Morgunblaðið - 31.03.1993, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 31.03.1993, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993 Framtíðargötumynd SJÁVARSÍÐAN eins og hún kemur til með að líta út þegar nýja húsið hefur verið reist samkvæmt þeim breytingum sem kynntar voru í gær. Reynt að ná málamiðlun í deilu um stórhýsið í miðbæ Hafnarfjarðar Fyrirhugnð þjónustubygg- ing lækkuð um eina hæð Félagið Byggðarvernd segir ekki komið tilmóts við óskir bæjarbúa GUÐMUNDUR Árni Stefánsson bæjarstjóri í Hafnarfirði og forsvarsmenn Miðbæjar Hafnarfjarðar hf. hafa kom- ist að samkomulagi um að fyrirhuguð verslunar/þjón- ustu- og hótelbygging í miðbæ Hafnarfjarðar verði einni hæð lægri en upphaflega var áformað. Þorgils Óttar Mathiesen bæjarfulltrúi segir að þessi breyting sé langt í frá nægileg til að koma til móts við óskir bæjarbúa eins og þær voru settar fram í undirskriftasöfnuninni gegn byggingu hússins á sínum tíma. Að sætta ólík sjónarmið Alþýðubandalagið Drög að frumvarpi um sókn- armark ALÞÝÐUBANDALAGSMENN hafa lagt fram þingsályktun- artillögu um stjórn fiskveiða. Einnig hafa þeir kynnt drög að lagafrumvarpi um sóknar- stýringu á fiskveiðum. Þeir segjast vilja opna umræðuna og fara þess á leit að eftir páska verði umræðu um þessa tillögu sjónvarpað og útvarpað í Ríkisútvarpinu. Þingflokkur Alþýðubandalags- ins kynnti fréttamönnum í gær til- lögu til þingsályktunar um að sjáv- arútvegsnefnd Alþingis verði falið að sjá um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða. Fulltrúar Alþýðubandalags í sjávarútvegsnefnd, Jóhann Ár- sælsson og Steingrímur J. Sigfús- son, sögðu svokallaða tvíhöfða- nefnd hafa vanrækt nánast allt samráð við sjávarútvegsnefnd. Það litla sem heyrðist um starf nefnd- arinnar í fjölmiðlum vitnaði um þá ætlan að viðhalda meingölluðu kvótakerfi og aðrar fréttir væru um ágreining og erfiðleika. Stjóm- arflokkamir hefðu skákað hvor öðrum og teflt málinu í „patt- stöðu“, sagði Steingrímur J. Sigf- ússon. Miðaði byssu á lögreglu ÞRÍTUGUR maður dró upp heimasmíðaða haglabyssu og beindi að lögreglumanni á lög- reglustöðinni í Tryggvagötu á föstudagskvöld. Hlaupinu var beint að andliti lögréglumannsins, sem sló frá sér byssuna, stökk yfir borð sem skildi hann og byssumanninn að, yfirbugaði hann og handjámaði. Byssumaðurinn var síðar færður í fangageymslur og til yfir- heyrslu hjá RLR daginn eftir. Byssuna sem maðurinn beitti hafði hann útbúið sjálfur úr röri og með kveikjubúnaði sem óvíst er hvort virkaði eins og til var ætlast, en að sögn lögreglu er það talið heldur ólíklegt. Á blaðamannafundi Miðbæjar Hafnarfjarðar hf. í gær kom fram að vegghæð hússins verði 21,05 metrar, eða 8 metrum lægri en fyrri hönnun gerir ráð fyrir. Endanlegar byggingarnefndarteikningar af hús- inu hafa verið lagðar inn til bygging- arfulltrúa og verða teknar til umfjöll- unar í byggingamefnd í dag. Guð- mundur Árni Stefánsson bæjarstjóri sagði að ákvörðunin hefði verið tekin til þess að sætta ólík sjónarmið um hæð hússins en eins og kunnugt er skrifuðu rúmlega fimm þúsund Hafnfirðingar undir áskorun til bæj- aryfirvalda þess efnis að þau beittu sér fyrir því að fyrirhuguð bygging félli sem best að umhverfi sínu og yrði ekki hærri en þau hús sem fyr- ir væru á miðbæjarsvæðinu. Jafn- framt var þess getið að hvorki