Morgunblaðið - 31.03.1993, Page 30

Morgunblaðið - 31.03.1993, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993 Minning Ragnheiður Svein björnsdóttir Fædd 29. desember 1936 Dáin 23. mars 1993 Það er erfítt að trúa því að Ragn- heiður vinkona mín og samstarfs- kona sé dáin. Að við eigum ekki eftir að byija morguninn saman yfir kaffibolla, áður en erillinn byrj- ar. En svona er lífið, gleði og sorg -*sem við verðum víst að sætta okkur við. Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir fæddist 29. desember 1936 að Þing- nesi í Bæjarsveit, Borgarfirði. Hún var dóttir Sveinbjörns Björnssonar bónda sem er látinn og Þórdísar Gunnarsdóttur, en hún lifir dóttur sína í hárri elli og býr á Sólvangi í Hafnarfírði. Hún átti hálfbróður, Björn, sem var henni mjög kær en hann lést fyrir nokkrum árum. Sat hún hjá honum öllum stundum er hann lá banaleguna, las fyrir hann og var henni mjög umhugað að hann hlyti bestu umönnun sem kostur var. Lýsir það Ragnheiði vel því að hún var alltaf boðin og búin að hjálpa ef eitthvað bjátaði á. Því kynntist ég oft af eigin raun og er það ómetanlegt að hafa fengið að njóta samfýlgdar hennar í gegnum árin. Hún var virk í félagsstörfum, var í bæjarstjórn Hafnarfjarðar,. formaður kvenfélagsins Hörpu, í bankaráði Landsbankans o.m.fl. Var hún m.a. með námskeið í ræðu- mennsku, sem hún plataði mig á og var oft glatt á hjalla á fundun- um. Hóparnir sem hún kom af stað hittust síðan í skíðaskálanum í Hveradölum og komu allir með eitt- . hvert framlag til skemmtunar og var Ragnheiður potturinn og pann- an í þessu öllu. Höfðum við allar gott og gaman af þessu. Fyrir maður Ragnheiðar var Eyj- ólfur Þorsteinsson, en þau slitu samvistir. Eignuðust þau þxjú böm sem eru: Þórdís Birna, gift Ólafi Svavarssyni, þeirra börn eru Björn Einar, Óðinn og Svavar; Þorsteinn, kvæntur Valdísi Valgarðsdóttur, þeirra börn eru Lilja og Eyjólfur; Sveinbjörn, kvæntur Vildísi Bjama- dóttur, þeirra böm em Ragnheiður, Sigrún og Kristrún. Seinni maður hennar var Eðvarð Vilmundarson og átti hann fimm böm áður. Þau Ragnheiður vom búin að koma upp nýju húsi í Þingnesi og vom þar öllum stundum er tækifæri gáfust. Bömin, barnabömin og annað fylg- ifé fylgdu iðulega með í sveitina og er þeim öllum mikil eftirsjá í þessari yndislegustu ömmu sem hægt var að hugsa sér. Hún var iðin að kenna þeim gamlar þulur og segja þeim sögur svo að unun var að hlusta á. Svo var hún skáld- mælt mjög og fengum við vinnufé- lagarnir oft að njóta þess á gleði- stundum. Fyrir tæplega ári tók sig upp sjúkdómur sá er við héldum öll að hún væri að fullu laus við. Stóð hún .sig eins og hetja í baráttunni við hann, en þrátt fyrir alla hennar bjartsýni og góðar vonir sigraði hann því miður að lokum 23. mars sl. Við eigum öll eftir að sakna hennar sárt og sendum ég og fjöl- skylda mín öllum hennar ástvinum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guðrún A. Guðmundsdóttir. Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir, Rarra frænka mín, er dáin, langt um aldur fram. Það er mikill missir fyrir alla fjölskylduna, einkum þó bamabörnin öll. Þau hafa misst ómetanlega ömmu sem átti hlýjan faðm og var hafsjór af sögum, vís- um og fróðleik eins og ömmur eru í bókum. Rarra var kennari, eða ætti ég að segja fræðari, af guðs náð. I tali sínu bæði við börn og fullorðna var hún alltaf að miðla upplýsingum og fróðleik, það var henni eigin- legt. Hún eyddi ekki orðum til einskis. Og af því hún var sérkenni- lega vel máli farin og skemmtileg manneskjan varð öll þessj fræðsla áheyrandanum ævinlega velkomin. Sjálf var ég svo gæfusöm að fá að vera í sveit í Þingnesi í Borgar- firði hjá foreldrum Rörru þijú sum- ur innan við fermingu. Það var minn fyrsti og besti menntaskóli. Rarra var þá í Menntaskólanum í Reykjavík á veturna og bjó hjá ínu móðursystur sinni í Hafnarfirði, en kom heim á vorin og vann við bú- skapinn allt sumarið. Ég man hvað ég gat starað opinmynnt á þessa heillandi frænku mína. Svo geisl- andi stúlku hafði ég aldrei fyrr séð, og ekki síðan. í minningunni er hún eins og sólbjartur stormsveipur þessi sumur, og þó voru hreyfing- amar alltaf þokkafullar, aldrei neitt fát. Mér finnst hún hafa talað, hleg- ið og sungið allan guðslangan dag- inn, og ekki sá hún eftir gullkornun- um sem hún stráði yfír mig unga og heimska. Meðan við snerum flekknum kenndi hún mér latneskar sagnbeygingar, þær einu sem ég kann ennþá. Meðan við mjólkuðum kýrnar, í höndunum auðvitað, kenndi hún mér stúdentasöngva sem ég söng eins og páfagaukur á sænsku, dönsku, íslensku og latínu: Gaudeamus igitur, juvenes dum sumus ... Og hún naut þess sann- arlega að vera ung. í ótalmörgum flakkferðum okkar um sveitina á gamla jeppanum kenndi hún mér ástarsöngva. Einn varð afdrifaríkur því hann vakti upp draug. Þetta var sænskur texti um mann „som var stark in amore“, en hann varð í munni krakkakjánans „startara- móri“, og eins og við manninn mælt á þessum slóðum: Startara- móri lét jeppann aldrei í friði eftir það. Það hefur aldrei kunnað góðri lukku að stýra á íslandi að fara rangt með kveðskap. Rarra varð stúdent 1955, ári yngri en venja er. Reyndar var hún ekki nema 18 ára, því hún fæddist í lok desember 1936. Ég gleymi aldrei frískum og háværum hópnum sem kom upp í Þingnes með hana í broddi fylkingar seinni partinn í júní þetta fræga rigningasumar. Öll með skjannahvítar stúdentshúf- urnar á kollinum, syngjandi sæl og glöð. Ekki þorði ég að koma nálægt þessum hátignum en úr fylgsni mínu horfði ég á þau borða og drekka, gantast og syngja, fylla hænurnar, faðmast og kyssast. Ég sá að þetta hlaut að vera æðsta sæla lífsins, að verða stúdent! Þegar ég var svo loksins komin í menntaskóla átti ég skjól í Hafnar- fírðinum hjá Rörru, Eyjólfi fyrri manni hennar og börnunum sem ég fékk stundum að passa. Svo slitnaði sambandið eins og gengur, en alltaf var gaman að hitta hana og leita til hennar. Síðast var ég svo heppin bara fyrir tæpum mán- uði að spyija hana í síma um eina grannkonu hennar í Borgarfírðinum þegar hún var barn, og fékk eins og ævinlega allt sem ég þurfti að vita, framreitt á þennan sérstaka hátt, þannig að orðin urðu fyrir- hafnarlaust að myndum