Morgunblaðið - 21.03.1993, Page 12
1
12 6
MORGUNBLAÐIÐ MENNIIMGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 21. MARZ 1993
Töfrandl sumarfrí; úr „Enchanted April“.
Aprfltöfrar
ENCHANTED APRIL“ eða Apríltöfrar er ein af
nýlegum breskum myndum sem vakið hafa at-
hygli að undanförnu í vesturheimi en Joan Plowr-
ight hefur verið útnefnd til Óskarsverðlauna fyr-
ir leik sinn i myndinni og handritið, eftir Peter
Barnes, fékk einnig útnefningu.
að hefur reyndar
vakið athygli að
kvenútnefningamar fyrir
auka- og aðalhlutverk
runnu flestar til breskra
leikkvenna (Plowright,
Emmu Thompson, Va-
nessu Redgi-ave, Mi-
röndu Richardson), einn-
ar franskrar (Chaterine
Deneuve) og einnar ástr-
alskrar (Judy Davis),
sem leitt hefur hugann
að lélegum kvenhlut-
verkum í bandarískum
bíómyndum.
Apríltöfrar er byggð á
sögu Elizabeth von Am-
im frá 1922 og segir frá
tveimur vinkonum í sum-
arfríi á Ítalíu. Þær era
leiknar af Miröndu Ric-
hardson og Josie Lawr-
ence. Þær leigja hús með
tveimur öðrum konum
(Plowright og Polly Wal-
ker) og reyna að hafa það
gott í ítölsku sólinni.
Leikstjóri er Mike
Newell, sem áður gerði
„Dance With a Strang-
er“, ein einhver sagði
Apríltöfra vera léttkó-
mískt ævintýri um
hversu vel gott sumarfrí
getur virkað á sálina.
■'"KVIKMYNDIR....-
Fóik
ILWl
■ MEins og kunnugt er mun
Christopher Lee verða í
dómnefnd á _Norrænu hátíð-
inni ásamt Árna Þórarins-
syni og öðrum. í tilefni af
komu Lee til landsins verður
blóðsugumyndin Drakúla frá
1958 með Lee í titilhlutverk-
inu sýnd á vegum hátíðarinn-
ar.
MFundist hefur vestur í
Bandaríkjunum gamanmynd
í fullri íengd sem Roman
Polanski skrifaði handrit að
á sínum tíma með Peter
Sellers í aðalhlutverki.
Myndin var aldrei sett í dreif-
ingu og var týnd og tröllum
gefín í filmuhirslum Para-
mount kvikmyndaversins
þegar maður að nafni Simon
Hesera, framleiðandi mynd-
arinnar, fór að snuðra í
geymslunni og fann myndina.
Hún heitir „A Day at the
Beach“ og segir frá alkóhól-
ista sem fer með dóttur sína
niður á strönd og eyðir degin-
um þar með henni. Sellers
leikur homma sem rekur
skeljasjoppu.
MNýjasta mynd Bette Midl-
ers heitir Hókus pókus og
segir frá þremur nomum sem
lifna við í nútímanum en þær
voru hengdar á sautjándu
öldinni. Leikstjóri er Kenny
Ortega en nornirnar leika
Kathy Najimy (hressa nunn-
an í Systragervi) og Sarah
Jessica Parker. Leikstjóra-
hjónin Penny og Garry
Marshall munu koma fram
í myndinni.
MBandaríski kvikmyndahöf-
undurinn Quentin Tarant-
ino hefur gert handritið að
nýjustu mynd breska leik-
stjórans Tonys Scotts („Top
Gun“) sem heitir „True Ro-
mance“. Með aðalhlutverkin
fara Christian Slater og
Patricia Arquette.
Nemó litli; 4.000 séð tal-
settu teiknimyndina.
4.000
séðGeð-
klofann
ALLS HAFA nú rúm 4.000
manns séð spennumyndina
Geðklofann í Laugarásbíói
að sögn Grétars Hjartars-
sonar bíóstjóra.
Þá hafa um 4.000 séð
teiknimyndina Nemó,
sem er með íslensku tali, og
sami fjöldi hefur séð gaman-
myndina Hrakfallabálkinn
með Matthew Broderick.
Næstu myndir Laugarás-
bíós eru Tvífarinn eða „Dob-
belganger" með Drew Bar-
rymore í leikstjóm Avy
Nessers og „Shadow of the
Wolf“ með Lou Diamond
Philips, Jennifer Tilly og
Donald Sutherland.
