Morgunblaðið - 31.03.1993, Síða 1
56 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
75.tbl. 81. árg.
MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Dæmdur til dauða fyrir stríðsglæpi
Reuter
HERDÓMSTÓLL í Sarajevo dæmdi tvo
Bosníu-Serba til dauða í gær fyrir stríðs-
glæpi gegn bæði óbreyttum borgurum og
stríðsföngum; morð og nauðganir. Myndin
var tekin er annar þeirra, Borislav Herak,
var leiddur út úr réttarsalnum. Hann
gekkst við sekt sinni og sagðist una úr-
skurðinum en félagi hans, Sretko Damj-
anovic, sagðist hafa verið pyntaður til játn-
ingar og kvaðst ætla að áfrýja.
GATT-samningurinn
Yilja tefla í
Lundúnum
Lundúnum. Reuter.
GARRÍ Kasparov, heimsmeistari
í skák, og Bretinn Nigel Short
hafa tekið tilboði útgefenda dag-
blaðsins The Times og hollensks
fyrirtækis um að heyja heims-
meistaraeinvígið í Lundúnum
fyrir 1,7 inilljónir punda, jafn-
virði 160 milljóna króna.
Áður hafði Alþjóðaskáksam-
bandið (FIDE) ákveðið að einvígi
þeirra ætti að fara fram í Manchest-
er fyrir 1,2 milljónir punda en svipti
þá síðar réttinum til að tefla um
heimsmeistaratitilinn.
Harka
færist í
leikinn
Brussel, Canberra. Reuter.
BANDARÍKJASTJÓRN krefst
verulegra breytinga á drögum
að nýjum GATT-samningi um
aukið viðskiptafrelsi og segir
tímabært fyrir ráðamenn í Japan
að fara að sýna málinu áhuga.
Eru þessar yfirlýsingar sagðar
til marks um aukna hörku af
hálfu Bandaríkjasljórnar, sem
vill fara að Ijúka GATT-samning-
unum með undirritun eða við-
skiptastríði ef ekki vill betur.
Mickey Kantor, viðskiptafulltrúi
Bandaríkjastjórnar, sagði i gær, að
ekkert yrði af GATT-samningunum
nema gerðar yrðu verulegar breyt-
ingar á sumum liðum hans, einkum
þeim, sem sneru að auknum mark-
aðsaðgangi. Sakaði hann Japani um
að hafa reynt að skýla sér á bak við
landbúnaðarstefnu EB.
Tomohiko Kobayashi, sendiherra
Japans hjá EB, sagði, að einhver
misskilningur væri á ferðinni hjá
Kantor. Væri ástæðan líkega sú, að
hann væri nýgræðingur í alþjóðleg-
um viðskiptamálum.
n ^ ^ i • j • Keuter
Sosialistar vikja
EDOUARD Balladur tók í gær við embætti forsætisráðherra Frakk-
lands við hátíðlega athöfn og heilsar hér forvera sínum, Pierre
Beregovoy, forsætisráðherra sljórnar franskra sósíalista.
París. Reuter, The Daily Telegraph.
FRANCOIS Mitterrand, forseti Frakklands, samþykkti
í gær ráðherralista Edouards Balladurs, nýs forsætis-
ráðherra landsins. Nýja stjórnin er skipuð tiltölulega
ungum ráðherrum. Þeir eru flestir hlynntir náinni sam-
vinnu Evrópuríkja og hafa tekið milda afstöðu í velferð-
ar- og félagsmálum.
Gaullistinn Alain Juppe, 47 ára,
verður utanríkisráðherra en hann
hefur beitt sér mjög fyrir því að
Maastricht-samkomulagið um auk-
inn samruna Evrópubandalagsríkj-
anna nái fram að ganga. Miðjumað-
urinn Francois Leotard, 51 árs
harður stuðningsmaður aukinnar
samvinnu Evrópuríkja, var skipaður
varnarmálaráðherra.
Miðjumaðurinn Edmond Alph-
andery, 49 ára, varð fyrir valinu
sem efnahagsmálaráðherra, en
hann vill að stefnt verði að því að
tekin verði upp sameiginleg mynt
Evrópubandalagsríkjanna sem
fyrst.
