Morgunblaðið - 13.05.1993, Side 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1993
Fyrirtæki
Sameinaða auglýsinga-
stofan gjaldþrota
Tap kröfuhafa 25-26 millj. kr.
SAMEINAÐA auglýsingastofan var úrskurðuð gjaldþrota um síðst-
liðna helgi að beiðni eigenda sinna og samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er líklegt að kröfuhafar tapi 25-26 milljónum króna. Kröfu-
hafar eru aðallega fjölmiðlar, bæði ljósvakamiðlarnir og dagblöðin.
Skarphéðinn Þórisson hrl. hefur verið skipaður bústjóri þrotabúsins.
Rekstur Sameinuðu auglýsinga-
stofunnar var mjög erfiður á síð-
asta ári og þá minnkuðu viðskiptin
um 38%. Sökum þessa var fækkað
starfsfólki og reynt að hagræða í
rekstri. Voru þannig aðeins sex
starfsmenn á stofunni er hún varð
gjaldþrota en þegar flest var fyrir
tveimur árum unnu þar 14-16
manns.
Eftir áramótin gerðist það síðan
að ijórir af stærstu viðskiptavinum
stofunnar duttu úr viðskiptum við
hana. Stofan gat ekki útvegað sér
aðra í staðinn og því var óskað eft-
ir gjaldþrotaskiptum. Af þessum
fjórum viðskiptavinum hættu tveir
rekstri, einn ákvað að verja auglýs-
ingafé sínu í ár til þess að lækka
vöruverð og einn hætti að skipta
við stofuna.
Verslun
*
Uttektgerð á dagvöru
verslun á Austfjörðum
VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ hefur ákveðið að láta gera úttekt á dag-
vöruverslun á austurlandi sem yrði hliðstæð þeirri úttekt sem gerð
var á verslun á Vestfjörðum árið 1991. Markmiðið er að fá glögga
mynd af stöðu og þróunar dagvöruverslunar á austurlandi. Jafnframt
áformar ráðuneytið að efna til funda með fulltrúum ráðandi aðila í
smásöluverslun með dagvörur til að kanna viðhorf þeirra varðandi
dagvöruverslunina bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni
á næstu árum. Þetta kom fram í ávarpi Jóns Sigurðssonar, viðskipta-
ráðherra, á aðalfundi Kaupmannasamtakanna í síðustu viku.
„Með þessu vill ráðuneytið reyna
að komast til botns í því hvort hægt
sé með hæfilegum opinberum að-
gerðum að hafa áhrif á þróun versl-
unarinnar sem samrýmist stefnunni
um auðveldan aðgang sem allra
flestra að dagvöruverslun,“ sagði
viðskiptaráðherra í ræðu sinni.
Viðskiptaráðuneytið lét gera út-
tekt á dagvöruverslun á Vestflörðum
árið 1991 í kjölfar tillagna nefndar
sem skipuð var í byijun árs 1989 til
að gera athugun á afkomu verslunar-
fyrirtækja í strjálbýli. Allar dagvöru-
verslanir á Vestfjörðum voru skoðað-
ar, rætt við eigendur þeirra og sveit-
arstjómarmenn. „Það er skemmst frá
því að segja að þessi könnun stað-
festi í öllum meginatriðum niðurstöð-
ur nefndarinnar sem fór fram á að
athugunin yrði gerð og leiddi í ljós
að dagvöruverslunin var rekin með
nokkrum halla. Ekki virtist unnt að
reka slíkar verslanir yfirleitt án halla
á minnstu stöðunum. Það var bent
á ýmislegt sem mætti færa til betri
vegar í rekstri þessara verslana á
fámennum stöðum og það er sjálf-
sagt í því sambandi að skoða ráðgjöf
og annan stuðning af opinberri hálfu.
Það er líka mikilvægast í þessu máli
að fleiri aðilar í hveiju byggðarlagi
að verslunareigendumir einir eða
stjómendur verslunarfyrirtækja
komi að þessu máli.“
Jón sagði að sveitarstjórnir yrðu
að marka sína stefnu varðandi dag-
vöruverslun í byggðarlögunum og
kalla í því sambandi til alla þá aðila
sem em tengdir því máli. „Eg held
þama þurfi sérstaklega að athuga
þjónustukjama þar sem fleiri fyrir-
tæki nýta saman aðstöðu og rekstur
sé sem oftast í samræmi við mark-
aða þjónustustefnu. Mér finnst vel
koma til greina að sveitarfélögin eða
aðrir aðilar fjármagni eða reki slíka
kjama og leigi síðan rekstaraðilunum
aðstöðuna.“
Veitingarekstur
Morgunblaðið/Kristinn
VEITINGASTAÐUR — Gísli Gíslason, lögfræðingur hef-
ur selt veitingastaðinn Pisa í Austurstræti.
