Morgunblaðið - 31.03.1993, Side 16

Morgunblaðið - 31.03.1993, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993 100 ára Þórður Kristleifsson memitaskólakemiari Fyrir rösklega fjörutíu árum var hafist handa um að koma á fót menntaskóianámi á Laugarvatni. Sú fróðlega saga verður ekki rakin hér — nema hvað fyrstu stúdent- arnir frá fullgildum menntaskóla á því skólasetri voru útskrifaðir vorið 1954, undirritaður var í þeirra hópi. Margir ágætir menn komu við til liðs við þessa skólastofnun. Og einn þeirra sem hvað drýgst áhrif höfðu á skólabrag allan og afstöðu okkar nemenda til þess sem við störfuðum er tíræður í dag: Þórður Kristleifsson, áður kennari við Héraðsskólann og landskunnur fyrir framlag sitt til söngmenning- ar landsmanna. Hann var þýsku- kennari okkar menntskælinga. Fljótt á litið gat svo virst sem Þórður ætti við ramman reip að draga. Hann kenndi okkur tungu sigraðrar þjóðar skömmu eftir heimsstríð þegar margir héldu að Þjóðveijar væru dottnir út úr mannkynssögunni fyrir fullt og allt. En með þeim brennandi áhuga sem helgar hvert starf gat hann einhvern veginn fengið okkur til að samþykkja það, að þýsk tunga væri eitt helsta hryggjarstykkið í menningunni. Gert það að gildum þætti í okkar metnaði að ná tökum á þessu máli. Og við lærðum okkar málfræði og endursagnir utanað og veltum af stakri samviskusemi vöngum yfir réttum og smekkleg- um þýðingum og sátum furðu margir uppi með dijúga kunnáttu, sem geymd er einhvers staðar í hugarskoti og er þar til taks þegar á þarf að halda. Þetta var því að þakka að Þórð- ur Kristleifsson er einn þeirra fá- gætu manna sem hafa gert sér kennslu að list. Við vorum ekki bekkur heldur hljómsveit og hann hljómsveitarstjórinn. Þetta hljómar ef til vill eins og rómantískar ýkjur en svona var þetta. Og þegar hann var búinn að stilla saman allar fiðl- ur og liðka alla fingur, gat vinnan farið að bera þann ávöxt sem til var stofnað. Eða eins og hann komst að orði um kennara og nem- endur hans í viðtali fyrir tveim árum: Þá getur bóndinn sofið með- an grasið vex. Þegar einn okkar lagðist í skrópasótt og þóttist vilja vinna upp eitthvað sem hann hafði van- rækt, reisti Þórður hann skjótt á fætur með því að ganga að fleti hans og segja með strangri vin- semd: „Menntagyðjan, væni minn, hún þolir ekkert daður.“ Sem er náttúrlega alveg rétt. Menn mega síst við því að daðra með hálfum huga við það sem þeir eru að fást við. Fordæmi Þórð- ar og leiðsögn gátu um leið orðið okkur að öðrum sannindum; þeim sem hefur gjört einu verki góð skil veitist miklu auðveldara að vinna vel önnur verk sem hans bíða. Þessar Iínur eru lítill þakklætis- vottur til Þórðar Kristleifssonar frá gömlum nemanda fyrir margar góðar stundir og gagnlegar; hann kenndi okkur í reynd svo margt í viðbót við þá námsgrein sem hann tók ábyrgð á. Arni Bergmann. í minningabók minni, frá skóla- árunum 1937-1939 í Héraðsskól- anum á Laugarvatni, stendur skrif- að: „Þórður Kristleifsson, f. 31. mars 1893.