Morgunblaðið - 13.05.1993, Page 5
1-
MORGUNBIAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNVLÍr FTMMTUDAGUR 13. MAÍ 1993
B 5
Tölvur
Það er erfitt að sækja markaðs-
hlutdeild enn frekar hér innanlands
og því er markmiðið til lengri tíma
að hyggja á útflutning. Ætlunin er
að fara mjög hægt í þau mál. Við
teljum styrkleika okkar í útflutningi
ráðast af markaðsaðstæðum hér
heima. Hér erum við vanir því að
þurfa að einbeita okkur að litlum
sérpöntunum og afgreiða þær með
stuttum fyrirvara. Við erum einnig
vanir háum gæðakröfum og þetta
nýtist okkur allt vel í útflutningi."
„Ef við skilgreinum styrkleika
okkar rétt og leitum á sérhæfð mið
teljum við okkur smátt og smátt
geta byggt upp útflutning. Við áætl-
un að árið 1996 geti hann orðið
7-10% af veltunni," sagði Eysteinn.
„Við stefnum líka að því að auka
virðisauka framleiðslunnar með auk-
inni litprentun og fleiri sérverkefn-
um. Þar erum við fyllilega sam-
keppnishæfir gagnvart innflutningi
hvað varðar gæði, þjónustu og af-
greiðsluöryggi auk verðs.“
630 milljóna velta
Velta Plastprents á síðasta ári
nam 630 milljónum króna og er
áætluð velta þessa árs um 700 millj-
ónir. „Margt getur þó breyst, enda
eru mikilvægustu markaðir Plasts-
prents hér innanlands mjög háðir
efnahagssveiflum,“ sagði Eysteinn.
„Erfiðleikar í sjávarútvegi hafa t.d.
bein áhrif á okkur og eins það hvort
íslenskur iðnaður er í sókn eða á við
samdrátt að stríða. Miðað við veltu
síðasta árs var skiptingin milli ein-
staka atvinnugreina þannig að fram-
leiðsla til sjávarútvegs nam 30% af
veltu, framleiðsla til almenns iðnaðar
var 23% af veltu, matvöruverslun,
þar með talin plastpokaframleiðsla,
var 22% og framleiðsla til matvæla-
iðnaðar 16%.“
Plastprent hefur undanfarna
mánuði unnið að því að að fá alþjóð-
lega gæðavottun samkvæmt ISO
9002 staðli og að sögn Eysteins er
stefnt að því að gangast Hndir lo-
kaúttekt síðari hluta ársins. Vott-
unaraðilinn verður Danska staðla-
ráðið í samvinnu við Vottun hf. hér
heima. „Svona gæðavottun tryggir
viðskiptavinum okkar öruggari gæði
auk þess að hafa jákvæð áhrif á
allan rekstur fyrirtækisins. Plast-
prent vinnur töluvert sem undirverk-
taki og í náinni framtíð sjáum við
fram á að það verði hreinlega krafa
meðal fyrirtækja með gæðavottun
að undirverktakar þeirri hafi slíka
vottun líka. Það er ekki síst vegna
útflutningsmöguleika sem við leggj-
um áherslu á þessi mál,“ sagði Ey-
steinn.
Umhverfisvænt plast
Aðspurður hvort aukin áhersla á
umhverfisvernd hefði áhrif á starf-'
semi Plastprents sagði Eysteinn að
fyrirtækið væri að vinna að því að
fræða fólk um eiginleika plasts. í
því skyni hefði m.a. verið bent á
ýmsan misskilning varðandi um-
hverfismál þar sem plastið væri talið
einn helsti óvinurinn. „Við höfum
haldið því fram að plast sé mjög
heppilegt hráefni fyrir umbúðafram-
leiðslu. Fyrir því liggja margvísleg
rök og ekki síst umhverfisleg."
Plastprent dreifði nýlega fyrsta
tölublaði Plastkomsins, en það er
plastpoki sem hefur að geyma ýmis
fróðleikskorn um umhverfismál. Þar
segir m.a. að í raun sé mjög ákjósan-
legt að endurvinna plast því það
krefist lítillar orku. Plastumbúðum
sé við lágan hita breyjt aftur í plast-
kornin sem eru hráefni plastiðnaðar-
fyrirtækja. Hér á landi em endur-
unnin plastkom einkum notuð til
framleiðslu á mslapokum. Ennfrem-
ur segir í Plastkorninu að samkvæmt
athugunum hér á landi séu plastum-
búðir aðeins 5% af sorpi heimila. Þá
hafi þýskar athuganir leitt í ljós að
ef hefðbundnar umbúðir kæmu nú
í stað plastumbúða ykist rúmmál
umbúða í heiminum um 150% og
þyngd þeirra myndi þrefaldast. Þetta
myndi auka orku sem færi í fram-
leiðslu umbúðanna, mengun og
framleiðslukostnað. hkF
Þjóðhagsspá
Ekki sagt fyrir
um óorðna hluti
ÞJÓÐHAGSSPÁR eru ekki spár
í þeim skilningi að menn telji
sig sjá fyrir um óorðna hluti.