væri deilt á framkvæmdina sem slíka né staðsetningu hússins. Með samkomulaginu kvaðst Guð- mundur trúa því að almenn sátt yrði um byggingarframkvæmdina og minntist þess að jafnframt stæði bærinn fyrir umfangsmiklum gatna- gerðarframkvæmdum í miðbænum. Þær væru í samræmi við miðbæjar- skipulag og lögð væri áhersla á að flýta þeim eins og kostur væri og uppbygging mannvirkja í miðbænum leyfði. Það væri markmið bæjaryfir- valda að yfirbragð hins nýja miðbæj- ar yrði komið í varanlegt og glæsi- legt form á þessu ári og hinu næsta. Ekkert samband við Byggðarvernd Sökum þessa samkomulags vill félagið Byggðarvemd koma því á framfæri að ekkert samband hefur verið haft við fulltrúa félagsins frá því að undirskriftir rúmlega 5.000 Hafnfirðinga voru afhentar og engar breytingar á byggingaráformum kynntar félaginu sérstaklega. í yfirlýsingu frá Byggðarvernd, sem barist hefur gegn byggingu háhýsanna, segir að samkvæmt því sem kynnt var á blaðamannafund- inum hafi húsið aðeins lækkað um 2-3 metra, eða í 25,5 metra, og breytir engu í því sambanöi þótt út- veggir efstu hæðarinnar hafi verið færðir aðeins til. Félagið muni halda áfram baráttu sinni gegn umræddri byggingu og ætlast til að lýðræðis- lega kjörin bæjaryfirvöld virði vilja kjósenda sinna í þessu efni. Úr 50 í 40 hótelherbergi í máli Viðars Halldórssonar, fram- kvæmdastjóra Miðbæjar Hafn- arfjarðar hf., kom fram að sam- kvæmt samkomulaginu yrðu hótel- herbergi 40 í stað 50 eins og áður hefði verið áætlað. Af annarri þjón- ustu í húsinu má nefna sérverslanir, apótek, banka, matvöruverslun, bið- stöð strætisvagna og áfengisverslun. í skrifstofuhluta verður bókasafn, verkfræðistofa, endurskoðunar- og 'lögfræðiskrifstofur. Undir húsinu „Við óskuðum eftir að fá þetta merki skráð hjá vörumerkjaskrá undir banka-, fjármálastarfsemi og kortaútgáfu. Því hefur verið mót- mælt og við því er ekkert að segja. Við höfum ekki fengið neitt skrif- legt um það,“ sagði Gunnar. ísskápamerki „Ég tel ekki að um þjófnað á merki sé að ræða. Það er ákveðin stafagerð í merki okkar, gerð af auglýsingastofu, en ef talað er um þjófnað á merki í þessu sambandi geta sjálfsagt fleiri haldið slíku verður bílageymsla fyrir 104 bíla. Viðar sagðist gera sér grein fyrir því að aldrei næðist að sætta alla, en forsvarsmenn fyrirtækisins teldu sig vera komna vel á veg með það og ekki væri annað að gera en halda áfram. Hann sagði að jarðvinnu við húsið lyki fljótlega en gert er ráð fyrir að utanhússfrágangi ljúki 30. apríl 1994. fram. Þetta merki hefur verið notað á ísskápa og frystikistur, það er til Atlas-tour ferðaskrifstofa í Þýska- landi og þannig má áfram telja. Ég sé enga hagsmuni okkar og þessa fyrirtækis rekast á,“ sagði Gunnar. Hann sagði að Kreditkort hefði vitað af tilvist Atlas hf. áður en Atlaskortinu var hleypt af stokkun- um. „Við ákváðum að hafa ekki samband við eigendur þess fyrir- tækis. Þetta var eitt nafn af mörg- um sem upp komu og við gátum valið,“ sagði Gunnar. Framkvæmdastjóri Kreditkorta hf. Bregðumst ekki við mótmælum Atlas hf. „VIÐ bregðumst á engan hátt við þessu. Þeir mega mótmæla ef þeir vilja,“ segir Gunnar Bæringsson, framkvæmdastjóri Kreditkorta hf., sem í samvinnu við íslenskar ferðaskrifstofur og Flugleiðir gefur út svonefnt Atlaskort. Eins og fram kom í Morgunblaðinu sl. sunnudag hefur eigandi innflutningsfyrirtæk- isins Atlas hf. mótmælt til vörumerkjaskrár notkun þessara aðila á merkinu Atlas. Hvað gengur þeim til? eftir Ólöfu Pétursdóttur „Er ekki mál að linni? Hvað geng- ur blaðinu til?