Morgunblaðið - 31.03.1993, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993
21
Balladur sækist fremur eftir
samstöðu en átökum og deilum
París. Reuter.
MIKIL hógværð hefur þótt einkenna stjórnarskiptin í
Frakklandi, þrátt fyrir stórsigur RPR og UDF, og er hún
talin einkennandi fyrir Edouard Balladur, nýja forsætisráð-
herrann. Hann sækist ekki eftir átökum sem stjórnmála-
maður heldur samstöðu.
Edouard Balladur, sem er 63 ára
gamall, kom fyrst fram á sjónar-
sviðið árið 1986 er hann tók við
embætti fjármálaráðherra, sem
hann gegndi til 1988. Fram til þess
hafði lítið borið á honum. Hann var
skrifstofustjóri Georges Pompidou
forseta í Elysée-höllinni 1973-74
og nokkrum árum síðar gerðist
hann helsti pólitíski ráðgjafi
Chiracs.
Tengiliður
í bytjun fyrri „sambúðarinnar"
svokölluðu var hann helsti tengilið-
ur forsetans og forsætisráðherrans
þegar stjórn Chiracs var mynduð.
Meðal fyrstu embættisverka hans
sem fjármálaráðherra á sínum tíma
var að fella gengi frankans gagn-
vart þýska markinu innan EMS.
Nú hefur hann hins vegar lýst því
yfir að hann muni fylgja áfram
peningastefnu Pierre Bérégovoy,
fráfarandi forsætisráðherra, og
einnig ætlar hann að vinna áfram
að því að Maastrichtsamkomulagið
verði að veruleika.
Hann hefur einnig lofað að herða
löggæslu og reyna að stemma stigu
við straumi innflytjenda til Frakk-
lands. Til að minnka atvinnuleysi
vill hann veita vinnuveitendum
skattaafslátt og einnig er viðamikil
uppbygging véga- og járnbrauta-
kerfisins í burðarliðnum. Sam-
kvæmt nýjum tölum, sem birtar
voru í gær, eru atvinnulausir Frakk-
ar nú þijár milljónir, og hafa aldrei
verið jafn margir.
Löggæsla efld
EDOUARD Balladur hefur lofað
að herða löggæslu og stemma
stigu við straumi innflytjenda.
Forræðisdeila leikaranna Miu Farrow o g Woodys Allens
Vitnað um ofurótta við
hjartardýr og niðurföll
New York. Reuter.
LEIKKONAN Mia Farrow
segir fyrrverandi ástmann
sinn, leikstjórann og kvik-
myndaleikarann Woody Al-
len, hafa brenglað svo mjög
staðreyndir í samtölum
þeirra að hún hafi farið að
taka þau upp á segulband
með leynd. Þetta kom fram
í vitnisburði hennar fyrir
rétti á mánudag þar sem
fjallað er um deiluna um
forræði yfir börnum þeirra.
Farrow segir hegðun Al-
lens oft hafa verið með ólík-
indum, gefur í skyn að hann
sé ekki með réttu ráði.
Börnin eru Moses, 14 ára
drengur er þau ættleiddu, dóttir-
in Dylan, sjö ára og einnig ætt-
leidd, og Satchel sem er fimm
ára og sonur þeirra en Farrow
og Allen voru ekki í hjónabandi.
Þau bjuggu ekki að staðaldri
saman, áttu hvort sína íbúðina í
New York.
Sambandið fór út um þúfur í
janúar í fyrra er Allen skýrði
Farrow frá því að hann ætti í
ástarsambandi við Soon-Yi Pre-
vin, 21 árs gamla ættleidda dótt-
ur Farrow og fyrverandi eigin-
manns hennar, hljómsveitarstjór-
ans Andrés Previns. Allen er nú
á sextugsaldri; sjálfur segir hann
að allmörg ár séu síðan hann og
Farrow hafí lifað saman sem
hjón. Farrow hefur m.a. sakað
Tók upp samtölin
MIA Farrow neyddist til að
taka samtöl þeirra Woodys All-
ens upp á segulband.
