Morgunblaðið - 13.05.1993, Qupperneq 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1993
VIÐSKIPTI/flTVINNULÍF
DAGBÓK
Decus
ráðstefna
■ DECUS, samtök Digital
tölvunotenda á íslandi, halda
sína árlegu ráðstefnu á Hótel
Loftleiðum 14-15. maí nk. Að
þessu sinni eru samhliða fyrir-
lestrar í þremur fundarsölum.
Fyrirlestrum er þannig skipt
upp í þrjár brautir fyrir notend-
ur, tæknimenn og stjórnendur.
Fyrirlesarar eru bæði innlendir
og erlendir. M.a. verður fjallað
um tölvupóst, skjáfax,
Windows NT, mismunandi gag-
nagrunna, ýmsar nýjungar
bæði í vél- og hugbúnaði og
Alpha AXP frá Digital verður
í brennidepli. Einnig verður
fjallað um arðsemi í tölvufjár-
festingum, upplýsingatækni og
ný viðhorf til stjórnunar fyrir-
tækja, brunavarnir í tölvusöl-
um, höfundarréttarmál o.fl.
Skráning fer fram í s:687220.
Tæknival
10 ára
■ TÆKNIVAL heldur nú
upp á 10 ára veru sína á mark-
aði tölvusölu. Sérstök afmæli-
svika stendur nú yfir og lýkur
henni laugardaginn 16.maí. í
frétt frá Tæknivali segir að alla
vikuna verði boðið upp á spenn-
andi afmælistilboð á tölvum,
jaðartækjum og hugbúnaði.
Rádstefna um
ÚTVÍRRUN Á VINNUMARRAÐI
VERRFRÆÐINGA
OG ÚTFLUTNING
Á TÆRNIÞERRINGU
fóstudaginn 14. maí 1993
í Ársal, Hótel Sögu.
Fundarstjóri: Guðbrandur Guðmundsson.
Dagskrá:
Kl. 13.30 Ráðstefnan sett:
Halldór Ingólfsson, fráfarandi formaður SV.
Kl. 13.40 Ávarp ráðherra.
Kl. 13.50 Ráðgjafarverkfræðingar í sjávarútveginum:
Gunnar Ingi Gunnarsson, Rafteikning hf.
Kl. 14.10 Sala á verkfræðiráðgjöf erlendis:
Svavar Jónatansson, Virki-Orkint.
Kl. 14.30 Markaðssetning og sala tækninýjunga erlendis:
Lárus Ásgeirsson, Marel hf.
Kl. 14.50 Kaffihlé.
Kl. 15.20 Hlutverk stjórnmálamanna við öflun
verkefna erlendis:
Steingrímur Hermannsson, alþingism. og verkfr.
Kl. 15.40 Útflutningur verkfræðivinnu vegna verktöku:
Gunnar Birgisson, framkvæmdastjóri.
Kl. 16.00 Útflutningur verkfræðilegs hugbúnaðar:
Snorri Páll Kjaran, verkfræðist. Vatnaskil.
Kl. 16.20 Samantekt:
Árni Björn Jónasson, Línuhönnun hf.
Kl. 16.30 Pallborðsumræður undir stjóýn Guðmundar G.
Þórarinssonar, formanns VFÍ.
STÉnARFÉlAG
VERKFRÆEHNGA
FÉLAG RAÐGJAFAH-
VERKFRÆDINGA
Fjárfestingar
Paradísarmissir breskra
dvalarréttarfjárfestenda
Um 1,5% breskra fjölskyldna hafa fjárfest í dvalarrétti á suðrænum
sólarströndum en óánægjuefnin eru mörg
Svokallaðir dvalarréttarsamn-
ingar hafa verið mikið í fréttum
að undanförnu en hér er um að
ræða tiltölulega nýtt fyrirbrigði
í ferðaþjónustuiðnaðinum. Felst
það í því, að gegn ákveðnu gjaldi
eða fjárfestingarframlagi getur
fólk tryggt sér dvalarrétt á til-
teknum sumarleyfisstöðum á
sama tíma ár hvert. í Evrópu
velti þessi iðnaður nærri 100
milljörðum kr. á síðasta ári, þar
af voru 40% veltunnar í Bret-
landi og írlandi. Það, sem er þó
einkennandi fyrir þessi við-
skipti, að minnsta kosti hingað
til, er mikil óánægja viðskipta-
vinanna og ósjaldan ásakanir
um beina sviksemi.
Mörg fyrirtækjanna, sem selja
dvalarrétt af þessu tagi, eru ekk-
ert að skera utan af því í auglýs-
ingunum. Væntanlegum viðskipta-
vinum er lofuð eins konar paradís-
arvist á sólgylltum ströndum,
kögruðum pálmatijám og ekki gert
lítið úr hugsanlegum hagnaði af
fjárfestingunni. Fyrir þessu hafa
margir fallið, meðal annars Alan
Klein, formaður Concerned Own-
ers Group, COG, í Bretlandi. í sam-
tökunum eru nú eitthvað á annað
þúsund manns og fjölgar stöðugt
en félagsmenn eiga það sameigin-
legt að hafa verið viðskiptamenn
Club Riviera, eins af mörgum fyrir-
tækjum, sem selja dvalarrétt. COG
var stofnað til að reka réttar fýrr-
verandi viðskiptavina fýrirtækisins
og nú er talið líklegt, að bresk
stofnun, sem á að tryggja eðlilega
viðskiptahætti, The Office of Fair
Trading, OFT, muni láta þessi mál
verulega til sín taka í sumar.