Eigenda-
skiptiá
Pisa
VEITIN G AST AÐURINN
Pisa í Austurstræti hefur
skipt um eigendur. Hlutafé-
lagið Sýr hf. í eigu Þórarins
Ragnarssonar og Gunnars
Hjaltalíns hefur keypt stað-
inn af Gísla Gíslasyni lög-
fræðingi.
Gísli keypti veitingastaðinn
Pisa, sem áður var Sælkerinn, í
febrúar 1991. Hann keypti líka
skemmtistaðinn Berlín í Austur-
stræti og stofnaði hlutafélagið
Róm hf. sem sá um að leigja
rekstur þessara tveggja fyrir-
tækja út. Síðastliðið haust keypti
síðan Sigurður Ólason Berlín.
„Rekstur Pisa hefur verið í
leigu frá því að ég keypti stað-
inn. Söluandvirðið verður notað
til að greiða upp skuldir og það
er vonandi að Róm þurfi ekki
að fara í gjaldþrot,“ sagði Gísli
í samtalið við Morgunblaðið.
Fyrirtækl
Tekjur Endurvinnslunnar hf.
minnka vegna aukinna skila
HAGNAÐUR Endurvinnslunnar hf. á sl. ári nam alls um 7,3 milljón-
um. Þetta er nokkuð lakari afkoma en árið áður sem rekja til auk-
inna skila á umbúðum en að sama skapi hefur seldum umbúðum
fækkað. Þannig fækkaði umbúðum um 3,9% á sl. ári eða úr 65,2
milljónum eininga í 62,6 miRjónir. Á sama tíma jukust skil um 2,8%
eða úr 47,9 miHjónum í 49,5 milljónir eininga þannig að tekjur fyrir-
tækisins drógust saman um 17 milljónir króna.
Á síðasta ári skiluðu sér til End-
urvinnslunnar um 79% af selduín
umbúðum með skilagjaldi og hækk-
að skilaprósentan um 4 prósentustig
frá árinu áður. Gunnar Bragason,
framkvæmdastjóri Endurvinnslunn-
ar, sagðist í samtali við Morgunblað-
ið telja að meiri skil til fyrirtækisins
mætti rekja til samdráttar í þjóðfé-
laginu og sívaxanda áhuga meðal
almennings á umhverfismálum.
Reikna mætti með að í framtíðinni
myndu um eða yfír -80% af gos-
drykkjaumbúðum skila sér.
Sú breyting varð á sl. ári að
notkun á plastflöskum jókst enda
hefur verðsamkeppnin á gos-
drykkjamarkaðnum að miklu leyti
snúist um slíkar umbúðir. Dósa-
notkun minnkaði hins vegar.
Endurvinnslan seldi í fyrra ál-
og plastskrap fyrir um 35 milljónir
króna eða sem nemur um 25% af
tekjum. Tekið var á móti 2.200
tonnum af glerflöskum en þær voru
muldar niður og efnið notað sem
fyllingarefni í Gufunesi.
Endurvinnslan hefur verið að
færa út kvíarnar á þessu ári. Þann-
ig keypti fyrirtækið Saga plast fyrr
á árinu sem annast m.a. endur-
vinnslu á fiskkössum og gos-
drykkjakössum. Einnig var keyptur
6% hlutur í Úrvinnslunni hf. á Akur-
eyri sem framleiðir kubba í vöru-
bretti úr afgangsplasti og pappír.
Stærstu hluthafar fyrirtækisins
eru Á.T.V.R. með 20% hlut, Kaup-
mannasamtök íslands með 20%,
hlut og ríkissjóður með 17,83% en
alls eru hluthafar 14 talsins. Á aðal-
fundi nýverið voru kjömir í stjóm
fyrirtækisins þeir Eíríkur Hannes-
son, Höskuldur Jónsson, Júlíus
Jónsson, Einar Guðmundsson og
Þórður H. Ólafsson.
Hlutabréf
Gengi Islandsbanka lækkar enn
SÍÐASTLIÐINN mánudag seld-
ust hlutabréf í íslandsbanka fyr-
ir 162 þúsund á genginu 0,90.
