Morgunblaðið - 13.05.1993, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1993
Stærstu hluthatar m
Tölvusamskipta hf. §
hlutafé 7/5 ’93
Þróunarfélag íslands 6.241.333 [
Silfurþing hf. 4.403.689 [
Björn Rúriksson 1.668.143 f fes.69%
Ásgrimur Skarphéðinsson 1.505.000 I fe 5,14%
Dröfn Hreiðarsdóttir 1.505.0001 fes.14%
Gísli V. Einarsson
John P. Toohey
Reynir Guðjónsson
Þorvaldur I. Jónsson
Gunnar Már Antonsson
Sverrir Kristinsson
Elvar Guðjónsson
1.271.688 I 14.34%
851.369 02.90%
800.000 Q2>73%
715.000 Q2,44%
700.000 Q2,39%
663.431 02,26%
614.800 Q2,10%
21,29%
ÁSGRÍMUR Skarphéðinsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Tölvusamskipta,
stofnaði fyrirtækið árið 1987 ásamt eiginkonu sinni, Dröfn Heiðarsdóttur, en þau
eiga nú samtals rúmlega 10% hlutafjár. Ári síðar var fyrirtækinu breytt í hlutafélag
jafnhliða því að Þróunarfélagið gerðist stærsti hluthafinn. Hluthafar eru nú um 70
talsins en flestir starfsmenn Tölvusamskipta eiga einhvem hlut í fyrirtækinu.
búnaður starfar í samvinnu við annan
hugbúnað," sagði Ásgrímur.
Það vakti mikla athygli þegar
Microsoft bauð Tölvusamskiptum að
taka þátt í sýningu Microsoft á
Windows World. „Það boð er mjög
mikilvægt fyrir markaðssetningu
okkar og er ekki síst nú þegar við
erum að hefja innreið okkar á Banda-
ríkjamarkað. Þátttaka í sýningunni
gerir okkur sýnilegri en við erum nú
og persónulega tel ég að þetta sé
eitt af okkar stærri skrefum í mark-
aðssetningu fram að þessu," sagði
Ásgrímur.
Samið við Pepsi
Á skrifborði Frosta liggur listi
yfír yfir helstu alþjóðlegu viðskipta-
vini Tölvusamskipta. Á listanum eru
fyrirtækin British Telecom, City-
bank, Dell Computers UK., Thom
EMI, Shell og Pepsi Cola Intemationr
al auk fjölda annarra þekktra fyrir-
tækja. „Þessi listi’er að verða okkar
mikilvægasta eign þar sem þessi
þekktu fyrirtæki gefa okkur þá tiltrú
sem þarf. Þegar við sýnum væntan-
legum viðskiptavinum hvaða fyrir-
tæki hafa valið okkar kerfí em þeir
sannfærðari um að gera slíkt hið
sama.“
Þeir Ásgrímur og Frosti segja þó
að það sé ekki bara mikilvægt að fá
nýja viðskiptavini heldur sé ekki síð-
ur nauðsynlegt að tryggja að þeir
sem velja Skjáfax frá Tölvusamskipt-
um séu ánægðir. „Okkur þykir mjög
vænt um að okkar viðskiptavinir í
gegnum tíðina hafa haldið viðskipt-
um við okkur áfram, það sýnir okkur
að við erum að gera rétta hluti. {
því sambandi má nefna að einn af
fyrstu viðskiptavinum okkar í Evrópu
var Pepsi Cola og nú nýlega gerðum
við samning við Pepsi Cola í Banda-
ríkjunum sem hefur keypt kerfið í
fjórar skrifstofubyggingar sínar í
New York. Þá höfum við fengið Pepsi
til að taka þátt í okkar markaðssam-
starfí og við höfum fengið heimild
til að birta meðmæli þeirra í nýjasta
bæklingi okkar.“
Áhersla á þýðingar
Helstu samkeppnisaðilar Tölvu-
samskipta eru 5-6 fyrirtæki sem
flest eru staðsett í Bandaríkjunum.
„Svo virðist sem þeirra þróunardeild-
ir séu ekki stærri en okkar og að
aðgangur þeirra að fjármagni sé
ekki góður. Við erum því í mjög
góðri samkeppnisaðstöðu gagnvart
þeim.“
Að auki telja forsvarsmenn Tölvu-
samskipta að áhersla fyrirtækisins á
að þýða forrit sín hafí styrkt sam-
keppnisstöðu þeirra. „Nú er verið að
vinna að þýðingu forritsins á ýmis
erlend tungumál, svo sem þýsku,
spænsku og frönsku, en þetta er lið-
ur í samkeppni okkar við hina banda-
rísku aðila. Þeir leggja ekki mikla
áherslu á þýðingar þar sem þeir
keppa aðallega sín á milli á Banda-
ríkjamarkaði. Einnig höfum við haft
þá sérstöðu að við þekkjum vel inn
á þau flóknu stafasett sem eru víða
meðal Evrópuþjóða."
Nógxi smáir
Samkvæmt spám er búist við að
eftirspum eftir faxlausnum fyrir
staðamet aukist um 80% árlega.
Gert er ráð fyrir því að markaðurinn
fyrir fax fyrir staðarnet verði um
80 milljónir dollara á þessu ári í
Bandaríkjunum og e.t.v. um 150
milljónir dollara í öllum heiminum.
