Morgunblaðið - 28.05.1993, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 28.05.1993, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1993 C 9 Egilsstaðamaraþon er árviss viðburður Litríkt fólk á útimörkuðum föstudeginum verða tónleikar aðild- arfélaganna. Tveir 17 ára norður- landabúar, Svíi og Finni, halda tón- ieika. Þessir piltar eru nú þegar vel þekktir fyrir fæmi sína á hljóðfærið. Sama kvöld leika Bragi Hlíðbert, Grettir Bjömsson og Reynir Jónas- son og síðan verður dansleikur. Á laugard. 3. júlí eru áfram tónleikar aðildarfélaganna 17 og um kvöldið verða úrslit í lagakeppni landsmóts- ins. Hvert félag sendir eitt lag í keppnina. Sömu helgi stendur íþróttafélagið Höttur fyrir knattspymumóti kvenna með um 300 þátttakendum af öllu landinu.í tengslum við það verður útiskemmtun í Vémörk í Egilsstapa- skógi. Fjölskylduhátíð kl. 17-20 á laugard. og tónleikar um kvöldið með ýmsum hljómsveit- um, þ.á. m. Pelikan. Á hádegi sunnud. verður gert hlé vegna Egils- staðamara- þons. Keppt er í 4 og 10 km skemm- tiskokki, hálfmara- þoni og heilu maraþoni. Keppendur síðasta ár voru 200 og heppnaðist mótið mjög vel. Helgina 9.-11. júlí er sumar- og fjölskyldu- hátíð UÍA á Eiðum sem verður á nýju íþrótta- og útivistar- svæði UÍA. Þar er margt til skemmt- unar, keppni fyrir alla aldursflokka í frjálsum íþróttum, pollamót í knatt- spyrnu o.fl Þama verður ein íþrótta- grein kynnt, því efnt er til Karae- okie-keppni og tjalddansleikur. UÍA heldur hátíð á Eiðum um Verslunar- mannahelgina. Útileikhús og skoðunarferðir í sumar verður sú nýbreytni að á svæði UÍA verður rekið útileikhúsið „Hér fyrir Austan" frá 30. júní til 18. ágúst og sýndir leikþættimir „Lífíð meðal bænda“ eftir Sigrúnu Björgvinsdóttur, Egilsstöðum, „Fjör- ið á síldarplaninu" eftir Guðjón Sveinsson, Breiðdalsvík og „Ýmsra þjóðsögur af Austurlandi" sem tekið var saman af Amdísi Þorvaldsdóttur og nemendum Brúarháskóla. Dans- flokkurinn Fiðrildin sýnir íslenska dansa og kenna áhorfendum sporin. Fiðrildin er annar af tveimur þjóð- dansafélögum á fslandi. Veitingar verða í umsjá kvenfélaganna í Eiða- og Hjaltastaðaþinghá. Margar dagsferðir em í boði útfrá Egilsstöðum, t.d. um Borgarfjörð Eystri, Fljótsdalinn o.fl. eftir óskum. Leiðsögumenn eru allt heimamenn en í fyrra stóðu Ferðamálasamtök Austurlands og Farskóli Austurlands fyrir fyrsta námskeiði fyrir svæðis- leiðsögumenn sem haldið hefur verið hér á landi og útskrifuðust 27 leið- sögumenn. Einnig em dagsferðir í sérbúnum jeppum að Snæfelli og þaðan á Goðahnúka (1460 m) og Grendil (1570 m) á Vatnajökul í 1500 m hæð. Nefna má jeppaferðir í Loðmundarfjörð og tengjast þær ferðir bát frá Seyðisfirði. Þessar ferð- ir eru í júli og ágúst. Fjömferð um Héraðssandinn er ógleymanleg, þar sem fuglalíf er fjölbreytt og hægt að komast ótrúlega nálægt selum. Hægt er að fara í fjömferð með mjög stuttum fyrirvara. Á hveijum sunnudegi hefur Hótel Valaskjálf Héraðsblót, þorrahlað- borð, og harmonikkutónlist og þjóð- dansasýningu. Meðal annarra afþreyingarmögu- leika er 3ja daga ferð um hálendið milli Egilsstaða og Mývatns. Er þá m.a. farið um Snæfell, Hafrahvam- magljúfur — eitt hrikalegasta gljúfur á Islandi, Sænautasel í Jökuldal, Askja og Herðubreiðarlindir. Brottf- arir em fimmtud. frá Egilsstöðum og á sunnudögum frá Mývatni. Hámkarksijöldi farþega er 11. í góðu skyggni er tilvalið að fara í útsýnisflug með flugfélagi Austur- lands. Hægt er að velja á milli tveggja leiða, annarsvegar yfir há- lendið þar sem stærstu og fegurstu fjöll landsins eru og hinsvegar með ströndinni frá Dyrfjöllum til Papeyjar og til baka fyir Öxi, einn hrikaleg- asta og fallegasta fjallveg á landinu, til Egilsstaða.' Þetta er ekki tæmandi yfirlit yfir þá kosti sem Egilsstaðir og nágrenni bjóða uppá en auðvelt er að nálgast upplýsingar í Upplýsingamiðstöð ferðamála Egilsstöðum. ■ Kristín Pétursdóttir Höfundur er ferðamálafulitrúi Egilsstaða ll Upplýsingamiðstöð- in ð Ísaíirði npnuð UM MIÐJAN maí tók upplýsingaskrifstofa fyrir ferðamenn til starfa á Isafirði í húsnæði Framhaldsskóla Vestfjarða í Torfnesi. Skrifstofan er opin mánudaga-föstudaga kl. 8,00-14,00 og 16,00- 18,00 