Það er lækkun á gengi um 0,08
frá síðustu viðskiptum með bréf
í bankanum sem áttu sér stað í
síðastliðinni viku. Þetta lága
gengi hefur haft þau áhrif að
Landsvísitalan var 91,42 sl.
þriðjudag en hún hefur aldrei
verið lægri.
Söluaðili íslandsbankabréfanna
var Verðbréfamarkaður íslands-
banka en Landsbréf keyptu bréfín
fyrir hönd viðskiptavinar. Á Verð-
bréfaþingi eru nú sölutilboð með
bréf í íslandsbanka á genginu 0,96.
Hugbúnaðarfyrirtæki áfram
vinsæl
Gengi hlutabréfa í íslandsbanka frá 29. febrúar
0,85
29/2 feb.
apríl
maí m
Aðalfundur íslandsbaka var haldinn
29. mars, þar sem ákveðið var að
greiða hluthöfum 2,5% arð.
Vikuna 5-ll.maí voru skráð við-
skipti á Verðbréfaþingi íslands og
Opna tilboðsmarkaðnum fyrir lið-
lega 6 milljónir króna. Líkt og í
vikunni þar áður voru hugbúnað-
arfyrirtæki vinsæl en alls seldust
bréf í Softis fyrir 708 þúsund á
genginu 30 en að undanförnu hafa
verið skráð á Verðbréfaþing sölu-
tilboð á genginu 27. í Tölvusam-
skiptum seldust bréf fyrir tæplega
2,4 milljónir á genginu 7-7,40.
Auk þessara þriggja seldust í
vikunni bréf í 4 öðrum hlutafélög-
um. í Flugleiðum seldust bréf fyr-
ir liðlega 2 milljónir á genginu
1,08-1,11, í Eimskip seldust bréf
fyrir 327 þúsund á 3,66, í Olís
seldust bréf fyrir 412 þúsund á
genginu 1,80 og í Útgerðarfélagi
Akureyringa seldust hlutabréf fyr-
ir 83 þúsund á genginu 3,20.
Fyrirtæki
Tap Kaupfélags
Rangæinga 18 miiij.
TAP Kaupfélags Rangæinga á sl. ári nam alls tæplega 18 milljón-
um króna samanborið við um 200 þúsund króna hagnað árið áður.
Innan kaupfélagsins er nú unnið að ýmsum hagræðingaraðgerðum
til að bæta afkomuna. Á aðalfundi félagsins nýverið var samþykkt
að fela stjórn að undirbúa stofnun B-deildar stofnsjóðs fyrir næsta
aðalfund.
í frétt frá kaupfélaginu kemur
fram að reksturinn á sl. ári var
með hefðbundnum hætti. Velta án
virðisaukaskatts nam alls um 606
milljónum og hafði dregist saman
um 8% á milli ára. Nokkur aukning
var i sölu á matvöru en samdráttur
í sölu fjárfestingarvara til bænda
og í þjónustuiðnaði. Helstu fjárfest-
ingar voru strikamerkjakerfi fyrir
Aðalbúð á Hvolsvelli og stillitölva
á Bflaverkstæðið á Rauðalæk.
Eigið fé félagsins var í árslok
77,7 milljónir eða 21,3% af heildar-
eignum. Á árinu störfuðu að með-
altali 70 manns hjá félaginu og
námu heildarlaunagreiðslur 98
milljónum.
Úr stjórn áttu að ganga Sigurð-
ur Jónsson í Kastalabrekku og
Bjarni Jónsson á Selalæk. Sigurður
sem verið hefur stjórnarformaður
undanfarin ár baðst undan endur-
kjöri og var Jónas Jónsson í Kálf-
holti kjörinn í hans stað en Bjarni
Jónsson var endurkjörinn. Auk
Jónasar og Bjarna voru kjörin i
stjórnina Kristinn Jónsson, Sáms-
stöðum, Agnes Antonsdóttir,
Hólmahjáleigu, Guðni Jóhannsson,
Hvolsvelli, Karl Siguijónsson,
Efstu-Grund og Elínborg Sváfnis-
dóttir, Hjallanesi. í varastjórn voru
kjörnir Guðjón Þórarinsson, Hvols-
velli, Páil Sigutjónsson, Galtalæk
og Kristján Mikkelsson, Stóru-
Mörk.
Kaupfélagsstjóri er Ágúst Ingi
Ólafsson. Félagsmenn í árslok voru
990 í 11 deildum.