“ spurði ég sjálfa mig eftir lestur Pressunnar, sem kom út þinn 23. mars sl. Á forsíðu blaðsins er heilsíðu- mynd af einum héraðsdómara Hér- aðsdóms Reykjaness og á opnu í blaðinu eru riQuð upp fyrri skrif blaðsins undir fyrirsögninni „Oheyrilegur dráttur mála fyrir héraðsdóminum í Hafnarfirði. Dóm- ararnir margsinnis ávítaðir án árangurs.“ Við lestur greinarinnar varð mér ljóst, að það getur ekki verið til- gangur blaðsins að færa lesendum sínum nýjustu fréttir af gangi dómsmála við Héraðsdóm Reykja- ness. Hér er gamalt vín á nýjum „Ég leyfi mér ennfrem- ur að fullyrða að á því tæpa ári sem héraðs- dómulinn hefur starfað hefur meðferð mála þar verið eðlileg.“ belgjum. Allar þær ávirðingar sem raktar eru í blaðinu sl. fimmtudag hafa áður verið þar tíundaðar ræki- lega. En þeim lesendum blaðsins sem ekki eru þessum málum gjör- kunnugir, er létt að falla í þá gryfju að ætla að hér sé um „fréttir" að ræða. Ekki lái ég leáendum það vegna þess hve kastað hefur verið til höndum við samningu greinar- innar. Það leiðir til þess að lesendur geta ekki gert sér grein fyrir við hveija er átt hveiju sinni. Er til dæmis til of mikils mælst af blaða- manni, sem ritar um embætti og starfsmenn þess, að hann kunni skil á heiti embættisins? Ég nefni þetta hér vegna þess að þessi óná- kvæmni í vinnubrögðum höfunda greinarinnar leiðir til þess að les- endur eiga erfitt með að átta sig á þvi, hvort verið er að skrifa um fortíðina eða nútíðina. Ég ætla ekki að elta ólar við þær rangfærslur sem í greininni eru, en þó get ég ekki látið hjá líða að gera athugasemd við eina setningu sérstaklega, þar sem segir: „Að sögn heimildamanns blaðsins kom greinilegur fjörkippur í afgreiðslu dómsmála embættisins eftir ávít- urnar, en síðan hrökk allt í sama farið aftur.“ Það er ekkert launung- armál, að það kom í hlut dómstjóra Héraðsdóms Reykjaness, sam- Ólöf Pétursdóttir kvæmt tilmælum dóms- og kirkju- málaráðuneytisins, að veita tveimur héraðsdómurum áminningu vegna vanrækslu í starfi sem dómarar við embætti sýslumannsins í Kjósar- sýslu og bæjarfógetans í Hafnar- firði, Garðakaupstað og Seltjarnar- nesi. Ekki treysti ég mér til þess að fullyrða, að tilvitnuð setning eigi að lýsa því ástandi sem ríkt hefur eftir að áminningamar voru veittar. En ef svo er, þá fínn ég mig til- knúna til þess að koma hér að leið- réttingu. Sannieikurinn er sá, að hlutaðeigandi héráðsdómarar tóku mál þessi mjög alvarlega og verður ekki fundið að embættisfærslu þeirra eftir að þeir hófu störf við Héraðsdóm Reykjaness hinn 1. júlí sl. Ég leyfi n>ér ennfremur að full- yrða að á þyí tæpa ári sem héraðs- dómurinn hefur starfað hefur með- ferð mála þar verið eðlileg. Mér er ljúft að veita ritstjóra og blaðamönnum Pressunnar upplýs- ingar um starfsemi Héraðsdóms Reykjaness ef og þegar þeir sjá ástæðu til að fjalla um starfsemi héraðsdómsins af skynsemi og heil- indum. Hvað blaðinu gengur til með skrifum eins og þeim sem birtust 23. mars sl. læt ég aðra um að reyna að svara. Hiifundur cr dómstjóri Héruösdóms Reykj&iiess.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.