Morgunblaðið - 31.03.1993, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 31.03.1993, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993 Ms. Esja seld norsku félagi MS. ESJA, sem áður var í eigu Skipaútgerðar ríkisins, hefur verið seld til norska fyrirtækisins Leca AS fyrir 80 milljónir íslenzkra króna. Halldór Blöndal samgönguráðherra undirrit- aði kaupsamning þar að lútandi í gær. Af eignum Skipaútgerð- arinnar, sem lögð var niður á síðasta ári, er þá aðeins ms. Hekla eftir óseld í umsjá samgönguráðuneytisins. ----------------- Að sögn Rúnars Guðjónssonar í samgi RÚV verð- ur af sex millj áári SAMKVÆMT bréfi ráðuneyt- isstjóra í menntamálaráðu- neytinu frá 1977 í ráðherratíð Vilhjálms Hjálmarssonar eru fastráðnir starfsmenn Ríkis- útvarpsins undanþegnir af- notagjöldum hafi þeir starfað lengur en í þrjú ár hjá stofn- uninni. Þetta er í ósamræmi við lög um Ríkisútvarpið frá 1985. Ólafur G. Einarsson- menntamálaráðherra hefur gert fyrirspurn um þetta mál til RUV, en hann kveðst ekki hafa tekið ákvörðun um áframhald málsins. Tekju- missir RUV vegna þessa er yfir sex milljónir kr. á ári. Fastráðnum starfsmönnum sem unnið hafa skemur en þijú ár hjá stofnuninni er veittur 40% afslátt- ur af afnotagjöldunum. í lögum um Ríkisútvarpið segir að einvörð- ungu þeir sem njóta uppbótar á elli- og örorkulífeyri skuli vera undanþegnir afnotagjöldum. 305 starfsmenn undanþegnir afnotagjöldum Hörður Vilhjálmsson fjármála- stjóri RÚV sagði að það væru 305 starfsmenn sem væru undanþegn- ir eða fengju afslátt af afnota- gjöldunum. „Ég lét kanna hvaða hópur þetta væri fyrir nokkrum mánuð- um. Ég er ekki búinn að taka ákvörðun í málinu. Þetta er í sam- ræmi við bréf undirritað af ráðu- neytisstjóra í menntamálaráðu- neytinu 1977. Ég hef sett þetta í frekari athugun,“ sagði Ólafur G. Einarsson. Hann sagði að hann hefði látið athuga þetta mál m.a. vegna kvartana RÚV um að stofnunin hefði ekki þær tekjur sem hún teldi sig þurfa. „Ég hef hugmynd um hvað þetta eru miklar upphæð- ir sem Ríkisútvarpið missir af með þessu. Ég veit að þetta eru eitt- hvað yfír sex milljónir kr.,“ sagði Ólafur. samgönguráðuneytinu eru menn þar á bæ mjög ánægðir með að tekizt hafi að selja Esjuna. Rúnar sagði að skipið, sem er smíðað í Englandi 1983 en hannað hér á landi, væri mjög sérhæft og hefði verið sú eign Skipaútgerðarinnar, sem talin var torseljanlegust. Hins vegar reyndist skipið henta Leca AS mjög vel. Fyr- irtækið hefur einkarétt á vinnslu leirs, sem notaður er í húseiningar, og verður skipið notað til að flytja bretti með leirsteinum. Vonir um sölu á Heklu Rúnar sagði samgönguráðuneytið hafa góðar vonir um að tækist að selja ms. Heklu, sem nú er í leigu hjá Eimskipafélaginu. Ekki hefur verið útilokað að Lars Holm, sem rekur skipafélag í Tromsö í Noregi, kaupi skipið. Holm keypti ms. Öskju, systurskip Heklu. Morgunblaðið/Kristinn Gert við skiltabrýr ÁRLEGA kosta viðgerðir á skiltum á skiltabrúm yfir helstu umferðargötur borgarinnar um eina milljón króna. Að sögn Sigurðar Skarphéðinssonar gatnamálastjóra er alltof algengt að ekið sé und- ir brýrnar með of háan farm þrátt fyrir að þær séu langt yfir hámarkshæð farms með þeim afleið- ingum að skiltin skemmast. „Við erum tilbúnir að aðstoða þegar um háa flutninga er að ræða,“ sagði hann. „Það yrði þá gert að næturlagi þegar umferðin er í lágmarki og með aðstoð lögreglu, þar sem ekið er á öfugum vegarhelming. Því mið- ur eru alltof. fáir sem biðja okkur um aðstoð.“ Bankar o g sparisjóðir ákveða vaxtabreytingar um mánaðamótin Landsbanki og Búnaðar- banki lækka um V2 -1 % BANKARÁÐ Landsbankans ákvað í gær lækkun vaxta af óverðtryggðum skuldabréfum um V2% hinn 1. apríl. Þá munu nafnvextir útlána lækka um 0,75-1% í Búnaðarbank- anura en bankastjórn gengur endanlega frá vaxtabreyting- unni í dag. Reiknað er með að ákveðnar verði svipaðar vaxtalækkanir í íslandsbanka í dag og nafnvextir verða einnig lækkaðir hjá sparisjóðunum en að sögn Baldvins Tryggvasonar, framkvæmdasljóra Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, verður endanleg ákvörðun um það tekin í dag. Engar breytingar verða hins vegar gerðar á raunvöxt- um útlána hjá bönkunum. benti á að vextir bankanna væru misháir. Aðspurður af hveiju