús, annáð í hðfuð- staðnum með pláss fyrir 14 sjúkl- inga, hitt á Akureyri með 8 rúm. Læknar voru fáir: í Reykjavík 3 (íbúar þá um hálft þriðja þúsund), en 17 á landinu Öllu (mannfjöldi nálægt 72 þús.). Ungbarnadauðí var enn mikill, oftast dóu á fyrsta ári einhvers staðar milli 250 og 300 af hveiju þúsundi lifandi fæddra og miklu fleiri þegar skæðar pestir gengu. Meðalaldur landsmanna vár ekki nema rúm 30 ár. Ingólfur Gíslason (1874-1951) síðast héraðslæknir í Borgarnesi rifjar upp í síðari minningabók sinni sem kom út 1950 að þegar hann var barn að aldri krafðist fólkið í landinu fleiri lækna „og Alþingi komst ekki hjá því að verða við þeirri sanngjörnu ósk og rétt fyrir aldamótin voru sett ný lög þar sem héruðunum var fjölgað ... Þetta voru ekki tómir keipar,“ segir höf- undur. „Landslýðurinn var hijáður og hrakinn af sjúkdómum, sulla- veiki var í algleymingi og það sama mátti segja um holdsveiki, barna- veiki, taugaveiki og lungnabólgu ... Þegar við gömlu læknamir lítum yfir fímmtíu ára skeið, þar sem við höfum verið með og haft okkar litla hlutverk, þá höfum við gleði af að sjá frámfarirnar og sigrana yfír þeim erkióvinum sem ógnuðu okkar fámenna og illa útbúna liði, þegar við voram að stíga fyrstu sporin á læknabrautinni. Sullaveikin og holdsveikin eru að fjara út, berkla- veikin á undanhaldi, áfás barna- veiki og taugaveiki stöðvuð að minnsta kosti í bili óg broddur lungnabólgunnar brotinn. Fjöldi kvenna dó áður af barnsförum, nú kemur það fremur sjaldan fyrir og flest börn sem fæðast komast til vits og ára.“ Þannig var þetta fyrir hálfri öld — vaxandi þjóð að rétta úr kútnum og safna sjálfstrausti, en áður var skyggnst um bekki í samfélagi sem dró fram lífið við frumstæð skilyrði og hafði barist við sult og óheftar sjúkdómsplágur frá ómunatíð. Með gróandi þjóðlífí og veraldlegu braut- argengi efldist mannúð og mann- björg; góðgjarnir atorkumenn komu KENNARAR: BJÖRN THORODDSEN - FRIÐRIK KARLSSON - ÞÓRÐUR ÁRNASON - TORFIÓIAFSSON JÓHANN ÁSMUNDSSON - BIRGIR BRAGASON - GUNNAR Þ. JÓNSSON - KRISTINN R KRISTINSSON (FRAMKVÆMDARSTJ.) ROKK - BIÚS • HEAVY METAL • JASS - COUNTRY ROKKABILLY • ÞJÓÐLÖG LAUGARNESVEGI 52 • Innritun á vornámskeib fer fram dagana 11.-25. jan. í síma 683553 að Laugarnesvegi 52 milli kl. 13.00 og 22.00. • Skipuleggjendur námsefnis og abal kennarar eru Björn Thoroddsen og Friðrik Karlsson. • Ab þessu sinni verbur bobib upp á kennslu i eftirfarandi stiltegundum: ROKK - BLÚS - HEAVY METAL - JASS COUNTRY - ROKKABILLY - ÞJÓÐLÖG. • RAFBASSALEIKUR Kennsla fyrir byrjendur og lengra komna i flestum stíltegundum. • 12 vikna námskeib. • Stúdíóupptaka í lok námskeibs. Nemendur skólans fá sérstakan nemendaafslátt í Hljóðfærahúsi Reykjavíkur. R E YKJAVI K U R • Undirbúningsnám fyrir FÍH Innritun í sima: I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.