Morgunblaðið - 28.05.1993, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1993
C 5
um eða því sem hann er að gera
heim í stofu, oft að viku liðinni ef
biðlistinn er ekki langur.
Einar segir erfitt að keppa við
marga erlenda framleiðendur því
stundum eru húsgögnin ódýrari
komin hingað til lands en efnis-
kaupin hér heima. Einar hefur því
einkum verið að smíða dýr og vönd-
uð húsgögn og hann ber sig vel,
segir að sér hafi hingað til tekist
að keppa við erlenda markaðinn.
— Hvernig húsgögn vill fólk
núna?
„Það er visst afturhvarf til fortíð-
ar, línurnar að verða aðeins meira
gamaldags og mér fínnst bera æ
meira á því að gamlir munir slæð-
ist með sem fólk vill láta gera upp
til að blanda með þessu nýja.
Fram að þessu hefur leður verið
áberandi, það lítur út fyrir að fólk
mikli fyrir sér að velja áklæði. Því
fínnst erfitt að finna áklæði sem
hentar og fellur að því sem fyrir er.“
— Hvert er meðalverð á þriggja
sæta leðursófa hjá þér?
„Það er mjög misjafnt og fer
eftir vinnu og efni. Líklega er ekki
óalgengt að verðið sé í kringum
110-115.000 kr. fýrir leðursófa.
Þetta er líka mismunandi eftir þvf
hvort keypt er beint frá mér eða í
gegnum Heimilisprýði, sem hefur
selt töluvert fýrir mig.“
— Hefurðu nóg að fást við?
„Minn vinnudagur er langur og
oftast er ég að um helgar líka.
Þetta spyrst út og bara hér í göt-
unni sem ég bý hef ég smíðað hús-
gögn fyrir nokkur heimili. Vinir og
kunningjar hafa látið smíða fýrir
sig og þetta hefur undið upp á sig
smám saman.“
Þegar Einar er spurður hvort
hann hafi smíðað allt í húsið sitt
kemur á daginn að hann hefur gert
þó nokkuð af því, en á mikið eftir.
„Þetta er allt spuming um forgang.
Reikningar hafa hingað til setið
fyrir og á meðan það er svo verður
mitt hús að bíða. En við hjónin erum
búin að plana sitthvað sem kemur
með tímanum."
Þegar Einar er spurður hversu
langan tíma það taki hann að smíða
góðan leðursófa segir hann það
mismunandi. „Það eru engar staðl-
aðar stærðir sem ég er með og ef
ég er að gera sófa sem ég á ekki
málin að og er óvenjulegur getur
vinnan tekið allt að hálfum mánuði
en líka skemur."
Hann segist leggja mikið upp úr
því að vanda vinnubrögðin, forðast
spónaplötur og halda sig við kross-
við í grindurnar. í stað þess að
nota heftibyssu skrúfar hann og
neglir að gömlum sið og tvísaumar
þegar kemur að áklæðinu.
— Hefur fólk leitað til þín með
óframkvæmanlegar hugmyndir?
„Það hefur komið fyrir tvisvar
síðan ég byrjaði og önnur óskin var
sófi sem ég treysti mér til að smíða
í dag. Maður er alltaf að læra og
verða sjóaðri í þessu.“ ■
grg
ina. Ör tækniþróun hefur orðið til
þess að börn eru ekki lengur sér-
lega eftirsóttir starfskraftar, og
vélar hafa að miklu leyti tekið við
af mannshöndinni.
Kynin í ólíkum störfum
Samkvæmt heimildum Daglegs
lífs er algengast að unglingar,
12-16 ára, fari í sveitavinnu, fari
þau í sveit á annað borð. Svo virð-
ist sem algengast sé að stúlkur
passi böm og drengir aðstoði í fjósi,
fjárhúsi og vinni jafnvel á dráttar-
vélum. Matvinnungur er það kall-
að, þegar ungmennin vinna fyrir
fæði og húsnæði og algengara mun
vera að stúlkur séu í sveit á þeim
kjörum. Strákar virð-
ast oftar ráða sig
uppá kaup, 20-30
þúsund krónur á
mánuði auk fæðis og
húsnæðis.
Sumir sem búa í
sveit, hafa tekið þann
kost að skipuleggja
námskeið af ýmsu
tagi fyrir ungviðið.
Er þar fýrst og
fremst lögð áhersla á
félagslegan þroska,
útiveru og íþróttir, en
minni áhersla eða
engin lögð á að kynna
hefðbundin sveita-
störf.
Hrönn Hafsteins-
dóttir annast skrán-
ingu þeirra sem fara
á sumardvalarheimili
í Biskupstungum, en það er dæmi
um heimili sem hefur leyfi mennta-
málaráðuneytis til starfseminnar.
