Morgunblaðið - 31.03.1993, Page 4

Morgunblaðið - 31.03.1993, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993 Framkvæmdum við Ingólfstorg í Reykjavík skipt á tvö ár Ferðamenn versla fyrir 100 millj. í miðborginni FORSVARSMENN ferðamannaverslana í nágrenni Ingólfstorgs hafa áhyggjur vegna fyrirhugaðra framkvæmda á þeim tíma ársins þegar milli 60 og 70% viðskiptanna fara fram. Samanlögð ferðamannaverslun á svæðinu sé um 100 milljónir. Að tillögu borgarverkfræðings hefur borgarráð samþykkt að skipta fram- kvæmdum við Ingólfstorg á tvö ár, 1993 og 1994 til þess að raska sem minnst umferð um og við torgið. í erindi kaupmannanna til borg- arráðs segir að reynslan sýni að dregið hafi úr umsvifum um allt að 20% hjá sumum fyrirtækjum í nágrenni Aðalstrætis síðastliðið sumar þegar framkvæmdir stóðu þar yfir. Bent’er á að sumarið sé bjargræðistími ferðamannaversl- ana. Ef aðgangur að þeim verði torveldaður hefði það mjög alvar- legar afleiðingar í för með sér. Fram kemur að áríðandi sé að borgaryfirvöld sjái til þess að um- ferð um svæðið leggist ekki af og aðgengi fólks um svæðið og að verslunum raskist sem minnst. Þá segir: „Þetta er unnt að gera með því að flýta framkvæmdum eins og kostur er, t.d. með vaktavinnu og kvöld- og helgarvinnu. Jafnframt þarf að leggja stöðugar en færan- legar göngubrýr með handriðum um svæðið og hvetja ferðamenn með öllum tiltækum ráðum til að nota þær og láta framkvæmdimar ekki hefta för.“ Koma mætti upp götuskiltum á og við svæðið og gefa út og dreifa blöðungum með leiðbeiningum um greiðustu leiðir. Tilgangur framkvæmdanna sé að auka og auðga mannlíf í mið- borginni og því verði að sjá til þess að þær stuðli ekki að frekari flótta verslana og þjónustu úr miðborg- inni. í tillögu Stefáns Hermannssonar betfgarverkfræðings, er lagt til að framkvæmdum við torgið sjálft verði lokið að mestu á þessu sumri en síðan taki við lagfæringar á Aðalstræti á næsta ári og þann hluta torgsins, þar sem Hafnar- stræti er nú. Þá segir að, „Með þessari tilhögun þarf ekki að breyta leiðum SVR á þessu sumri og trufl- un umferðar verður mun minni heldur en ella hefði verið. Auk þess hefði verið erfitt að ljúka við verkið allt á þessu ári án aukaljárveit- inga.“ Morgunblaðið/Kristinn Unnið úr gögnum ÚRSLIT í Lestrarkeppninni miklu verða kynnt í beinni útsendingu á Rás 2 á föstudaginn kemur, og verður útsendingin eftir kl. 8.30 í morgunútvarpinu. Nú þegar hafa borist umslög með þátttökueyðublöð- um frá um 170 af um 200 skólum í landinu, og hefur Menntaskólinn í Kópavogi tekið að sér úrvinnslu gagna. Á myndinni, sem tekin var í tölvuveri MK í gærmorgun, sést Stefán Jón Hafstein, framkvæmda- stjóri keppninnar, í miðið, ræða við þá Jóhann Pétursson og Garðar Gíslason, kennara við skólann, en til hliðar við þá sjást nemendur MK skrá upplýsingarnar inn á tölvur. VEÐUR ÍDAGkl. 12.00 V Heimild: Veðurstofa íslands (Byggt ó veðurspá kl. 16.15 í gær) VEÐURHORFUR I DAG, 31. MARS YFIRLIT: Skammt suður af Reykjanesi er 974 mb minnkandi lægð sem þokast norðvestur, en yfir Norður-Grænlandi er 1040 mb hæð. Yfir Skotlandi er 985 mb lægð á norðurleið. SPÁ: Það verður breytileg eða suðvestlæg átt á landinu, víða kaldi. Slydda verður á á Vestfjörðum og dálitlar skúrir hinaað og þangað um landið sunnanvert og einnig með norðurströndinni. Á Austurlandi verð- ur úrkomulítið í nótt. Lítið eitt kólnar í veðri. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA; HORFUR Á FIMMTUDAG: Hægviðri og skýjað, en að mestu úrkomu- laust. Hiti 2-3 stig. HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Vaxandi suðaustanátt. Sums staðar allhvöss sunnan- og suðvestanlands, en hægari í öðrum lands- hlutum. Suðaustan- og sunnanlands má búast við rigningu en að mestu þurrt annars staðar. Hiti 3-9 stig. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600. o á ö o Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk, Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig. r r / * r * * * * • * 10° Hitastig / r r r r * / r * r * * * * * V V V V Súld / Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél El - Þoka ' FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 igær) Flestir aðalvegir eru ágætlega færir. Möðrudalsöræfi eru fær jeppum og Fjarðarheiði er ófær. