Morgunblaðið - 28.05.1993, Síða 3

Morgunblaðið - 28.05.1993, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 28. MAÍ 1993 C 3 cei IAM ,8S fllJOAaUTaO'l QIGAJaVIIJOHOM Morgunblaðið/Kristinn Viöurkenningar hlutu Barnasmiðjan, Hestaíþróttasamband íslands og Keflavík og Njarðvík fyrir átaksverkefnið „Gerum bæinn betri fyrir börnin“. Viðurkenningar veittar fyrir framlög til slysavarna í þágu barna ÞREMUR aðilum voru veittar viðurkenningar fyrir skömmu fyrir fram- lög til slysavarna í þágu barna og er þetta í fyrsta sinn sem fram- kvæmdastjórn „Öryggi barna — okkar ábyrgð" veitir slíkar viðurkenn- ingar. í stjórninni sitja fulltrúar frá landlæknisembættinu, Foreldra- samtökunum, Hollustuvernd ríkisins, Neytendasamtökunum, Rauða krossi, Slysavarnafélagi Islands og Umferðarráði. Framkvæmdastjórnin hefur sett fram sem markmið átaksins að stefna að slysatíðni á börnum lækki hér um 20% á tímabilinu 1992 til 1997. Slysatíðni á bömum hefur farið lækkandi, en er þó hærri en í nágrannalöndunum svo að með efl- ingu forvamarstarfs má ætla að mörgum börnum megi forða frá þjáningum vegna slysa. Ætlunin er að veita árlega viðurkenningar fyrir árangursríkt framlag, sem stuðlar að slysavörnum og auknu öryggi barna og er vonast til að þær veki áhuga almennings og hvetji til eftir- breytni um ábyrgð okkar allra á ótímabærum slysum. Barnasmiðjan Bamasmiðjan fékk viðúrkenningu fyrir markvissa stefnu í framleiðslu á leiktækjum er miða að auknu ör- yggi þeirra. Leiðbeiningar um upp- setningu tækjanna og aðlögun að íslenskum aðstæðum stuðla að fækkun áhættuþátta í leik bama og er vonast til að fordæmi Bama- smiðjunnar verði öðmm framleiðendum og inn- 1 flytjendum hvatn- ^»C*11 mm ing til að huga að ^ öryggissjónar- o í samkeppninni. Nýir Evrópustaðlar um leiktæki em í undirbúningi en áætlað er að þeir verði tilbúnir 1994-95 og munu þeir þá taka gildi hér. „Gerum bæinn betri.fyrir börnin“ miðum í fram- leiðslu leik- tækja og öðr- um vörum, ætluðum bömum. Hrafn Ingi- mundarson og Elín Ág- ústsdóttir stofnuðu Barna- smiðjuna 1986. Elín er fóstra og hefur sérhæft sig í þroskaleikföngum, en Hrafn er vélfræðingur með reynslu af sölu og ráð- gjöf á tækjabúnaði fyrir sjávarútveg, en hefur síðan sérhæft sig í leik- tækjasmíð. í byijun var leiktækja- hönnunin aukastarf hjá þeim. Fyrsta leiktækið var tvöfalt vegasalt, sem strax varð vinsælt, og nú framleiða þau m.a. kastala, klifurtæki, renni-' brautir, jafnvægistæki, rólur, mörk, körfusúlur, reiðhjólagrindur og bekki og eitthvað er um sérsmíði á leiktækjum eða tækjum til íþrótta- iðkana. Að sögn Hrafns hefur viðhorf til leiktækja gjörbreyst hin síðari ár. Þegar þau Hrafn og Elín voru að fara af stað með Barnasmiðjuna töldu margir að reksturinn myndi ekki ganga vegna þess að leikföng voru það einföld og framleiðslan þyrfti ekki mikla fagþekkingu. Meiri kröfur samfara nýjum möguleikum hafa orðið hvatning til að standa sig Verkefnisstjórn skipuð starfsfólki sjúkrahúss og heilsugæslustöðvar Keflavíkur, þeim Þórunni Benedikts- dóttur, Þórhildi Sigtryggsdóttur og Hrafnkeli Óskarssyni, tók við viður- kenningarmerki fyrir að efla skrán- ingu slysa svo fækka megi áhættu- þáttum og slysagildrum í umhverfi barna. Einnig fyrir forvarnarstarf að fræðslu til bæði barna og fullorð- inna. Samningur Keflavíkur og Njarðvíkur, sjúkrahúss og heilsu- gæslu Keflavíkur og Slysavarnafé- lags íslands var gerður í september 1991 um átak í því að leita uppi slysagildrur og gera endurbætur í