Morgunblaðið - 10.01.1993, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 10.01.1993, Blaðsíða 24
24 B MORGUNBLAÐIÐ VELVAKAIMPI SUNNUDAGUR 10. JANUAR 1993 Ast er... Með morgunkaffinu 10-5 ... að leika með hjartanu TM Reg. U.S Pat Oft.—all rights resarved ® 1992 Los Angeles Times Syndicate Mér hefur ætíð liðið illa í mikilli hæð ... Og hér er dálítið mál- verk fyrir fólk í 500 þúsund króna klassan- um... HOGNI HKEKKVISI EFm'tóTUR pésroe fWwjpttiMaMfr BRÉF TIL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 * EES og íslensk fiskvinnsla Frá Einari Birni Bjarnasyni: í EB er sjáyarútvegur flokkaður undir landbúnaðarmál, enda eru sjávarútvegsstofnanir þar ætíð deildir innan landbúnaðarstofn- ana. Á síðastliðnu ári numu sjávar- útvegsstyrkir EB 64 þúsund millj. króna, sem samsvarar 25% rekstr- arstuðningi. Auk þess er sjávarút- vegur yfírleitt stundaður á svæð- um sem njóta sérstakra þróunar- styrkja vegna hlutfallslegs hás atvinnuleysis_ og hlutfallslegra lágra tekna. Á þann hátt fær hann mjög mikla styrki, þ. á m. allt að 50% af stofnkostnaði nýrra fyrir- tækja. Auk þessa er framkvæmda- stjórn EB að setja í gang sérstakt þróunarverkefni fyrir sjávarútveg innan EB. Markmið þess er að gera sjávarútvegsfyrirtækjum inn- an EB kleift með sérstökum styrkjum að bæta svo fískverkun sína að hún standist nýja stranga heilbrigðisstaðla EB. Þessir staðl- ar eiga svo að taka fyrr gildi gagn- vart sjávarafurðum frá ríkjum ut- an EB, þ.e. sjávarútvegsfyrirtæki innan EB fá lengri aðlögunartíma að þessum reglum en sjávarút- vegsfyrirtæki fyrir utan EB. Allan þennan herkostnað mun íslensk fískvinnsla þurfa að borga úr eig- in vasa þrátt fyrir EES-aðild og á sama tíma að þurfa að búa við meiri rekstrarkostnað en keppi- nauturinn. V Slæm samkeppnisstaða íslenskrar fiskvinnslu Styrkjakefið skekkir svo sam- keppnisstöðu íslenskrar fisk- vinnslu að engin tollalækkun eða rekstrarhagræðing getur unnið þann mun upp. Þetta er þegar orðinn baggi á fiskvinnslunni, því hún keppir við erlenda fiskmark- aði um fiskinn og sú samkeppni hefur þrýst upp fískverði á inn- lendum fiskmörkuðum. Ef fisk- vinnslan borgar ekki hærra verð fýrir hráefnið en hún ræður við fær hún engan físk og ef hún gerir það þá safnar hún skuldum, því rekstrarkostnaðurinn er of hár til að dæmið gangi upp. í krafti þessara óréttlátu samkeppnisskil- yrða getur fiskiðnaðurinn innan EB boðið hærra verð fyrir físk á fískmörkuðum en innlend fisk- vinnsla. Engar fiskréttaverksmiðjur hérlendis Mér þætti gaman að kynnast þeim fískverkanda sem myndi frekar reisa fískréttaverksmiðju hérlendis þegar hann þarf áð borga allan tilkostnað sjálfur, t.d. þann kostnað sem felst í því að mæta hinum nýju heilbrigðisstöðl- um EB og þurfa að auki að borga óteljandi gjöld og skatta hérlendis þegar hann gæti t.d. reist hana í Portúgal og fengið helminginn af byggingarkostnaðinum greiddan í formi byggðastyrks og að auki alla þá framleiðslustyrki og allt hvað það heitir sem hann myndi fá frá landbúnaðarapparati EB. EES bætir ekki hag fiskvinnslunnar Það að fullyrða ofan í allt þetta að EES-aðild muni bæta hag ís- lenskrar fískvinnslu er svo alvar- leg vitleysa að engu tali tekur. Sá sem fullyrðir slíkt gerir sig annað- hvort sekan um mjög alvarlegan dómgreindarskort eða að viðkom- andi talar gegn betri vitund. Ég neita að trúa því að núverandi valdhafar viti ekki hvað þeir eru að gera og álykta því að þeir stefni leynt og ljóst að hruni íslenskrar fískvinnslu. í því ljósi verður líka skortur á raunhæfum aðgerðum til bjargar henni í núverandi vanda hennar skiljanlegur. Þeir vita að EES-aðild mun leiða til hruns ís- lenskrar fískvinnslu og reyna því ekki að bjarga því sem veðrur ekki bjargað. í mesta lagi grípa þeir til einhverra málamyndaað- gerða til að slá ryki í augu fólki sbr. fjármunina sem þeir tóku úr hagræðingarsjóði, enda segjast þeir vera nokkuð ánægðir með ástandið þó allt sé að hruni komið fyrir augunum á þeim. Þarf frek- ari vitnanna við? Hrun fiskvinnslunnar Nýlega var frystihúsinu á Skagaströnd lokað og í staðinn fyrir 3 togara sem