Morgunblaðið - 21.03.1993, Page 27

Morgunblaðið - 21.03.1993, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ samsai-WMIMHÍ^ 21. MARZ 1993 B 27 5 Edda á Reylqavíkurflugvelli árið 1957. Svipmyndir úr sögu N orður-Atlants- hafsflugsins. Efst til vinstri er Ólafur Olsen flugstjóri, efst til hægri er Arnór Hjálmarsson í Fiugumsjón og fyr- ir neðan hann Agn- ar Sigurðsson einn- ig I Flugumsjón. Neðst til vinstri er svo Kristín Jónas- dóttir flugfreyja að bera fram veitingar fyrir farþega. SÍMTALID... ER VIÐ GUNNAR TÓMASSON GARÐYRKJUBÓNDA Atíán daga rósir 98-68826 Halló. - Góðan dag, er þetta i Laugarási í Biskupstungum? Jú. - Þetta er á Morgunblaðinu, gæti ég fengið að tala við Gunnar Tómasson garðyrkjubónda? Þetta er Gunnar. - Komdu sæll. Ræktar þú ekki rósir? Ég rækta oft rósir jú, en ég veit andskotann ekkert um þessa verðlækkun. - Ég ætlaði ekkert að ræða um verðlækkun. Ekki í þetta sinn. Vandamálið er miklu alvarlegra. Þannig er að ég kaupi stundum rósir, á þessu okurverði að sjálf- sögðu, á 300 krónur stykkið, og þær lafa bara eins og aumingjar strax daginn eftir. Er framleiðslan svona léleg eða geri ég eitthvað rangt? Framleiðslan er nú sennilega mjög góð. En ég skal segja þér litla sögu. Þannig er að ég lýsti rósir núna, en þær seldust illa svo ég slökkti á ljósunum og það skall á þær skammdegismyrkur í tvo daga. En dóttir mín tók vænan vönd af þessum rósum sem ég var nánast búinn að henda og gaf þær konu. Konan spurði svo dóttur mína seinna hvernig þessar rósir hefðu verið ræktaðar því þær hefði staðið endalaust. Og hvað gerðirðu við þær, spurði dóttir mín. Ekki neitt, sagði konan, ég skipti bara um vatn tvisv- ar á dag, setti þær inn í ísskáp á nótt- unni og skar neðan af þeim annan hvern dag, eins og einn sentimeter. - Já hún gerði sem sagt ekki neitt! Nei hún gerði ekki neitt. En það getur komið fyrir að blóm fái í sig lofttappa og þá er ráð að skera af stönglinum. - Heldurðu að stofuhiti hafi eitthvað að segja, það var 22 stiga hiti inni hjá mér? Já það er til dæmis fjórum gráð- um heitara en í dönskum híbýlum. - En eru rósir ekki fram- leiddar fyrir íslenskan markað þar sem yfirleitt er heitara inni? Við framleiðum nú eftir upp- skrift sem gefur okkur mestu og bestu uppskeruna. - En fyrr má nú vera að hengja haus eftir daginn. Það eiga þær auðvitað ekki að gera. Þá er ráð að skera aðeins af þeim stinga þeim augnablik ofan í heitt vatn, í tvær mínútur eða svo. En ef rósir springa ekki út, þá er það okkur að kenna. Ef þær eru blárauðar í toppinn, skaltu ekki kaupa þær. Og knúpurinn á að vera jafn breiður að ofan og að neðan. Rósir eiga að standa minnst sex daga og þær bestu í 14 daga. Og ef þú fengir rósir hjá mér, bestu tegundina, gætirðu látið þær standa í 18 daga. - Átján daga! Getur það ver- ið? Já, ef þú gerir ekki neitt eins og konan. - En hvert er uppáhaldsblóm garðyrkjumannsins? Chrysantemum, og hann á að standa í þrjár vikur og getur stað- ið í mánuð. Og svo annað hitt, við bundumst samtök- um um það í haust í fyrirtæki okkar Blómamiðstöðinni hf., að setja öll blóm í endingar- efni, sem þýðir að þau endast mjög vel. - Einmitt það já, en það er best að halda rósatil- raunum áfram