Morgunblaðið - 31.03.1993, Síða 41

Morgunblaðið - 31.03.1993, Síða 41
í \Mat/ f í: >jij0A<j' I.HíVGíÍá CÍÍCiA-.ÍHV\ Ií)>í()m MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993 „ Samstarfshópur um bætta líðan“ Frá Birnu Smitfc Svar við grein Nönnu Baldurs í Bréf til blaðsins þann 21. mars síð- ! astliðin: Ekki bara alkar. „Samstarfshópurinn um bætta líðan“ vill þakka þér fyrir góða og I þarfa grein. Þú talar um aff allir hefðu bara gott af því að fara í meðferð, það væru fleiri en alkar sem ættu við vandamál að stríða. Alkar drekka gjarnan frá sér fjöl- skyldu, vinnu, eignir og heilsuna, áður en þeir fara í meðferð. En hvað með okkur hin? Ég er í matar- klúbbi með nokkrum „stelpum" á besta aldri og fara kvöldin yfirleitt í það að segja frá því, hveijir hafa nú skilið, misst heimili sín eða heilsu síðan síðast, og af nógu virðist vera að taka. Er ekki eitthvað að, sem gjarnan mætti laga og breyta í þessu annars dásamlega þjóðfélagi ) okkar, eða má engu breyta? Erum við ekki svo föst í viðjum vanans sem við og þjóðfélagið höf- j um skapað okkur að við erum sem fangar í eigin vanlíðan? Eg tel að við berum sjálf ábyrgð | á okkar eigin líðan og heilsu og að við getum engu og engum öðrum um kennt. Það er ábyrgðarleysi að láta aðra stjórna því hvernig okkur iíður og kenna öðrum um hvernig er komið fyrir okkur. Vanlíðan leiðir í flestum tilfellum af sér einskonar fíkn sem getur haft slæmar afleiðingar, engu síður en áfengisfíkn. Píkn er flótti frá tilfinningum, raunverulegri líðan eða eigin sjálfi. Fíkn eða árátta getur tekið á sig hinar ýmsu myndir svo sem: áfeng- isfíkn, lyfjafíkn, matar- og sælgæt- isfíkp, vinnufíkn, rifrildisfíkn, kaup- fíkn, reykingarfíkn, skemmtana- . fíkn, stressfíkn og sjónvarpsfíkn, fílufíkn svo eitthvað sé nefnt. Hin síðari ár hefur vitneskja um fíknir . og áráttuhegðun aukist mikið. Það hefur komið í ljós að fólk sem ólst j upp hjá áráttukenndum foreldrum . eða foreldrum sem voru ekki til staðar fyrir börn sín tilfinningalega hafa meiri tilhneigingu til áráttu- hegðunar en aðrir. 1 grein sinni talar Nanna um að það vanti fræðsluefni og leiðbeiningar á ís- lensku til sjálfshjálpar um það hvernig einstaklingar og fjölskyldur megi öðlast jafnvægi á lífi sínu. Fyrir það fólk sem hefur kjark til þess að viðurkenna fíkn sína og gera róttækar breytingar til batnað- ar teljum við að lausnin sé fundin. Við teljum að til þess að hægt sé að uppræta þetta áráttuvanda- mál þurfi að finna „meinið" (orsök- ina) og uppræta það og þá lagist allt annað af sjálfu sér og áráttan hverfi og jafnvægi náist. Jafnvægi einstaklingsins verður jafnvægi hjóna, jafnvægi hjóna verður aftur jafnvægi allrar fjöl- skyldunnar. Hvernig á þá að finna hvar mein- ið liggur grafið? Garðar Björgvinsson miðill hefur verið að miðla ákveðinni þekkingu frá sálnahópunum Micael og Malhe- us sem ekki hefur verið miðlað áð- ur. Sálnahóparnir „Micael“ „Mathe- us“ og „Orin“ segjast vera sálir sem lokið hafa jarðvistarferli sínu (út- skrifaðir) og vinna að því