Morgunblaðið - 28.05.1993, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.05.1993, Blaðsíða 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUÐAGUR 28. MAÍ 1993 -1“ Jasshátíð, marahon og skoðunarferðir EGILSSTAÐIR er ungur bær og byggðist við krossgötur mikilvægra samgönguleiða. Hér myndaðist þjónustukjarni fyrir um 50 árum og hefur stækkað ört svo Egilsstaðbær er nú 1.500 manna bæjarfélag. Enn batnar aöstaöa á Klaustri í GÆR, 27.maí var tekin í notkun nýbygging við hótelið á Kirkjubæj- arklaustri. Hún er 64 fermetrar, nokkurs konar tengibygging við þijár herbergisálmur sem fyrir eru. Húsið er á tveimur hæðum og neðri hæðin er tilbúin núna. Þar er gestamóttaka, veitingasal- ur, fundarsalur, bar og aðstaða fyr- ir starfsfólks. Stefnt er að því að taka efri hæðina í notkun næsta ár en þar verða 22 herbergi. Með tilkomu þeirra verður hótelið hvað gistingu varðar það þriðja stærsta á landinu utan Reykjavíkursvæðis. Nú hafa opnast geysimargir möguleikar til funda og ráðstefnu- halds á Klaustri en öll aðstaða er fyrsta flokks og opin allt árið. Gist- ing er í 36 tveggja manna herbergj- um með baði og síma. Á sumrin er einnig að fá gistingu í 17 her- bergjum í skólanum, og einnig í svefnpokaplássi. Yeitingasalurinn í nýbyggingunni er fyrir 130-140 manns en á sumrin er einnig 100 manna veitingasalur í skólaum. Við hótelið er sundlaug og opin yfir sumarið. Það er hlutafélagið Bær sem er eigandi hótelsins en Ferða- skrifstofa íslands sér um rekstur- inn, Edduhótel allt árið. ■ Hanna Hjartardóttir, Kirkjubæj- - arklaustri UPPhátt - nýtt blað í innanlandsflugi EINAR Sigurðsson, forstöðumaður upplýsingadeildar Flugleiða og Haraldur J. Hamar útgefandi Iceland Review útgáfunnar hafa skrif- að undir samning um nýtt blað UPPhátt sem verður dreift til farþega í innanlandsflugi. Fyrsta blaðið kemur út í næsta mánuði og til að byrja með annan hvern mánuð. ísraelar á ráðslefnu YOSSI Sarid, umhverfisráð- herra ísraels verður fyrstur ísraelskra ráðherra til að taka þátt í alþjóðlegri ráð- stefnu sem verður haldin í arabalandi. Það er umhverf- isráðstefna í Marokkó sem hefst nú um mánaðamótin. Sendinefndir verða einnig frá Libyu og Alsír, en það er Alþjóðabankinn sem skipulegg- ur ráðstefnuna. í frétt Jerusal- em Post kemur ekki fram hvort fleiri Arabaríki senda fulltrúa til hennar. ■ Ungbarnadauði í nokkrum löndum Af þúsund lifandi faeddum bömum Sviss 7 Kanada 7 Hongkong 6 Ástralía 7 Japan 5 Taiwan 5 Suður-Kórea 21 Brunei 8 Tyrkland 62 Saudi-Arabía 58 Malasía 13 Brasilía 57 Maldiveseyjar 31 Egyptaland 57 Mongólía 60 Sri Lanka 21 Víetnam 43 Kenýa 64 Nígería 96 Nepal 118 Mexíkó 36 Bandaríkin 8 Kína 27 Flugleiðir telja að með þessu nýja blaði geti þeir skapað farþeg- um í innanlandsflugi - sem eru að meðaltali um 250 þús. árlega af- þreyingu og upplýsingar. Áhersla verður lögð á fallegar ljósmyndir og áhugaverðar greinar. Vinnuhóp- ur sér um útgáfuna og í honum eru Ásgeir Friðgeirsson, ritstjóri, Páll Stefánsson, ljósmyndari og Magnús Pálsson hönnuður. ■ Haraldur J. Hamar og Einar Sigurðsson skrifuðu undir samninginn um borð í einni FokkerðO vélum en í þeim mun blaðið liggja frammi. Bændaferð til Skotlands SEX DAGA bændaferð til Skotlands á vegum ferðaskrifstofunnar Úrval/Útsýn verður farin 22.júní n.k. og er Jónas Jónsson, búnað- armálastjóri fararstjóri. Almennt verð er 55.810 en staðgreitt 53.145 kr. Innifalið er flug og ferðir til og frá flugvöllum, gisting í tvíbýli, morgunverður, fararstjórnin, ferð á búgarð og í hálönd- in, ferðir og aðgangur að Royal Highland Show og allir skattar. Ferðatilhögun er í stuttu máli sú að flogið er til Glasgow og ekið til Edinborgar og gist þar alla dagana. Heimsóknir verða á búgarð og ekið um hálöndin: Farið á Royal Hichland Show og eirinig eru ýmsar kynnisferðir og skoskt hátíðakvöld. ■ Ferðaþjónusta er stór atvinnu- SSS grein og hefur lega bæjarins O mikið að segja en ekki síður stórbrotin