“ Já, það er hann, kenn- arinn okkar í söng- og sönglistar- sögu, íslensku og þýsku. í dag, 31. mars, er hann 100 ára. Hann dvelst nú á Droplaugarstöðum við Snorra- braut í Reykjavík. Undanfarin ár hefí ég nokkrum sinnum heimsótt hann, og ævinlega hitt hann hress- an og minnisgóðan. Hugurinn hvarflar að Laugarvatni um þetta leyti ársins 1939, í lok skólaársins, kvöddumst við, nemendur og kenn- arar, á hlaðinu fyrir framan Hér- aðsskólann. Síðan eru liðin 54 ár, og mikið vatn runnið til sjávar. Samskipti nemenda og kennara hafa ekki verið mikil síðan. Hópurinn hefir dreifst vítt og breitt um lands- byggðina til ýmissa starfa og aðrir hafa horfið af sjónarsviðinu. Skarð hefir komið í kennaraliðið, en einn af þeim sem eftir lifa er Þórður Kristleifsson. Það er ekki ætlun mín að rekja æviferil þessa mæta manns, það gera sjálfsagt aðrir mér fróðari, en mér finnst, að á þessum tímamótum á ævi hans megi ég til með að rifja upp nokk- ur minnisverð atriði frá kynnum mínum af þessum sérstæða per- sónuleika. Haustið 1937, að kveldi dags, kom ég fyrst að Laugarvatni, skólaárið að hefjast. Veðrið var stillt, skógarilminn lagði að vitum manns og Laugarvatnið var spegil- slétt, og gufan frá hvernum við vatnið steig hátt í loft upp. Skóla- byggingin öll var uppljómuð í kvöldrökkrinu og líktist helst dýr- indishöll. Inni í skólanum gengu nemendur um ganga, og barst klið- ur af tali þerira út á hlaðið, og sumir komu út til að vita um bög- glasendingar, sem vanalega komu með áætlunarbifreiðinni. Fyrstu nóttina svaf ég lítið vegna viðbrigðanna að koma frá Reykja- vík og í friðsemdina í Laugardaln- um. Nú byijuðu námstímamir, og ég man að eftir fyrsta tímann kom til mín á skólagangi Þórður Kristleifs- son kennari í söngfræðum, íslensku og þýsku. Hann bauð mig velkom- inn í skólann og kvaðst þurfa að raddprófa mig eins og aðra nem- endur skólans, og óskaði eftir að ég kæmi í íbúð hans, á ákveðnum tíma. Þetta var spengilegur maður, hnarreistur, göngulagið ákveðið og með hraðara móti, hárið fagurlega liðað, svipurinn einbeittur og augun leiftrandi. Til íbúðar Þórðar fór ég svo á tilsettum tíma og bauð hann mér að ganga inn og standa við oregl hans og reyna að syngja lag, samtímis því, sem hann léki það á hljóðfærið. Að því loknu úrskurðaði hann mig í 2. bassarödd, um leið og hann sagði að ég skyldi mæta í söngtíma og sönglistarsögu hjá sér, samkvæmt stundarskrá, og lagði áherslu á góða mætingu. I fyrsta söngtímanum var fræðst um hvernig tónlistin hefði þróast í gegnum tíðina og hljóðfærin, allt frá frumstæðum tóngjöfum og til nútíma hljóðfæra. Síðari hluti tímans fór í að æfa raddirnar hveij- ar fyrir sig og síðan að syngja sam- an, bæði stúlkurnar og piltarnir. Þórður stillti kórnum upp og lagði áherslu á hvernig beita ætti rödd- inni, því röddin væri sérstakt hljóð- færi, og jafnvel besta hljóðfærið, væru raddirnar rétt stilltar og rétt sungið. Nú var kórinn kominn í réttar stellingar að áliti Þórðar, og gekk hann að orgelinu og gaf tón- inn, hverri rödd fyrir sig, og síðan gekk hann fram að kórnum og virti vel fyrir sér, og þá var eins og augu hans sæju inn í hugskot hvers og eins, og augu hans voru vökul og leiftrandi, svipurinn alvarlegur og ákveðinn, þetta var eins og þeg- ar tónlistarmaður byijar að leika tónverk! Alltn' einu lyfti hann hönd- um til merkis um að allir skyldu viðbúnir að byija að syngja. Lagið gekk nokkuð vel í byijun, en Þórð- ur stöðvaði sönginn og það var auðfundið að honum líkaði ekki vel og sagði: „Svona syngjum við ekki lagið — tónskáldið samdi það ekki svona! Við skuluin byija aftur!