Morgunblaðið - 31.03.1993, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993
43
ÍÞR&mR
FOLX
■ EINAR Guðmundsson, leik-
stjórnandi Selfossliðsins í hand-
knattleik, brákaðist á handarbaki
hægri handar í æfingaleik gegn
Haukum fyrir skömmu. Einar
Þorvarðarson, þjálfari Selfoss,
sagði að Einar yrði með í kvöld
gegn ÍR. „Hann verður með spelk-
ur á hendinni-og það verður að
koma í ljós hvað hann getur,“ sagði
þjálfarinn.
I KONRÁÐ Olavson, sem lék
með Dortmund í Þýskalandi í
vetur, leikur fyrsta leik sinn með
Haukum í kvöld gegn Fram í
Laugardalshöll.
B JAKOB Sigurðsson, horna-
maður sem var skorinn upp vegna
hnémeiðsla fyrir áramótin, verður
í leikmannahópi Vals gegn FH í
kvöld.
H ERIC Cantona, miðherja
Manchester United, var gert að
borga um 95.000 krónur fyrir að
hrækja að áhorfendum eftir leik
gegn Leeds í síðasta mánuði.
■ ATLETICO Madrid hefur ráð-
ið þriðja þjálfarann á tímabilinu.
Argentínumaðurinn Ramon Cac-
ho Heredia tók við af Omar Pa-
storiza, sem sagði starfi sínu lausu
fyrir helgi eftir deilur við Jesus
Gil, formann félagsins. Heredia
er er 11. þjálfari félagsins á tæp-
lega 16 árum.
■ JESUS Gil sagði á blaða-
mannafundi að hann vildi Þjóð-
verjann Bernd Schiister út úr lið-
inu, en Pastoriza sagði að formað-
urinn væri að skipta sér af vali liðs-
ins.
■ SCHUSTER á ár eftir af samn-
ingi sínum, en talið er að hann
verði látinn fara í lok yfirstandandi
tímabils.
■ DRAGOSLAV Stepanovic,
serbneski þjálfarinn hjá Eintracht
Frankfurt, var rekinn frá félaginu
eftir að liðið var slegið út úr þýsku
bikarkeppninni af Bayer Leverk-
usen á heimavelli í gærkvöldi.
Stepanovic, sem er 44 ára, hefur
verið þjálfari liðsins síðustu tvö
árin.
I kvöld
Körfuknattleikur
Úrvalsdeild
Keflavík: ÍBK - Haukar..20
■Með sigri tryggir ÍBK sér
Islandsmeistaratitilinn.
Handknattleikur
1. deild karla
Garðab.: Stjarnan - ÍBV ....20
Víkin: Víkingur - KA....20
Höllin: Fram-Haukar.....20
Kaplakriki: FH - Valur..20
Seljaskóli: ÍR - Selfoss.20
Akureyri: Þór-HK......20.30
Blak
Úrslitakeppni karla
Digranes: HK-Þróttur....20
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KARLA
Gylfi med ÍBV
í lokaslagnum
Gylfi Birgisson leikur með ÍBV gegn sínum gömlu félögum í Stjörnunni í
kvöld.
Gylfi Birgisson, fyrrum leikmað-
ur ÍBV sem leikið hefur með
norska 2. deildarliðinu B.H.K. í
vetur, leikur með
Eyjamönnum gegn
Stjörnunni í kvöld.
Gylfi er lánaður til
ÍBV frá norska fé-
laginu og leikur með liðinu sem
eftir lifir keppnistímabilsins.
Gylfi kom til Vestmannaeyja í
gær kl. 16 og var mættur á fyrstu
æfínguna með ÍBV tveimur klukk-
stundum síðar. „Við lékum síðasta
Sigfús
Gunnar
Guðmundsson
skrifar
Deildarkeppnin aftur af stað eftir tveggja mánaða hlé:
Línur famar að skýrasf
19. umferð 1. deildar karla f
handknattleik fer fram íkvöld
eftir næstum tveggja mánaða
hlé á deildarkeppninni vegna
þátttöku íslands i HM. Línur
eru farnar að skýrast á toppi
deildarinnar sem botni, en
margt getur enn breyst í síð-
ustu fjórum umferðunum.
