Morgunblaðið - 13.05.1993, Qupperneq 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ
VIDSKIPTI/ATVINNULÍF F’IMMTUDagur 13. maí 1993
B3 Electrolux^N.
CONSTRUCTOR
HI170 hillukerfi
Hugbúnaður
Tölvusamskipti hf.
eru nú komin á kortið
Rætt við framkvæmdastjórana Ásgrím Skarphéðinsson og Frosta Sigurjónsson en fyrirtækið
er nú að hefja sókn á nýjum mörkuðum
Hillurekkar úr stóli sem settir eru
saman ó öruggan og einfaldan hátt.
Við þá má bæta endalaust m.a.
með ýmsum aukahlutum, s.s. skúff-
um, boxum o.fl. Henta vel til
geymslu á alls konar smávöru.
fTTTTl
Fataskápar
Hetugir og litríkir fataskápar fyrir
skóla, vinnustaði, sundlaugar o.fl.
Fjórir eða fimm saman, með eðo
án setbekks. Einfaldir í uppsetningu.
Dýpt: 840 mm. Hæð: 2235 mm.
Breidd: 300 eða 400 mm.
LUI83 bietlarekkar
Kerfi fyrir geymslu á vörum ó brett-
um (pallettum). Sett saman úr sam-
tengdum rekkum. Lagerinn nýtist
betur, t.d. lofthæðin. Auðvelt að
breyta og auka við eftir þörfum.
Færanleg herbergi.
Stök herbergi sem auðvelt er að
flytja að vild (með gaffallyftara).
Má stafla svo fvær hæðir myndist.
Fást i fjórum litum og
tveimur stærðum.
Breidd: 3650 mm og 2750 mm.
Hæð: 2660 mm.
Inaust
Borgartúni 26
Sími: (91) 622262
Mynds.: (91) 622203
Þú svalar lestrarþörf dagsins
' §ír)um Moggans!
GENGI hlutabréfa í Tölvusam-
skiptum hf. hefur stigið jafnt
og þétt undanfarna mánuði,
ekki síst eftir að fréttir bárust
af samstarfi fyrirtækisins við
stórfyrirtækið Microsoft.
Tölvusamskipti héldu aðalfund
sinn síðastliðinn föstudag þar
sem 12 milljóna króna tap fyr-
irtækisins var kynnt jafnframt
því sem farið var yfir rekstar-
áætlanir næstu missera. Búist
er við að reksturinn verði í
járnum á þessu ári og það sem
af er árinu hafa söluáætlanir
staðist. Jafnframt er gert ráð
fyrir að fyrirtækið verði rekið
með hagnaði árið 1994 þar sem
þróunarkostnaður hefur farið
lækkandi jafnhliða því sem
vaxandi markaðsstarf er að
fara að skila auknum tekjum.
Rekstur Tölvusamskipta byggist
að öllu leyti á þróun, framleiðslu og
markaðsetningu á Skjáfaxi, en með
Skjáfaxi er hægt að senda fax beint
frá tölvu yfir í aðra tölvu eða þá í
faxtæki hjá móttakenda, án þess að
skjalið sé prentað út hjá sendanda.
Nýjasta útfærslan af Skjáfaxi Tölvu-
samskipta er hugbúnaðurinn Object-
Fax sem er öflugri og einfaldari í
notkun en fyrri útgáfur. Object-Fax
var fyrst sett á markað í októbermán-
uði á sl. ári og hefur það nú þegar
hlotið góðar viðtökur, að sögn for-
svarsmanna Tölvusamskipa, þeirra
Ásgríms Skarphéðinssonar, fram-
kvæmdastjóra þróunarsviðs, og
Frosta Siguijónssonar, fram-
kvæmdastjóra markaðssviðs.
Þeir segja jafnframt að með því
að nota skjáfaxið felist m.a. mikill
vinnusparnaður, aukin gæði og einn-
ig sé hægt að miðla upplýsingum
mun hraðar með þessu móti. Nefndu
þeir sem dæmi að fjárfesting Marels
hf. í Object-Fax borgaði sig upp á
þremur mánuðum vegna tímasparn-
aðar. Skjáfax frá Tölvusamskiptum
er nú er í notkun hjá um 150 alþjóð-
legum viðskiptavinum fyrirtækisins.
