Morgunblaðið - 13.05.1993, Qupperneq 7
- - MQEGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF UIMMXUDAGUR-UÍ.-MAÍ-499.L
BAIMKAKERFIÐ —- Samkvæmt skýrslu Hagfræðistofnunar
um íslenska bankakerfið er það mjög dýrt í rekstri miðað við það sem
þekkist í nágrannalöndunum en að sama skapi er vaxtamunur og þjón-
ustutekjur hærri.
kostnaður eða vaxtamunur. Þegar
blandað er saman fjárfestingar-
banka við viðskiptabankastarfsem-
ina eins og algengt er erlendis þá
verður efnahagsreikningurinn mjög
stór. Það hefði verið fróðlegt að sjá
samanburð við banka með fjölþætta
starfsemi eins og hér á landi og
nokkuð víðtækt útibúanet, en án
fj árfestingarbankahlutans. “
Frá árinu 1990 hefur fækkað um
140 stöðugildi hjá Landsbankanum
en það ár yfirtók bankinn Sam-
vinnubankann. Landsbankinn hefur
selt, sameinað og lagt niður útibú
en hins vegar hafa tvö lítil útibú
verið opnuð í Kópavogi og á Sel-
tjarnameii. Á næstunni verða
kynnt frekari áform bankans um
hagræðingu. „Það er stefnt að enn-
frekari fækkun stöðugilda í bank-
anum og við höfum til sérstakrar
athugunar frekari hagræðingu í
útibúarekstrinum. Við stefnum
einnig að því að annar rekstrar-
kostnaður lækki í bankanum og
höfum gert verulegt átak í því.“
Atvinnuleysi tefur fyrir
hagræðingu
í skýrslunni er vikið sérstaklega
að möguleikum á frekari hagræð-
ingu hjá bönkum og sparisjóðum.
Vekur þar sérstaka athygli að
ákvörðun banka og sparisjóða að
greiða ekki í atvinnuleysistrygg-
ingasjóð hefur skapað vandamál við
fækkun mannafla. Vegna samein-
ingar hafa bankar þurft að greiða
starfsmönnum sem sagt hefur verið
upp atvinnuleysistryggingar i allt
að 68 vikur eða þar til þeir fá aðra
vinnu. Hins vegar hefur fækkun
útibúa skilað mestri hagræðingu.
Sömuleiðis er á það bent að aukin
samvinna sparisjóða hafi skilað sér
í lækkun á tilkostnaði. Sparisjóðim-
ir hafa t.d. samvinnu um erlendar
lántökur gegnum Lánastofnun
sparisjóðanna og reka sameiginlega
tölvumiðstöð.
Það er niðurstaða Seðlabankans
af könnun Hagfræðistofnunar að
íslenskar fjármálastofnanir glíma
enn við ýmis vandamál haftatíma-
bilsins og eru komnar skemmra á
þróunarbrautinni en keppinautar
erlendis. Nú stefni hins vegar í átt
til lækkunar kostnaðar og vaxta-
munar. Samkeppni hafi aukist en
að mati bankans getur það falið i
sér hættur þannig að stofnanirnar
gangi of langt í að veita ódýra eða
ókeypis þjónustu. Lýsir bankinn því
yfir að hann hyggist hafa þessar
niðurstöður til hliðsjónar við stefnu-
mörkun í málefnum íslenskra inn-
lánsstofnana.
KB
B' 7
IMÝ ÞJÓniUSTA!
í fyrsta skipti á íslandi:
Þúsundir vörunúmera!
Við sendum vörurnar um hæl!
BIRGÐ AVERSLUN
Birgðaverslunin Gripið & Greitt, sem er i eigu 22 innflytjenda og
og innlendra framleiðenda býður aukna og betri þjónustu - Selt & Sent.
Einn dreifingaraðili - Þúsundir vörunúmera frá
meira en 70 innflyt|endum og innlendum framleiðendum.
Þú gerir pöntun* þína símleiðis eða á myndsendi.
Sparaðu tíma og fjármuni - Selt & Sent á réttum tíma.
Einn reikningur - lægri kosnaður
Ein afhending - minnaumstang
* Þessi þjónusta er eingöngu ætluð fyrirtækjum með vsk. númer, sem selja vörur og þjónustu til endursölu.
SÍMI: 68 89 70 FAX: 68 95 57 SÍMI:68 95 35 FAX: 68 95 57
8-Poge
section
n$iol
tda viðskiptavini
Gjafaéskrift að ICELAND REVIEW
og NEWS FROM ICELAND:
Fyrirhafnarlaus og ódýr leið
til þess að treysta samböndin.
,, lceland
b Review
<2P0cSD> Höfðabakka 9, Reykjavík.
Brautryðjandastarf í 30 ár.
sssar-
2£S“™“
*** 'CtLAHD
Rauv
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA