Morgunblaðið - 31.03.1993, Síða 33

Morgunblaðið - 31.03.1993, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993 33 sem framhjá honum fór. Hann átti höfðinglega framkomu; ákveðna og djarfa í senn, en þó um leið milda og hlýja. Hann var hið sanna prúð- menni. Við vinir hans í Tryggingu hf. drúpum höfði í virðingu með tregasárri þökk og söknum vinar í stað. Guðmundu og ástvinum hans öll- um biðjum við líknar. Blessuð sé minning Finns Steph- ensen. Ágúst Karlsson. í þau rúmlega fjögur ár sem ég hef þekkt Finn Stephensen höfum við orðið einstakir vinir. Á þessum allt of stutta tíma sýndi hann hér hinar mörgu hliðar á íslenskum sérein- kennum; kraft og fegurð náttúr- unnar, íslenskan mat og íslendinga- sögurnar sem hann kunni allár. Við áttum margar og langar samræður um lífið, tilveruna, bókmenntir að ógleymdum Hávamálum sem voru honum mjög hugleikin. Ég naut þess að vera í návist hans, hann var svo greindur, hreinskilinn, ein- lægur og góður maður. Við áttum ekki aðeins ánægju- stundir fyrir framan bókahillurnar hans og úti í náttúrunni, heldur einnig í kjallaranum í Skeiðarvogin- um þangað sem við vinirnir laumuð- umst og gæddum okkur á hákarli og snabba. Við skáluðum fyrir vin- áttunni. Hann gaf svo mikið af sjálf- um sér, var alltaf tilbúinn ef á þurfti að halda og gat öll mál leyst, yfir- vegaður og sáttfús. Það var erfitt að gera sér grein fyrir að hann var ekki heill heilsu. Finnur kvartaði aldrei, var svo jákvæður og ákveð- inn í að komast yfir þetta erfiða tímabil. Hann sannaði það þegar þau hjónin komu til Hollands í heim- sókn til okkar Gyðu í nóvember sl. Þá leit hann svo vel út og var það hress að ekki datt mér í hug að það væri í síðasta sinn sem ég sæi hann á lífi. Framkoma hans heillaði for- eldra mína og vini enda einkenndist allt hans fas af glæsileik og hjarta- hlýju. Hann reyndist mér sem sann- ur faðir. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. Hvíl í friði — Rust zacht. Carl van Kuyck. Við hlutum þá gæfu að gista gróandi jörð um skamma; stund, en bíðum þar aðeins byijar um blikandi hnattasund. Við fínnum í eðli og anda útþrá, sem bæði seiðir og knýr til hugboðs um eitthvað horfið, sem hinum megin býr. (Davíð Stefánsson) Sumir samferðamenn okkar verða eftirminnilegri en aðrir af ýmsum ástæðum. Einn af þeim sem verður mér og mínum eftirminnileg- ur vegna glaðværðar, gæsku og gestrisni er kvaddur hinstu kveðju í dag. Finnur Stephensen bjó ásámt fjölskyldu sinni í Skeiðarvogi 95 þegar ég fluttist ásamt manni og dóttur til stórfjölskyldu tengdamóð- ur minnar í Skeiðarvog 89. Fljótt tókst vinskapur með dóttur minni og Gyðu dóttur Finns og Guð- mundu. Sá vinskapur stendur enn og hefur í rúma tvo áratugi veitt okkur ómælda ánægju. Finnur var einstaklega félags- lyndur og kunni því vel að sitja að spjalli. Hann var eldheitur sjálf- stæðismaður og sama var að segja um tengdamóður mína. Það var viðkvæðið þegar þau hittust að spjallað var um þetta áhugamál þeirra, sigra og ósigra flokksins, menn og málefni. Við mig sagði hann oft í léttum dúr að nú þyrfti hann aldeilis að tala við mig um Alþýðuflokkinn og vifleysurnar sem hann væri að gera. Finnur var svo lánsamur að hafa létta lund og leggja ekki illt til nokkurs manns. Hann var líka svo heppinn að eignast konu með sömu eiginleika og ég minnist þess ekki að hafa kynnst jafn brosmildu, já- kvæðu og samstíga fólki. Lífíð er fljótt, líkt er það elding, sem glampar um nótt, ljósi, sem tindrar á tárum, titrar á bárum. (Matthías Joch.) Okkur finnst alltaf að þeir sem við metum mikils eigi að fá að lifa lengi og jafnvel verða eilífír. Við verðum að sætta okkur við orðinn hlut því valið er ekki okkar og lík- lega eins gott. Af eigingirni mund- um við