umhverfmu. Til starfa valdist dug- mikið fólk sem jafnvel lagði fram vinnu í frítíma til að markmið- in næðust. Mikil vinna lá í skipulagi, öflun efnis og fræðslu- starfi sem nýst getur öðrum sveitarfélög- um sem hefja vilja svipað átak. Slysa- varnafélagið hélt kynn- ingu á verk- efninu í mars sl. og fram kom að við það að taka tillit til öryggis- sjónarmiða í skipulagningu og undirbúningi hefði ekki teljandi aukakostn- að í för með sér þ.e. að kostnaður við aukið öryggi skilaði sér fljótt til baka. Hestaiþróttir Hestaíþróttasambandið fékk við- urkennirtgu fyrir að skylda alla til að nota reiðhjálma við keppni og sýningar svo og skyldunotkun fyrir börn á reiðnámskeiðum. Aukin notk- un reiðhjálma meðal fullorðinna hef- ur mikið fordæmisgildi fyrir börnin. íþróttaslys á unglingum eru þó ekki nægilega rannsökuð. Viðurkenningarmerkið má nota til að merkja vörur og þjónustu eða til að kynna starfsemina. Eiríka A. Friðriksdóttir, hagfræðingur fékk sérstaka viðurkenningu fyrir ötult starf um árabil að öryggismálum neytenda, einkum barna á heimilum, í frítímum og í umferðinni. ■ JI ma BYLTING í BARÁTTUNNI GEGN HRUKKUM Lipósóm voru merk nýjung, en framtíðin er falin í Nanópart Þú þarf ekki lengur að vera hrædd við hrukkur, því nýr kafli í umhirðu húðarinnar er hafinn með Profutura. Kremi, sem notar stórkostlegt flutninga-kerfi, Nanópart, sem er 30 sinnum öflugra en Lípósóm og ber A og E vítamín inn í húðina. Arangur: Húð þín verður unglegri, frískari og einfaldlega fallegri. Af hverju getur Profutura flutt svo mikib af vítamínum? Hugsaðu þér Nanóparts sem blöðru, fulla af olíu. Allt innihaldið er fullt af vitaminum. Lípósóm er hins vegar blaðra full af vatni og aðeins blaðran sjólf getur flutt vitaminin. Nanópart Lípósóm Afhverju myndast hrukkur? Þegar við eldumst, missir húðin hæfileikann til að geyma vatn. Afleiðingin verður: Þurrari og grófari húð. Fyrstu yfirborðs- hrukkurnar myndast. Mengun og aðrir utanaðkomandi þættir flýta þessari þróun. MARBERT OG ÞU LITUR VEL UT Greinilegur munur Reynið Profutura og finnið muninn. Vítamínin fara þangað sem húðin raunverulega þarfnast þeirra. Það þýðir: Meiri vörn og aukinn raka fyrir þurra og strekkta húð. Dýpt hverrar hrukku minnkar ó mjög skömmum tíma. Nýjung! Nú er einnig komið sérlega ý mjúktog fínt augnkrem í Profutura línunni. SKINPERFECT Nýjungfrá Marbert Eins og önnur líffæri er húöin einnig háð innri takti sem stjórnar starfsemi hennar allan sólarhringinn. Þvi þarfnast hún góðrar umönnunar. En mismunandi þarfir fara eftir húðgerð og starfsemi húðarinnar. Marbert hannaði Skinperfect línuna með þetta í huga ásamt því að nýta sér nýjustu uppfinningar á sviði líkamsklukkunar (cronobiology). Húðhreinsivörur í Skinperfect línunni er fullkomin hreinsilína. Hún hreinsar, nærir og gefur húðinni þann raka sem hún þarfnast. Krem í línunni eru dagkrem og næturkrem sem henta fyrir þurra húð, eðlilega húð og blandaða húð. í öllum kremunum eru efni úr plönturíkinu og úr þörungum. Oagkremin vernda gegn skaðlegum ytri áreitni og ótímabærri öldrun af völdum sólarljóss. Næturkremin stuðla að endurnýjun húðfruma og vinna alhliða gegn skorti. í línunni má einnig finna milt augnkrem, lituð dagkrem og andlitsmaska. / Skinperfect vörunum eru eingöngu efni unnin úr plönturíkinu. Marbert snyrtivörurnar eru ekki prófaðar á dýrum. Öll efni í vörunum eru skráð utan á pakkningarnar. MARBERT þegar fegurðin ein ncegir ekki

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.