Morgunblaðið - 31.03.1993, Síða 19

Morgunblaðið - 31.03.1993, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993 19 Fjallað um ætt, fjölskylduhagi, menntun og störf fjölda Islendinga Tvö þúsund ævi- skrár í bók um samtíðarmenn VAKA-Helgafell hefur gefið út bók- ina Samtíðarmenn, en í henni er að finna tvö þúsund æviskrár núlifandi Islendinga, ásamt ljósmyndum. Þá er fjallað ítarlega um menntun samt- íðarmanna, störf þeirra og fjöl- skylduhagi, til dæmis sagt frá systk- inum, maka, börnum, stjúpbörnum, foreldrum og tengdaforeldrum. Alls er því um 30 þúsund manns getið í bókinni með nöfnum, starfsheitum og fæðingardögum. Ólafur Ragnarsson, útgefandi, sagði að í bókinni væru viðameiri almennar æviskrár en áður hefðu birst í slíku riti og hún sýndi eins konar þverskurðarmynd af íslensku þjóðinni. „Bókin er eitt viðamesta útgáfuverkefni síðustu ára hér á landi, en að gerð bókarinnar unnu á þriðja tug starfsmanna í tvö ár,“ sagði hann. „Bókinni er ætlað að bæta úr biýnni þörf, en nú er um áratugur frá því að sambærilegt verk kom síðast út hér á landi.“ Ólafur sagði að við val á fólki í ritið hafi verið farið eftir því einu að athygli hefði beinst að því undanfarin misseri og það verið í sviðs- ljósi fjölmiðla vegna starfa sinna eða annarra viðfangsefna. Því væru í bókinni upplýsingar um samtíðarmenn á öllum aldri, til dæmis korn- unga íþróttamenn, miðaldra kaupsýslumenn, aldraða stjórnmálamenn, ungt fjölmiðlafólk og listafólk á ýmsum sviðum. Engin algild regla „Það er auðvitað ekki til nein algild regla sem segir hveija eigi að flalla um í svona bók og eflaust eiga einhveijir eftir að furða sig á því af hveiju verið sé að fjalla um einn á meðan öðrum er sleppt,“ sagði Vilhelm G. Kristinsson, ritstjóri bókarinnar. „Því er hins vegar til að svara að sumir kærðu sig alls ekki um að vera með og aðrir nenntu ekki að fylla út eyðublaðið, sem við sendum þeim, þó fólk hafi yfirleitt tekið okkur mjög vel. Svo má auðvitað vera að okkur hafi yfirsést í einhveijum tilvikum. Við reyndum að láta bókina endurspegla þá sem voru ofarlega á baugi á meðan hún var unnin. Því vorum við sífellt að bæta nöfnum í bókina, ýmist að eigin frumkvæði eða samkvæmt ábendingum annarra." Mikíð starf Upplýsingaöflun vegna bókarinnar hófst í ársbyijun 1991, en ráðunautar við val samtíð- armanna í ritið voru Guðlaugur Þorvaldsson, Haraldur Ólafsson, Helgi Seljan, Sigurveig Jónsdóttir og Þóra Kristjánsdóttir. Leitað var til fjölda samtaka, starfsgreina, félaga og stofnana um ábendingar, nöfn og upplýsingar. Ritstjóri bókarinnar er Vilhelm G. Kristinsson. Alls unnu rúmlega 20 manns við ritstjórn og vinnslu bókarinnar, enda þurfti að samræma upplýsingar frá samtíðarmönnunum, fá þær Mannhæðarhár upplýsingastafli ÓLAFUR Ragnarsson, útgefandi Samtíð- armanna, og Vilhelm G. Kristinsson, rit- sljóri bókarinnar, styðja hér við stafla af eyðublöðum, sem unnið var úr við rit- un bókarinnar. staðfestar í mörgum tilfellum og oft varð að leita víðar fanga. Þá var fylgst með breytingum á högum samtíðarmannanna á meðan bókin var í_ vinnslu, eftir því sem kostur var. Pétur Ástvaldsson hafði yfirumsjón með handrita- og prófarkalestri, en setningu og umbrot annaðist fyrirtækið K. Guðmundsson. 