“ Og nú gekk þetta betur, en þegar kom- ið var langt í laginu stöðvaði söng- stjórinn aftur og var hörkulegri en áður, en þó gaf hann jafnframt vinsamlegar leiðbeiningar um beit- ingu raddarinnar, og að öndunin væri rétt. Síðan var reynt á ný, og nú gekk allt miklu betur og lagið sungið til enda. Nú mátti sjá að Þórður var hrærður og sagði: „Já, þakka ykkur fyrir! Þetta var allt miklu betra! Svona á að syngja þetta lag.“ Þarna dáðumst við að því hvað maðurinn hafði mikla þekkingu á söng og annarri tónlist og bárum virðingu fyrir vandvirkni hans. Allt skyldi gera sem réttast og best. Hann var frábitinn allri lognmollu og lágkúru í tónlist og fræddi okkur um þekktustu snill- ingana á sviði tónlistarinnar, tón- skáld, tónlistarstjóra, hljóðfæra- leikara og söngvara, og hann kenndi þetta þannig að ekki varð komist hjá að taka eftir því sem hann var að segja, enda lagði hann mikið upp úr því að nemendur tækju vel eftir. í einum tímanum sagði hann: „Kæru nemendur, þið eruð hér í skólanum til að læra og foreldrar ykkar ætlast til þess að þið lærið, — og ég er hér til að reyna að kenna ykkur, og ég krefst þess að þið mætið vel í tímana, og stundvíslega!“ Þetta voru sterk orð, en mælt af velvilja og sannfæringu og þau virkuðu. Vandvirkni hans var frábær á öllum sviðum hvort sem það var söngkennsla, tónlistar- fræðsla, málið okkar eða þýskan. Öll framganga mannsins bar vitni um mikla þekkingu á þeim málum, sem hann kenndi, og auðsjáanlega agaður vel í þeim öllum, allt varð að vera rétt gert og undansláttur aldrei leyfður. Þórður hafði búið erlendis, eink- um í Þýskalandi og Ítalíu, og orðið fyrir sterkum áhrifum í sambandi við tónlist. Hann dáðist að tón- listarstjórnandanum heimsþekkta á Ítalíu, Arturo Toscanini, og ræddi oft um hans yfirburðaþekkingu á tónlist og hvérnig hann lærði og kunni heilu tónverkin utan að! Lýs- ing Þórðar var slík að við hrifumst með honum, og mátti sjá að hann viknaði og varð að hemja tilfinning- ar sínar. Hann ræddi um söngvar- ann Enrico Caruso, Tito Schipa, Benjamini Gigli, söngkonuna Ame- hte Galli, Gurci og fleiri heims- þekkta listamenn á sviði tónlistar. Hann ræddi um Rossini, ítalska tónskáldið, og dáði hann mjög og flutti reyndar síðar erindi um hann í Ríkisútvarpið, fróðlegt að vanda. Um tóngjöfina, þá mestu, fræddi hann okkur og þar í fremstu röð voru þeir Ludvig van Beethoven, sem samdi Missa Solemnis, Sinfó- níurnar níu og þá 9. sérstaklega. Konserta hans og strengjakvart- etta, píanósónötur, sellósónötur og fleiri tónverk. Wolfgang Amadeus Mozart og óperur hans, t.d. Töfra- flautan, Brúðkaup Fígarós og hina fögru píanókonserta auk annarra tónverka. Þá kom Franz Schubert og tónverk hans, Vetrarferðin, þar sem Þórður þýddi textann úr þýsku, eftir þýska ljóðskáldið Wilhelm Muller. Þá kom. J. Sebastan Bach og ýmis kirkjuleg tónverk eftir hann, eins og H-moll-messan, eitt æðsta meistaraverk tónlistarsög- unnar, Krómantíska fantasían og Brandenborgar-konsertarnir sex. Lög eftir ýmis tónskáld æfði Þórð- ur með kómum og reyndar