ekki væri gerð breyting á vöxtum verð- tryggðra lána sagði Sólon Sigurðs- son, bankastjóri Búnaðarbankans, að mikill munur væri á vaxtastiginu eftir bönkum og þeir bankar sem væru í neðri kantinum vildu fyrst sjá aðra gera breytingar hjá sér. Sólon sagði einnig að yfirlýsingar í tengslum við aðgerðir Seðlabank- ans í síðustu viku stæðust ekki. „Samkvæmt okkar útreikningi gefa þessar vaxtabreytingar Seðlabank- ans ekki tilefni til svo mikilla lækk- ana,“ sagði hann. Bankaráð Landsbankans ákvað vaxtalækkun sem tekur gildi 1. apríl. Lækkun verður á forvöxtum almennra víxla og viðskiptavíxla um '/2% og lækka forvextir al- mennra víxla úr 13% í 12,5%. Þá var ákveðin lækkun á óverðtryggð- um skuldabréfum um '/2% og lækka kjörvextir úr 11% í 10,5% og aðrir útlánaflokkar samsvarandi. Inn- lánsvextir verða hins vegar óbreytt- ir í Landsbankanum um mánaða- mótin en Búnaðarbankinn lækkar raunvexti á innlánum um 0,25%. Brynjólfur Helgason, aðstoðar- bankastjóri Landsbankans, sagði að aðgerðir Seðlabankans í síðustu viku hefðu haft jákvæð áhrif sem gerðu kleift að minnka vaxtamun og færa útlánsvextina niður á við. Vextir misháir Seðlabankinn tilkynnti aðgerðir til að stuðla að lækkun vaxta banka og sparisjóða í síðustu viku en þær fólu í sér lækkun útlánsvaxta til bankanna og hækkun vaxta á skammtímainnstæðum og af bundnu fé í Seðlabankanum. Lýstu seðlabankastjórar því þá yfir að vextir á óverðtryggðum útlánum innlánsstofnana ættu að geta lækk- að um 1-2%. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri vildi í gær ekki leggja dóm á vaxtabreytingarnar fyrr en þær lægju allar fyrir en í dag StórhýsiÖ i Hafnarfirði_________ Fyrirhuguð þjónustubygging lækk- uð um eina hæð í tilraun til sátta 18 Sögur af Hillary og Clinton Bandaríska forsetafrúin sögð hafa kastað öskubakka og bibiíu í BiII Clinton 20 Lífríki Mývatns_________________ Bændur vilja bætur 26 Leiðari_________________________ Óráðlegt að ávísa á galtóman ríkis- sjóð 22 ’-EEr^ íJS&ðsæ..... ...... .... 50 miljjóna aflaverúmæti ’*f7T1 eftír 20 daga á Franshól Úr verinu ► 50 milljóna aflaverðmæti af Franshól - Kvikk að komast inn á Nýja Sjáland - Ýmist ördeyða eða mokafli - Gengur vel að selja isienzkan gæðafisk Myndasögur ► Drátthagi blýanturinn - Brauðkeðja - Brandari - Myndir ungra listamanna - Ljóð - Gátur - Skemmtilegar myndasögur - Talnahringur - Völundarhús Stjórn Félagsstofnunar stúdenta Röskva vill segja framkvæmda- stjóranum upp FULLTRÚAR meirihluta Röskvu, samtaka félagshyggju- fólks í Háskóla íslands, lögðu til á stjórnarfundi Félags- stofnunar stúdenta í gær að framkvæmdastjóra fyrirtækis- ins, Arnari Þórissyni, yrði sagt upp störfum. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins Iögðust fulltrúi menntamála- ráðuneytisins og fulltrúi Háskólaráðs í stjórninni alfarið gegn þessu og varð niðurstaðan sú að málinu var frestað til næsta fundar. Arnar Þórisson, framkvæmda- stjóri FS, sagðist í samtali við Morg- unblaðið ekki vilja tjá sig um stjórn- arfundinn í gær, enda skildist hon- um að það, sem þar hefði farið fram, væri trúnaðarmál. Hann sagðist ekki hafa neina ástæðu til að ætla að sér yrði vikið úr starfí. „Það hefur aldrei verið gerð nein athuga- semd við mín störf hjá fyrirtækinu af hálfu Röskvumanna,“ sagði Arn- ar. „Fyrirtækið skilaði hátt í 30 milljóna króna hagnaði í fyrra. Eig- infjárstaðan hefur aldrei verið sterk- ari og eigið fé er nú nálægt 750 milljónum. Fyrirtækið hefur aldrei gengið betur.“ Stjórnarformaðurinn hættir í stjórn Félagsstofnunarinnar sitja þrír fulltrúar háskólastúdenta, allir kjörnir úr röðum Röskvu, og hafa þeir meirihluta í stjórninni. I fyrradag sagði þáverandi stjórnar- formaður, Finnur Sveinsson fulltrúi Röskvu, af sér stjórnarsetu. Var nýr formaður kjörinn á fundinum í gær, Guðjón Ó. Jónsson, framkvæmda- stjóri þingflokks Framsóknarflokks- ins. Ekki náðist í neinn fulltrúa Röskvu í stjórn FS í gærkvöldi þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Finnur Sveinsson, fráfarandi stjómarfor- maður, vildi ekki tjá sig um málið eða orsakir afsagnar sinnar. Páll Magnússon, formaður Stúdenta- ráðs, þar sem Röskva fer með stjórn, vildi heldur ekki ræða um málið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.