Þær eru gerðar til að lýsa lík-
legri efnahagsþróun á grund-
velli. ríkjandi aðstæðna og horfs
í þjóðarbúskapnum," segir
Þórður Friðjónsson, forsljóri
Þjóðhagsstofnunar. „Spáin er
þannig framreikningur sem
byggir á skilgreindum forsend-
um og meira og minna þekktu
samhengi helstu hagstærða. Það
skiptir siðan miklu að menn
bregði við hverju sinni ef ástæða
er til að breyta áætlunum."
Þórður segir mikilvægt að menn
reyni að gera sér hugmynd um lík-
lega efnahagsþróun á grundvelli
bestu upplýsinga hveiju sinni til
að það séu teknar eins réttar
ákvarðanir og hægt er á hveijum
tíma. „Það er hins vegar rétt að
vekja athygli á því að svona spár
eru vinnutæki
en ekki eitt-
hvað sem á að
vera óumbreyt-
anlegt. Það á
síðan að nota
þær til að átta
sig á aðstæðum
og leita að
skynsamlegum
leiðum til að ná
betri árangri en
spárnar fela í sér.“ Þórður sagði
að oftar en ekki hefði Þjóðhags-
stofnun verið sökuð um að draga
upp dekkri mynd en ástæða hefur
verið til í spám sínum. „Þegar síð-
an niðurstaðan verður lakari en
reiknað var með er það gagnrýnt
líka. Aðstæður í þjóðarbúskapnum
eru síbreytilegar og menn þurfa
að reyna að ná utan um horfurnar
hveiju sinni og vera reiðubúnir að
breyta eftir þeim.“
— segir forstjóri Þjóðhagsstofnunar
Þórður Friðjóns-
son.
Tölvurisinn Compaq velur Aco
BANDARÍSKI tölvurisinn
Compaq hefur viðurkennt Aco
hf. sem sölu- og þjónustuaðila
sinn á Islandi. Compaq er nú í
hópi þriggja stærstu framleið-
enda einmenningstölva í heim-
inum eftir því sem segir í frétta-
tilkynningu frá Aco. Fyrirtækið
þykir hafa náð mjög góðum
árangri á tölvumarkaðnum á
þeim tíu árum sem liðin eru frá
stofnun þess.
Compaq og Microsoft undirrit-
uðu nýlega samning um nána sam:
vinnu á sviði tölvuþróunar. í
fréttatilkynningunni segir að það
sé heiður fyrir Aco hf. að hafa
orðið fyrir valinu sem sölu- og
þjónustuaðili Compaq á íslandi,
enda hafi fyrirtækið vakið athygli
fyrir áreiðanleika og öryggi og
hlotið margvíslegar viðurkenning-
ar.
Allar Compaq tölvur eru fram-
leiddar samkvæmt hinum alþjóð-
lega ISO 9002 gæðastaðli sem
gerir að verkum að fyrirtækið
býður viðskiptavinum sínum 3ja
ára ábyrgð á tölvunum. Compaq
tölvurnar voru fyrst settar á mark-
að í Evrópu árið 1984. Árið
1987 kom Compaq Portable III á
markaðinn og var valin tölva árs-
ins. Ársveltan nam 40,6 milljörð-
um króna á árinu, en árið eftir
Raunávöxtun
sl. 3. mánuði
var hún orðin 78 milljarðar. í
fréttatilkynningunni kemur fram
að ekkert fyrirtæki hafi áður náð
slíkum árangri á aðeins fímm
árum. Umsvifin hafa farið enn
vaxandi á síðustu árum.
KAUPÞING HF
Löggi/t verðbréfafyrirtœki
Kringluntti 5, stmi 689080
írigu Búnabarbanka íslands ogsparisjóðanna
SKAMMTÍMABRÉF
Microsoft
Nú bjóðum við skrifstofupakkan frá
Microsoft - OFFICE - á sérlega
,hagstæðu verði.
I honum eru forritin:
PowerPoint, sem er kynningarforrit,
til að setja fram fagmannlega kynningar,
myndir, gröf o.m.fl.
Excel, sem er einn öflugasti töflu-
reiknir sem til er,
Word , eitt alvinsælasta ritvinnsluforrit
í heinii og
Mail , sem er tölvupóstur á milli
nettengdra tölva.
Umboðsmenn:
Haftækni, Akureyri
Póllin'n, ísafirði
Microsoft Office kostar aðeins 58.300,- kr.
Verð á forritunum stökum er:
MS Excel 4.0: 38.900,- kr.
MS Word 5.1: 33.800,-kr.
MS PowerPoint: 33.800,- kr.
Einnig fæst MS Works 3.0, en það er fjölvinnsluforrit með ritvinnslu,
gagnagrunni, töflureikni og samskiptaforriti og kostar aðeins 14.900,- kr.
Apple-umboðið
Skipholti 21, sími: C9D 624800
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
IÐNLANASJOÐUR
fyrir íslenskt atvinnulíf
ÁRMÚLA13A 155 REYKJAVÍK SÍMI 680400 TELEX 3084 ILFUND TELEFAX 680950