Morgunblaðið - 31.03.1993, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) W*
Eitthvert verkefni er enn
óleyst. Vertu ekki með yfir-
gang heima fyrir. Ættingi
er sérlega hörundsár í dag.
Naut
(20. april - 20. maí)
Vertu ekki með of mörg
járn í eldinum. Þér semur
vel við vin, en einhveijir
aðrir fara undan í flæm-
ingi.
Tvíburar
'(21. maí - 20. júní)
Þú þarft að sýna aðgát í
samningum við aðra um
viðskipti í dag. Reyndu að
halda útgjöldum niðri og
eyddu ekki of miklu.
Krabbi
(21. júní - 22. júl!) >“$0
Þú finnur nýjar leiðir, en
láttu ekki stjómsemi spilla
fyrir þér. Félagi á rétt á
að fara eigin leiðir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Nú er rétti tíminn til að
íhuga bókhaldið og leita
ráða hjá sérfræðingum.
Ekki láta orðróm koma þér
úr jafnvægi.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Ástvinir njóta dagsins, en
skapstór vinur getur valdið
erfíðleikum. Eitthvað
óvænt getur breytt áform-
um kvöldsins.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Nú er tækifæri til að tak-
ast á við ný verkefni. Við-
ræður við ráðamenn bera
árangur. Sýndu ástvini
umhyggju.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þunglyndi hijáir sam-
starfsmann. Þú gætir lagt
drög að helgarferð. Ein-
hver nákominn er með vífí-
lengjur í kvöld.
Bogmaóur
(22. nóv. — 21. desember) m
Nú er ákjósanlegra að vera
heima með fjölskyldunni en
að fara út í leit að skemmt-
un. Varasamt er að lána
öðrum peninga.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Sameiginlegir hagsmunir
félaga ganga fyrir öðru
árdegis. Láttu ekki þver-
lyndi og óþreyju ná tökum
á þér síðdegis.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Morgunstund gefur gull í
mund og þú kemur ár þinni
vel fyrir borð. Þótt á hæg-
ist síðdegis skaltu ekki láta
það á þig fá.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) 'ZS*
Þú laðast að tómstundaiðju
sem krefst íhugunar. Sein-
læti vinar getur spillt fyrir
skemmtun kvöldsins.
Stjörnusþána á aö lesa sent
áœgraávól. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staóreynda.
DÝRAGLENS
GRETTIR
ÝOOf/
TOMMI OG JENNI
LJÓSKA
FERDINAND
Að standa í rigningunni og bíða eftir skólabílnum sýnir löngun eftir menntun sem leiðir til háskóla og starfs í
stóru fyrirtæki við Laugaveginn . . . Hérna, kastaðu nestistöskunni í hann!
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
Fræðin kenna að rétt sé að
reyna alslemmu í sveitakeppni
ef vinningslíkur eru yfir 56%.
Er þá miðað við að mótheijarnir
á hinu borðinu meldi a.m.k. hálf-
slemmu. Alslemman sem Guð-
mundur Sveinsson og Magnús
Ólafsson „náðu“ á íslandsmót-
inu í síðustu viku fullnægir ekki
alveg þesu kröfum. Þetta var í
leik sveita Hrannars Erlingsson-
ar og Hljólbarðahallarinnar:
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♦ D10842
VD
♦ ÁG76
Vestur ♦ Á74 Austur
♦ G9653 ♦ K
¥106 ¥53
♦ KD4 ♦ 1085
♦ 1053 Suður ♦ KDG9862
♦ Á7
VÁKG98742
♦ 932
♦ -
Eftir sagnröð, sem óþarfi er
að rekja, varð Guðmundur
Sveinsson sagnhafí í 7 hjörtum.
Útspilið var tígulkóngur. „Eins
og þú veist,“ útskýrði Guðmund-
ur „þá spila ég fyrir ánægjuna,
fyrst og fremst. Þetta leit út
fyrir að vera skemmtilegt spil,
svo ég gaf mér góðan tíma“.
Lesendum til upplýsingar má
geta þess að þetta var í opnum
sal. Áhorfendur voru ekki marg-
ir við borðið þegar fyrsta sögn
spilsins var gefín, en þeim fjölg-
aði óðfluga eftir því sem sagn-
þrepið hækkaði. Og þegar
spurnir bárust af lokasögninni
sást ekki áhorfandi við annað
borð.
„Það var eins og eitthvað lægi
í loftinu," sagði Guðmundur.
Eftir að hafa notið augna-
bliksins dágóða stund, drap Guð-
mundur á tígulás og tók hjarta-
drottningu. Síðan laufás og
henti tígli.
Og svo rann stóra stundin
upp; lítill spaði úr blindum og
... KÓNGUR!
Fórnarlambið í austursætinu
var Hjalti Elíasson. Hann lét sér
fátt um finnast, en ávítaði Guð-
mund fyrir að taka allan tímann
við borðið: „Þú átt ekki að vera
svona lengi að spila einfalt spil!“
E.S. Líkur á spaðakóng stök-
um í austur reiknast vera 1,2%.
SKÁK
Umsjón Margeir
Péturssofy
Þessi staða kom upp á svæða-
móti Austur-Evrópu um daginn í
viðureign stórmeistaranna Mihai
Suba (2.520), Rúmeníu, og Gyula
Sax (2.570), Ungverjalandi, sem
hafði svart og átti leik. Svartur
var að enda við að fórna peði með
19. - b7-b5, sem hvítur varð að
taka.
20. - Hab8!, 21. Dxc6 (21. Dxc4
er einnig svarað með 21. - Dxa3!
og 21. Da4 - Df6! varengu betra.)
21. - Dxa3! og Suba gafst upp,
því hann er óveijandi mát. Þrátt
fyrir að hafa unnið þessa glæsi-
legu skák var Sax fjarri sínu besta
á mótinu og varð næstneðstur í
sínum riðli. Nú stendur yfir í
Búdapest aukakeppni þeirra Júd-
itar Polgar, Pólvetjanna Wojki-
ewicz og Gdanski og Ftacniks frá
Slóvakíu. Komist Júdit áfram yrði
það enn eitt sporið í jafnréttisátt
í skákheiminum, kona hefur aldrei
náð að vinna sér sæti á milli-
svæðamóti karla.