í huga mínum. A örfáum mínútum og án undirbúnings bjó hún til lifandi mannlýsingu. Þetta er list skálds- ins, og Ragnheiður var skáld þó ekki gæfi hún út bækur, því miður. Það átti hún eftir að gera, eins og svo margt margt fleira. Þegar faðir minn og móðurbróðir Rörru dó sumarið 1988 sagði Rarra mér draum sem hana hafði dreymt einhveija næstu nótt á eftir. Henni þótti sem hún færi ríðandi um ókunna sveit. Hlýtt var og bjart en sólarlaust og sá til fyalla. Þá kemur hún að bæ sem hún þekkir ekki og sneru þilin fram á hlaðið. Allt í kring óx gróskumikil hvönn. Henni finnst hún stíga af baki og ganga heim að bænum og beija að dyrum. Þó vissi hún ekki hvaða erindi hún átti. Þá kemur til dyra amma henn- ar og nafna, Ragnheiður frá Foss- völlum, og heilsar henni hlýlega. En það er asi á henni og hún seg- ir: „Ég gef þér bara kaffi hérna í dyrunum, Rarra mín, það er svo margt fólk hjá mér.“ „En er það ekki fólk sem ég þekki? Má ég ekki koma inn og heilsa upp á það?“ „Þú kemur seinna,“ segir Ragnheiður amma og færir henni kaffibolla fram á þröskuldinn. En innan úr bænum heyrði Rarra fjörugt mannamál og glaum eins og þar væri margt fólk sem hefði um margt að spjalla. Nú hefur Rörru verið boðið inn í veisluna. Með sorg í hjarta en líka þakklæti fyrir góðar gjafir votta ég öllum aðstandendum mína dýpstu samúð. Silja Aðalsteinsdóttir. Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir lést á Landspítalanum hinn 23. mars sl. aðeins 56 ára að aldri. Tæpur áratugur er liðinn frá því hún fyrst kenndi þess sjúkdóms, sem varð henni að aldurtila. í jan- úar sl. hafði Ragnheiður um misser- isskeið verið á lyfjameðferð vegna sjúkdómsins og bundu menn góðar vonir við árangur. Meinsemdin virt- ist að vísu hafa verið upprætt á þeim stað sem hún hafði verið, en kom nú fram annars staðar, í líf- færi þar sem hún virðist torsótt. Ragnheiður gerði sér glögga grein fyrir sjúkdómi sínum, en allt um það lét hún engan bilbug á sér finna og var við störf fram í byijun febr- úar og gerði sér vonir um að hefja þau að nýju eftir lyfjameðferð með tilraunalyfí sem þá var hafín. Hinn 27. febrúar var Ragnheiður ásamt okkur, samstarfsfólki sínu, í góðum fagnaði, hress og glöð að vanda. Um páskana áformaði hún að fara til Kaupmannahafnar til Svein- bjöms, sonar síns, og fjölskyldu hans og sjá yngsta barnabarn sitt sem fæddist ytra og hún hafði ekki enn séð. En þetta fór á annan veg. Um mánuði síðar varð hún að lúta þeim sem við öll verðum að lúta. Innri styrkur og kjarkur Ragnheið- ar kom vel fram í því hvernig hún bar sjúkdóm sinn og brást við þeim dómi, sem ekki verður áfrýjað. Að Ragnheiði stóðu kunnar borgfírskar og austfirskar ættir. Ragnheiður var fædd 29. desember 1936 að Þingnesi í Bæjarsveit í Borgarfírði, dóttir Sveinbjörns, bónda þar, Björnssonar, bónda á Þverfelli í Lundarreykjadal, Svein- björnssonar og síðari konu hans Þórdísar Gunnarsdóttur, bónda að Fossvöllum í Jökulsárhlíð og síðar í Hofteigi, Jónssonar, bónda að Háreksstöðum á Jökuldalsheiði, Benjamínssonar. Þórdís, móðir Ragnheiðar, sem lifír dóttur sína, dvelst