Úr þróunarvinnu í
markaðsstarf
Forsvarsmenn fyrirtækisins segja
það nokkuð algengt að hátæknifyrir-
tæki þurfi að þróa afurð sína, jafn-
vel í nokkur ár, áður en hægt er að
fara út á heimsmarkaðinn. Sú hefur
verið reyndin hjá Tölvusamskiptum
en frá stofnun fyrirtækisins árið
1987 hefur það breyst úr hreinu þró-
unarfyrirtæki yfir í það að sinna
þróun jafnhliða markaðsstörfum.
Rekstrarafkoma síðastliðinna miss-
era markast af þessari staðreynd og
enn eru gjöldin hærri en tekjurnar.
Um þessar mundir ertalið að hlutföll-
in séu að snúast við og að á síðari
hluta þessa árs eigi fyrirtækið að
sýna hagnað.
Á móti háum þróunarkostnaði
hugbúnaðarfyrirtækja segja þeir Ás-
grímur og Frosti að komi möguleiki
á mikilli framlegð. Þeir nefna að efn-
ið í hvem hugbúnaðarpakka kosti
um 1.000 krónur en hann sé seldur
á bilinu 60.000 til 200.000 krónur.
Tilbúnir á Bandaríkjamarkað
Vegna smæðar fyrirtækisins töldu
forsvarsmenn Tölvusamskipta skyn-
samlegast að leggja í fyrstu megin-
áherslu á heimamarkaðinn. Því var
lögð vinna í að markaðssetja skjáfax-
ið á Norðurlöndum og forsvarsmenn
fyrirtækisins segja það nú nokkuð
vel þekkt í Skandinavíu.
Jafnhliða þessu hafa nýir markað-
ir verið kannaðir að undanfömu og
þar má nefna Hong Kong, Ástralíu,
Nýja-Sjáland, Singapúr og Malasíu.
„Nú teljum við hins vegar að í
sumar séum við tilbúnir í þá hörðu
samkeppni sem ríkir á Bandaríkja-
markaði. Á miðju þessu ári er áform-
að að stofna söluskrifstofu í New
York sem verður að öllu leyti í okkar
eigu. Við emm þó enn meðvitaðir
um smæð okkar og ætlum í fyrstu
að einbeita okkur að New York borg
og svæðinu þar í kring.“
Grýtt leið
Forsvarsmenn Tölvusamskipta
segja mikla vinnu liggja að baki þeim
árangri sem náðst hafi. „Það hefur
tekið okkur marga mánuði að verða
sýnilegir á þessum alþjóðlega mark-
aði en nú emm við komnir á kortið.“
Þeir segja leiðina hafa verið grýtta
en smám saman hafi hin mikla vinna
farið að skila sér. „Fyrsta viðurkenn-
ingin sem við fengum í víðlesnu
tölvublaði vom mjög jákvæðir dómar
sem birtust um okkur í PC-User í
desember 1992.“ Frosti segir að síð-
an hafi verið stigið skref fyrir skref
og ýmsir mikilvægir aðilar hafi valið
þeirra fyrirtæki til samstarfs, nú síð-
ast Microsoft.
Veðjuðu á Windows
Aðspurðir um tildrögin að sam-
starfi við Microsoft sögðu þeir að
Tölvusamskipti hefðu verið eitt af
fyrstu fyrirtækjunum í heiminum til
að hanna faxbúnað fyrir Windows-
umhverfí. „Af og til höfum við sent
okkar forritara á þróunamámskeið í
Windows og þannig höfum við náð
sterkum persónulegum tengslum við
forritara Microsoft. Með því að fylgj-
ast vel með þeirra þróun getum við
á skömmum tíma tileinkað okkur
þeirra nýjustu tækni hveiju sinni.
Það leiddi síðan til þess að Microsoft
bað okkur að þróa Skjáfaxið okkar
samhliða nýrri tækni hjá þeim sem
nefnist OLE. Vegna þessa samstarfs
notar Microsoft nú okkar Skjáfax til
að sýna hvernig þeirra nýjasti hug-
Fjárfestingar
Eru Tölvusamskipti góður kostur?
Agnar Jón Ágústsson, deildar-
sljóri Fjárfestingarfélaginu
Skandia:
„Hlutabréf í Tölvusamskiptum
er tiltölulega nýr valkostur á ís-
lenskum hluta:
bréfamarkaði. í
júlí á síðasta ári
var gengi hluta-
bréfanna 2,5 en
er nú 7,50 miðað
við síðustu við-
skipti á Opna til-
boðsmarka-
ðnum. Forritið
hefur verið
markaðssett á
Norðurlöndum
og Bretlandi með ágætum árangri
en nú er ætlunin að markaðssetja
forritið í Bandaríkjunum og
ákveðið hefur verið að opna skrif-
stofu í New York. Tölvusamskipti
hafa selt forritið þekktum fyrir-
tækjum eins og Pepsi, Shell, Reut-
ers og City Bank svo einhver séu
nefnd. Það sýnir kannski að hér
sé á ferðinni athyglisverð vara.
