Morgunblaðið - 10.01.1993, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 10.01.1993, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ -> r> r* , rt * r t »<ri r •> »• n R 10. JANUAR 1993 DÆGURTÓNLIST Elnar plötunni sóttinf Bless í blli Sykurmolarnir í Tunglinu. Ljóamynd/Björg Sveinsdóttir Bless í bili Erótísk ást FÁIR tónlistarmenn eru eins umdeildir og Prince. Það er ýmist að fólk þolir hann ekki eða dáir skilyrð- islaust og fyrir stuttu jós Prince olíu á þann eld með þrefaldri útgáfu á plötu sinni Love Symbol. Prince er frægur fyrir margt, þar á meðal vinnuþrek og afraksturinn hefur enda verið dijúgur og líklega gæti hann gefið út tvær til þijár breiðskífur á ári, hefði hann ekki annað að sýsla við eins og að reka hljóðver sitt, gera kvikmynd- ir, semja fyrir aðra og stýra upptökum, aukinheldur sem hann settist í stjóm Warner- útgáfunnar á síðasta ári. Prince hefur gert mikið út á ástina og þá erótíska ást, ólíkt Madonnu sem held- ur sig við hedóníska erótík. Það gat því ekki komið mörgum á óvart að hann skyldu kalla nýjustu plötur sína Ástartákn (Love Sym- bol), en sú var gefin út i þremur útgáfum, dónaút- gáfu, siðsamri útgáfu og lúxusútgáfu. Ástartákn þykir minna um margt á það besta sem Prince sendi frá sér á árun- um fyrir Purple Rain og hef- ur yfirleitt_ fengið afbragðs viðtökur. Á plötunni sýnir Prince að hann á ekki í erfið- leikum með að nýta sér nýj- ustu strauma í tónlist sama hvaða nafni þeir kallast, því þar bregður fyrir rappi og hipphoppi, sem krydd í Princefönkið og -poppið, og einnig bregður fyrir reggíi í fyrsta sinn á Princeplötu. Það má því ljóst vera að Prince er enn að bæta við sig í tónlist, ekki síður en í vinsældum. F«lK Morgunblaðið/Þorkell MBRIMROKKS VEITIN Rut+ hefur vakið verð- skuldaða athygli upp á síð- kastið. Fyrir stuttu bættist sveitinni nýr liðsmaður, Ámi Kristjánsson, og heldur Rut-t- fyrstu tónleik- ana eftir þá viðbót á fimmtudagskvöld í Gaukn- um. Húsið verður opnað kl. 22.00. Beinleið ú toppinn PLÖTUVERTÍÐ síðustu jóla var um margt merki- leg og þá helst fyrir það hve hún var dreifðari en áður og svipar í því til sölunnar fyrir síðustu jól. Útgefendur taka því líklega fagnandi að fleiri plötur bera sig í útgáfu en áður, en það þýðir á móti að topparnir eru ekki eins reisulegir og ver- ið hefur. Það bar og til tíðinda að í fyrsta sinn í áraraðir kom út plata sem seldist betur en plata frá Bubba Morthens, því plata KK Band seldist meira en Von Bubba. eftir Amo Matthíosson Plötusala um heim all- an hefur dregist saman á undanfömum árum og tónlistin farið halloka fyrir annarri afþreyingu. Þar ræður miklu að tónlistar- menn hafa -boðið upp á fátt nýtt, en einnig að gálga- fresturinn sem geisla- disksvæðingin hefur gef: ið er um það bil liðinn. í stað tónlistarinnar sækja í sig veðrið myndbönd, tölvuleikir og sitthvað fleira hátæknidót. Þessa sér og stað hér á landi, þar sem plötusala hefur dofnað þó hægar hafi farið en ytra. Ekki er þó hægt að draga of miklar ályktanir af sölunni í ár, því íslenskar plötur hækkuðu allmikið í verði á milli ára og reyndar hækkuðu sumir innflytj- endur erlendar plötur áður en gengisfellingin kom til. Eins og áður sagði var sala dreifðari að þessu sinr.i en oft áður, sem þýðir að fleiri plötur en áður