Allen um að hafa misnotað börn
þeirra kynferðislega en sérfræð-
ingar sem kannað hafa málið eru
á því að Allen sé saklaus af þeim
áburði.
Var markmiðið bijálsemi?
Farrow segist hafa byijað að
taka samtölin upp í ágúst sl. Hún
sagði fyrir réttinum að fram-
koma Allens hefði minnt sig á
kvikmyndina „Gaslights“ þar
sem fullorðinn maður gerir unga
eiginkonu sína vitstola með því
að breyta ýmsu í umhverfi þeirra
og sannfæra hana síðan um að
breytingarnar séu eintómur hug-
arburður hennar.
Að sögn Farrow virtist Allen
alls ekki geta gert upp hug sinn
varðandi sambandið við ungu
stúlkuna. Eitt sinn sagðist hann
vera ástfanginn af Soon Yi og
ætla að giftast henni. En síðan
dró hann í land. „Hann sagðist
halda að þetta væri gott fyrir
Soon Yi, hún gæti notað það sem
stökkbretti fyrir annað og mikil-
vægara ástarsamband".
Rjartardýr og niðurföll
Farrow sagði hegðun Allens
oft með ólíkindum. Hún á sveita-
setur í nágrannaríkinu
Connecticut. Er hún var þar með
börnin vildi hún ekki að hann
byggi í sjálfu húsinu, bauð hon-
um að sofa í gestahúsi. Hún seg-
ir hann hafa hafnað boðinu, sagst
vera hræddur við að dýr eða fólk
gætu laumast að húsinu. „Ég
sagði honum að ef hann væri
hræddur við hjartardýrin gæti
hann lokað öllum aðgönguleiðum
... og haft menn á verði fyrir
utan,“ sagði Farrow. Fyrir
nokkrum dögum hefði Moses vilj-
að leika körfubolta við Allen;
hinn síðarnefndi hefði svarað að
hann „vildi ekki svitna, hann
gæti ekki farið í sturtu í húsinu
mínu af því að niðurfallið væri
fyrir miðju en ekki til hliðar“.
Sérfræðingar beggja deiluað-
ila í sálarflækjum hófu að bera
vitni á mánudag.
Sjómenn sömdu vopnahlé í „fiskistríði“ Breta og Frakka
Breska stjómin ógilti
vopnahléssamningana
London. Rcutcr.
BRESKA sljórnin lýsti yfir í gær, að samningur, sem bresk-
ir og franskir sjómenn hefðu gert og heimilaði Frökkum
veiðar í breskri landhelgi gegn ótrufluðum fiskinnflutningi
Breta til Frakklands, væri að engu hafandi. Landhelginnar
yrði gætt eftir sem áður.
Ásakanir um undirboð
Að undanförnu hefur margoft
skorist í odda með frönskum og
breskum sjómönnum í „fiskistríð-
inu“ eins og bresk blöð kalla það.
Saka Frakkar Breta um undirboð á
franska markaðnum en Bretar
segja, að franskir fjskimenn stundi
ólöglegar veiðar innan breskrar
landhelgi við Ermarsundseyjarnar.
Til að fínna lausn á þessu komu
franskir og breskir sjómenn saman
í höfninni í Guernsey í fyrrakvöld
og samþykktu þá, að Frakkar
fengju að veiða innan landhelginnar
við eyna í einn mánuð gegn því,
að sjómenn þaðan fengju að landa
óáreittir í frönskum höfnum.
í yfirlýsingu breska landbúnað-
arráðuneytisins í gær sagði, að sjó-
menn hefðu enga heimild til að
gera alþjóðlega samninga og því
hefði samkomulag sjómannanna
ekkert gildi. Bresk strandgæsluskip
myndu veija landhelgina eins og
áður.
Sex mílna landhelgi
Sex mílna fiskveiðilandhelgi er
við Ermarsundseyjarnar og er fyrir-
hugað, að fulltrúar utanríkisráðu-
neyta beggja ríkjanna komi saman
til fundar til að ræða deilurnar.
YDDA F57.3/SlAj