Sjá „Balladur sækist frem-
ur ...“ á bls. 21.
Kasparov og Short
ítalski fjármálaráðherrann segir af sér vegna spillingar
Forsetinn undir-
býr stjórnarskipti
Róm. The Daily Telegraph, Reuter.
FRANCO Reviglio, fjármálaráðherra Ítalíu, sagði í gær af
sér eftir að hafa fengið viðvörun frá saksóknara þess efn-
is að hafin væri rannsókn á meintri aðild hans að spillingu
og fjármálahneyksli þegar hann var sljórnarformaður ríkis-
orkufyrirtækisins ENI á árunum 1983 til 1989. Oscar Luigi
Scalfaro forseti byrjaði í gær að kanna grundvöll nýrrar
sljórnarmyndunar og fól Giuliano Amato forsætisráðherra
að sitja áfram uns því væri lokið.
Eftirmaður Reviglio hjá ENI,
Gabriele Cagliari, hefur haldið því
fram að ráðherrann hafi á sínum
tíma staðið fyrir ólöglegum greiðsl-
um frá fyrirtækinu í flokkssjóði
Kristilegra demókrata og Sósíal-
istaflokksins. Reviglio neitaði ávallt
þeim sakargiftum. Hann er fimmti
ráðherrann í stjórn Amatos sem
nayðist til að segja af sér vegna
ásakana um spillingu.
Hneykslismálin hafa grafið und-
an stjórn Amatos sem hafði aðeins
16 þingsæta meirihluta en sá þing-
styrkur minnkaði á mánudag er
nokkrir þingmenn stjórnarflokk-
anna gengu úr skaftinu til að mót-
mæla ásökunum um að Giulio
Andreotti, fyrrverandi forsætisráð-
herra, hefði verið viðriðinn maf-
íuna.
Heimildir innan ítalska þingsins
hermdu að líklegt væri að Scalfaro
forseti fæli forseta annarrar hvorr-
ar þingdeildarinnar, Giorgio Nap-
olitano eða Giovanni Spadolini,
stjórnarmyndun. Síðan yrði efnt til
kosninga og nýtt þing kosið sam-
kvæmt nýrri kjördæmaskipan og
kosningalöggjöf sem afgreidd yrði
í þjóðaratkvæðagreiðslu 18. apríl.
Upprennandi foringi segir sig
úr flokknum
Mario Segni, framfarasinnaður
liðsmaður Kristilegra demókrata,
hefur sagt sig úr flokknum vegna
tengsla flokksins við mafíúna og
spillingu. Segni er sonur fyrrum
forseta landsins og er höfundur
þeirra stjórnlagabreytinga og um-
bóta á kosningalöggjöfinni sem
kosið verður um í þjóðaratkvæðinu
18. apríl. Hann knúði þær fram á
þinginu eftir að hafa náð víðtæku
samstarfi við áhrifamikla þing-
menn annarra stjórnmálaflokka.
Spillingin
nær til EB
Brussel. The Daily Telegraph.
VIÐAMIKIL rannsókn á
meintri spillingu innan stofn-
ana Evrópubandalagsins (EB)
er nú í undirbúningi eftir að
háttsettur ítalskur embættis-
maður framdi sjálfsmorð með
því að stökkva af efstu hæð
höfuðstöðva EB í gær.
Ráðgert hafði verið að yfir-
heyra embættismanninn vegna
gífurlegra fjármálasvika í
tengslum við niðurgreiðslur
bandalagsins. Italskar frétta-
stofur skýrðu frá því að grunur
léki á að embættismaðurinn
hefði veitt fjármagni frá EB í
sjóði Kristilegra demókrata á
Ítalíu. Málið þykir staðfesta
grun manna um að spillingin
sem tröllríður ítölskum stjórn-
málum eigi sér hHðstæðu í
valdastofnunum Evrópubanda-
lagsins, einkum landbúnaðar-
deildinni, sem hefur jafnvirði
2.600 milljarða króna til ráð-
stöfunar á ári.
Ný stj órn í
Frakklandi