„Þetta er of lítill markaður til að
stórfyrirtæki líkt og Microsoft hafí
áhuga á að sinna þróunarstarfí á
þessu sviði. Þeir telja hagkvæmara
að smærri aðilar, sem þeir síðar geri
við samninga, sinni þróunarstarfínu.
Markaðurinn er hins vegar mátuleg-
ur fyrir Tölvusamskipti hf. og jafn-
vel þó að við næðum aldrei nema litlu
broti af þessum markaði fyrir staðar-
net getum við verið sáttir."
Ýmislegt er nú á döfínni hjá Tölvu-
samskiptum og m.a. eru í gangi við-
ræður við stórfyrirtækið Dell í Bret-
landi um að sinna dreifíngu á skjá-
faxi Tölvusamskipta, en Dell hefur
útibú víða um heim.
Frosti segir að í daglegum rekstri
verði hann var við breytta stöðu fyr-
irtækisins á aþjóðavettvangi. Áður
hafí starfsmenn Tölvusamskipta lagt
mikla vinnu í að fá viðtöl við forsvars-
menn helstu fyrirtækja á þessu sviði
en nú séu alþjóðleg fyrirtæki farin
að leita að fyrra bragði til Tölvusam-
skipta. Hann nefnir sem dæmi að í
síðustu viku bárust fyrirtækinu fyrir-
spurnir frá netframleiðandanum No-
vell um hvert Tölvusamskipti stefna
með sinni nýjustu framleiðslu þar
sem Novell sé að leita að faxhugbún-
aði til að mæla með við viðskiptavini
sína. En Novell framleiðir um 60%
netkerfa í heiminum.
Illa búið að hugbúnaði
Aðspurðir um framtíð íslenskra
Tilkynning um útgáfu markaðsverðbréfa
Húsbréf
1. flokkur 1993
Kr. 4.000.000.000,-
- krónur fjórir milljarðar °°/ioo
Útgefandi: Byggingarsjóður ríkisins, húsbréfadeild
Útgáfudagur: 15. apríl 1993
Vextir: 6%
Lokagjalddagi: 15. apríl 2018
Einingar bréfa: kr.10.000,100.000,1.000.000, 5.000.000
Umsjón með útgáfu: Landsbréf hf.
Skráning á Verðbréfaþing íslands hefst 14. maí 1993
LANDSBRÉF HF.
Landsbankinn stendur meö okkur
Suöurlandsbraut 24, 108 Reykjavfk, sími 91-679200, fax 91-678598
Löggilt veröbrétafyrirtæki. Aðili aö Veröbréfaþingi íslands.
hugbúnaðarfyrirtækja sögðu þeir að
það þyrfti að eiga sér verulegt upp-
byggingarstarf í greininni í heild.
„Hugbúnaðarfyrirtæki hér á landi fá
ekki lán hjá lánasjóðum vegna þess
að þau flokkast ekki sem iðnfyrir-
tæki. Auk þess vilja lánastofnanir fá
veð fyrir sínum lánum og það er mun
auðveldara að fá veð í þungavinnu-
vélum en í þróunarvinnu hjá hugbún-
aðarfyrirtæki. Það gerir slíkum fyrir-
tækjum einnig erfítt fyrir.
Þar fyrir utan þurfa hugbúnaðar-
fyrirtæki að greiða 6% tryggingar-
gjald líkt og hvert annað verslunar-
og þjónustufyrirtæki. Tryggingar-
gjaldið hækkar vöruverðið og gerir
íslensk hugbúnaðarfyrirtæki síður
samkeppnishæf á erlendum mörkuð-
um.“
Ásgrímur segir að ef umsvif Tölv-
usamskipta aukist til muna þá verði
slæm skilyrði ef til vil til þess að
fyrirtækinu verði ekki unnt að starfa
á íslandi. „Ef ekkert breytist hefur
fyrirtækið ef til vill ekki uppbygging-
armöguleika hér á landi og neyðist
til að flytja starfsemina."
Fangar auðlindanna
„Það virðist vera að í löndum líkt
og íslandi verðum við fangar auðlind-
anna. Miklar fjárfestingar streyma í
uppbyggingu í kringum auðlindirnar,
hvort sem það eru fískveiðar, land-
búnaður eða orka. Fólkið og mennt-
unin er orðin ein mikilvægasta auð-
lindin og henni þurfum við að gefa
aukinn gaum. Þannig fjárfestum við
í framtíðinni og stuðlum að því að
menntun fólksins nýtist hér á landi.
Það er misskilningur að við séum
eingöngu fæddir bændur og físki-
menn. íslendingar eiga sér langa
sögu á sviði sagnaritunar, skáklistar
og annarra huglægra efna. Að sama
skapi hljóta hugbúnaður, hugvit og
hátækni að vera okkur í blóð borin,"
sögðu þeir Ásgrímur Skarphéðinsson
og Frosti Bergsson í viðtali við Morg-
unblaðið. j
SUMARTÍMI:
17. maí
til
31. ágúst
kl. 800 - 1600
Lýsing hf.
SUÐURLANDSBRAUT22
SÍMI 689050 • FAX 812929
Höfdar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!