Morgunblaðið - 31.03.1993, Síða 17

Morgunblaðið - 31.03.1993, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993 17 ur Þórðar, fyrir þeim eru þessi orð upprifjun. Erfiðara er um skýringar fyrir hina, sem ekki fengu að njóta hans. Eitt var það um kennslu hans, að menn skyldu setja sig í stelling- ar. Stellingarnar voru þær, að sitja beinn í baki með augu á kennaran- um allan tímann, ekki aðeins í 44 mínútur heldur í 45 mínútur. Þórð- ur nefnilega nýtti tímann, hann var í þeim flokki kennara sem losna ekki við tíma, þegar frí dynja yfir, heldur missti hann þá, og það var sár missir. Allra augu skyldu koma á einn stað, allra hugir skyldu vera samstiga. Hér er augljóst samheng- ið við kórstjórnarþjálfun kennarans. Hann lét okkur iðulega lesa eða þylja í kór. Þá þýddi ekkert að hreyfa bara varirnar og vera að hugsa um annað. Hann tók eftir því þegar í stað, þótt um 29 manna hóp væri að ræða, eins og ég man til á fyrsta árinu, og það þýddi að maður var kjöldreginn. Auðvitað var kjöldrátturinn af hárri gráðu siðfágunar, eins og allt hjá Þórði, hann fólst ekki í öðru en nokkrum vel völdum orðum, en maður kaus að draga þau ekki að sér aftur. „Ég skal láta þig vita það, ungi maður, að hafir þú hugsað þér að vaða hér á skítugum skónum inn í heilög vé, þá má ætla að þú þurfir ekki að hafa af því áhyggjur að kemba hærurnar á þessum stað.“ Svona yfirlýsing var nægielg í eitt skipti. Að þessari samstillingu gefinni fékk kraftur Þórðar að njóta sín, en það er annað orð sem ég vil nota um kennslu hans. Nú var ekki um annað að ræða en keyra á full- um hraða allan tímann, enda hrundi samstillingin ef hægt var á. Kraftur er rétt orð, en þó ekki nægilegt um þennan þátt, fítonsandi var það einnig, intensitet, sem ekki er öllum gefið; eldur er einnig orð við hæfi. Að dotta í tíma hjá Þórði var svo gjörsamlega fráleitt, að nemandi hans, sem þessi möguleiki er orðað- ur við, brestur í skellihlátur, og óhugsandi er að þessi tilhugsun komi nemanda Þórðar ótilkvödd. Þórður er hár maður vexti, herði- breiður, hnarreistur og glæsilegur á velli. Tröll er hann að burðum, enda alinn upp við líkamleg átök. Andlitið er breitt og bjart, augun snör, svipurinn allur mikilúðlegur. Ég hef séð mynd af Þórði um tví- tugt, þar sem hann er að vinna að plægingum, um það bil á miðri leið plógfarsins. Tveir hestar voru spenntir fyrir plóginn, en það sem vakti athygli mína var, að taumarn- iar voru slakir. Sannleikurinn er sá, að engu var líkara en Þórður ýtti plógnum á undan sér gegnum mold- ina. Þar sem hann ýtir, þarf engan til að toga. Það sýnir sig enn, að sá sem hvergi sparar sig, endist best. Ending Þórðar er með fádæm- um: Þegar hann var nær hálfátt- ræður var bifreið ekið á hann á fullum borgarhraða. Úr þessu varð nánast gamansaga, sem sjaldgæft er af slíku tilefni, en sannast mála er, að Þórður stóð upp nánast ómeiddur en bíllinn eyðilagður. Var þó um að ræða þýska gæðavinnu og þýskt gæðastál frá Wolfsburg. Margur er kennarinn sterkur, margur hefur hátt og beitir hörku, jafnvel sanngjarnri, og nær þó ekki hug og hjarta sinna ungu skjólstæð- inga. En það gerði Þórður svo sann- arlega. Er nokkur dýpri skýring til á ógleymanleik Þórðar, á óafmáan- leik hans? Fyrir tveim árum hitti ég hann ásamt fleiri þýskukennur- um og talið barst að nemendum, sem komu í þýskunám til hans á síðari stigum og höfðu misst af hreinsunareldi fyrsta ársins. Um þá sagði Þórður: „Það reyndist studnum þungt fyrir að fá þá til að taka flugið.