Er þetta 9. starfsár heimilisins og
að sögn Hrannar er skipulögð dag-
skrá þar fyrir börnin frá morgni
til kvölds. Áhersla er lögð á reið-
mennsku og íþróttir og kennsla í
hvoru tveggja á hveijum degi. Á
liverju kvöldi eru síðan kvöldvökur.
1.600 - 2.000 krónur á dag
Þegar illa viðrar eiga börnin
þess kost að leika sér inni í leiksal
sem útbúinn hefur verið úr gam-
alli hlöðu. Sumardvalarheimilið er
ætlað börnum á aldrinum 6-12 ára
og sagði Hrönn að yfirleitt dveldu
þau þar í 7-10 daga. Alls er pláss
fyrir um 30 börn og er miðað við
að hver starfsmaður annist aldrei
fleiri en fimm börn. Verð fyrir
sólarhringsdvöl á heimilinu er
2.000 krónur í júní og júlí, en ívíð
ódýrara í ágúst, eða 1.600 krónur.
Þar kynnast börnin sveitastörfum
ekki að öðru leyti en því að þau
skreppa í heimsókn á sveitabæ þar
sem er blandaður búskapur.
Hefur milligöngu um sveltadvöl
„Nær 200 aðilar sem hafa áhuga
á að fá böm í sveit til sín, hafa
sótt námskeið og fengið leyfi til
þess,“ sagði Halldóra Ólafsdóttir
ritari Stéttarsambands bænda,
sem skipuleggur námskeið ásamt
landssamtökum vistforeldra í sveit.
Á námskeiðunum fjalla félagsráð-
gjafar um ýmislegt sem tengist
vistun barna, næringarfræðingur
fjallar um mataræði, kennd er
hjálp í viðlögum og skýrt frá trygg-
ingarmálum svo eitthvað sé nefnt.
Fyrsta námskeiðið var
haldið 1989 og hafa
10 verið haldin síðan.
Stéttasamband
bænda er einn þeirra
sem hefur milligöngu
um sveitadvöl barna.
Þar eru á skrá börn
sem óska eftir að
komast í sveit og
einnig þeir sem búa í
sveit og vilja fá börn
til sín. Að sögn Hall-
dóru hafði sambandið
milligöngu um sveita-
dvöl um 40 barna.
„Gengið er út frá því
að barnið verði eins
og einn af fjölskyld-
unni meðan það dvel-
ur í sveitinni og meðal
þess sem krafist er
áður en fólk fær leyfi
til að taka börn í sveit, eru með-
mæli frá barnaverndarnefnd auk
heilbrigðisvottorðs. “
Viðhorf barna til sveitar eru
sjálfsagt jafn misjöfn og viðhorf
þeirra sem búa í sveit til borgar-
barnanna. Ein húsmóðir í sveit sem
við ræddum við sagðist löngu vera
hætt að fá til sín borgarbörn. í
mörg ár hafði hún kaupamenn,
meðan unglingar nenntu að vinna,
eins og hún segir. Nú væri annað
uppi á teninngnum og krakkar virt-
ust aðeins vilja horfa á sjónvarp
og spila tölvuleiki. Önnur húsmóð-
ir í sveit, sem tekur tæpar 1.500
kr. á dag fyrir að hafa börn hjá
sér sagðist hafa hina mestu
ánægju af börnunum. „Hér hafa
alltaf verið börn á sumrin og mér
finnst tilheyra sumarkomunni að
fá þau hingað í sveitina." ■
Brynja Tomer
Matvinnungur
er það kallaö,
þegarung-
mennin vinna
fyrir f æði og
húsnæði og
algengara
mun vera að
stúlkur séu í
sveit ú þeim
kjörum
Leiðsögn í
mannlegum samskiptum
„Hinn eiginlegi ég geri svo vel að gefa sig fram!“ er heiti bókar,
sem Samhjálp hefur gefið út í þýðingu Gunnbjargar Óladóttur.
Höfundarnir John Powell og Loretta Brady, hafa tekið saman 25
grundvallaratriði, sem varða tjáskipti manna í milli.
Vakin er athygli á þeim hættum
og öngstígum, sem géta auðveld-
lega leitt okkur af leið í viðleitni
okkar við að deila lífi með öðrum.
Á kápu segir að takist lesanda að
öðlast skilning á og tileinka sér
eitthvað af þeirri visku, sem felst
í þessum 25 atriðum, leiðir það án
nokkurs vafa til aukinnar persónu-
legrar hamingju og þroska.
