Morgunblaðið - 31.03.1993, Síða 44
MORGVNBLADW, AÐALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, StMBRÉF 691181, PÚSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
SlOVAOgTALMENNAR
MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
2 ára börn inn-
an um eiturlyf
og sprautunálar
Vorboðinn
LOAN er komin til landsins
og er það hefðbundið merki
þess að vorið sé í nánd.
Lóan er
komin
SÉST hefur til lóu á nokkr-
um stöðum á landinu síð-
ustu tvo daga en búast má
við að þessi hefðbundni
boðberi vorsins komi til
landsins í auknum mæli á
næstu dögum.
Sést hefur til lóu á Vopnafirði
og Ævar Petersen fuglafræð-
ingur segir að hann hafi fengið
ábendingar um lóu á Nesjum í
Austur-Skaftafellssýslu og í
Svínadal í Borgarfirði.
.' Að sögn Ævars er lóan nú á
T venjulegum tíma. „Það hefur
yfirleitt sést til lóu í fyrsta sinn
á vorin hérlendis síðustu vikuna
í mars,“ segir Ævar.
TVÍVEGIS undanfarna
daga hefur fíkniefnalög-
reglan gert barnaverndar-
yfirvöldum viðvart um að-
búnað barna sem búa hjá
foreldrum sem grunaðir er
um fíkniefnaneyslu og -mis-
ferli. Á handleggjum beggja
foreldra tveggja ára barns
voru áberandi sprautuför. Á
heimili tveggja ára barns
sem býr með móður sinni
fannst amfetamín og hass
auk þess sem sprautur og
nálar voru faldar í barna-
herberginu.
Nýlega gerðu iögreglumenn hús-
leit á heimili í vesturbænum þar sem
par um fertugt býr með 2 ára barni
sínu.
Sprautuför
Á handleggjum beggja foreldr-
anna voru áberandi sprautuför. í
húsinu fundust ofskynjunarsveppir,
70-80 töflur af ýmsu tagi, lítilræði
af hassi og 10 grömm af prókaíni,
staðdeyfilyfi, sem einkum er notað
til að drýgja kókaín eða amfetamín.
Sprautur í barnaherbergi
Síðastliðið föstudagskvöld gerði
fikniefnalögregla einnig húsleit á
heimili 22 ára konu sem býr með
2 ára barni sínu og lítur eftir gam-
alli konu sem býr í sama húsi. Á
heimilinu fundust 2 grömm af am-
fetamíni og um það bil 1 gramm
af hassi. Auk þess fundust áhöld
til fíkniefnaneyslu, sprautur og nál-
ar, falið í herbergi barnsins.
Morgunblaðið/Þorkell
Á hjólbrettastökki
REYKJAVÍKURBORG hefur leyft unglingum afnot af Kolaportinu til
hjólbrettaæfinga á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum. Eins og sjá má á
myndinni eru hjólbrettaæfingar enginn dans á rósum og ekki heiglum
hent að stunda hjólbrettastökk.
50 milljóna
verðmæti
af Franshól
HARALDUR Kristjánsson HF,
annar af frystitogurum Sjóla-
stöðvarinnar hf. í Hafnarfirði,
kom til hafnar á mánudag með
315 tonn, að verðmæti um 60
milljónir króna.
Togarinn var á blálönguveiðum í 20
daga á svokölluðum Franshól við
200 mílna mörkin á Reykjanes-
hryggnum og fékk þar um 600 tonn
af blálöngu að verðmæti 46-50
milljónir króna.
Afgangurinn af afla togarans, um
85 tonn, var þorskur, ýsa, ufsi og
karfi, sem fékkst á 7 dögum, að
sögn Helga Kristjánssonar útgerðar-
stjóra Sjólastöðvarinnar. Helgi segir
að blálangan veiðist aðallega á vor-
in, þegar hún hrygni, og þá sé verð-
ið lægst.
Sjá nánar Úr verinu bls. B1
Kviknaði
í kjallara
ELDUR kom upp í kjallaraíbúð
á Lindargötu 52 í Reykjavík
laust fyrir miðnætti í gær-
kvöld. Slökkvistarf gekk greið-
lega en að sögn slökkviliðs
varð töluvert tjón á íbúðinni
og reyk lagði um allt húsið.
Húsið á Lindargötu 52 er tvílyft
forskalað timburhús. Mikinn reyk
lagði út um glugga kjallaraíbúðar
þar þegar slökkvilið kom á vettvang.
Reykkafarar voru þegar sendir inn
í húsið en enginn reyndist vera
heima.
Dauður hundur fannst í húsinu
og hafði hann kafnað í reyknum.