“ Það var nefnilega flugið. Þórður var og er haldinn þeirri logandi ástríðu listamannsins að duftið skuli fljúga til hæða og geti það, ef skap- gerð er nægilega sterk til þess að æfa þrotlaust og gefast ekki upp. Honum dugði ekkert minna, fyrir hönd okkar nemenda. Þetta skynj- uðum við, óvitarnir, og vildum, eft- ir hinum óljósa og hvikandi hættti æskunnar, auðvitað, samsamast þessari kröfu. En ekkert er eins upphefjandi eins og að gefa sig list- inni á vald. Þess vegna elskuðum Fræðslufundir Gigtarfélagsins við Þórð. Mér finnst að kennslu- fræðingar nútímans ættu að draga ályktanir af þessu. Nátengt þessu er eitt orð enn, sem ég vil nota til að reyna að lýsa Þórði Kristleifssyni. Það er orðið auðmýkt, það er hin algjöra lotning hans fyrir viðfangsefninu, fyrir þýskri tungu og menningu, fyrir íslenskri tungú og menningu, fyrir allri hnitmiðaðri tungu, allri göfg- andi menningu. Viðfangsefnið var heilagleikinn sjálfur, það eina sem heilagleikanum er bjóðandi er hinn fullkomna lausn. Þar kom engin málamiðlun til geina, þar var ekk- ert hér um bil. í þessu ljósi sé ég skýringuna á því að sólarupprásin í L’Arrabiata varð að helgistund í meðförum Þórðar. Það er einmitt það sem sólarupprásin er í eðli sínu. Þór Vigfússon. GIGTARFÉLAG íslands hefur skipulagt nokkra fræðslufundi á vormisserinu fyrir fólk með ákveðna gigtsjúkdóma. Fundirnir verða haldnir á fimmtudagskvöld- um kl. 20.30 á Hótel Sögu. Geng- ið er inn að norðanverðu og farið upp á aðra hæð. Mögulegt verður að kaupa heita drykki. Fyrsti fundurinn verður fimmtudaginn 1. apríl í B-sal Hótels Sögu og verður þá fjallað um rauða úlfa. Markmið fundarins er að veita almenna fræðslu og gefa fólki með hliðstæð vandamál, aðstandendum þeirra og öðru áhugafólki á að hitt- ast og kynnast og stofna til frekari kynna ef áhugi er fyrir því, m.a. með því að koma upp tengiliðum. A hveijum fundi verður í stuttu máli sagt frá starfsemi Gigtarfélags- ins og einstaklingur með reynslu af viðkomandi sjúkdómi fenginn til að segja frá reynslu sinni af honum og áhrifum á líf sitt. A.m.k. einn læknir verður fenginn til að segja frá einkennum sjúkdóms- ins og meðferð og fulltrúi eins eftir- talinna fagaðila, eftir því sem við á, verður til staðar til að fjalla um og/eða svara fyrirspurnum um frek- ari meðferð viðkomandi sjúkdóms, þ.e. sjúkraþjálfari, iðjuþjálfari og hjúkrunarfræðingur. Fyrirspurnir og umræður verða leyfðar á eftir hveiju erindi. Efni og tímasetning einstakra fræðslufunda og frummælenda verða sem hér segir: Rauðir úlfar 1. apríl, B-sal Hótel Sögu. Læknir Kristján Steinsson. Hjúkrunarfræð- ingur: Þóra Arnadóttir. Veijagigt 15. apríl í A-sal Hótel Sögu. Læknir Árni Geirsson. Sjúkraþjálfari: Sig- rún Baldursdóttir. Barnaliðagigt: 29. apríl B-sal Hótel Sögu. Læknar Helgi Jónsson og Jón Kristinsson. Beinþynning: 6. maí A-sal Hótel Sögu. Læknar: Gunnar Sigurðsson og Kári Sigurbergsson. Psoriasis- liðagigt: 13. maí A-sal Hótel Sögu. Læknar: Helgi Valdimarsson og Kristján Steinsson. (Fréttatilkynning) „AUirmeðí kLfjögur ídagr „Röðin kostar ekki nema 20 krónur. í fyrsta vinning gætu orðið fleiri milljónir en þú hefur nokkurn tímann látið þig dreyma um að hafa á milli handanna. Og svo er bónusvinningurinn hérna heima, sem verður dreginn út i dag, þrefaldur. ímyndið ykkur: ÞREFALDUR!" Náðu þér í Víkingalottóseðil og framvisaðu honum á næsta sölustað íslenskrar getspár fyrir kl. 16 í dag. Röðin kostar aðeins 20 krónur. Dregið verður I þriðja sinn I Vikingalottói, stærsta lottópotti á Norðurlöndum, I sameiginlegri útsendingu á báðum sjónvarpsstöðvunum kl. 19.501 kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.