og þakka þér fyrir upplýsingarnar. Morgunblaðið/Sig.J6ns. HVAR ERUÞAU NÚ? SIGRÚN BJÖRNSDÓTTIR FYRRUM LAUFSKÁLASTÝRA OG LEIKKONA Kynntist merku fóUd UM MIÐJAN janúar 1992 hætti Sigrún Björnsdóttir að vera fast- ur starfsmaður hjá Ríkisútvarpinu. „Þótt ég sé hætt sem fastur starfsmaður þá leysi ég einstaka sinnum af í föstum þáttum og þess utan starfa ég af og til sem lausamaður við gerð heimildar- þátta, bæði fyrir Rás 1, og fáeina þætti hef égjgert fyrir sjón- varp,“ sagði Sigrún í samtali við Morgunblaðið. „Eg hef eingöngu fjallað um íslenska listamenn í þessum heimildarþáttum mínum. Næst verður fluttur þáttur um Maríu Markan, sem varð fyrst íslenskra söngvara til þess að syngja aðalhlutverk í hinni frægu Metrópólitanóperu. Jafnframt störfum við útvarpið sinni ég leik- listarkennslu við söngdeild Nýja tónlistarskólans, en ég hef kennt leiklist í fjöldamörg ár, nánast frá því að ég Iauk prófi frá Leik- listarskóla Þjóðleikhússins vorið 1967. Laufskálaþættimir sem ég gerði voru orðnir hátt á annað hundrað talsins. Margir þeirra eru mér eftirminnilegir. Ég kynntist við gerð þeirra mörgu merku fólki sem mér fannst mikils virði að komast í kynni við. Má þar t.d. nefna Þóri Kr. Þórðarson, prófessor í guð- fræði við HÍ. Það var auðgandi að vinna með honum svo fróður sem hann er og skemmtilegur í viðkynningu. Margar uppákomur urðu í þessum þáttum, sem send- ir voru út beint. Fyrir kom að ekki var unnt að undirbúa þá að ráði, t.d. þegar Arnar Jónsson leikari var Laufskálagestur. Ann- ar gestur átti þá að vera í þættin- um, en hann sendi afboð með hálfs dags fyrirvara. Ég vissi að Arnar Jónsson var einn af fáum sem gæti komið fram með svo litlum undirbúningi. Hann gat ekki gefið ákveðið svar fyrr en klukkan 8 kvöldið áður. Morgun- inn eftir var hann hann mættur um áttaleytið, tók nokkrar léttar æfingar með píanóleikara og söng síðan og las upp og fór á kostum eins og hans er von og vísa. Árni Elvar var hirðpíanisti Laufskálans. Við urðum góð- kunningjar og ég sakna hans og eins rímsnillinganna sem urðu líka ágætir vinir mínir. Jafnframt útvarpsvinnunni lék ég áður fyrr í ýmsum sýningum Þjóðleikhússins, m.a. Jennýju í Túskildingsóperunni eftir Brecht, hlutverk Vassilísu í Náttbólinu eftir Gorki og Aþenu í Oresteiu. Einnig leikstýrði ég og fékkst við söng. Undanfarin ár hefur þó starfið við útvarpið verið mitt aðalstarf. Ég reikna fremur með að vera í lausamennsku á næst- unni, alltént næstu mánuði." Siglt til Danmerkur með Norrænu og ekið um Evrópu á íslenskum hópferðabíl með íslenskum bílstjóra. Þetta er sjötta árið í röð, sem við bjóðum upp á þennan vinsæla ferðamáta. í ár verður ekiö um Þýskaland og Sviss, til Ítalíu, um Austurríki, Danmörku og Noreg auk þess sem farinn verður hringvegurinn á íslandi. Einnig gefst kostur á að fljúga aðra leiðina og sigla hina, hvort heldur er að heiman eða heim. Einnig er áætluð Þýskalandsferð í ágúst. Leitið upplýsinga. <9 Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar hf. Sími 683222. Akstur og siglíng 1993 Áætlun fyrir sumarið 1993 er nú komin út. Lagt verður upp í fyrstu ferð fró Borgartúni 34 þann 2. júní.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.