Fjögur lið hafa nú þegar tryggt
sér öruggt sæti í úrslitakeppn-
inni um íslansmeistaratitilinn sem
hefst 16. apríl. Þau eru Stjarnan,
FH, Valur og Selfoss. Haukar og
Víkingur geta gulltryggt sæti sitt
í úrslitakeppninni með sigri í kvöld.
KA og ÍR standa vel að vígi, en ÍBV
og Þór eiga enn möguleika á að
komast í úrslitakeppnina. Fram og
HK eru í botnsætum deildarinnar
og eiga ekki möguleika á úrslita-
keppninni, en berjast fyrir að halda
sætum sínum í 1. deild.
Efsta lið deildarinnar, Stjarnan,
fær Eyjamenn í heimsókn í
Garðabæ, en fyrri leikur liðanna í
Vestmannaeyjum endaði með sigri
Stjörnunnar, 30:25.
FH og Valur leika í Kaplakrika
en fyrri leik liðanna lauk með jafn-
tefli, 20:20, eftir að Valsmenn
höfðu leitt nær allan tímann.
ÍR og Selfoss eigast við í Selja-
skóla. ÍR-ingar hafa harma að
hefna því Selfoss vann fyrri leikinn
26:21 á Selfossi.
Haukar mæta Fram í Höllinni,
en Framarar mega ekki við því að
tapa leik ætli þeir sér að halda
sæti sínu í deildinni. Haukar unnu
fyrri leik liðanna í Hafnarfirði
31:25.
Víkingar fá KA-menn í heimsókn
í Víkina og verða án Áma Friðleifs-
sonar sem meiddist í síðustu viku.
KA vann fyrri leikinn á Akureyri,
24:21.
Loks verður botnbaráttuleikur á
Akureyri þar sem Þór og HK eig-
ast við. Þór vanri fyrri leikinn í
Kópavogi, 32:27.
STAÐAN
Fj. leikja U j r Mörk Stig
STJARNAN 18 12 4 2 448: 419 28
FH 18 12 2 4 482: 434 26
VALUR 18 10 6 2 431: 388 26
SELFOSS 18 9 3 6 465: 447 21
HAUKAR 18 9 1 8 480: 445 19
VÍKINGUR 18 9 1 8 424: 423 19
KA 18 7 3 8 414: 420 17
ÍR 18 7 3 8 427: 436 17
ÍBV 18 5 3 10 425: 453 13
ÞÓR 18 5 2 11 430: 474 12
FRAM 18 3 3 12 432: 463 9
HK 18 4 1 13 420: 476 9
1. DEILD KVENNA
ÍBV fyrst til ad vinna Víking
Sigfús
Gunnar
Guðmundsson
skrifar
IBV-stúlkur voru fyrstar til að
vinna íslandsmeistara Víkings í
deildinni á þessu keppnistímabili og
gerðu það sannfær-
andi, 24:19, í úr-
slitakeppni 1. deild-
ar kvenna í Eyjum
í gærkvöldi.
„Við áttum alls ekki von á að
sigra Víking frekar én önnur lið,“
sagði Andrea Atladóttir, þjálfari og
leikmaður ÍBV. „Við ákváðum að
stilla upp breyttri vörn og athuga
hvort við kæmum þeim á óvart. Það
tókst, þær voru sigurvissar og fóru
í „panik“. Markvarsalan hjá okkur
var frábær og auðvitað hjálpaði góð
vörn. Við náðum einnig mjög vel
að leysa fjórar gegn fjórum þegar
þær tóku tvær úr umferð. Næsti
leikur verður mikið erfiðari. Við
höfum spilað eiris og tvö ólík lið
heima og heiman. En þar sem við
erum komnar þetta nálægt úrslitum
trúi ég ekki að við föllum í þá gryfju.