náttúrufegurð. Hall- ormsstaðaskógur, Snæfell, Hengifoss, Lagarfljótið, Hér- aðssandurinn, Borgarfjörður S5 Eystri og Seyðisfjörður eru inn- o an seilingar. En það er líka líf ftftl og fjör í bænum sjálfum. Hér er mjög gott tjaldstæði, hótel, 2 gistiheimili, örstutt í golfvöll, lax- og silingsveiði. Það verður nóg að gera fyrir ferðamenn í nágrenni Egilsstaða í sumar og hver stórat- burðurinn rekur annan og verður hér tæpt á nokkrum. Ferðaþjónustumenn hafa kynn- ingu á þjónustu sinni í bytjun júní. Vonast er til að sem flestir heima- menn noti tækifærið og skoði með eigin augum það sem verið er að gera í ferðaþjónustu á Héraði. Vert er að geta að tveir útimark- aðir verða í bænum og opnir alla daga. Á öðrum er lögð áhersla á að selja einungis vörur sem unnar eru í fjórðungnum. Eru það m.a minja- gripir úr beini, hreindýrahomum og skinni, fatnað og heimafengin mat- væli s.s. broddmjólk, silung og síð- sumars garðávextir. Hinn útimark- aðurinn verður með svipuðu sniði og áður, þar er ýms varningur seldur í bland við heimaunnar vörar. Veit- ingasala er í tengslum við útimarkað- ina og til stendur að halda reglulega þemadaga þar sem áhersla er lögð á ákveðna landbúnaðargrein t.d. mjólkurvörar, hesta, skóga o.s.frv. Verður þá slegið upp grilli og ýmsum uppákomum. Torfæra, djass og nikkaramót 19. júní verður efnt til Torfæra- keppni sem hefur verið haldin hér nokkur sl. ár við sívaxandi vinsæld- ir. Keppnin er liður í íslandsmótinu og er haldin í námu þar sem efnið í nýja flugvöllinn var tekið. Eru aðstæður þar hinar ákjósanlegustu. Dagana 24.-17. júní verður Jasshátíðin sem hef- ur verið á_ hveiju ári frá 1988. Árni ísleifsson stend- ur fyrir henni að vanda. Fyrsta kvöldið leikur Norr- æni jasskvintettinn: Sigurð- ur Flosason, Ulf Adaker, Lennart Gimmann, Eyþór Gunnarsson, og Pétur Os- lund. Daginn eftir verða vinir Dóra, ásamt austf- irsku blúsbandi. Laugar- dagskvöldið 26. júní leikur Tríó Peter Gullin, en Jassklúbbur Egilsstaða fékk styrk frá Norræna Menningar- sjóðunum vegna komu þeirra. Sama kvöld syngur ARNÍS jasskórinn ásamt Viðari Alfreðssyni trompet- leikara og Áma Scheving víprafón- leikara. Stjórnandi er Ámi Isleifsson. Lokatónleikar verða á sunnudeginum og leika Djasssmiðja Austurlands og Sepett Tómasar R. Einarssonar, söngkona Móeiður Júníusdóttir. Maraþon og harmonikumót Áfram mun hressileg tónlist hljóma vikuna á eftir, þá verður landsmót harmonikkumanna á Hótel Valaskjálf. Hingað flykkjast nikkar- ar af öllu landinu 1. júlí og um kvöld- ið verður landssambandsfundur. Á Héraðsblót og dans á Hótel Valaskjálf Gistiheimili og veitinga- sala við rætur Hengils NÝLEGA tók til starfa gistiheimilið Nesbúð við rætur Hengils og þar er gistipláss fyrir 80 manns í bústöðum sem áður hýstu starfs- menn við Nesjavallavirkjun. Tveir framkvæmdamenn Arngrímur Hermannsson og Guðmundur Halldórsson hafa tekið húsin á leigu og hyggjast reka þar ódýrt gistiheimili allan ársins hring. Verð fyr- ir herbergi með uppbúnu rúmi er 1800 kr. en fyrir svefnpokapláss þúsund krónur. Máltíðir verða einnig ódýrar eða innan við tvö þús- und krónur fyrir þríréttaða. Þeir félagar leigðu húsin af Hita- veitunni og telja að þetta gistiheim- ili geti bætt úr brýnni þörf fyrir ódýra gistingu í nágrenni Reykja- víkur. Ferðablaðið skrapp austur og skoðaði vistarverur og eru öll herbergi lítil og snyrtileg, í hverju er rúm, borð og stóll. Snyrting fyr- ir hveija tuttugu í húsi eru 2 kló- sett og 4 sturtur. í sameiginlegri setustofu verður sjónvarp, aðstaða er fyrir 40-50 manna fundi eða ráðstefnur, heitur pottur í garðinum og útsýni til Hengilsins fagurt. Kaffi og skyndi- réttir og kökur verða til reiðu allan daginn. Nesbúð er 30 km fjarlægð frá Reykjavík og sjá þeir Guðmundur og Hermann fyrir sér að á veturna muni útivistarmenn og vélsleða og skíðafólk geta nýtt sér aðstöðuna í Nesbúð. Mjög góðar merkingar sem Hitaveitan hefur staðið fyrir á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.