011 filmuvinnsla fór fram hjá Offsetþjónustunni hf., en bókin, sem er 750 blaðsíður í stóru broti, var prentuð i Englandi. Forseti Islands í tímaritsviðtali Lág laun kennara þjóðinni til vansa FORSETI íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, segist telja laun kennara vera þjóðinni til vansa. Þetta kemur fram í viðtali Vigdís- ar Grímsdóttur við forsetann sem birtist í nýjasta tölublaði Nýrra menntamála, sem Bandalag kenn- arafélaga gefur út. „Kennarastarfið á að vera eftir- sóknarvert af bestu fáanlegum mönnum, í því felst þjóðarhagurinn sjálfur. Kennarar eiga að vera mjög vel launaðir, störf þeirra eru meðal þeirra mikilvægustu í þjóðfélaginu, vinnu þeirra ber að sýna virðingu," segir frú Vigdís í viðtalinu. Hún segist sjá fyrir sér ennþá menntaðri og ennþá upplýstari þjóð. mið og stefna að þeim leynt og ljóst, verðum að tíma að setja fjármuni í þann sjóð sem stofnaður var til að afla þekkingar og auka hana, en þekkingin er okkar stærsta líftrygg- ing og það verðum við að skilja. Það er ótækt að við séum nísk við okkur sjálf. Og ef við snúum menntastefn- unni til betri vegar verður maðurinn sjálfur og hugur hans í fyrirrúmi. Þekkingarleysi er hræðilegir fjötrar sem geta endað í algjörri áþján. í menntun felst frelsið," segir forseti íslands. OPIÐÁ SUNNUDÖGUM NYJA BILAHOLLIN FUNAHÖFÐA 1 - 112 - Rvík. - FAX 673983 MMC Patero diesel Turbo árg. '89, ek. 63 þ. km.r blár, álfelgur. Góður Daihatsu Charade TX árg. '88, hvít- ur, ek. 41 þ. km., 5 d., 4 g. Ath. skipti. Dodge Ram 250 árg. '90, ek. 43 þ. km., blár, lúxus innrétting, sjónvarp, myndband, svefnaðstaða, tilbúinn í páskaferðina. 4WD árg. '91, hvít- , 5 d., 5 g. Ath. skipti Toyota Hilux Extra Cap V6 árg. '91, ek. 23 þ. km., grár, álfelgur, 35" dekk, hús hlutföll 5/29. Suzuki Side Kick JX '91, rauður, ek. 35 þ. km. Ath. skipti. BÍLATORG Funahöfða 1 . Sími 683444 MMC Pajero Superwagon árg. '91, blásans., sjálfsk., sóllúga, 31" dekk, álfelgur, ek. 45 þ. km. Verð kr. 2.350.000 Skipti á ódýrari. Toyota Carina li 2000 GLI árg. '90, rauður, sjálfsk. Gullfallegur bfll., ek. 34 þ. km. Verð kr. 1.080.000. Ford Econoline 350 Clubwagon árg. '92, hvítur. Einn með öllum þægind- um. 12 manna nýr bíll. Verð kr. 2.800.000. - Skipti. MMC Galant Super Salon árg. '90, hvítur, sjálfsk., sóllúga, álfelgur, ek. 63 þ. km. Verð kr. 1.250.000. Mitsubishi Pajero '88, grár, ek. 62 þ. km. Verð kr. 1.050.000. Honda Civic CRX árg. '91, svartur, sóllúga. Fallegur bíll, ek. 39 þ. km. Verð kr. 1.150.000. - Skipti. Toyota Corolla XL árg. 91, ek. 28 þ. km., rauður, 3 d., 5 g., saml., bein sala. Toyota Landcruser Turbo diesel G árg. '87, grár, ek. 102 þ. km., 36“ dekk. Toppjeppi. Honda Civic GL árg. '89, grænsans., sjálfsk., vökvastýri, ek. 25 þ. km. Verð kr. 790.000. - Góð kjör. Toyota Hilux Doble Cab, árg. '92, rauður, 31“ dekk, álflegur. Skipti á Toyota LandCruser árg. '91-’92. Honda Accord EX árg. '91, vínrauð- ur, sjálfsk., ek. 24 þ. km. Verð kr. 1.450.000. MMC Colt GL EXE '92, ek. 18 þ. km., hvítur. Ath. skipti. Honda Accord EXI árg. '91, ek. 46 þ. km., rauður, sjálfsk., álfelgur, sóll., saml., góður fjölskyldubfll. Ford Econoliner Club Wagon 7,3 dísel árg. '88, rauður/grár, ek. 96 þ. km., sæti fyrir 8-11 manns. VSK bíll. Nissan Patrol GR árg. '91, svartur og grár, upphækkaður, 33“ dekk, ek. 20 þ. km. Verð kr. 2.700.000. Toyota 4Runner árg. ’91, vínrauður, álfelgur, 31“ dekk, ek. 20 þ. km. Verð kr. 2.150.000. Toyota Coroila 1600 XL Liftback árg. '92, blásans, ek. 34 þ. km. Verð kr. 990.000. Skipti á ódýrari. Vtantar allar geróir nýlegra bíla á skrá og á staöinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.