Hlutabréf í Tölvusamskiptum er
valkostur sem gefur íjárfestum
tækifæri á að taka mikla áhættu
í hlutabréfaviðskiptum hérlendis.
Þeir sem eru reiðubúnir að taka
áhættuna með sparifé sitt gætu
hagnast mikið ef vel tekst til en
óvíst er á þessari stundu hvernig
tekst að selja forritið í Bandaríkj-
unum. Sú hætta er fyrir hendi að
stærri og sterkari hugbúnaðarfyr-
irtæki erlendis hefji framleiðslu á
svipuðu forriti sem takmarkað
gæti sölumöguleika TÖlvusam-
skipta og þar með haft áhrif á
verðið hérlendis.“
Davíð Björnsson, forstöðumað-
ur fyrirtækjasviðs Landsbréfa:
„Tölvusamskipti ’ hafa þróað
forritið Skjáfax og hafið sölu þess
hérlendis og er-
lendis. Félagið
hefur lagt mikla
vinnu og fé í
markaðssetn-
ingu forritsins
og orðið nokkuð
ágengt í kynn-
ingu forritsins
gagnvart erlend-
um hugbúnað-
arfyrirtækjum.
Mikill kynn-
ingarkostnaður skýrir að mestu
12 millj. kr. tap fyrirtækisins á
síðasta ári. Hlutabréf í fyrirtæk-
inu hafa verið að seljast á genginu
4-7,50 á undanförnum mánuðum.
Það þýðir að markaðsverð alls
hlutafjárins er á bilinu 94-176
millj. kr. Þegar haft er í huga að
eignir fyrirtækisins námu 9 millj.
kr. um síðastliðin áramót sést að
ofangreint gengi byggir einungis
á væntingum um framtíðarhagn-
að fyrirtæksins í kjölfar aukinnar
sölu. Gangi þær væntingar eftir
geta hluthafar væntanlega hagn-
ast verulega en hlutabréfin geta
að sama skapi lækkað mjög í verði
ef vonir um aukna sölu bregðast.
Niðurstaða mín er því sú að þetta
sé áhættusöm fjárfesting, sem
hentar einungis áhættusæknum
fjárfestum, sem veiji til hennar
litlum hluta af ráðstöfunarfé
sínu.“
Svanbjörn Thoroddsen for-
stöðumaður hjá VÍB:
„Hlutabréf í Tölvusamskiptum
hafa hækkað verulega í verði að
undanförnu. Viðskipti síðustu
daga hafa verið á gengi 7,0-7,50,
sem þýðir að markaðsverð fyrir-
tækisins er 210-225 m.kr. Til að
réttlæta þetta gengi þarf fyrir-
tækið að skila a.m.k. 20-30 m.kr.
hagnaði eftir skatta. Fyrirtækið
vinnur nú að sölu Skjáfax forrits-
ins bæði hér innanlands og á al-
þjóðlegum mark-
aði, þar sem það
hefur fengið
góðar viðtökur.
Enn ríkir þó
óvissa um það
hversu sterkri
markaðsstöðu
fyrirtækið nær.
Ennfremur er al-
þjóðleg mark-
aðssetning afar
kostnaðarsöm og
það hlýtur að taka nokkur miss-
eri áður en sá árangur næst að
salan skili hagnaði. Því er ólíklegt
að fyrirtækið skili verulegum
hagnaði fyrr en á árinu 1994 eða
1995. Ef góð markaðshlutdeild
næst má hinsvegar reikna með
góðri afkomu þegar fram í sækir
vegna mikillar framlegðar af sölu
hugbúnaðar sem búið er að þróa.
Þetta fer saman við þá áhættu
sem felst í fjárfestingu í hlutabréf-
um hugbúnaðarfyrirtækja. Um
getur verið að ræða spennandi
kost en áhættusaman. Þess vegna
er ráðlegt að segja aðeins lítinn
hluta sinna fjárfestinga í hluta-
bréf slíkra fyrirtækja.“