Við gefum okkur allar í leikinn og
ef við leikum eins og í kvöld [í
gærkvöldi] er ég hvergi smeyk.“
Það var ljóst strax í byrjun hvert
stefndi. Lið ÍBV lék geysivel og
náði fljótt góðu forskoti sem Vík-
ingsstúlkur ógnuðu aldrei. Góður
varnarleikur Eyjastúlkna kom gest-
unum í opna skjöldu og höfðu þær
5 mörk yfir í leikhléi. Það var sama
hvað lið Víkings reyndi það náði
engan veginn að halda í við ÍBV
og fyrsta tap Víkings í deildar-
keppninni því staðreynd. Liðin
verða að eigast við í Víkinni í hrein-
um úrslitaleik annað kvöld.
Leikmenn ÍBV léku allir mjög
vel en hjá Víkingum var það helst
Halla María sem stóð uppúr meðal-
mennskunni og gerði 6 mörk þrátt
fyrir að vera í strangri gæslu
lengstum í leiknum.
FRJALSIÞROTTIR / LYFJAMAL
Bann Krabbe stytt í eitt ár
frýjunardómstóll þýska
fijálsíþróttasambandsins
ákvað í gær að stytta keppnis-
bann Katrínar Krabbe og Grit
Breuer vegna meintrar lyfja-
misnotkunar úr íjórum árum í
eitt ár, en bann Manuela Derr
var stytt í átta mánuði. Krabbe
og Breuer mega byija að keppa
13. ágúst, degi áður en HM í
Stuttgart hefst, en þar sem þær
hafa ekki keppnisrétt á úrtöku-
mótum verða þær ekki með á
HM.
Þýsku hlaupakonumar voru
dæmdar í fjögurra ára bann í
september s.I. eftir að hafa reynst
hafa tekið astmalyfið glenbuter-
ol, sem er örvandi lyf og á bann-
lista hjá Alþjóða fijálsíþrótta-
sambandinu, IAAF. Stúlkurnar
viðurkenndu notkun lyfsins, en
sögðust hafa tekið það í góðri trú
samkvæmt læknisráði til að bæta
öndunina og talið það löglegt.
Derr féll ekki á lyfjaprófi eins
og hinar. Sérfræðinga greinir á
um hvort glenbuterol sé steralyf,
en áhrifm eru hin sömu. Vegna
þessa ágreinings komst dómstóll-
inn að fyrrnefdnri niðurstöðu og
dæmdi stúlkurnar ekki vegna
lyfjamisnotkunar heldur fyrir
óíþróttamannslega framkomu.
Istvan Gyulai, framkvæmda-
stjóri IAAF, sagði ljóst að stöll-
urnar yrðu ekki með á HM og
því gæti Krabbe ekki varið titlana
í 100 og 200 m hlaupi. Auk þess
gaf hann til kynna að IÁAF
myndi ekki samþykkja niðurstöð-
ur þýska sambandsins um að
misnotkun lyfja hefði ekki átt sér
stað, því IÁÁF teldi glenbuterol
vera steralyf og það hefði verið
á bannlista, þegar stúlkurnar
féllu á lyfjaprófi í júlí í fyrra.
Katrfn Krabbe
leikinn okkar í norsku deildinni 14.
mars og unnum okkur sæti í 1.
deild að ári,“ sagði Gylfí. „Ég er
að koma úr allt öðruvísi handbolta
sem einnig er mun hægari en hér
og veit því ekki hvar ég stend. Ég
er nokkuð þyngri en ég hef verið
en að sama skapi sterkari líkam-
lega. Ég vona að ég geti gert ÍBV
eitthvert gagn í lokabaráttunni og
kannski sett pressu á hina strákana
í liðinu þannig að þeir leggi sig enn
meira fram.“
URSLIT
ÍBV - Víkingur 24:19
íþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum, 1.
deild kvenna — úrslitakeppni, þriðjudaginn
30. mars 1993.
