Morgunblaðið - 31.03.1993, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993
7
Hópur fólks í Kjalarneshreppi vill sumarbílveg upp á Esju
Fjallið verði aðeins gönguland
- segir Náttúruverndarráð og telur bílaumferð spilla svæðinu
Vegur upp á Esju
ÁHUGI er fyrir að leggja veg upp á Esju frá Tíðaskarði á Kjalar-
nesi um Blikdal.
HOPUR fólks í Kjalarneshreppi
hefur lýst áhuga á að leggja veg
upp á lág Esju um Blikdal. Að
sögn Jóns Péturs Líndal sveitar-
stjóra, er hugmyndin sú að gefa
öðrum en gangandi fólki kost á
að komast á Esju. Erindið hefur
verið sent til Náttúruverndar-
ráðs og varð niðurstaðan sú að
ráðið telur að Esju eigi að taka
frá sem gönguland og útivistar-
svæði sem ekki eigi að spilla með
vélknúinni umferð.
„Við viljum ræða þetta frekar
við Náttúruverndarráð og höfum
við farið fram á fund með þeim,“
sagði Jón Pétur. Leiðin sem um er
að ræða liggur um land sem hrepp-
urinn á og er hugmyndin að leggja
einnar akreinar sumarveg og flytja
fólk upp í áætlunarferðum. Sagði
Jón Pétur að vegarstæðið væri
ekki erfitt eftir því sem næst yrði
komist og er áætlaður kostnaður
um 500 þús. til milljón krónur mið-
að við ódýrustu lausn en vegurinn
verður kostaður af áhugafólki.
„Þrátt fyrir undirtektir Náttúru-
verndarráðs líst mönnum hér ágæt-
lega á hugmyndina,“ sagði Jón
Pétur. „Ég sé ekki endilega að það
tengist náttúruvernd að eitthvað
svæði sé eingöngu fyrir göngufólk
og ekkert annað. Ég held að það
séu ekki endilega náttúruspjöll þó
svo að menn komist öðruvísi en
gangandi um tiltekin svæði. Við
viljum því kanna hvort hægt er að
semja um útfærslu sem ráðið getur
sætt sig við. Ef vel tekst til með
veginn hef ég trú á að áhugi auk-
ist fyrir náttúruvernd."
Forstjóri Flugleiða um verðlækkun hlutabréfa í félaginu
Eðlileg lækkun á gengi bréfanna
SIGURÐUR Helgason forsljóri Flugleiða segir lækkun á gengi
hlutabréfa í fyrirtækinu síðastliðin tvö ár mjög mikla, en eðlilega
í ljósi aðstæðna á fjármálamarkaði hérlendis og eðlis hlutabréfa-
markaðar á Islandi.
Sigurður sagði að lækkun á
hlutabréfum í félaginu væri ekki
sérstaklega mikil síðustu vikurnar.
„Það tímabil sem tekið var fyrir í
frétt Morgunblaðsins, þ.e. síðustu
tvö ár, nær yfir þann tíma frá því
markaðurinn var sem hæstur.
Hlutabréfamarkaðurinn hefur al-
mennt lækkað mjög mikið eins og
Morgunblaðið hefur sýnt fram á,
hvort sem það eru Flugleiðir eða
önnur fyrirtæki sem hlut eiga að
máli.“
70% meðalhækkun
„Hlutabréfamarkaðurinn á Is-
landi virðist vera mjög ófullkom-
inn. Það má kannski segja að
gengi hlutabréfa í Flugleiðum hafi
verið óeðlilega hátt fyrir tveimur
árum þegar það náði hámarki.
Gengið hafði hins vegar hækkað
um að meðaltali 70% fimm árin á
undan. Ef tekin hefðu verið saman
síðastliðin fjögur eða fimm ár hefði
útkoman líklega orðið ágæt meðal-
hækkun á ári,“ sagði Sigurður.
Engin áhrif á fyrirtækið
Hann sagði að gengi hlutabréfa
í Flugleiðum hefði verið mjög hátt
á tímabili þegar mikil eftirspurn
var eftir þeim vegna langtum
hærri skattafsláttar og betra efna-
hagsástands. Hann sagði að lækk-
andi gengi hiutabréfa í félaginu
Meginverkefni fulltrúans varða
vísinda- og tæknisamvinnu og því
eru gerðar kröfur um að viðkom-
andi starfsmaður hafi trausta
þekkingu á skipan rannsóknamála
hefði engin áhrif í efnahags- eða
rekstrarreikningi fyrirtækisins.
„Hlutabréfamarkaðurinn hér er
mjög ófullkominn og ekki sam-
bærilegur við hlutabréfamarkað í
Bandaríkjunum eða á Norðurlönd-
um. Það er hins vegar álitamál
hvort lækkunin hafi áhrif á tiltrú
hluthafa gagnvart fyrirtækinu, en
þetta hefur engin sérstök áhrif á
fyrirtækið."
hér á landi. Ráðning í starfið verð-
ur tímabundin í 1-3 ár, og er
umsóknarfrestur um stöðuna til
20. apríl næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið
Auglýst eftir fulltrúa
við sendiráðið í Brussel
Menntamálaráðuneytið hefur auglýst lausa stöðu fulltrúa á
vegum ráðuneytisins sem ráðgert er að ráða í við sendiráð Islands
í Brussel. Hlutverk fulltrúans verður að sinna verkefnum sem
varða Evrópusamstarf á sviði vísinda og tækni, menntunar, fjölm-
iðlunar og æskulýðsmála og í öðrum málum sem tengjast stjórn-
sýslusviði menntamálaráðuneytisins.
fyrir hressa
útivistarkrakka
VANGO SVEFNPOKAR
Nitestar 3
Kuldaþol -10°C, þyngd 2 kg
verð 4.900
Nitestar 2
Kuldaþol -5°C, þyngd 1,7 kg
Verð 3.900
VANGO BAKPOKAR
s'herpa 55L
verð 4.900
Sherpa 65L
verð 6.250
VANGO KÚLUTJÖLD
DD 300
þyngd 4,25 kg
Verð 12.900
DD 200
þyngd 3,75 kg
Verð 10.200
TVÖ THBOÐ
Svefnpoki Nitestar 2
Bakpoki Sherpa 65
Fermingartilboð
3.900
6.250
Kr. 10.150
Kr. 8.950
Tjald DD 300 12.900
Svefnpoki Nitestar2 3.900
Kr. 16.800
Fermingartilboð Kr. 14.980
SPORTHÚS
RHYKJAVÍKUR
LAUGAVEGI 44. S(MI 62 24 77
2 nætur a
Flug og gisting.
Flug og gisting.
Möguleíki á lengri
dvöl um páskana.
Páska
sraS£0B ^
ng.
Möguleiki á lengri
dvöl um páskana.
* Verð á manninn m.v. 2 fullorðna I herbergi. Flugvallarskattar
(ísland 1.250 kr., Danmörk 670 kr. og Holland 230 kr.) eru ekki
innifaldir í verði.
FLUGLEIÐIR
Traustur íslenskurferðafélagi
Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn
um allt land, ferðaskrifstofurnar eða í síma 690300
(svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8 -18.)
Flug og gisting.
Möguleikl á lengri
dvöl um páskana.