Hasarmyndin „Fighting
the Shadow" með Charlie
Sheen verður sýnd í bíóinu
um páskana en Larry
son skrifar handrit og
stýrir og loks má nefna hryll-
ingsmyndina „Dr. Giggle"
með Larry Drake (Laga-
krókar) í aðalhiutverki geð-
sjúklings sem sleppur af
hæli.
dagana.
Emil og Skundi
kvikmyndaðir
ÞORSTEINN Jónsson kvikmyndagerðarmaður leitar nú
að átta til tíu ára dreng í aðalhlutverkið í barnamynd
sinni, Skýjahöllinni, sem byggð er á sögu Guðmundar
Ólafssonar, Emils og Skunda. Úthlutunarnefnd Kvik-
myndasjóðs valdi nýlega handrit Þorsteins sem framlag
íslands til næsta samstarfsverkefnis Norðurlandanna.
Hyggst hann byrja tökur seinni partinn í sumar.
Eg heillaðist af sögunni
þegar ég las hana
fyrst," segir Þorsteinn í
samtali við Morgunblaðið.
Sagan er um dreng sem
strýkur að heiman eftir úti-
stöður við föður sinn og
finnur vin og ástúð í litlum
hvolpi.
„Þetta er sniðug og ein-
föld saga úr lífí einnar íjöl-
skyldu," segir Þorsteinn.
„Foreldramir gleyma lit-
la drengnum því
hugur þeirra
snýst allur um
nýja húsið
fyrir fjöl-
skylduna.
Hugmyndin
er að gera
myndina
eins og maður upplifír
endurminningar. Allt er
stærra; börn upplifa fólk
um tvítugt eins og það séu
gamlingjar, litla gatan er
stærðar borg. Við ætlum
að stækka skalann í þessa
vera svo frásögnin verður
ekki beint raunsæ heldur
verður endurminning-
arkeimur af því hvernig
sagan er sögð. Myndin
verður tekin frá sjónarhóli
bamanna og eins og geng-
ur verður að breyta sögunni
fyrir kvikmyndunina, ein-
falda og stækka."
Þorsteinn segir Skýja-
höllina koma til með að
kosta um 105 milljónir
króna og hann segist nú
vinna við að fjár-
magna myndina
frekar. Einnig
hann að
púsla saman
leikara- og
tækniliði
ana
ÍBÍÓ
Islendingar fara manna
mest í bíó í hinum vest-
ræna heimi eins og lengi
hefur verið kunnugt. Sam-
kvæmt tölfræðiárbók
UNESCO, sem út kom á
síðasta ári og birtir marg-
víslegar tölfræðilegar upp-
lýsingar, fór hver íslend-
ingur að meðaltali 4,6 sinn-
um í bíó árið 1989 en
næstu Evrópuþjóðir á eftir
okkur eru írar og Mónakó-
menn sem fóru 3,3 sinnum
í bíó þetta ár.
Frakkar, sú mikla kvik-
myndaþjóð, fór 2,1 sinnum
í bíó hver á árinu og Bret-
ar aðeins 1,7 sinnum.
Norðmenn fóru 2,9 sinn-
um, Svíar, 2,1 sinni, Danir
2,0 sinnum, Spánveijar 2,0
sinnum, Þjóðveijar 1,6
sinnum og Hollendingar
1,1 sinni.
Við slógum jafnvel
Bandaríkjamönnum við á
þessu ári en þeir fóru„að-
eins“ 4,5 sinnum að meðal-
tali í bíó 1989. Síðan hefur
kvikmyndasókn dalað hjá
þeim en aukist hjá okkur
svo enginn í Vesturálfu sér
við okkur í þessum efnum
frekar en svo mörgum öðr-
um.
Hver er saga Jóns Leifs í Þýskalandi?
Lífogdauði
Hilmar Oddsson kvikmyndagerðarmaður hyggst hefja
tökur á mynd sinni „Vita et mors“, eða Líf og dauði,
síðsumars en hún fjallar um ævi Jóns Leifs tónskálds.
