Morgunblaðið - 21.03.1993, Page 28
28 B
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MARZ 1993
■ BLÓÐRÚNIR nefnist ný
sjjennusaga eftir Bill Crider, sem
Urvalsbækur Frjálsrar fjölmiðl-
unar hf. hafa gefið út, en hún er
jafnframt 20. bókin, sem útgáfan
hefur sent frá sér frá því hún hóf
starfsemi haustið 1990. í Blóðrún-
um er fylgst með ódæðismanni sem
fremur röð morða, og skráir inn á
tölvu lýsingar á verknaði sínum og
ástæðum sínum fyrir honum. Hann
velur fórnarlömbin eftir blóðrúnum,
sem enginn sér nema hann sjálfur.
Leitin að morðingjanum er æsileg,
en ekki er ljóst fyrr en í lok sögunn-
ar hver hann er.
■ SAFNAÐARKVÖLD verður í
Safnaðarheimili Laugarnes-
kirkju þriðjudaginn 23. mars
klukkan 20.30. Grétar Sigur-
bergsson geðlæknir mun ræða efn-
ið: Geðlægð, greining og meðferð.
Eftir erindi geðlæknisins mun hann
svara fyrirspurnum. Einnig verður
flutt tónlist, en Guðrún Laufey
Guðmundsdóttir mun leika á alt-
flautu og boðið verður upp á kaffi-
veitingar. í lok kvöldsins verður
stutt helgistund í kirkjunni í umsjá
sóknarprestsins.
(Úr fréttatilkynningu.)
■ STÓMABÖRN. Undirbúnings-
stofnfundur Samtaka foreldra
stómabama (hægða- og þvag-
stóma) verður haldinn mánudaginn
22. mars kl. 20 í Gerðubergi. Allir
áhugasamir velkomnir.
HALLARMÚLA
KRINGLUNNI
AUSTURSTRÆTI
Penni
plús
blýantur
LAMY
í einum.
NAFN
ALDUR
HEIMILI
SÍMI
STAÐUR
RAKKAR!
Litið myndina með ykkar eigin litum, merkið hana og sendið til Morgunblaðsins.
Nöfn 50 krakka verða dregin úr innsendum myndum og fá þau öll 2 miða
á teiknimyndina Bamba ásamt penna merktum Morgunblaðinu í pósti.
Skilafrestur er til 26. mars. ______
Bamba
Utanáskriftin er:
%
_ „ r é teiknimy«d'ma
semsyu
Morgunblaðið - Bambi
Pósthólf 1555
121 Reykjavík
ÚÓÐA SKEMMTUN!