Club Riviera varð raunar gjald-
þrota fyrir þremur mánuðum en
fyrirtæki, sem voru í nánum
tengslum við það, eru enn í fullum
rekstri. Mörg þeirra hafa hins veg-
ar flutt aðsetur sitt til Manar.
Áhersla á glansmyndina
Að undanförnu hafa kunn fyrir-
tæki í ferðaskrifstofurekstri verið
að færa sig inn á þetta svið og
hefur því verið fagnað enda hefur
greinin hingað til fengið meira en
sinn skammt af „vafasömum papp-
írum“. Algengasta fyrirkomulagið
er, að fólk íjárfesti í sumarleyfis-
staðnum gegn dvalarrétti á sama
tíma ár hvert. Gefa sum fyrirtæki
íjárfestendum kost á að skipta um
dvalarstað en yfirleitt er áherslan
alltaf á kostina, glansmyndimar í
kynningarbæklingunum, en ekki á
neikvæðu hliðamar. Það er ekki
minnst á, að fjárfestingin sem slík
er oft í meira lagi hæpin og það
er steinþagað um stjórnunarkostn-
aðinn, sem gerir að engu þá full-
yrðingu, að fólk sé að „öðlast
ókeypis sumarleyfi um alla fram-
tíð“.
Ósvífin sölumennska
Club Riviera var frægt fyrir
ósvífna sölumennsku og það tók
upp þá aðferð að fá fólk til að
færa sig ofar í „lúxusstiganum"
með því að lofa að annast sölu á
fyrri ijárfestingunni. Það var þó
undir hælinn lagt hvort við það var
staðið en fyrirtækið hótaði fólki
umsvifalaust lögsókn stæði það
ekki í skilum með nýja staðinn.
Vegna mikilla kvartana svipti
OFT sex dótturfyrirtæki Club Rivi-
era rekstrarleyfi í júlí í fyrra en
forstöðumenn Club Riviera kváð:
ust sjálfir ekkert hafa að fela. í
framhaldi af þessu voru sett sér-
stök lög um dvalarréttarsamninga
í Bretlandi en í þeim er kveðið á
um hálfs mánaðar umþóttunar-
tíma. Það þýðir, að snúist fólki
hugur getur það sagt samningun-
um upp innan þess tíma án nokk-
urra eftirmála. Lögin taka þó ekki
til samninga, sem gerðir voru er-
lendis en það á við um meira en
helming þeirra 220.000 dvalarrétt-
arsamninga, sem Bretar gerðu á
síðasta ári.
I nóvember sl. gerðu tveir þing-
menn Verkamannaflokksins þessi
mál og sérstaklega Club Riviera
að umtalsefni á þingi og daginn
eftir ákváðu eigendur fyrirtækisins
að hætta starfseminni í Bretlandi.
í febrúar var það svo tekið til gjald-
þrotaskipta. Þá eru nú blikur á
lofti með Club Tenerife, eitt af
dótturfyrirtækjum Club Riviera,
og bendir flest til, að það fari sömu
leið og móðurfyrirtækið.
1,5% fjölskyldna með
dvalarrétt
Samstarfsráð dvalarréttarsala,
sem eru hagsmunasamtök í þess-
ari grein, áætla, að um 134.000
breskir borgarar hafi fjárfest í
sumarleyfisstöðum aðeins á Spáni
og Kanaríeyjum. Allt í allt telur
ráðið, að 1,5% breskra fjölskyldna
hafi þennan hátt á með sumarleyfí
sitt á móti 18%, æm nota sér pak-
kaferðir. Ráðið hefur einnig fagnað
afskiptum OFT af þessum málum
og bendir á, að Club Riviera hafi
ávallt verið neitað um aðild að því.
Samkvæmt samantekt OFT er
miklu meira um kvartanir um við-
skiptahætti dvalarréttarsala en
gerist og gengur í öðrum viðskipt-
um, hvort sem er í ferðaiðnaðinum
eða öðrum. Sem dæmi um það má
nefna, að um 10 milljónir Breta
fóru í pakkaferðir á síðasta ári en
á þriggja mánaða tímabili, frá júlí
til september, voru lagðar fram
3.700 formlegar kvartanir vegna
þeirra. Kvartanir vegna dvalarrétt-
arsamninga, sem eru ekki nema
örlítið brot miðað við pakkaferðirn-
ar, voru hins vegar 2.800.
ACO • ACO • ACO • ACO • ACO • ACO • ACO
V//
ACO • ACO • ACO • ACO • ACO - ACO • ACO • ACO • ACO
COmPACL &
Einfaldlega
BIIIRI
Leiðandi í hönnun og nýjungum á PC tölvum.
Framleiddar samkvæmt ISO 9002 gæðastaðlinum.
Þriggja ára ábyrgð.
V/L
SÍMI 91-62 73 33 * FAX91-62 86 22
SKIPHOLTI 17 « 105 REYKJAVÍK
Traust
og örugg þjónusta