Handritið, sem Hilmar og Hjálmar H. Ragnarsson
skrifa, hefur breyst mjög síðan byrjað var á því fyrir
fjórum árum; fyrst var hugmyndin að gera leikna
heimildarmynd, síðan leikna dramatíska mynd sem
spannaði árin frá 1916 til 1968, þegar Jón lést, en loka-
gerðin segir frá ævi Jóns í Þýskalandi og á íslandi á
millistríðsárunum, 1917 til 1945.
Myndin er römmuð inní
tvær heimsstyrjald-
ir,“ sagði Hilmar í samtali
við Morgunblaðið aðspurður
um af hveiju þetta tímabil
var valið,
„og gerist
að miklum
hluta í
Þýskalandi
þar sem
Jón var
búsettur á
árunum
milli
stríða. Þetta er sá hluti ævi
hans sem er hvað áhuga-
verðastur og um leið sá hluti
sem fólk veit langminnst
um.“
Og Hilmar heldur áfram:
„„Jón lifði óvenju drama-
tíska ævi, sem er bæði heill-
andi og vandasamt að fást
við. Sögutíminn og sögu-
sviðið er ekki síður drama-
tískt en við fjöllum um upp-
gang Jóns og hremmingar
á tímum nasismans í Þýska-
landi. Hann var á sínum
tíma sakaður um að vera.
hollur undir nasismann sem
er í sjálfu sér fáránlegt með
tilliti til þess að hann var
kvæntur gyðingakonu og
dætur hans tvær voru gyð-
ingar og hann þurfti að
horfa á eftir tengdamóður
sinni í útrýmingabúðir.
Hann var maður sem stöð-
Harmsöguleg hetju-
saga; Hilmar Oddsson kvik-
myndaleikstjóri.
ugt lifði á milli steins og
sleggju. Hann var þjóðernis-
sinni og mikill íslendingur
eins og kemur fram í tónlist
hans. Saga hans er harm-
söguleg hetjusaga."
Ekkja Jóns, fní Þorbjörg
Leifs, hefur veitt aðstand-
endum myndarinnar mikinn
stuðning en Hilmar segir
sögu Jóns Leifs vandmeðf-
arna því hún sé það nálæg
í tíma. Hjálmar H. Ragnars-
son er að sögn Hilmars heil-
mikill sérfræðingur í Jóni,
tók lokapróf við Cornell-
háskólann í honum, og
Árln í Þýskalandi; Jón
Leifs tónskáld.
reyndist mjög góður í hand-
ritsgerð. Faðir Hjálmars,
Ragnar H. Ragnar, vakti
athygli hans og áhuga á
Jóni en svo vill til að Ragn-
ar var settur í að yfirheyra
Jón þegar hann sneri aftur
til íslands eftir stríð. Jón
hafði verið handtekinn á
leiðinni af breskum yfirvöld-
um og hann var sakaður um
samstarf við nasista.
Líf og dauði verður tekin
á íslandi, í Berlín og í Leipz-
ig í gamla A-Þýskalandi og
segir Hilmar að ekkert hafí
breyst í úthverfi því sem Jón
Leifs átti heima. „Eiginlega
það eina sem þarf að fjar-
lægja er nýlegt skilti sem á
stendur „Jón Leifs Platz“,“
sagði Hilmar en ekki er
langt síðan borgarbúar
nefndu torg eftir tónskáld-
inu.
Þröstur Leó Gunnarsson
fer með hlutverk Jóns Leifs
en Sigurður Siguijónsson,
sem áður átti að leika Jón,
er dottinn útúr myndinni
vegna breyttra tímasetn-
inga, að sögn Hilmars. Jó-
hann Sigurðarsson fer með
hlutverk Páls ísólfssonar og
Rut Ólafsdóttir fer með
hlutverk fyrri konu Jóns.
Kvikmyndatökumaður og
annað tæknilið er óráðið
enn. Myndin er íslensk-
þýsk-sænsk framleiðsla og
kemur hún til með að kosta
um 130 milljónir. „íslend-
ingar munu leika íslendinga
í myndinni og Þjóðveijar
munu leika Þjóðveija,"
sagði Hilmar, „Það verður
töluð íslenska og þýska.“
Hilmar áætlar að myndin
verði frumsýnd sumarið
1994 en framleiðandi henn-
ar á íslandi er Tónabíó h/f,
fyrirtæki sem stofnað er út
frá Nýja Bíói h/f í kringum
Líf og dauða.
eftir Arnald
Indriðoson