Eldsupptök virtust vera við eldavél
í kjallaraíbúðinni og var kveikt á
einni hellu hennar. Slökkvistarfi lauk
á hálftíma en sett var vakt við húsið
í nótt ef vera skyldi að glæður leynd-
ust milli veggja.
Hugmyndir ASÍ og VSÍ um kjarasátt án launahækkana til ársloka 1994
Tillög'umar fá dræmar
undirtektir ríldsstjóniar
MorgMnblaðið/Árni Sæberg
Forystumenn
-^KRISTJÁN Ragnarsson, formaður LÍÚ,
Einar Oddur Kristjánsson, formaður Sam-
taka atvinnurekenda í sjávarútvegi, Magn-
ús Gunnarsson, formaður VSÍ, og Arnar
Sigurmundsson, formaður Samtaka fisk-
vinnslustöðva, á leið úr Stjórnarráðinu að
afloknum fundi með Davíð Oddssyni for-
sætisráðherra og Jóni Baldvini Hannibals-
syni utanríkisráðherra í gærmorgun. Þar
•ítar ráðherrum gerð grein fyrir mati for-
ystumannanna á stöðu atvinnulífsins.
í SAMEIGINLEGUM tihögum samn-
inganefnda ASÍ og VSÍ um efni og
forsendur kjarasamninga sem lagðar
hafa verið fram í viðræðum við ríkis-
stjórnina er gert ráð fyrir að síðast-
gildandi kjarasamningur framlengist
án almennra launabreytinga til loka
september 1994 eða ársloka 1994.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins vill ríkisstjórnin gera
samning út næsta ár en þá aðeins
ef samið verður samtímis við öll stóru
launþegasamtökin svo komist verði
hjá því að einstakir hópar grípi til
aðgerða með haustinu.
Hafa tillögurnar hlotið dræmar undirtektir
innan ríkisstjórnarinnar þar sem þær hafa í
för með sér nokkurra milljarða útgjaldaauka
fyrir ríkissjóð en nú stefnir í rúmlega 10 millj-
arða rekstrarhalla á ríkissjóði á þessu ári og
kerfisbundinn halli er talinn verða um 4 millj-
arðar á næsta ári að óbreyttu.
Sameiginlegar hugmyndir aðila vinnumark-
aðarins byggjast á að gengi krónunnar verði
haldið stöðugu ef útflutningsverðmæti sjávar-
afurða fer ekki niður fyrir tiltekin mörk sem
skoða á með ákveðnu millibili. Ef sú verðlækk-
un sem þegar hefur orðið á sjávarafurðum
gengur ekki til baka eða aflakvótar minnka
enn verði hins vegar óhjákvæmilegt að bæta
stöðu sjávarútvegs frekar.
Aðilar vinnumarkaðarins eru reiðubúnir að
semja um að 8.000 kr. orlofsuppbót greiðist
með sama hætti og verið hefur í tengslum við
orlofstöku sumarið 1993 og 1994 og launabæt-
ur verði greiddar bæði árin skv. sömu reglum
og á árinu 1992. Átak verði gert til að auka
framleiðni í fyrirtækjum og að samningsfor-
sendur verði svo endurmetnar á tímabilinu af
sérstakri launanefnd á einum eða tveimur tíma-
punktum.
Forystumenn samtakanna vilja að raunvext-
ir lækki um að minnsta kosti 2% frá því sem
þeir voru á fjórða ársijórðungi síðasta árs.
Aðilar vilja að ríkisstjórnin beiti sér fyrir
því að hámark verði sett á heiidargreiðslur
vegna lyfja- og lækniskostnaðar íjölskyldna.
Veitt verði ótilgreind upphæð til atvinnumála
og að lækkun virðisaukaskatts af matvælum
taki gildi 1. september næstkomandi. Sú að-
gerð þýddi 3 milljarða tekjutap fyrir ríkissjóð
árlega og er andstaða innan ríkisstjórnarinnar
við að þurfa að afsala skatttekjum til framtíð-
ar í skiptum fyrir kjarasamning til eins og
hálfs árs.
Aflaheimildir Hagræðingarsjóðs án
endurgjalds
Þá er lagt til að útflutningsgreinar verði
undanþegnar tryggingagjaldi á árunum 1993
og 1994 sem nemur um 750 milljónum króna.
Hafnargjöld verði lækkuð um ákveðið hlutfall
á þessu og næsta ári og loks að óseldum afla-
heimildum Hagræðingarsjóðs vegna yfirstand-
andi árs verði úthlutað endurgjaldslaust, sem
og aflaheimildum ársins 1994.