Gangur leiksins: 1:0, 7:3, 10:6, 13:8,
17:10, 20:13, 22:15, 23:17, 24:19.
Mörk ÍBV: Ragna Jenný FYiðriksdóttir 7,
Andrea Atladóttir 5, Judith Estergal 5/2,
Sara Ólafsdóttir 3, Ragna Birgisdóttir 2,
Katrín Harðardóttir 1, Lovísa Agústsdóttir
1.
Varin skot: Þórunn Jörgensdóttir 14.
Utan vallar: 8 min.
Mörk Víkings: Halla María Helgadóttir 6,
Elísabet Sveinsdóttir 5, Matthildur Helga-
dóttir 2, íris Sæmundsdóttir 2, Inga Lára
Þórisdóttir 2/1, Hanna M. Einarsdóttir 2/1.
Varin skot: Mara Samazija 10.
Utan vallar: 2 mín.
Áhorfendur: 200.
Dómarar: Óli Ólsen og Gunnar Kjartans-
son. Leyfðu mun meira en yfirleitt gerist i
kvenna handbolta og leikurinn var skemmti-
legri fyrir það.
Knattspyrna
Skotland
Skoska úrvalsdeildin:
Rangers - Aberdeen..............2:0
B Rangers er á góðri leið með að vinna
skoska meistaratitilinn fimmta árið í
röð. Liðið hefur nú níu stiga forskot
og þarf aðeins eitt stig úr síðustu 8
umferðunum til að tryggja sér meist-
aratitilinn. Ian Ferguson og Ally
McCoist gerðu mörk Rangers.
Ítalía
Bikarkeppnin, undnanúrslit — síðari
leikur:
AC Milan - Roma.................1:0
■Roma vann samanlagt 2:1. Giovanni
Cervone, markvörður Roma, varði
vítaspyrnu frá Frakkanum Jean-PierrtN
Papin á lokamínútu leiksins og skaut
þar með AC Milan út úr bikarkeppn-
inni. Roma lék einum leikmanni færri
síðustu 12 mínútur leiksins eftir að
Luigi Garzja var rekinn útaf. Stefan
Eranio gerði mark AC Milan á 37.
mínútu. Roma mætir annað hvort Ju-
ventus eða Tórínó í úrslitum.
Þýskaland
Bikarkeppnin, undnaúrslit:
Frankfurt - Leverkusen.........0:3
- Andreas Thom 2, Ulf Kirsten 1
EM U-21 árs
5. riðill
Szekesfehrvar, Ungverjalandi:
Ungverjaland - Grikkland.......1:2
Horvath (52.) - Gonias (45.), Georgat^
os (66.). 2.000.
Staðan
Grikkland.........5 5 0 0 16: 3 10
Rússland..........2 2 0 0 7: 1 4
Ungveijaland.....4 112 5: 6 3
Lúxemborg.........3 0 12 1: 8 1
ísland...........4 0 0 4 3:14 0
■Næsti leikur:13. arpil - Lúxemborg
- Rússland.
Körfuknattleikur
NBA-deildin
Atlanta - Portland.........127:118
■ Eftir framlengingu. Dominique
Wilkins gerði 48 stig sem er það mesta.
sem hann hefur gert í vetur, en kapp-
inn hefur mest gert 57 stig í leik og
sjö sinnum hefur hann gert 40 stig
eða fleiri í leik. Kevin Willis gerði 32
stig en fyrir Portland gerði Cliff Rob-
inson 39 stig sem er met hjá honum
í einum leik.
Boston - Sacramento........110:89
■ Þetta var 12. sigur Boston í síðustu
14 leikjum og nú var það KeviíéMT
Gamble sem var stigahæstur með 29
stig og Joe Kleine tók 20 fráköst.