Morgunblaðið - 28.05.1993, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 28.05.1993, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1993 —------:---:--------------------------------- C 11 Farangursrými er ekki stórt ef öll 10 sætin eru notuð. Það eykst þó að mun ef aftasti bekk- urinn er lagður fram og þá eru samt eftir 7 sæti. Sæti eru fyrir 10 manns í bíln- um og hægt er að leggja niður sætisbök og nota sem borð og haga uppröðun á ýmsa vegu. fímm metra langur, einum metra lengri en margir algengir bílar af millistærð og því ekki umtalsvert erfíðari en þeir í athöfnum borga- rumferðarinnar. Fjölhæfur Verð á Volkswagen Caravelle með dísilvél og aldrifi er nærri 2,6 VW CARAVELLE í HNOTSKURN Vél: 2,4 lítra, 5 strokka og 78 hest- afla dísilvél. Sítengt aldrif með seigýutengsli. Fimm gíra handskipting. Hómorkshraii: 139 km. Hröóun í 80 km úr kyrrstöðu: 14,8 sek. Vökvastýri. Samlæsing. Útvarp. Speglar stillanlegir innan frá. Lengd: 5,05 m, breidd: 1,84 m, hæð: 1,94 m. Hjólahaf: 3,32 m. Þyngd: 1.740 kg. Burðargeta: 900 kg. Dróttargeta: Tvö tonn. Stærð eldsneytistonks: 80 lítrar. Eyðsla í borgarakstri: 9,3 lítrar. Staðgreiðsluverð: 2.615.000 kr. Umboð: Hekla hf., Reykjavík. milljónir króna. Sé bætt við út- varpi, rafdrifnum rúðum að framan og snúningsstólum hækkar verðið um liðlega 100 þúsund krónur og ef menn vilja lengja þennan lista má nefna hátt þak kr. 130.000, sóllúgu á kr. 55.000 og málmlit á kr. 120.000. Verðið á Caravelle er svipað og á t.d. Mitsubishi L-300 en segja má að Caravelle sé á marg- an hátt fjölhæfari bíll og rúmbetri. Sjálfsagt er að ráðleggja notkun á dísilbíl ef menn aka mikið enda eyðir bensínútgáfan 10 til 16 lítrum eftir aðstæðum en hún kostar held- ur meira eða um 2,7 milljónir. ■ Jóhannes Tómasson Morgunblaðið/Júlíus dugar einnig ágætlega vel í tor- færu. Langt hjólahafið gerir það þó að verkum að ekki þýðir að bjóða bílnum hvað sem er, á hann verða ekki lagðar sömu þrautir og venju- legan jeppa. En duglegur er hann engu að síður. Caravelle hefur fímm gíra hand- skiptingu og er hún mjög liðleg. Stöngin mætti þó vera ögn hærri eins og áður er nefnt. Er það sami galli og á gamla „rúgbrauðinu" sem leysa mátti með framlengingu á stönginni. Viðbragð er eins og við má búast af 78 hestafla dísilvél og 1,6 tonna þungum bíl, ekkert sér- stakt en skiptingin býður þó uppá að aflið sé vel nýtt og góðum snún- ingi haldið ef á þarf að halda. Úti á vegi er vinnslan með ágætum og heldur bíllinn sæmilegu skriði þótt vegur sé á fótinn. íjöðrunin er mjúk og fer vel með bílinn á holótt- um og ósléttum vegum og virðist lítil hætta á skyndilegum og óvænt- um hliðardansi þrátt fyrir slæma vegi og beygjur. í bæjarakstri er bíllinn merkilega lipur, auðvelt að koma honum í stæði og athafna sig enda hafa sendibílstjórar hælt hon- um fyrir þessa lipurð. Bíllinn er VOLKSWAGEN „rúgbrauð“ er löngu þekktur að dugnaði og endingu hérlendis og hafa arftakar hans ekki síður staðið í stykkinu. Fjöl- breytni sendi- og ferðabílanna frá Volkswagen fer líka sífellt vax- andi og má segja að í þessum bíl geti menn fundið einhverja gerð sem hæfir hvort sem er atvinnu sinni eða fjölskyldunni. í dag heita þessar gerðir Transporter og Caravelle og hefur áður verið gerð grein fyrir Transporter á bílasíðum Morgunblaðsins en í dag verður Caravelle gerðin skoðuð. Um er að ræða 10 manna bíl með dísilvél og aldrifi en annars eru þessir bílar framdrifnir. Bensínvél er einn- ig fáanleg og kosta þessir bílar 2,5 til 2,7 milljónir króna, staðgreidd- ir. Eindrifsgerðin kostar rétt rúmar tvær milljónir króna. Volkswagen Caravelle er ósköp snyrtilegur bíll að utan og teljast' línur hans fremur kantaðar en ávalar. Stuðarar geta ver- ið hvort sem er samlitir eða svartir. Vélarhúsið er mjög stutt, örlítið boga- dregið, og rís framendinn síðan upp frá vatnskassa- hlífínni í hallandi