einnig eftir áðumefnd tónskáld, og vakti það óskipta ánægju nemenda, eink- um þegar röðin var þessi, að fræð- ast um tónskáldin, læra lögin þeirra og texta við þau og síðan syngja, þá var þetta sérstök upplifun! Þórður hefir látið svo um mælt, að söngkórinn, hvetju sinni, hafi eiginlega verið hans uppáhalds hljóðfæri, því að þegar gesti bar að garði, frá íjarlægum stöðum, hvort sem það voru eldri nemendur eða aðrir gestir, þá fannst honum ánægjuauki að geta boðið upp á söng nemenda sinna og glatt gest- ina, og ekki var erfitt fyrir hann að hóa sama kórfélögunum. Oft kom það fyrir í söngtímum hjá Þórði, þegar hann var að útskýra ýmis tónverk meistaranna og dást að snilli þeirra, að hann viknaði, og glitrandi dropar komu um augn- hvarmana. Þá lifði hann sig svo inn í verkin að sjáanlegt var að hann hrærðist og átti varla orð til að lýsa töfrandi tónlist, því að þar sem mátt orðanna þrýtur, þar tekur tónlistin við. Þórður ritaði æviminningar nokkurra tónsnillinga og þær komu út í bókinni „Tónsnillingaþættir" fyrir mörgum árum, en sú bók mun ófáanleg í bókabúðum. Einnig komu út eftir hann tónlistarritin „Ljóð og lög handa samkórum" sem gerðu söngkennurum auðveldara að koma lögum á framfæri og að glæða almennan söngáhuga í land- inu, og þar á Þórður stóran þátt. Hafi hann hugheilar þakkir fyrir það framtak. Hugurinn hvarflar til yndis- stundanna í Héraðsskólanum að Laugarvatni fyrir rúmlega hálfri öld, eða síðustu áranna fyrir síðari heimsstyijöldina. Margs er að minnast. Þar áttum við nemendurn- ir margar lærdómsstundir og ánægju í leik og störfum, undir öruggri leiðsögn okkar ágæta kennara, og vona ég og fullyrði að á engan þeirra sé hallað þótt ég segi að þar bar hæst Þórð Krist- leifsson. Hann mun verða eftir- minnilegastur og ógleymanlegur, bæði sem kennari og persónan sjálf. A þessu hundraðasta aldurs- ári hans skulu honum færðar hjart- anlegar þakkir fyrir allt, sem hann fræddi okkur nemendurna um — um allt það fagra og töfrandi úr tónaheiminum! Megi unaðstónar ástsælu tón- skáldanna óma honum í huga og hjarta á yndislegu ævikvöldi hans. Halldór Ágúst Gunnarsson. Tíræður er í dag Þórður Krist- leifsson, Droplaugarstöðum í Reykjavík, fyrrum söngstjóri og menntaskólakennari á Laugarvatni og í Reykjavík, heiðursfélagi í Fé- lagi þýskukennara á íslandi. Ekki er mörgum gefínn slíkur aldur, enn færri heilsa með aldri. En Þórður er lítið farinn að láta á sjá, og þó aðeins til líkamans og það lítillega. Andinn er vakinn sem jafnan fyrr; fágæt gæfa er það og sjaldsénir yfirburðir. Þórður Kristleifsson fæddist á Uppsölum í Hálsasveit í Borgarfirði hinn 31. mars 1893. Hann er reynd- ar oft kenndur við Stóra-Kropp í Reykholtsdal, en þar bjuggu for- eldrar hans, Kristleifur Þorsteins- son (1861-1952), bóndi og fræði- maður, af Húsafellsætt, og Andrína Guðrún Einarsdóttir (1859-1899) frá Urriðafossi í Villingaholtshreppi í Ámessýslu. Að Þórði standa því traustar ættir Borgfirðinga og Flóa- manna. Tvítugur hóf Þórður að bijótast til náms umfram það sem almennt var. Þá biðu ekki námsbrautirnar, tylftum saman, en bijóta máttu menn sér leið, sumir, ef þeir kenndu þorstans til mennta. Tvo vetur var hann í akademíu sr. Ólafs Ólafsson- ar