báru sig og færri fóru á hausinn. Merkileg- ast var þó líklega að Kristján Kristjánsson og félagar hans i KK Band gáfu ráðsettum útgáfum langt nef og áttu sölu- hæstu plötu ársins sem þeir gáfu út sjáifir, en plata þeirra félaga seldist í 10.700 eintökum. Kem- ur þar margt til og ekki síst það að hvorug stórút- gáfan dreifði plötunni, en dreifmgin hefur verið erf- iðasti þjallinn fyrir þá sem eru að gefa út sjálf- ir, ekki síst þar sem lítil hvatning hefur verið fyrir útgefendur að dreifa af kappi plötum sem eru í beinni samkeppni við eig- in útgáfu. Japís dreifði Ljóemynd/Björg Sveinsdóttir Sigurvegarinn Kristján „KK“ Kristjánsson. Lgósmynd/Björg Sveinsdóttir Málamlðlun Sálin. Excelslor Nýdönsk. plötu KK Band og af aug- lýsingum að dæma hafa Japísmenn lagt töluvert Ljdsmynd/Björg Sveinsdóttir fé í kynningu á plötunni, sem skilaði sér í aukinni sölu. Það sem seldi þó plötuna fyrst og fremst var á tónlistin á henni var skemmtileg og fersk. Það er svo óhætt að spá þvf að fordæmi KK eigi eftir að vera vítamínsprauta fyrir þá sem gefa vilja út sjálfir, því ekki taka eins margir eftir þeim sem töpuðu gríðarlega á útgáfu um þessi jól. Plata Bubba Morthens, Von, var á svipuðu róli og plata KK, en hún átti það sameiginlegt með KK-plötunni að á henni var skemmtileg og fersk tónlist. Samkvæmt upp- lýsingu frá Steinum hf. seldist plata Bubba í 10.500 eintökum. í þriðja sæti varð plata Nýdan- skrar, Himnasending, sem seldist í um 8.000 eintökum. Plata Sálar- innar varð í §órða, en hún seldist í um 7.500 eintök- um, en plata Jet Black Joe fimmta, en hún sótti mjög í sig veðrið fram undir það síðasta og hefði líklega velt Sálinni ef hún hefði fengið tveggja til þriggja daga sölu til við- bótar, en þess má geta að upplagið þvarr rétt fyrir jól. Fall Sálarinnar frá fyrri plötum er all- nokkuð og sannar svo ekki verður um villst að málamiðlanir eru ekki söluvænlegar. Aðrar söluháar plötur voru „nið- ursuðuplatan11 Minningar 2, sem seldist í nálægt 6.000 eintökum, plata Diddúar, sem seldist í tæpum 5.000 eintökum og plata Stóru bamanna sem seldi9t í um 4.000 eintökum. Safplötur seld- ust vel eins og til að mynda Grimm sjúkheit, Reif í fótinn, Blóm og friður og Endurfundir. Nokkrar plötur fengu falleinkunn, flestar einkaútgáfur, og milljón- atap af þeirri útgáfu, en af tillitssemi við aðstand- endur verður þeirra ekki frekar getið hér. SYKURMOLARNIR héldu sína síðustu tón- leika að sinni, er sveitin lék í Tunglinu skömmu fyrir jól. Björk er nú flutt til Bretlands og aðrir Molar fást við sitthvað annað en Sykur- molana, þannig að bið verður á tónleikum hér á landi. Tónleikarnir í Tungl- inu voru fjölsóttir, en á undan Molunum léku Kolrössur og Rut+. Sykurmolarnir voru ekki í besta formi, enda Björk raddlaus að mestu, þó hún hafi látið sig hafa það að syngja heila tónleika, og út- setningar voru fyrir vik- ið all fijálslegar. Eins og áður sagði er Björk sest að í Bret- Aðrir Molar fást við sitthvað; Einar semur með Hilmari Erni, Þór undirbýr plötu með Sjón, Sigtryggur sinnir Bogomil Font, Magga nemur píanóleik og Bragi fæst við ritstörf. Ástsjúkur Prince landi að sinni, en von er á fyrstu smáskífunni af væntanlegri sóló- skífu hennar í næsta mánuði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.