Bókinni er skipt í fjóra megin-
kafla: Væntingar og viðhorf nauð-
synleg góðum tjáskiptum; Að læra
að miðla sjálfum sér á árangursrík-
an hátt; Áð læra að taka á móti
því sem aðrir vilja deila með okkur
á árangursríkan hátt; Almennar
æfingar sem stuðla að gagnkvæm-
um nánum tjáskiptum.
John Powell hefur háskólagráðu
í fombókmenntum, ensku, sálar-
fræði og guðfræði og er kennari,
fyrirlesari og höfundur fjölmargra
bóka. Hann er háskólaprófessor í
Chieago. Loretta Brady er sálfræð-
ingur og fjölskylduráðgjafi.
„Bókin er einfaldlega leiðsögn í
mannlegum samskiptum/1 segir
þýðandinn Gunnbjörg Óladóttir.
Hún segir að bækur Johns Powells
hafi rekið á fjörur sínar fyrir
nokkrum árum af einskærri tilvilj-
un „Bækur hans hafa haft áhrif á
einkalíf mitt en þær hafa líka ver-
ið mér stoð í starfí sem ráðgjafi á
meðferðarheimili Samhjálpar í
Hlaðgerðarkoti ,sem er fýrir alkó-
hólista og fíkniefnaneytendur.
Bókin hefur þegar verið notuð í
meðferðardagskrá þar og er liður
í uppbyggingu þeirra sem glíma
við alkóhólisma, en hún á líka er-
indi við þá sem eitthvað vilja bæta
líf sitt í hvaða mynd sem er. Varp-
að er fram spumingum sem leita
á alla og skýra atriði sem við fyrstu
sýn virðast afar hversdagsleg og
þýðingarlítil en era þó oft og tíðum
áhrifavaldur í hamingju okkar eða
óhamingju," segir þýðandinn. ■
J1
Liðagigt-
arsjúklingar
völdu garðyrkju
Samtök liðagigtarsjúklinga í
Bandaríkjunum gengust nýlega fyrir
könnun þar sem sjúklingar voru
spurðir hvernig þeir kysu að veija
tómstundum sínum. Um það bil 62%
aðspurðra sögðust hafa áhuga á
garðyrkju, ekki einungis vegna lík-
amlegrar áreynslu og andlegrar vel-
líðunar heldur fannst þeim þeir ráða
við að vinna við garðyrkjustörf.
Þetta á eflaust líka við um einhveija
aðra gigtarsjúklinga en kann þó að
krefjast breyttra vinnuaðferða.
I nýjasta hefti Prevention gefur
Teresa Brady sem er læknaráðgjafi
liðagigtarsamtakanna eftirfarandi
ráðleggingar:
Þegar verið er að planta er al-
gengt að áreynslan sé á fingur og
úlnliði. Brady ráðleggur sjúklingum
sínum að endurnýja sköft á garð-
áhöldum og nota endilega löng sköft
og breið svo þeir þurfí ekki að beygja
sig mikið og gripið verði mýkra.
Liðagigtarsjúklingar sem eru slæmir
af liðagigt í höndum ættu að nota
báðar hendur og reyna að láta líkam-
ann allan vinna við gróðursetning-
una. Þá er betra fyrir þá að liggja
ekki á hnjánum heldur nota stól og
hentugast væri að hafa hann á hjól-
um og spyrna sér áfram.
Þá er ráðlagt að gróðursetja eftir
mikla rigningu eða vökva vel áður
en hafist er handa í garðinum því
ef moldin er blaut lætur hún betur
að stjórn. ■
y) í lok síðasta árs var fjárfest í nýjum og
LiíiQ afkastamiklum framleiðsluvélum.
p) í byrjun þessa árs hófst uppbygging gæða-
dJQ stýrikerfis með þátttöku í verkefninu
„Frumkvæði og framkvæmd".
skilaði 12% VERÐLÆKKUN á Plastos heimilis-
plastpokum 1. mars sl, þrátt fyrir kreppuna.
■■.■'■"DaDgstogs
Sími 67 1900
Haltuþér hraustum með
Multi Vit
MULTI VIT
NÁTTÚRULF.GT
fifl töflur
frumskógi vítamína og bætiefna getur
verið erfitt að velja rétta glasið. Glösin með
gula miðanum tryggja að þú fáir vönduð,
náttúruleg bætiefni, sem sett eru saman með tiUiti
til íslenskra aðstæðna og samþykkt af lyfjanefhd.
Þegar þú tekur MULTIVIT færðu 22 valin
bætiefni í kroppinn, 12 vítamín og 11 steinefni.
Með því að taka MULTIVIT daglega, byggir þú
líkamann upp og stuðlar að heilsu og hreysti.
Guli miðinn try'ggir gæðm.
Fœst i apótekum og heilsuhillum
matvtíruverslana.
dlsuhúsið
Kringlunni sími 689266 Skólavörðustíg sími 22966