Morgunblaðið - 10.01.1993, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 10.01.1993, Qupperneq 14
14 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1993 I sviósljósinu/ Sigrún Edda Bjömsdóttir hefur hlotið mikið lof fyrir frammistöðu sína sem hin síkvika Ronja ræningjadóttir í Borgarleikhúsinu Liprari og léttari Sigrún Edda Björnsdóttir situr ekki uppi með smákökur í dunkum eftir þessi jól. Henni gafst Iftill tími til jóla- undirbúnings, þaðan af síður köku- baksturs, þvíhún var löngum stund- um í Borgarleikhúsinu við æfingar á Ronju ræningjadóttur, sem frumsýnt var á annan íjólum. Gagnrýnendur og áhorfendur eru á einu máli um góða frammistöðu Sigrúnar, hún þykir lipur, ærslafull og krakkaleg í hlutverki hinnar barnungu Ronju án þess að vera nokkurn tíma kjánaleg. Slíkur leikur hefur útheimt þrotlausar æfingar að ógleymdri leikfiminni, þar sem sex kíló hafa runnið af leikkon- unni og myndu sjálfsagt fæstir slá hendinni á móti svo góðum árangri. eftir Urði Gunnarsdóttur Æ fingar á Ronju ræn- ingjadóttur stóðu allt fram á Þorláksmessu og frumsýningin var á annan í jólum, svo að Sigrúnu gafst óvenju lítill tími til jólahalds. „í leikhúsinu er áhorfandinn númer eitt og þess vegna eru sýningar um jólin, þegar fólk vill og getur farið í leikhús. Fyrir frumsýningu safnast alltaf upp ákveðin spenna, enda rúmlega tveggja mán- aða vinna lögð fyrir dóm áhorfenda. Frumsýningar eru ekki alltaf bestu sýning- arnar, sú spenna sem óneit- anlega fylgir frumsýningum hefur sína kosti og galla. Ég held til dæmis að önnur sýn- ing á Ronju hafi verið miklu betri, þá var hugurinn rórri og auðveldara að einbeita sér að því að leika. En munurinn á einstaka sýningum verður aldrei algjör, atvinnuleikar- inn býr yfir þjálfun og tækni, sem koma í veg fyrir að leik- ur hans sé langt frá því sem hann ætlaði sér og hefur æft.“ Sigrún Edda Björnsdóttir: Lét eins og vitleysingur í leikfiminni og léttist um sex kíló Frumsýninguna segir Sig- rún hafa verið blandna eftir- væntingu, ekki síður hjá leik- urum en áhorfendum. „Það var mjög ánægjulegt að finna þá einbeitingu sem þetta litla fólk í salnum bjó yfir og það kom mér svolítið á óvart, að þegar dramatíkin reis sem hæst í kyrrlátari atriðum, mátti vart heyra saumnál detta í leikhúsinu. Það er frábær tilfinning í 540 manna sal fullum af börnum sem oft vilja tjá sig upphátt við pabba og mömmu um hin ýmsu atriði sem fyrir augu ber.“ Ronja ræningja- dóttir er eftir sænsku skáld- konuna Astrid Lindgren og vel kunn flest- um börnum. Mikið er af nátt- úrulýsingum í bókinni og persónur með ævintýraleg- um blæ. „Leikgerðin er sög- unni trú og að mínum dómi mjög góð og ekki spillir skemmtileg tónlist. Engu var til sparað við uppsetninguna og er mjög ánægjulegt að svo miklu skuli vera kostað til við bamaleikrit. Bömin em kröfuharðir áhorfendur og eiga að fá það besta sem við höfum upp á að bjóða, jafnt í leikhúsi sem annars staðar. Þau em jú framtíðin og þá um leið framtíðará- horfendur okkar." Eins og flestir íslendingar þekkir Sigrún sögur Lind- gren vel. Og eitt af fýrstu hlutverkum hennar sem at- vinnuleikara, var Lína Lang- sokkur í Þjóðleikhúsinu, sem Þórhallur Ingvar Jónsson - Minning Fæddur 17. desember 1910 Dáinn 30. desember 1992 Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stn'ð. (V. Briem.) A morgun, 11. janúar, verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkjugarði ömmubróðir okkar, Þórhallur Ingvar Jónsson, sem lést 30. desember. Ingi, eins og hann var jafnan kall- aður innan fjölskyldunnar, fæddist á Vopnafirði 17. desember 1910 en bjó í Reykjavík allt frá tíu ára aldri. Hann var næstyngsta bam hjónanna Þómnnar Jóhönnu Óladóttur og Jóns Ingvars Jónssonar. Systkini Inga vom Guðjón, sem lést í bemsku, Oli Kristinn, búsettur í Seljahlíð í Reykjavík, Ingibjörg, sem lengst af bjó á Eskifírði en er nú búsett í Kópavogi, og amma okkar, Helga Jónína, sem búsett var í Reykjavík, en lést árið 1988. Sjómennska var ævistarf Inga, en hana stundaði hann í hartnær hálfa öld og dvaidi því oft langdvölum fjarri heimili sínu. Eftir að Ingi kom í land vann hann hjá Skeljungi. Hann kvæntist aldrei og var barnlaus, en var í heimili hjá Helgu ömmu og afa okkar, Agli Fr. Hallgrímssyni, allt til ársins 1987 er hann fluttist að Hrafnistu í Reykjavík. Fjölskylda ömmu og afa varð því ekki síður fjöl- skylda Inga. Hann hefur verið einn af hinum föstu punktum í lífí fjöl- skyldu okkar allt frá því að foreldrar okkar, Guðbjörg Egilsdóttir og Rób- ert Jóhannsson, hófu búskap og fram á þennan dag. Vart var svo minnst á ömmu og afa að Inga bæri ekki á góma, ef þau vom stödd einhvers staðar var sjálfsagt að Ingi væri þar líka. Þau þijú vom í hugum okkar systkinanna óijúfanleg heild og fyrir okkur var ekkert eðlilegra en að þau héldu saman. Ingi var okkur ekki þessi „venju- legi“ frændi sem fólk þekkir oft frek- ar af afspum en eigin raun, heldur var hann hluti af fjölskyldunni og átti sinn sérstaka sess innan hennar. Samband Inga við mömmu og pabba hefði vart getað verið nánara þó að um hans eigin dóttur og tengdason hefði verið að ræða og okkur reynd- ist hann jafn vel og ef hann hefði verið afí okkar. Hann bar hag fjöl- skyldunnar fyrir bijósti og fylgdist alltaf vel með því sem við tókum okkur fyrir hendur, jafnt í leik og starfí. Ingi var ekki allra, en þeir sem bám gæfu til að njóta vináttu hans áttu þar vin fyrir lífstíð. Hann bar umhyggju fyrir þeim sem hann átti samleið með gegnum tíðina og frændrækni var honum í blóð borin. I seinni tíð missti hann að vísu sam- band við marga þá sem hann um- gekkst áður fyrr, en hann gleymdi þeim ekki, heldur fylgdist með úr

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.