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti i síma 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðin. t VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 4 rigning Reykjavík 7 úrkoma i gr. Bergen 5 skýjað Helsinki 1 alskýjað Kaupmannahöfn 5 skýjað Narssarssuaq +10 skýjað Nuuk +7 þoka Osló 3 heiðskírt Stokkhólmur 0 snjókoma Þórshöfn 7 skýjað Algarve 19 skýjað Amsterdam 12 hálfskýjað Barcelona 16 léttskýjað Berlín 3 alskýjað Chicago 3 iéttskýjað Feneyjar 11 léttskýjað Frankfurt 8 heiðskírt Glasgow 11 skýjað Hamborg 4 léttskýjað London 14 skýjað LosAngeles 13 léttskýjað Lúxemborg 10 hálfskýjað Madríd 17 heiðskírt Malaga 18 léttskýjað Mallorca 17 heiðskirt Montreal 2 skýjað NewYork 8 súld Orlando 14 þokumóða París 10 skýjað Madeira 18 léttskýjað Róm 14 heiðskírt Vín 3 snjóél Washington vantar Winnipeg 0 skýjað Málarekstur vegna kaupsamnings Os-húseiningar greiði 50 millj. ÓSI-HÚSEININGUM hf. hefur verið gert að greiða þrotabúi Bygg- ingarfélagsins Óss hf. rúmar 47,3 milljónir króna vegna kaup- samnings frá því í nóvember 1989. Þá var Ósi-húseiningum gert að greiða tæpar 5 milljónir í málskostnað. Málavextir eru þeir, að í nóvember 1989 keyptu Ós-húseiningar hf. steypu vericsmiðj u Byggingarverk- smiðju Óss hf. í Garðabæ, ásamt öllum tilheyrandi búnaði. Eigendur voru flestir þeir sömu að hlutafélög- unum tveimur. Ekkert skuldabréf Dómarinn taldi að með vísun til ákvæðis í kaupsamningi .hefði kaup- andanum, Ósi-húseiningum, borið að gefa út skuldabréf _ til seljandans, Byggingarfélagsins Óss hf., að fjár- hæð rúmar 47,3 milljónir króna. Það hafi hins vegar aldrei verið gert. í fundarsamþykkt stjórnar Bygging- arfélagsins Öss frá í apríl 1990 sagði að fresta skyldi útgáfu og móttöku skuldabréfa samkvæmt kaupsamn- ingi við Ós-húseiningar, en dómarinn taldi að líta bæri á samþykktina í ljósi þess að stjórnendur beggja fyrir- tækjanna voru flestir hinir sömu og að auki nákomnir. Á hitt beri og að líta að aldrei hafi verið gerð sam- þykkt um að falla frá útgáfu skulda- bréfsins. „Fjárhagsstaða Byggingar- félagsins Óss hf. var þannig um það leyti er viðskiptin áttu sér stað að stjórnendum þess bar að gefa það upp til gjaldþrotaskipta," segir í dóm- inum. Þá segir að vegna vitneskju forsvarsmanna stefnda um ógjald- færni seljandans hafi það farið í bága við gjaldþrotalög að greiða umsamið kaupverð með skuldajöfn- uði. Helgi Tómasson sýnir í New York Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaösins. BALLETT San Francisco-borgar undir stjórn Helga Tómassonar sýndi í gærkvöldi ballettinn Svanavatnið á sviði leikhúss New York-ríkis, þar sem Helgi dansaði í fimmtán ár hjá New York ballettinum. Þetta er fyrsta sýningin af sex, sem ballettinn flytur á tæpri viku í New York, og var henni fylgt úr hlaði með lofsamlegri umfjöllun um Helga í sunnu- dagsblaði The New York Times. Helgi er höfund- ur dansa í mörgum atriða uppfærslu sinnar á Svana- vatninu, sem var sýnd við misjafnar viðtökur gagnrýn- enda í San Franc- isco. San Francisco ballettinn mun einnig sýna aðra balletta í New York, bæði með dönsum eftir Helga og aðra, þeirra á meðal George Balanc- hine, sem árið 1948 stofnaði ballett New York borgar, sem Hglgi dans- aði með á sjnum tíma. Aðrir stytta leikárið í greininni, sem er skrifuð undir fyrirsögninni „Hann flutti hjarta sitt til San Francisco", er til þess tekið að Helgi kemur með ballett sinn til borgarinnar á sama tíma og dans- flokkar í New York hafa þurft að stytta leikárið, eða jafnvel fella niður sýningar með öllu. Dansflokkurinn í San Francisco hefur ekki farið varhluta af þeim fjárhagsörðugleikum, sem um þessar mundir dynja á bandarískum ballett- heimi. I greininni er ýjað að því að þessa erfiðleika megi rekja til þeirrar tilhneigingar að steypa alla dansara í sama mót. Þar er hins vegar tekið fram að Helgi leggi áherslu á ein- staklingseðlið í dönsurum sínum, aðeins þannig muni hann geta þrosk- að dansara á heimsmælikvarða og uppfyllt drauma sína um vegferð San Francisco ballettsins. „Hann hefur áhyggjur af því að í dansi okkar daga sé allt eins,“ skrif- ar greinarhöfundur, öfugt við fyrri tíma: „Hann rifjar upp mikla lista- menn af sinni eigin kynslóð, fólk á borð við Suzanne Farrell, Nataliu Makacovu, Peter Martins, Anthony Dowell og,“ bætti hann brosandi við, .jafnvel Ilelga Tómasson“.‘f

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.