og um helgar kl. 10,00-14,00. Eins og nafnið gefur til kynna mun þar að fá allar almennar upplýsingar um áhugaverða staði og atburði og þjónustu sem er í fjórðungnum. Skrifstofan verður opin til 1. september og hefur tekist samstarf við Vesturferðir um sameiginlegan rekstur skrifstofunnar. Vesturferðir hafa ýmsar ferðir í boði og sjá einn- ig um bókanir í gistingu, umboðs- sölu ýmskonar og fleira. Að starfsseminni standa Ferða- málafélag ísafjarðarsýslu sem hef- ur að markmiði að efla ferðaþjón- ustu og styrkja sem atvinnugrein. Einstaklingar og fyrirtæki eru í félaginu. Þá fékkst fjárstyrkur til starfsseminnar frá ísafjarðarkaup- stað og nokkrum nágrannasveitar- félögum. ■ Á ferð um ísland NESÚTGÁFAN hefur sent frá sér handbókina „Á ferð um ísland 1993“ og er þar mikið af hag- nýtum upplýsingum sem koma sér mætavel fyrir ferðamenn um landið. Þar er sægur korta yfir einstaka staði og sagt frá þjónustu sem er að fá, mikið af auglýsingum, greinum ofl. Þama er skrá yfir a gistimöguleika um 0 allt land, skýringar á hótelmerkjum, 2 áætlanir sérieyfis- ■O bfla, vegalengdar- rj. kort og ótal margt ^ fleira. Halldór Blöndal, samgönguráðherra, ■JJJ Eiður Guðnason, umhverfisráðherra, Birgir Þorgilsson, ferðamálastjóri og María Guðmundsdóttir, forstöðumaður Upplýsingamiðstöðvar ferðamála skrifa pistla og m.a. greinahöf- unda er Birna Bjarnleifsdóttir sem skrifar um hálendið, Bjöm Finsen um Vesturland, Edda Kr. Björns- dóttir um Austurland, Jón Gauti Jónsson um Norðurland, Jón R. Hjálmarsson um suðurland, Pétur Bjamason um Vestfirði og Vil- hjálmur Grímsson um Suðurnes. FEfWAHANDBÓK OG ÞÉTTBÝUSKORT KHUOÁHVSI 1993 Þar er sægur korta yfir einstaka staði og sagt frá þjón- ustu sem er að fá, mikið af auglýsing- um, greinum ofl. l i Fmntungur Júnbnliúa undlr fátækramartamum stóru flæmi um og við Hengilinn gera svæðið að eftirsóknarverðu útivistarsvæði. „Þetta getur líka verið hæfilegur sunnudagsbíltúr fyrir fjölskyldur að skreppa hingað og fá sér kaffisopa og ganga um,“ sagði Guðmundur. Hann bætti við að þeir hefðu lengi haft augastað á þessum stað og hefðu trú á að fólk kynhi að meta að fá ódýra og hreinlega gistingu og hollan og góðan mat fyrir sáralítið verð. ■ BLAÐIÐ Jordan Times skýrir frá því að í opinberri úttekt sem var gerð á hag og stöðu íbúa Jórdaníu hafi komið í ljós að 21.4% fjöl- skyldna að meðaltali með 6.8 meðlimi lifi undir fátækramörkunum og geti ekki fullnægt grundvallarþörfum sínum í mat, húsnæði, menntun og heilsuvemd. Þá kom einnig í ljós að 6.6% þeirra sem lifa undir fátækramörk- unum búa við skelfilega neyð, hafa innan við 5 þúsund kr. á mánuði til að lifa af, en það dugar ekki fyrir brýnustu matvælum. Það var ráðuneyti félags og þró- unarmála sem lét gera þessa könn- un og var hún byggð á útttekt 44 þúsund atvinnulausra fyrir- vinna.Ólæsi meðal þeirra verst settu er 150% meira en þeirra sem hafa til hnífs og skeiðar. Mjög algengt er að í fjölslkyldum séu að meðal- tali 11-15 manns, börn og foreldrar og ættingjar. Sams konar könnun á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna fyrir tveimur árum komst að þeirri niðurstöðu að um 33% Jórdana lifðu undir fátækramörkunum. ■ IOPFHRÐIRVEGNí ÆTTARMÓTA ÍÓÍUM GÆDA HÓPBlFREIÐð FRÁ12T1L65 FARÞEGA UilTlÐ UPPLÝSINGA' OPFERÐAMIÐSTOÐII Bíldshöfða 2a, sími 685055, Fax 674969 : ’ ÆVINTÝRAFERÐIRINPLAND/KENYA Indland: Lagt af stað 17. ágúst í 21. langferðina með „R0SA BUSSARNA" Ferðaáætlun: Svíþjóð - Þýskaland - Tékkland - Ungverjaland - Rúmenía - Búlgaría - Grikkland - Tyrkland - Sýrland - Jórdanía - Egyptaland. (Svíþjóð-Egyptaland ca 2 mán.). í Egyptalandi velur þú sjálf(ur) hvort þú vilt aka heim með rútunum (ca. 10 dagar styttri leið) eða fljúga með til Indlands. Kenya: 30. okt. leggjum við af stað með þrjá torfæruflutningabíla til Kenýa gegnum Austur-Evrópu - Grikkland - frá Griklandi förum við gegnum Krít til Alexandríu í Egyptalandi, og þaðan til Norður - Súdan - Eþíópíu til Kenýa (ca. 2 mán.). Efþú hefuráhuga á spennandi og ödruvísi ferð ,þá hringdu í síma 90 46 60 34007 eða skrifaðu til PINK CARAVAN, 860 20 Njuranda, Svíþjóð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.