kjósa þeim lífið. Finnur fór gegnum lífið með bros á vör. Veik- indum sínum tók hann af æðru- leysi. Æðruleysi einkennir einnig Guðmundu, Eirík, Borghildi og Gyðu. Með þessum orðum fylgja samúð- arkveðjur til þeirra frá fyrrverandi íbúum í Skeiðarvogi 89. Liðnar og ókomnar aldir umlykja vora hverfulu stund, líkt og úthöfin álfur, eyjar, firði og sund. Eilífð var öllum sköpuð áður en til voru jarðnesk spor. Síðasta pðagjöfín er gleðinnar ljósa vor. (Davíð Stefánsson) Ljúf er minning um mætan mann. Jóna Möller. Ég fell að fótum þínum og faðma lifsins tré. Með innri aupm mínum ég undur mikil sé. Þú stýrir vorsins veldi og verndar hveija rós. Frá þínum ástareldi fá allir heimar ljós. (D. Stefánsson frá Fagraskógi) Þegar skammdegismyrkrið óðum flýr og við göngum mót birtu og yl ber sorgin að dyrum og kær vin- ur er burt kvaddur. Það er gæfa okkar að fá að kynn- ast á lífsleiðinni manni, sem ávallt er tilbúinn að gefa af sjálfum sér til að létta öðrum sporin í lífinu, sem þó á stundum, ekki síst þegar stríðsógn heijar suður í álfu, kann að virðast okkur táradalur. Á heimili jafnt sem á vinnustað stendur hann líkt og klettur. Við vitum að þegar vanda ber að, getum við leitað til vinarins góða og okkur mun mæta góðvild, skilningur og hlýja og við hverfum af fundi hans endurnærð með hollráð í farteskinu. Slíkur vinur var Finnur Stephen- sen. Hans verður sárt saknað. Kynni okkar hófust fyrir allmörg- um árum, en urðu nánari eftir að undirritaður hóf störf fyrir Vélbáta- tryggingu Eyjafjarðar. Mestan hluta starfsævi sinnar vann Finnur sem skrifstofustjóri hjá Samábyrgð íslands á fiskiskipum og er þar í dag vissulega skarð fyrir skildi. Erfítt verður að hugsa sér Sam- ábyrgðina án hans og ekki síst fyr- ir okkur sem úti á landi búum. Erindi okkar leysti hann jafnan af stakri ljúfmennsku, enda ávann Finnur sér traust og vináttu manna um allt land. Finnur hafði til að bera mikinn metnað og áræði fyrir hönd félags- ins sem hann starfaði fyrir. Báta- ábyrgðarfélögin, þar sem fyrstu spor í tryggingastarfsemi hér á landi voru stigin, áttu svo sannar- lega hauk í horni þar sem hann var. Og þótt starfsemi þessara fé- laga miðaðist í byijun fyrst og fremst við skyldutryggingu báta upp að 100 tonnum átti hann erfitt með að sætta sig við annað en að þessi félög næðu góðum árangri í fijálsum tryggingaviðskiptum. Finnur Stephensen var fagurkeri sem unni fögrum listum, góðum bókmenntum og fagurri tónlist svo að eitthvað sé nefnt. Ég minnist yndislegra stunda í góðra vina hópi þegar við hófum upp raustina og sungum saman og málfötlunin var víðs fjarri. Nú um nokkurra mánaða skeið hefur Finnur mátt stríða við erfiðan sjúkdóm. Þrátt fyrir það mætti hann til vinnu sinnar á hveijum degi þar til nú fyrir stuttu. Hann háði baráttuna við sjúkdóm sinn af einstakri hetjulund og aldrei heyrð- ist æðruorð. Aðéins þremur dögum fyrir lát hans hittum við hjónin hann á heim- ili hans. Hann hafði verulega látið á sjá og ekki duldist að hveiju stefndi. Þegar hann var þá spurð- ur, hvernig hann hefði það, var svarið stutt og laggott og fólst í einu orði: „Fínt.“ Um leið og ég lýk þessum orðum um kynni okkar, bið ég algóðan Guð að blessa vin minn Finn Steph- ensen. Við hjónin sendum þér, Munda mín, Eiríki, Borghildi og Gyðu inni- legar samúðarkveðjur. Algóður Guð umvefji ykkur. Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér, þú logar enn, í gepum bárur, brim og voðasker. Nú birtir senn, Og ég finn aftur andans fógru dyr og engla þá sem bam ég þekkti fyr. (M. Johch.) Ó.Þ.