meðal annars að hjálpa fólki við að ná áttum á jörðinni og koma því í skiln- ing um að það beri sjálft ábyrgð á sinni líðan og heilsu almennt. Sálnahópurinn „Micael“ hefur áður sent þekkingu í gegnum miðil að nafni Jose Stevens o.fl. og nefn- ist sú þekking: „Þú lifir aftur og aftur“. Sálnahópurinn „Orin“ hefur sent þekkingu sína í gegnum miðil að nafni Sanaya Roman o.fl. og heitir sú þekking „Lifðu í gleði“. Margar bækur hafa síðan verið rit- aðar um þessi efni mörgum til sjálfshjálpar og ánægju. Þessi þekk- ing sem kemur nú miðluð af Garð- ari hefur ekki verið áður þekkt og mun samstarfshópur í kringum Garðar vinna sameiginlega að því að koma henni á framfæri, þ.e. í bókarformi og með námskeiðahaldi. Námskeið 1: „Leiðin til vel- gengni.“ Þar gefst fólki tækifæri á að skilgreina sig samkvæmt þessu kerfi, það lærir að þekkja þarfir sínar og hvernig það vill sinna þeim, og mikilvægi þess að sinna þeim. Að þekkja þá þætti sem valda því vanlíðan og vellíðan. Vita hvar þeir eru í þroskaferlinum og hvað þeir þurfi að gera til þess að koma sér í vellíðan. Þar verður fólki sýnt hvernig það getur lifað í innri gleði alla daga allan ársins hring. Þegar fólk fer í fíknarbindindi, þá fara óuppgerð mál og sársauki að leita upp á yfirborðið sem ollu flóttanum, VELVAKANDI : ÓTRÚLEG GRIMMD FRÉTT sem mér barst til eyrna úr Ríkisútvarpinu fyrir skömmu vakti hjá mér slíka reiði og við- bjóð að ég fann mig knúna til að láta álit mitt í ljós. Snjósleðagarpar höfðu gert það sér til dundurs uppi á há- lendi íslands að elta uppi tófu, ná að aka yfir hana og skilja svo við dýrið helsært. Markmfð- ið hefur augljóslega ekki verið að bana dýrinu, heldur að njóta þess að sjá það kveljast. Mikil er andleg eymd slíkra vesalinga. Ég skora á allt heil- vita fólk að fordæma ódæðið. Hrefna TAPAÐ/FUNDIÐ Gullhringur tapaðist GAMALL gullhringur tapaðist 12. október sl., liklega í mið- borginni. Hringurinn er með rauðum steini og inn í hann er grafið erlent kvenmannsnafn, dagsetning og ártalið 1905. Finnandi vinsamlega hringi í síma 96-73135. Fundarlaun. Hálsmen tapaðist HÁLSMEN, ílöng perla með þremur litlum steinum fyrir ofan, tapaðist laugardaginn 20. mars, líklega á gangstétt við Landakot eða í Landakotskirkju. Finnandi vinsamlega hafi sam- band i síma 71332. Seðlaveski tapaðist SVART seðlaveski tapaðist í síð- ustu viku. I veskinu eru m.a. skilríki eigandans. Upplýsingar gefur Birna í síma 27777 á dag- inn og 11726 eftir kl. 17. Myndavél tapaðist OLYMPIA myndavél tapaðist á Bjöllusveitamóti á Hellissandi sl. helgi. Finnandi vinsamlega hringi í síma 91-689388. GÆLUDÝR Köttur í óskilum LÍTIL og nett bröndótt læða er í óskilum í Holtsbúð 15 í Garða- bæ. Einu auðkenni hennar eru þau að hún hefur nýlega farið í læknisaðgerð á kvið. Upplýs- ingar í síma 657003. því fíkn er jú ekkert annað en flótti frá ákveðnum vanda. Þessi nýja leið mun hinsvegar geta hjálpað þér að eyða vandanum eða sársaukan- um með skilningi á auðveldan og fljótvirkan hátt. Skilningur er allt sem þarf. Þetta