Morgunblaðið - 31.03.1993, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 31.03.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993 3 Islenskur forsljóri ráðinn til Namibíu SIGURÐUR Bogason hefur verið ráðinn forstjóri útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækisins Sea Flower í Lúderitz í Namibíu, en alls sóttu 30 íslendingar um starfið, samkvæmt upplýsingum Torfa Markússonar, ráðningasljóra hjá Ráðgarði. Járniðnaðarmenn fá verkfallsheimild FÉLAG járniðnaðarmanna hefur samþykkt verkfallsheimild sem stjórn og trúnaðarmannaráð félagsins hafði áður ákveðið. Félags- fundur samþykkti ákvörðun stjórnar og trúnaðarmannaráðs á fundi í vikunni en Örn Friðriksson formaður félagsins segir að áður en vinnustöðvun kemur til framkvæmda muni það rætt á öðrum félags- fundi. Dagsbrún boðar til félagsfundar í dag þar sem verkfallsheim- ild til handa stjórn félagsins verður eina málið á dagskrá. Sigurður fæddist í Vestmanna- eyjum 11. maí árið 1953. Hann útskrifaðist sem matvælafræðingur frá Háskóla íslands árið 1980, fór síðan í framhaldsnám til Bandaríkj- anna og lauk doktorsprófi frá Oreg- on State University árið 1984. í sex ár, frá 1984-1990, var hann for- stöðumaður þróunarmála hjá Sölu- sambandi íslenskra fiskframleið- enda. í tæpt ár þar á eftir gegndi hann starfi framkvæmdastjóra Lifrasamlagsins í Vestmannaeyj- um, en frá haustinu 1991 hefur hann starfað hjá Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna sem forstöðumaður þróunarmála og einnig sem gæða- stjóri. Landasölumenn handteknir í Hafnarfirði Fékk 13 pantanirí fangelsið Rannsóknarlögreglan í Hafn- arfirði hafði afskipti af fjórum landasölumönnum á þrítugsaldri um helgina og lagði hald á nokkra tugi lítra af eimuðum landa. Ekki var þarna um brugg- ara að ræða heldur smásala, sem taldir eru hafa keypt framleiðslu bruggara á 8-900 krónur hvern lítra og selt neytendum, flestum á táningsaldri, hvern lítra á 1.500-1.800 krónur. Sumir höfðu notað símboða til að taka við pöntunum. Lögreglumenn úr Hafnarfirði og Breiðholti stöðvuðu mann á bíl í Garðabæ og fundu nokkuð af landa í bílnum. Maðurinn var færður til yfirheyrslu á lögreglustöðina í Hafnarfirði og var í haldi þar um nóttina. Frá því hann var handtek- inn og þar til hann var látinn laus bárust, að sögn lögreglu, 13 pant- anir inn á símboða sem hann bar á sér. Símanúmer og lítrafjöldi Pantanirnar eru gerðar þannig að kaupendur hringja í símboða- númerið, segja til sín með því að slá inn eigið símanúmer og ljúka boðunum með því að slá inn þá lítra- tölu sem þeir vilja kaupa. Síðan hittast seljandi og kaupandi á ákveðnum stað og skiptast á landa og peningum. Nú einnig í hálfs lítra umbúðum í öðru máli helgarinnar var stöðv- aður sendibíll í Hafnarfirði. Þar voru á ferð þrír menn um tvítugt og eru tveir taldir hafa selt landa. Undir sætum í bílnum fundust 17 lítrar af landa í plastflöskum. Lítra- pakkningar hafa verið vinsælastar í þessum viðskiptum til þessa en að sögn lögreglu er nú einnig farið að bjóða upp á landa á hálfs Iítra plastflöskum. í framhaldi af handtöku mann- anna var gerð húsleit í húsnæði í Vogutn og þar fundust framleiðslu- tæki en starfsemin lá niðri. í þriðja bruggmálinu sem rann- sóknarlögreglan í Hafnarfirði vann að um helgina var lagt hald á 13 lítra af landa í bíl manns sem stöðv- aður var á Kringlumýrarbraut. Tveir hinna fjögurra landasölu- manna sem Hafnarfjarðarlögreglan hafði afskipti af um helgina hafa áður gerst sekir um landasölu. Sigurður er kvæntur Halldóru Birnu Eggertsdóttur og eiga þau þrjú börn. Sigurður sagði í samtali við Morgunblaðið að starfið legðist vel í sig. „Þetta er verkefni, sem er spennandi að takast á við. Ég á hins vegar eftir að fara til Namibíu eftir páska til þess að skoða aðstæð- ur. Fyrr get ég lítið tjáð mig um málið.“ Sjá bls. 23: „Óttumst ekki..“ Morgunblaðið/Júlíus Forstjóri í Namibíu SIGURÐUR Bogason hefur verið ráðinn forstjóri fiskvinnslufyrir- tækis í Namibíu. Örn Friðriksson segir að ákvörðun um vinnustöðvun verði ekki tekin nema í samráði við önnur félög inn- an- ASÍ. „Menn ætla ekki að sitja og bíða endalaust eftir því að eitt- hvað gerist í kjaraviðræðum og því var þetta ákveðið," segir Örn. „Þótt stjórn og trúnaðarmannaráði sé heimilt að grípa til vinnustöðvunar á eigin spýtur er það hefð hjá okkur að bera slíkt fyrst undir félagsfund. Því verður slikur fundur haldinn aft- ur ef ákveðið verður að grípa til þessarar aðgerðar." Halldðr Björnsson varaformaður Dagsbrúnar segir að menn séu orðn- ir þreyttir á seinaganginum í viðræð- unum og því hafi stjórn Dagsbrúnar ákveðið að afla sér verkfallsheimid- ar. Halldór sagði að ekki yrði gripið til vinnustöðvunar án samráðs við önnur félög innan ASÍ. GOTT KORT ER BETRA Hver er munurinn á FARKORTI VISA og öðrum sambærilegum kortum? VISA Onnur Hvaða korthafar njóta vildarkjara hjá bílaleigunni BUDGET í Luxemburg, Amsterdam og Kaupmannahöfn? X □ Hvaða korthafar eiga kost á þjónustubæklingi með ferðaleiðsögn um Mið-Evrópu og afslætti hjá sérvöldum gisti- og veitingahúsum? X □ Hvaða korthafar fá margháttuð afsláttarkjör á sólarströndum Portúgals, Spánar og Florida? X □ Hvaða korthafar fá „bestu kjör" á gistingu hjá hótelum innan SVG (Sambands veitinga- og gistihúsa)? X □ Hvaða korthafar fá litmynd af sér í kortið, óski þeir þess? X . □ Hvaða korthafar njóta ferðatafa- og farangurstafatryggingar? X □ Hvaða korthöfum er gert að greiða 175 kr. gjald, sé kortið notað erlendis? □ □ Hvaða korthöfum er gert að greiða dráttarvexti hálfan mánuð aftur fyrir eindaga ef greitt er of seint? c 1 □ Hvaða korthöfum er ekki skylt að greiða forfallagjald ferðaskrifstofa, nema þeir sjálfir kjósi? & 1' □ Hvaða korthafar fá 50% afslátt af forfallagjaldi, sem ekki er skyit að greiða? □ 1' □ FARKORT VISA Frelsi til að ferðast - ódýrt og öruggt V/SA VISA ÍSLAND Höfðabakka 9,112 Reykjavík, sími 671700

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.