Á. Vinur minn og starfsfélagi, Finnur Stephensen, er látinn. Hann lést 23. mars sl. tæplega 63 ára að aldri. Finnur fæddist í Reykjavík 2. apríl 1930, elstur fjögurra barna hjónanna Eiríks Stephensens for- stjóra og Gyðu Thordarson. Hin systkinin voru Ólafur; læknir, nú látinn og systurnar Áslaug og Steinunn, sem báðar starfa hjá Krabbameinsfélaginu hér í Reykja- vík. Að loknu námi við Verslunar- skóla íslands vorið 1949 hóf Finnur störf hjá Samábyrgð íslands á fiski- skipum og varð skrifstofustjóri Samábyrgðarinnar árið 1962 og gegndi þeirri stöðu til dauðadags. Ásamt skrifstofustjórastarfinu ann- aðist hann bókhald og alla reikn- ingagerð stofnunarinnar og marg- vísleg samskipti við bátaábyrgðar- félögin og aðra viðskiptamenn Sam- ábyrgðarinnar. Starfsævi hans var því hjá sama fyrirtækinu óslitið í 44 ár og vorum við nánir samstarfsmenn allan þann tíma. Ekki fór hjá því að vegna mannkosta sinna og þekkingar voru honum falin trúnaðarstörf innan samtaka vátryggingamanna. Finnur átti til góðra og mætra að telja bæði í föður- og móðurætt og bar þess ótvíræð merki. Hann var með afbrigðum fróður um ættir sínar og að sama skapi frændræk- inn og er nú skarð fyrir skildi í Stephensen- og Karlsskálaættum. Finnur var gæfumaður. Hann eignaðist góða og mikilhæfa konu, Guðmundu Guðmundsdóttur Steph- ensen og þijú mannvænleg börn, þau Eirík, Borghildi og Gyðu. Á þeirra fallega heimili hefur alltaf verið ánægjulegt að koma þar sem snyrtimennskan og mikil gestrisni sitja ávallt í fyrirrúmi. Síðustu mánuðina gekk Finnur ekki heill til skógar og háði baráttu við erfiðan sjúkdóm sem að lokum hafði yfírhöndina. Sú barátta var ströng. Strangari en við samstarfs- fólk hans gerðum okkur grein fyr- ir, því aldrei heyrðist hann kvarta, enda samrýmdist það ekki skap- ferli hans, og ótrauður gekk hann til starfa uns yfir lauk. Það hefur myndast vandfyllt skarð í starfslið Samábyrgðarinnar og er hans nú saknað af samstarfs- fólki og öðrum sem áttu við hann samskipti á sviði starfsvettvangs hans. Ég og ljölskylda mín og sam- starfsfólk hans hjá Samábyrgðinni sendum Guðmundu og börnunum innilegar samúðarkveðjur og þökk- um Finni að leiðarlokum góða og ánægjulega samferð. Blessuð sé minning hans Páll Sigurðsson. Með fáum orðum langar okkur mæðgur að minnast góðs vinar, Finns Stephensen skrifstofustjóra hjá Samábyrgð, er lést á heimili sínu 23. márs. Að rekja ættir Finns og starfsfer- il látum við öðrum eftir, en leyfum þess í stað minningunum um bjart- an, jákvæðan og hlýjan mann ráða ferð. Hann var búinn þeim miklu eigin- leikum að vera ávallt reiðubúinn að hjálpa öðrum. Hann átti líka auðvelt með að miðla af reynslu sinni, styðja aðra í erfiðleikum og styrkja á sorgarstundu. Allra þess- ara kosta hans fengum við að njóta, er við gengum á veg sorgarinnar í desember sl. og það þrátt fyrir hans erfiðu veikindi, sem hann barðist við af miklum hetjuskap fram á síðustu stund. Hafi hann þökk fyrir. Ávallt var ljúft að sækja þau hjón Finn og Guðmundu heim, hvort heldur var í sumarbústað þeirra eða á heimili þeirra í Skeiðarvoginum. Hjá þeim var gestrisni og glaðværð í hávegum höfð, og þá ekki síst er börnin voru með í ferð. Þau hjón voru sem fædd hvort fyrir annað, svo samhent og samrýnd voru þau. Elsku Munda, Eiríkur, Borghild- ur og Gyða. Missirinn er sár, en minningin um yndislegan eigin- mann og föður lifir áfram. Megi algóður Guð styrkja ykkur öll á erfiðum stundum. Við mæðgur og fjölskylda okkar viljum að leiðarlokum þakka Finni alla þá hlýju og aðstoð er hann veitti okkur og aldrei brást. Blessuð sé minning hans. Sigurbjörg, Margrét E. Benónýsd. og fjölskylda. í dag verður til moldar borinn hjart- kær frændi minn og vinur, Finnur Stephensen. Ég ætla aldrei þessu vant að sleppa nánustu upptalningu á ætt Finns og uppruna þar sem ég veit til þess að það er gert í annarri minnningargrein um hann í Morg- unblaðinu í dag. En af