Morgunblaðið - 31.03.1993, Síða 35

Morgunblaðið - 31.03.1993, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993 35 ARSHATIÐ Heiðurs- gesturinn vann vísu- keppnina Um 130 marms voru mættir á árshátíð Lögmannafélags ís- lands, sem haldin var laugardaginn 27. mars í Átthagasal Hótels Sögu. Heiðursgestir voru hjónin Þór Vil- hjálmsson forseti Hæstaréttar og Ragnhildur Helgadóttir fyrrum ráðherra og alþingismaður. Undir borðum var sunginn fjöldasöngur en síðan voru tilkynnt úrslit í vísubotnakeppni. Á mat- seðlinum hafði verið prentaður fyrri partur vísuhelmings, sem gestum var ætlað að botna. Sér- stök dómnefnd valinkunnra lög- manna sá um að vinna úr þeim 40 vísubotnum sem bárust. Sá vísubotn sem bar sigur úr býtum var hins vegar óundirritaður, þann- ig að höfundur var beðinn að gefa sig fram undir miklu lófaklappi. Reyndist verðlaunahafinn vera annar heiðursgestanna, Ragnhild- ur Helgadóttir. Fer vísan hér á eftir: Les ekki framar á lagabók ljóðasöngur hans þagnar. Morgunblaðið/Kristinn Árshátíðargestirnir (f.v.) Jakob R. Möller hdl., Ragnhildur Helgadóttir, Anna Hatlemark eiginkona Ragnars Aðalsteinssonar formanns Lögmannafélags íslands sem stendur við hlið hennar, þá Margrét Bjömsdóttir endurmenntunarstjóri HÍ, Þór Vilhjálmsson forseti Hæstaréttar, Margrét Ásgeirsdóttir eigin- kona Marteins Mássonar framkvæmdasljóri Lögmannafélags, sem er lengst til hægri. Drottinn gaf og Drottinn tók. Dönsum núna, Ragnar. Verðlaunin voru lítið kver ís- lenskra úrvalsstaka sem Steindór Sigurðsson safnaði og gaf út 1934. Ragnhildur Helgadóttir sagðist ekki vera vön að setja fram vísur, hins vegar hefði hún mjög gaman af þvi að lesa ljóð. Ragnar Aðal- steinsson var borðherra hennar og sagðist henni ekki hafa dottið ann- ar vísuhelmingur í hug, enda hafi Ragnar ekki komist hjá því að vera dansherra hennar eftir þetta. Á árshátíðinni kom einnig fram Jóhannes Kristjánsson eftirherma og síðar um kvöldið spilaði Bogom- il Font fyrir dansi. Guðni Haraldsson hæstaréttarlögmaður og eiginkona hans Stefanía Jónsdóttir stóðu og spjölluðu við Sigurð G. Guðjónsson hæstaréttar- lögmann. BRÆÐUR 72 áraaldurs- munur egar hinn 92 ára Leslie Colley eignaðist soninn Oswald með 38 ára gamalli eiginkonu sinni Patty, voru 58 ár liðin síðan hann eignaðist síðast barn. Með fyrri eiginkonu sinni átti hann fjóra syni, sem nú eru á aldrinum 60-73 ára. Elsti bróðirinn Norm Colley segist hafa kviðið því að hitta þann stutta í fyrsta skipti. Hann segir þó að kvíðinn hafí verið óþarfi, því það hafi strax farið vel á með þeim, enda Oswald vanur að umgangast eldri menn. Norm segist hafa orðið svo glaður að hann hafi verið gráti næst þegar hann hélt á bróður sín- um í fyrsta skipti. Sjálfur á Norm fimm börn, 26 bamabörn og fjögur langafabörn. Leslie Colley (t.h.) með syni sína tvo, Norm 73 ára og Oswald 18 mánaða. Erruívandræðum...O ... með fermingargjöfina ! SMmpilpenni er glæsileg gjöf! PDffistos Sími 67 1900 t^- Útsala 20-50% AFSLATTUR af leður- og mokkajökkum. Skinn-gollerí, Laugavegi 66, sími 20301. 'U Lt^ Hö J öföar til fólks í öllum starfsgreinum! HHHHH UNGLINGAKL U B li U R SLANDSBANKA BWPBMMMM——B—maag—MMHBT fei-. : * s < Q UK-17 býbur fjármálaþjónustu og margt fleira fyrir sjálfstætt ungt fólk. Komdu í klúbbinn! ÍSLANDSBANKI - í takt vib nýja tímal i -f *■ " NÁMIÐ, FJÁRMALIN LÍFIÐ! ’Sm

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.