Morgunblaðið - 31.03.1993, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993
f« lk í
fréttum
UTLIT
Cindy breytti sér í Barbie
Hver hefði trúað því að hér væri
sama konan á ferðinni?
Eftir 18 fegrunaraðgerðir sem kostuðu 2,5 milljónir króna hef-
ur Cindy Jackson, 34 ára Bandaríkjamaður, fengið þá ósk
sína uppfyllta að líta út eins og Barbie-dúkka. Hún segir að
nú horfi fólk loksins á eftir sér á götu og ef einhver þeirra
nefni að hún líti út eins og Barbie bjargi það deginum hjá henni.
Cindy ólst upp á bóndabæ rétt utan við bæinn Fremont í
Ohio. Hún líktist föður sínum mjög mikið, sem henni þótti
ákaflega sárt, því hann tilheyrði ekki hópi myndarlegra
manna. Frá upphafi skólagöngu gekk henni vel í námi, en
var strítt á útlitinu og kenndi föður sínum um ófarimar.
Henni var ekki boðið að vera með þegar krakkamir gerðu
sér dagamun, þannig að flesta daga fór hún beint heim eft-
ir skóia, inn í herbergið sitt og ímyndaði sér að þar væri
allt fallegt. Húsnæðið væri búið ríkulegum húsgögnum eins
og heima hjá skólafélögum hennar. Og mitt í öllum
draumnum vom uppáhaldsleikföng hennar aðalatriðið,
B arbie-dúkkumar.
Kaldhæðni örlaganna
Þegar Cindy var orðin 21 árs ákvað hún að flytja
til London, þar sem hún fékk vinnu sem ljósmyndari
og söngvari í hljómsveit. Og nú fór hún að safna pening-
um til að uppfylla gamla drauminn: að líta út eins og
Barbie-dúkka. Hún segir að það hafí tekið langan
tíma að safna fénu, en kaldhæðni örlaganna hafi
síðan spilað inn í. Faðir hennar lést og fyrir arfinn
gat hún látið drauminn rætast.
Það var ýmislegt sem þurfti að laga, að mati
Cindyar, nefið var of stórt, varimar of þunnar,
augun of lítil, munnurinn var illilegur og undir-
hakan átti að hverfa. Þá voru bijóstin stækk-
uð, fitan skorin af maganum, mjöðmunum,
lærunum og hnjánum og hún fór í tvær and-
litslyftingar. Aðgerðimar voru gerðar á
nokkmm áram og urðu sem sagt átján vegna
þess að sumar þurfti að endurtaka.
í hamingju sinni segir Cindy að sér fínnist
ekkert rangt við að breyta útlitinu, þrátt
fyrir að ekkert minni á uppmnalegu persónuna.
Hún segist vera mjög ánægð með útlitið, og því ánægðari
sem hún sé, því betri sé framkoma hennar við aðra.
Lifandi Barbie-
dúkkan hún Cindy
eins og hún lít-
ur út eftir átj-
án fegrunar-
aðgerðir.
Þetta er fyrirmyndin.
BEINT FRÁ
FÆREYJUM!
Eldhúsinnréttingar!
Baðherbergi!
Klæðaskápar!
eldhus-
miðstöðin
Húsi Ormsson bræbra, Lágmúk 6.
Sími 68 49 10.
fHsrjpwfttiiftfft
Metsölublaó á hverjum degi!
COSPER
Hæ! Ég var niðrí stofu að hjálpa manni að pakka niður í kassa.
Morgunblaðið/Kristinn
Fimm skífuþeytarar komust í úrslit, f.v. Þórhallur, Binni, Bjarki,
Birgir, sem hlaut titilinn Plötusnúður ársins, og Sverrir.
FELAGSMIÐSTÖÐVAR
Plötusnúður
p •
arsms
Þau komu til að fylgjast með úrslitunum,
f.v. Adda, Arnar, Elva Rós og írena.
Birgir Konráð Sigurðs-
son frá félagsmið-
stöðinni Tónabæ bar sig-
ur úr býtum í Plötusnúða-
keppni félagsmiðstöðv-
anna, sem stóð yfir vik-
una 22.-26. mars.
Keppnin er orðin árviss
viðburður í Frostaskjóli
og var hún haldin í sjötta
skipti. Unglingar víðs
vegar af landinu tóku
þátt hver fyrir sína félg-
smiðstöðina. Fimm kepp-
endur komust í úrslit, en
það voru Brynjar Snær
Þrastarson frá Frosta-
skjóli, Sverrir Sigur-
sveinsson frá Þróttheim-
um, Bjarki Sveinsson frá
Fjörgyn og Þórhallur frá
Dynheimum á Akurleyri, auk sigur-
vegarans.
Keppendurnir spiluðu aðallega
nýja tegund danstónlistar, sem
flokkast m.a. undir svokallað „ho-
use“, „hard core", „soft core“ og
„garage dub“. Þessi tónlist er
geysivinsæl meðal unglinga og
segja má að hún tengist nýrri ungl-
ingamenningu, því ákveðinn klæða-
burður fylgir tónlistinni, eins og
víð föt, stór hálsmen og höfuðföt
af ýmsu tagi.
Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg
VIÐURKENNIN G
Björgnðu
mannsiífum
*
Isíðustu viku var boðssýning á
páskamynd Stjörnubíós, stór-
myndinni Hetju (Accidental Hero),
sem fmmsýnd verður á morgun.
Meðal gesta vora sex hetjur, sem
allar höfðu bjargað mannslifum, án
þess að fjölmiðlar hefðu sérstaklega
getið þess. Myndin er tekin þegar
þau Berglind Osk, Guðmundur ívar
Agústson, Hafdís Sigurðardóttir,
Helga Dóra Ólafsdóttir, Jón Arnar-
son og Kolbrún Júlía Erlendsdóttir
vom heiðmð og leyst út með gjöf-
um.