þeirri ætt- færslu má sjá að hið tiginmannlega fas og framkomu á hann ekki langt að sækja enda stóðu að honum sterkar framættir. Þannig var Finn- ur 7. maður frá Magnúsi Gíslasyni amtmanni að Leirá, Borgarfirði, 14. frá Eggert Eggertssyni lénsherra í Víkinni, Noregi, sem barði fræki- lega á Svíum í skærum Hans kon- ungs gegn þeim um síðari hluta 15. aldar (sonur hans var Hannes á Núpi, Dýrafirði, er var hirðstjóri yfir íslandi), 16. frá Birni hirðstjóra Þorleifssyni á Skarði og Lopti hirð- stjóra Guttormssyni á Möðruvöll- um. 11. frá Magnúsi „prúða“ Jóns- syni í Ogri og Bæ á Rauðasandi, 9. frá sr. Stepháni skáldi Einars- syni í Heydölum, 16. frá Gottskálki Nikulássyni byskup hinum grimma, 11. frá Guðbrandi byskup Þorláks- syni á Hólum. 27. frá Þorkatli Ey- úlfssyni á Helgafelli og_ Guðrúnar Ósvífursdóttir. 32. frá Ólafí hvita herkonungi og Auði [Unni] djúp- úðgu landnámskonu að Hvammi í Dölum. Menn komust ekki hjá því að veita Finni eftirtekt hvar sem hann fór, því hann var tiginmannlegur í fasi og vörpulegur á velli. Hann var hvers manns hugljúfí og einn þeirra manna sem ekkert mátti aumt sjá, án þess að hann reyndi að koma til aðstoðar ef það var honum á nokkurn hátt mögulegt. Frændræk- inn var hann með besta móti og eru nú fáir eftir í fjölskyldu okkar - sem héldu jafn góðu sambandi við frændfólk sitt og einmitt Finnur. Við upprifjun á slíku þá sér maður, nú er leiðir skilja langt um aldur fram, hve ómetanlegt slíkt samband er og hve dýrmætt það er að eiga slíka menn að sem frændur. Hvar og hvenær sem var að fjölskyldunni var hóað saman á ættarmót eða kaffisamsæti að minnast langafa og langömmu, svo dæmi sé tekið, þá var vitaskuld Finnur mættur með fyrstu mönnum með hina hjart- fólgnu fjölskyldu sína, sem hann var enda mjög stoltur af. Þar var Finnur á heimaslóðum meðal frændfólksins og mér sýnist að slík mót verði aldrei söm hér eftir, því mikið er skarð fyrir skildi að Finni gengnum. En vitanlega verður slík- um samsætum ekki varpað fyrir róða, enda held ég að slíkt hefði ekki verið Finni að skapi, og allra síst hefði slíkt verið gert vegna hans, öðru nær. Ég held að engan hafí getað rennt i grun að Finnur væri á förum frá okkur svo snemma. Einhvern veginn sýnist mér sem að menn eins og Finnur ættu að vera eilífir. Sennilega er þetta auðvitað eintóm eigingimi í mér, en hver getur láð manni að sakna þvílíks öndvegis- manns sem stórfrændi minn var. Hann mun ávallt eiga stóran sess í huga mínum. Ég þykist vita það fyrir víst að menn sem Finnur eru aufúsugestir í ríki hins eilífa Guðs, þó svo að við hinir breisku teljum okkur ekki geta séð á eftir honum sísvona og nánast fyrirvaralaust. Ég þakka fyrir ævilöng kynni mín af Finni og óska honum alls góðs á hinum nýju brautum sem hann hefur nú hafið vegferð sína á. En ég sendi eftirlifandi fjölskyldu Finns, þeim Guðmundu, Eiríki, Borghildi og Gyðu hinar innilegustu samúðar- kveðjur, og bið þess að algóður Guð styrki þau í hinum mikla missi þeirra. Þorsteinn Halldórsson. Fleiri minningargreinar um Finn Stephensen bíða birting- ar og munu birtast næstu daga. t Þakkir fyrir vinarhug og samúð við fráfall NÖNNU SNÆDAL, Álfaskeiði 44, Hafnarfirði. Jakob Bjarnar Grétarsson, Steinunn Ólafsdóttir, Atli Geir Grétarsson, Nanna Elísa Jakobsdóttir, Stefán Snær Grétarsson, Guðlaug Elísa Kristinsdóttir og systkini. Lokað Lokað frá hádegi í dag, miðvikudaginn 31. mars, vegna jarðarfarar FINNS STEPHENSEN, skrifstofustjóra. Gleraugnaverslun Benedikts, Hamraborg 7, Kópavogi. Lokað l Lögfræðiskrifstofan Lögvísi sf., Ármúla 3, Reykja- vík, verður lokuð eftir hádegi miðvikudaginn 31. mars 1993 vegna jarðarfarar RAGNHEIÐAR SVEINBJÖRNSDÓTTUR.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.