á elliheimilinu Sólvangi. Bróðir Ragnheiðar af fyrra hjóna- bandi Sveinbjörns var Björn Svein- bjömsson, hæstaréttardómari, sem látinn er fyrir fimm árum. Samband systkinanna var mjög náið, þótt sautján ára aldursmunur væri á þeim. Ragnheiður ólst upp í Þingnesi. Að loknu námi í Héraðsskólanum í Reykholti innritaðist hún í Mennta- skólann í Reykjavík, og lauk stúd- entsprófi þaðan árið 1955. Ári síðar gekk hún að eiga Eyjólf Þorsteins- son, stýrimann, ættaðan frá Hafn- arfirði og hófu þau búskap þar. Þeim Eyjólfi og Ragnheiði varð þriggja barna auðið. Þau eru: Þór- dís Birna, húsmóðir í Hafnarfirði, gift Ólafí Svavarssyni málarameist- ara. Þeirra börn eru Björn, Óðinn og Svavar. Næstur í röðinni er Þor- steinn, stýrimaður í Hafnarfirði, kvæntur Valdísi Valgarðsdóttur. Þeirra börn eru Lilja og Eyjólfur. Yngstur er Sveinbjörn, deildarstjóri í landbúnaðarráðuneytinu, kvæntur Ingu Vildísi Bjarnadóttur. Börn þeirra em Ragnheiður, Sigrún og Kristrún. Þau Ragnheiður og Eyj- ólfur skildu. Frá árinu 1975 var Ragnheiður í sambúð með Eðvarði H. Vilmundarsyni, ættuðum frá Löndum í Staðarhverfi í Grindavík. Reyndist hann Ragnheiðir traustur og góður förunautur. Ragnheiður unni mjög fæðingar- sveit sinni og Þingnesi og dvaldist þar á sumri hverju, fyrst í gamla bænum en síðar í húsi sem hún reisti á jörðinni. Eftir að hún kom sér, upp húsinu fór hún í sveitina þegar færi gafst, allan ársins hring. Börn hennar og barnabörn hafa einnig fest tryggð við Þingnes, enda dvalist þar löngum með móður sinni og ömmu. Frá Þingnesi er víðsýnt um byggðir Borgarfjarðar. Með- fram landinu að sunnanverðu streymir Grímsá, lygn og breið, áður en hún sameinast Hvítá að vestanverðu. Oft var gestkvæmt í bústaðnum í Þingnesi og ekki spillti vonin um að fá að renna fyrir sil- ung í Grímsá fyrir vinsældum gest- gjafanna. Árið 1969 hóf Ragnheiður störf á lögmannsstofu sem Björn, bróðir hennar, stofnaði ásamt undirrituð- um, Skúla J. Pálmasyni og Sveini Hauki Valdimarssyni, hæstaréttar- lögmönnum og starfaði þar óslitið síðan. Ragnheiður var góðum gáfum gædd. Hún var vel máli farin, ritfær og minnug. Eins og Björn, bróðir hennar, var hún alin upp við kveð- skap og kunni ókjörin öll af ljóðum og lausavísum, auk þess sem hún var sjálf vel hagmælt. Hún var mannþekkjari, ófeimin og rökvís og átti auðvelt með að umgangast fólk og ræða við það og fá það á sitt mál. Henni þótti vænt um fólk, var hjálpfús og lét sér annt um þá sem voru hjálpar þurfi. Ragnheiður var ótvírætt búin mörgum þeim kostum sem góður stjórnmálamaður þarf að hafa. Þessir kostir hafa m.a. vafalaust ráðið því að flokkssystkini hennar í Framsóknarflokknum fengu hana til þess að fara í framboð við bæjar- stjórnarkosningar í Hafnarfirði árið 1970. Ragnheiður vann mjög góðan persónulegan sigur í kosningunum, jók fylgi flokksins verulega og náði kjöri í bæjarstjórn. í kosningunum 1974 jók hún enn við fylgi flokksins og sat í bæjarstjórn í tvö kjörtíma- bil. Ragnheiður lagði sig fram um að kynna sér hvert það mál, sem fy'allað var um í bæjarstjórninni og hinum ýmsu nefndum, og varð