í Hjarðarholti. Nokkrum árum síðar, kominn hátt á þrítugsaldur, brýst hann til Reykjavíkur, þar sem hann leggur stund á tungumála- og tónlistarnám í einn vetur. En nú halda honum engin bönd, hann heldur utan og er 1920-1927 við tónlistarnám, aðallega söngnám, í Kaupmannahöfn, Dresden, Mílanó og Berlín. Heim kominn kennir hann fyrstu 3 árin við ýmsa skóla í Reykjavík, bæði söng og tungu- mál, en 1930 er hann ráðinn að Laugarvatni, þar sem hann kenndi við almenna virðingu og aðdáun, fyrst við Héraðsskólann og síðan við Menntaskólann, það sem eftir var hins leyfða embættisferils, eða til vors 1963. Við menntaskólann, þar sem ég kynntist honum, nem- andi hans, var hann þýskukennari skólans, lengst af einn, en stjórnaði jafnframt skólakórnum. Auk þessara kennslustarfa gegndi Þórður ýmsum tímabundn- um trúnaðarstörfum á vegum söng- málayfirvalda, hélt söngnámskeið, útsetti fjölda sönglaga og þýddi söngtexta eða frumsamdi og er miklu meira en rakið verði hér, allt í því skyni að fólk ætti nóg til að syngja. Alkunnugt er sönglagasafn hans „Ljóð og lög“, sem út kom í 7 bindum 1939-1949 (3. útg. 1980). Og margt fleira gaf Þórður reyndar út á þessu sviði. Eftir að Þórður lét af embætti samkvæmt opinberum reglum,.sem byggja á aldri í árum töldum, flutt- ist hann í höfuðstaðinn, þar sem hann kenndi á annan áratug við Menntaskólann í Reykjavík. En jafnframt og lengi síðan vann hann að því þrekvirki að búa til prentun- ar og gefa út fjölda ritverka um sögu Borgarfjarðar, aðallega verk sem faðir hans, Kristleifur á Stóra- Kroppi, hafði tekið saman. Eiginkona Þórðar var Guðrún Eyþórsdóttir, fædd að Tinduni í Svínavatnshreppi í A-Húnavatns- sýslu 1897. Foreldrar hennar voru Eyþór Benediktsson og Björg Jósef- ína Sigurðardóttir, sem bjuggu að Hamri í sömu sýslu. Guðrún lést árið 1983. „Die Sonne war noch nicht aufgegangen, uber de Vesuv lag- erte eine breite graue Nebelschicht, die sich nach Neapel hinuberde- hnte...“ Þessi er mér minnisstæðastur þýskra texta, jafnvel allra texta. Ég veit að eins er farið mörgum félögum mínum, sem fengu að glíma við hann undir handleiðslu Þórðar Kristleifssonar í bruna- rústum austur í Laugardal fyrir hartnær hálfri öld. Um er að ræða upphafið á hinni ljúfu sögu L’Arrab- iata eftir Paul Heyse, sem var loka- kaflinn í þýskukennslubók Jóns Ófeigssonar frá 1907. Þá var höf- undurinn nýbúinn að fá bókmennta- verðlaun Nóbels. Þetta var loka- þáttur fyrsta árs þýskunnar, há- punkturinn, synþesan mikla um vorið eftir hinar þrotlausu mál- fræðilegu analýsur vetrarins. Og kennarinn fór um hann þeim hönd- um að þetta var heilög stund, helg- ur texti, nánast guðspjall. Við nem- endur skynjuðum hann þannig og viðurkenndum. Öll kunnum við ut- anbókar langa hluta upphafsins og þótti sjálfsagt mál. Og það var sjálf- sagt mál vegna þess, að hjá Þórði var engin leið að gleyma hlutum sem þessum. Þannig var tak hans á okkur. Þessa lýsingu skilja allir nemend- Þakkarávarp Öllum þeim, sem glöddu mig á sjötugsafmœl- inu meÖ heimsóknum, skeytum, símtölum, söng oggjöfum, fœri ég bestu kveöjur og alúöar- þakkir. Guð blessi ykkur öll. Torfi Guðbrandsson, Bogahlíð 12, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.