Morgunblaðið - 18.02.1993, Page 2
• \
Þá veistu svarið
Höf. Kling og Klang
Flytj. Ingibjörg Stefánsdóttir
Ó hve Ijúft er að lifa
Höf. Vmir
Flytj. Margrót Eír
Samba
Höf. SambaogSambó
Flytj. Katla Maria Hausmann
Bless, bless
Höf. Nætur-galinn
Flytj, Guðlaug Ólafsdóttir
Eg bý hér enn
Höf. Lilli klifurmús
Flytj. Ingunn Gylfadóttir
Hopp - abla - ha
Höf. Eróbikkían
Flytj. Eróbikkjan
Himinn, jörð og haf
Höf. Menn með mönnum
Flytj. Júlíus Guðmundsson
Eíns og skot
Hðf. Fuglinn fljúaandi
Flytj. Anna Mjöll Otafsdóttir
"T—....... .....
I roki og regni
Höf. Rudolf og Rumbolt
Flytj. Haukur Hauksson
Brenndar brýr
Höf. Garpur
Flytj. Ingunrt Gytfadótlir
2 B dagskrq
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1993
pá welstu swarlð
Samba
Níu dómnefndir
Sigurlagið verður valið af níu sjö-manna
dómnefndum, einni í hveiju kjördæmi, auk
sérnefndar sem situr í sjónvarpssal. Við val á
dómnefndarmönnum var þess gætt að aldurs-
og kynjadreifing væri jöfn. Þannig er fjöldi
karla og kvenna því sem næst jafn og í hverri
nefnd eru fímm menn eldri og tveir yngri en 21
ár. Hámarksaldur er 60 og lágmarksaldur 16 ár.
Sérnefndin gefur aðeins einu lagi stig
Sýslumaður á þeim stað þar sem dómnefndin sit
ur hefur eftirlit með störfum dómnefndar og fer
útreikninga hennar. Sérnefndin, sem situr í sjónvarps-
sal og er skipuð sjö mönnum sem allir tengjast
á einhvern hátt, gefur aðeins einu lagi stig en
nefndirnar gefa öllum tíu lögunum stig.
Söngurinn f beinni útsendingu
Lögin hafa öll verið tekin upp og verða upptökur af
hljóðfæraleik sendar út á laugardagskvöldið en söngvar-
arnir syngja í beinni útsendingu. Alls koma um 110
manns nálægt keppninni á laugardagskvöld í sjónvarps-
sal. Þar af eru söngvarar, hljóðfæraleikarar, laga- og
textahöfundar milli 40 og 50. Höfundur vinningslagsins
fær 250.000 krónur í verðlaun auk 500.000 króna til
að undirbúa lagið fyrir þátttöku í keppninni á írlandi
og ferða fyrir flytjendur, höfunda og annað föruneyti.
Hljómsveit sem aldrei spilaði
• Nokkur ný andlit eru meðal flytjenda laganna en
önnur hafa sjónvarpsáhorfendur séð áður. Ingunn
Gylfadóttir er eini söngvarinn sem flytur tvö lög í
keppninni og leikur Tómas Hermannsson á klassísk-
an gítar í báðum lögunum. í stuttu spjalli sagðist
Tómas vera ólærður og einu
reynsluna sem hann hefði
af spilamennsku hefði hann
öðlast í partýjum. Hann
hefði að vísu verið í hljóm-
sveitinni Börtum á Akureyri
en sú hljómsveit hefði aldrei
spilað neitt. „Við gáfum út
boli og gáfum öllum helstu
tónlistarmönnum landsins.
Með mér í hljómsveitinni
voru Jón Egill Gíslason,
Bjöm Þór Sigbjörnsson og
Borgar Magnason. Við vor-
um búnir undir frama á al-
þjóðlegum vettvangi og
skírðum hljómsveitina ensku
nafni, Sidebums. Við þóttum
efnilegir! Ég var létt-stress-
aður við upptökur í söngva-
keppninni en nú er það búið.
Það er bara meiriháttar
gaman að taka þátt í
þessu,“ sagði Tómas.
Ingunn var í tveimur
hljómsveitum
Ingunn vildi lítið gera úr
reynslu sinni af tónlistar-
fíutningi. „Ég var í stelpu-
hljómsveit fyrir mörgum áram
á Seyðisfirði og við komum
fram í Stundinni okkar einu
sinni. Þá var ég í hljómsveit í
Keflavík eitt sumar fyrir þremur
árum.“ Um þátttöku sína í
Söngvakeppninni sagði hún: „Ég
er spennt fyrir úrslitakvöldinu því
þá má ekkert klikka. Hljóðfærin eru
komin inn en söngurinn verður„live“. Það er meiriháttar spennandi
að taka þátt í þessu og sjá hvernig þetta er gert. Mikill tími hefur farið
í þetta undanfarið og síðan um áramót höfum við stöðugt verið á
ferðinni á milli Akureyrar og Reykjavíkur. Ég er á öðru ári í dönsku
í Háskólanum og les utan skóla þessa önn en hef notað tækifærið
og mætt í tíma í suðurförum mínum. Tómas klárar stúdentinn í
Verkmenntaskólanum í vor og í haust ætlum við að koma suður og
þá held ég áfram í Háskólanum,“ sagði Ingunn Gylfadóttir.
Lagið tekur
þátt í
söngvakeppni
evrópskra
sjónvarps-
stöðva
ÚRSLITIN í Söngfvakeppni
Sjónvarpsins ráðast á laug-
ardagskvöld. Þá verður það
lag valið sem keppir fyrir
Islands hönd í Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva,
Eurovision, í MiIIstreet
Town á Irlandi 15. maí
Úrslft í Söngvakeppni
Sjónvarpsins ráðast