höfðu landað afla í því keyptur stærðarinnar frystitogari. Þannig leggst full- vinnsla í landi smám saman af og sá hluti fískvinnslunnar sem getur farið fram úti á sjó flyst þangað. Afleiðingin verður íjöldaatvinnu- leysi, fólksflótti, búseturöskun og aðrar hörmungar. Hrun fískvinnsl- unnar mun hafa keðjuverkandi áhrif um allt þjóðfélagið. Endanleg afleiðing þessa getur orðið ríkis- og þjóðargjaldþrot. EINAR BJÖRN BJARNASON nemi í stjórnmálafræði, Brekkugerði 30, Reykjavík. Víkveiji skrifar þETTA SlPGÖ/nUl /MYNP! " Skiptar skoðanir á mönnum og málefnum setja svip á alla tíma, allar kynslóðir. Menn deila um allt milli himins og jarðar og verður á stundum heitt í hamsi, þótt deiluefnið sé dvergvaxið. Vík- veiji er engin undantekning frá þessum mannlega veikleika (eða styrkleika eftir atvikum). Eitt af því sem lengi hefur verið deilt um, og er ekki verra deiluefni en hvað annað, er síddin á kjólföld- um og pilsum kvenfólksins. Sú var tíðin, fyrir margt löngu, að pilsin struku gólf og gangbrautir, eins og sópar. Það þótti nánast guðlast þegar þau voru stytt dulítið svo sá í öklann! Þegar byltingin, sem birti ökla fagurra fóta, gekk yfir Islend- ingabyggðir í Vesturheimi, spurðu nokkrar ungmeyjar kímniskáldið Káinn hver skoðun hans væri á þessari nýju kjólfaldasídd. Svar hans bar framsýni vitni: Kæru dömur, kvað veit eg, karl, um pilsin yðar. En mér fínnst síddin mátuleg milli hnés og kviðar. Löngu síðar komu pínupilsin sem voru nánast hönnuð í stöku Káins, kímniskáldsins, sem enn lif- ir í kveðlingum sínum, beggja megin Atlantsála, þótt hann sé löngu gengin þangað sem klæðn- aður skiptir minna máli en í tára- dalnum. Þá er þrettándinn að baki og þar með jólin, hátíð ljóssins, sem styttir okkur skammdegið, biðina eftir birtu og vori. Sama gildir um áramótin og allt þeirra tilstand, þar með talið áramóta- skaup Ríkisútvarpsins, sem fyrr á tíð var hláturvaki hjá þjóðinni allri en er á stundum nú orðið sameigin- leg vonbrigði. Allt er þetta jóla- og áramótatil- stand liðið í aldanna skaut. Það er þó huggun harmi gegn, að dómi Víkveija, að framundan eru þorra- blótin, árshátíðir, karlakvöld og kvennakvöld og allrahanda uppá- komur mörlandans, sem gera eiga hregg og hríð vetrarins bærilegri, hvað sem líður kreppueinkennum atvinnu- og sálarlífs. Áramótaskaupið er sem stund- um áður umdeilt. Nema hvað? „Eina skaupið við þetta skaup var að kalla það skaup,“ sagði kunn- ingi Víkveija þegar hann hringdi á nýársdag til að óska Víkverjum bærilegs kreppuárs, annó 1993. „Það var várla von á því að þjóðin fengi hlátrasköll," sagði annar spakvitur (en trúlega timbraður) símnotandi. „Menn hlæja ekki við jarðarfarir," sagði hann, „og þetta var óhjákvæmilega útför áramóta- skaupsins." Yíkverja fínnst þessi nöldurtónn einum of „stjórnarandStöðu- legur“. Fyrr má nú rota en dauð- rota í hinum neikvæðu viðbrögð- um, enda voru engir skaupsbanar á skjárferð þetta gamlárskveld, heldur skrautklætt kampavínsfólk í húllumhæham. Vissulega hefði ekki sakað þótt hláturtaugar hefðu verið kitlaðar af meiri fagmennsku en að þessu sinni. En þess ber að geta að sitt hvað var bara takk bærilegt í ára- mótaskaupinu. Víkveiji brosti út í annað endrum og eins, vitandi um kampavínið í kæliskápnum og tikk- takkið í hornklukku stofunnar. Og það má ekki gleyma því að nirflar og niðurskurðarmenn hafa sjálfsagt sniðið skaupurum þröng- an útgjaldastakk, svo þeim hefur ekki verið hlátur í hug — staddir svona undir hnífsegg. Né því að aftur kemur vor í dal hláturdeildar Ríkisútvarpsins, eins og annarra harðbalasveita okkar ísa kalda lands. Það er sum sé svo að þegar komið er niður í botn einhvers öldu- dalsins, eins og okkar djúpvitru landsfeður myndu að orði komast, hvort heldur sem dalbotninn er á skopslóðum eða öðrum, liggur leið- in upp á við á nýjan leik. Þess vegna er rétt að bíða næstu ára- móta með bros í augum og forvitni- blandinni tilhlökkun. Við látum síðan Færeyingum eftir allt kreppufár, en næstur á dagskrá okkar er hákarlinn með helkældu namma-nammi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.