gjör- kunnug öllum bæjarmálum. Þá gerði hún sér einnig far um að halda góðu sambandi við bæjarbúa. Ef skilyrði hefðu verið fyrir hendi, hefði Ragnheiður vafalaust getað náð enn meiri frama í pólitík. Ragn- heiður var vararitari Framsóknar- flokksins frá 1975 og átti sæti í miðstjórn og framkvæmdastjórn um árabil. Hún tók sæti á Alþingi sem varaþingmaður flokksins um tíma 1974 og 1975. Hún var vara- maður í bankaráði Landsbankans og oft kvödd til setu þar í forföllum aðalmanns. Með Ragnheiði er gengin góð kona og gegn sem varð eftirminni- leg öllum þeim sem henni kynnt- ust. Hennar er sá'rt saknað af ást- vinum og vinum, en eftir lifa góðar minningar. Ég og fjölskylda mín og samstarfsfólk sendum manni hennar, aldraðri móður, börnum og barnabörnum hennar sem voru augasteinarnir hennar, einlægar samúðarkveðjur. Jón Finnsson. Góð vinkona okkar hjónanna, Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir, er látin 56 ára að aldri. Kynni okkar Ragnheiðar spanna ekki marga ára- tugi þótt spor bernsku- og unglings- ára okkar beggja lægju í Borgar- fjarðarhéraði. Þvi olli meðal annars aldursmunur og umtalsverð fjar- lægð með lélegum samgöngum á árum áður. Vissi ég þó að á hinum forna stað Þingnesi var kjarnafólk og heyrði getið Sveinbjarnar föður Ragnheiðar sem að kvað í hópi bú- enda. Kynni mín og Ragnheiðar hófust því ekki fyrr en fyrir nokkrum árum þegar við Eðvarð Vilmundarson eig- inmaður hennar urðum vinnufélag- ar. Mér varð strax Ijóst, að þar fór glögg og gáfuð kona. Ást hennar á landinu, ljóðunum og sögu Borg- aríjarðarhéraðs snart mig mjög. En þótt heimahagar og umhverfi væri henni hugstæðast átti hún víðan sjónhring til félagsmála og menn- ingar. Fátt var henni óviðkomandi sem miðað gat til þekkingar og betra mannlífs. Ekki var hann margorð í mín eyru um sínar bernskuminningar, en þær hljóta að hafa verið góðar, slík var tryggð hennar við þær slóð- ir þar sem barnsskórnir slitnuðu. En tengslin við æskuslóðir Ragn- heiðar slitnuðu ekki og ég hygg að unaður góðra daga í sumarbústaðn- um þeirra Ebba á hólnum skammt frá gamla bænum í Þingnesi hafi verið sú fylling drauma hennar sem öðru var dýrmætara. Og þangað var gott að koma og yinum að mæta. Hlýja og alúð innan veggja og af hlaði víðsýnt til allra átta, gróið sléttlendi nær, fjöll Borgarfjarðar fjær. Utan umræðu dægurmála áttum við Ragnheiður sameiginlegt áhuga- mál; íslenska Ijóðlist. Sjálf var hún ágætlega hagorð. Tækifærisvísur lágu henni létt fyrir í gamni og al- vöru. Vel man ég hana í þáttum Ómars Ragnarssonar í Ríkissjón- varpinu þar sem hagyrðingar „leiddu saman hesta sína“ og var hún eina konan í þeim hópi. Þar sem og annars staðar verðugur fulltrúi kvenna. En Ragnheiður var meira en „venjulegur hagyrðingur" eins og stundum er komist að orði. í Borgfírðingaljóðum 1991 og í safni hugverka 142 borgfirskra kvenna einnig 1991 „Og þá rigndi blómum" á hún ljóð. Vandvirkt -handbragð leynir sér ekki í efni og rími, hvort sem hún yrkir um Stjörnu sína „í haga þar sem grasið grænna er en

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.