gerir manninum kleift að þroskast í gegnum skilning og gleði en ekki í gegnum sársauka og erfíðleika. Til þess að hver einstaklingur öðlist skilning á sínum eigin vanda getur hann þurft á sérþjónustu að halda, þessa þjónustu munu síðan Garðar og hópurinn geta veitt. Þau námskeið, sem síðar verða í borði, eru: Námskeið um fjármál, um samskipti hjóna, um hulukortið, um bænina, um notkun hjálpar- tækja eins og hugleiðslu, tónlistar, lita o.s.frv. Síðan verður veitt sér- þjónusta eftir þörfym hvers og eins svo sem nudd, heilun, miðlun, ráð- gjöf um mataræði og margt, margt fleira. í hópnum er fólk með mismun- andi þekkingu og starfssvið en á það sameiginlega markmið að vilja hjálpa öðrum til betra lífs. Fólk sem hefur töluverða reynslu og þekk- ingu að miðla til þeirra sem áhuga hafa. Námskeið þessi verða auglýst síðar. BIRNA SMITH, Laugarásvegi 27, Reykjavík. LEIÐRÉTTIN G AR Lína féll niður í minningargrein Sigurðar Líndal um Þórð Björnsson, fyrrverandi rík- issaksóknara, í Morgunblaðinu í gær féll niður lína og raskaði það samhengi. Rétt er viðkomandi máls- grein svona: „Fræðiáhuga sinn tengdi hann framar öðru starfi sínu, en ritaði einnig margt í tímarit um lögfræðileg efni, einkum framan- greind fræðasvið og að auki réttar- sögu, en utan lögfræði var sagn- fræði eitt helzta áhugamál hans og meðal síðustu ritgerða hans voru tvær á sviði réttarsögu — önnur um vígsakir á 14. öld, en hin um deilur þær sem urðu um Hæstarétt á þriðja og fjórða áratug þessarar aldar.“ Beðist er velvirðingar á mistökunum. Daði, ekki Davíð Þau mistök urðu við vinnslu frétt- ar um aðalfund Fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Garðabæ, sem birtist síðastliðinn sunnudag, að annar fulltrúi Hugins FUS í stjórn fulltrúaráðsins, Daði Einarsson, var nefndur Davíð. Beðizt er velvirðing- ar á mistökunum. Hólmavík í frétt á blaðsíðu 46 í Morgun- blaðinu í gær af klifri á Lambatind á Ströndum kemur fram að aðilar úr Bolungarvík hafi aðstoðað Ijall- göngumennina. Þar átti að standa frá Hólmavík. Hlutaðeigendur eru beðnir velvirðingar á þessu mis- hermi. Vlt 41 SPARIÐ TÍMA FÉ OG FYRIRHÖFN og skapiö öruggari vinnu og rekstur meö ELBEX sjónvarpskerfi. Svart hvítt eöa í lit, úti og inni kerfi. Engin lausn er of flókin fyrir ELBEX. Kynnið ykkur möguleikana. Einar Farestveit & co hf. Borgartúni 28, sími 91-622900 SJÁLFVIRKI OFNHITASTILLIRINN = HÉÐINN = VERSLUN SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260 s Upplifðu töfra Parísar í sumar Parísarferðir Heimsferða á einstökum kjörum í samvinnu við stærstujferðaskrifstofur Frakklands. Vika í París: Flug og hótel frá kr. 29.900 m.v. 2 í herbergi. Flug og bíD: Frá kr. 24.900 Vikulegar brottfarir frá 7. júlí til 25. ágúst. Takmarkað sætamagn HEIMSFERÐIR hf. Austurstræti 17,2. hæð ■ Sími 624600 Samhjálp Hvítasunnumanna 20 ára Hátíðarsamkoma verður haldin í Fíladelfíukirkjunni Hátúni 2, sunnudaginn 4. apríl kl 16:30. Dagskrá samkomunnar verður auglýst síðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.