línu upp á þakbrún. Afturendinn er hefðbundinn eins og á hveijum öðrum sendibíl eða jeppa og þegar litið er á hlið bílsins eru stórar rúðurnar og langt hjóla- hafíð einkennandi en það er 3,32 metrar á lengri gerðinni sem hér er til umræðu. Álitlegur hið innra Innri gerð bílsins er öll hin álit- legasta. Sætin eru góð og öll með beltum og höfuðpúða og lítil geymsluhólf við enda bekkjanna. Mælaborð er nokkuð kantað útlits en skýrt og gott og auðvelt að seil- ast í alla rofa. Gírstöngin mætti þó vera örlítið hærri. Ökumaður situr vel og sér vel til allra átta og það er einn af skemmtilegum kostum bíls sem þessa hversu hátt menn sitja í honum. Sökum þess hve framendinn er aflíðandi er erfitt að átta sig nákvæmlega á stærð hans en það kemur með dálítilli æfíngu. Helsti gallinn við aðstöðu öku- manns er að ekki skuli vera fáan- legt veltistýri, það er eins og ein- hvern herslumun vanti á að öku- maður finni hina réttu sætastillingu miðað við hvernig hann tekur best á stýrinu. Sætaskipan er þannig að aftast er þriggja manna bekkur, síðan tveggja manna og loks aftur þriggja manna bekkur og tveir stólar frammí en þá er farang- ursrými lítið. Hægt er að breyta þessari skipan á ýmsa vegu, fella niður aftasta bekkinn og stækka farangursrýmið og vera samt með 7 manna bíl, fella niður sætin og nota sem borð eða koma sætum þannig-- fyrir að sofa megi í bíln- um. Einnig má fá snún- ingsstóla í stað hefð- bundinna framsæta. Með öðrum orðum er skipanin hið innra mjög ijölbreytt og gerir ýmsa notkun mögulega og er því Cara- velle sannkallaður fjöl- nota-bíll. Caravelle bíllinn sem reyndur var er með 2,4 lítra, fimm strokka og 78 hestafla dísilvél. Hún er með hraðforhitun fyrir kaldræsingu. Þetta er þýðgeng vél en verður samt nokkuð hávaðasöm þegar ekið hefur verið lengi, þá er eins og menn taki allt í einu eftir henni. Mætti eflaust bæta úr þessu með meiri teppalögn milli vélarhúss og farþegarýmis. Aldrif meft seigjutengsli En það sem Caravelle státar af er aldrifið, synero, eins og það er nefnt á erlendu máli. Þetta er með öðrum orðum sítengt aldrif sem skilar vélarorkunni jafnt til allra hjóla. Byggist það á seigjutengslinu sem stjómar orkuflutningi til aftur- hjólanna. Þegar mismunur verður á snúningshraða aftur- og fram- hjóla, jafnvel óverulegur, er hann strax leiðréttur í seigjutengslinu og gerist það mjúklega og rykkjalaust, án þess að þess verði nokkuð vart. Með þessum búnaði er bíllinn mjög stöðugur og rásfastur jafnt á malarvegi sem ís og snjó og hann Rúmgóiur Fjölhæfur Viðbragö Vélarhljóð Fjölhæfur Volkswagen Caravelle með aldrifi Með Islandsmeistar- anum í Metro-inum ÞAÐ er ekkert grín fyrir óvanan mann að setjast upp í einn kraftmesta rallbíl landsins, Rover Metro 6R4 hans Ásgeirs Sigurðsson og Braga Guð- mundssonogeigaþaðfyrirhöndumaðverafarþegiáfleygiferðáhandónýt- um malarvegi uppi á Geithálsi. En það ótrúlega er að eftir fyrstu ferðina, sem sneri öllu innvortis við og minnti helst á fy rstu salí bununa í rússíbanan- umíKaupmannahöfn,fylltistundirritaðuröryggiskenndogvildihelsthalda þessu áfram sem lengst. Það er ekki hlaupið að því að kom- ast inn í bílinn fyrir það fyrsta. Þetta er sérsmíðaður rallbíll sem íslands- meistararnir í ralli, Ásgeir og Bragi, keyptu frá Dubai fyrir fjórum árum. Framleiddir voru 200 slíkir bílar, en aðeins sjö með stýrið vinstra megin, og er bíll þeirra félaga einn þeirra. Eldskírnln Þegar bíllinn hafði verið skoðaður hjá Bifreiðaskoðuninni var ætlunin að blaðamaður upplifði raunveruleg- an rallakstur á sérleið. Það var Is- landsmeistarinn sem ætlaði að veita mér eldskírnina. Sætin í rallbílum eru þröng og menn skorðast af í þeim. Ökumaður og félagi hans eru njöivaðir niður í sætið með beltum sem líkjast helst fallhlífartygjum. Bíllinn er hrár að innan, bara stálið og sætin og þar sem aftursæti eru í venjulegum bílum er í Metro-inum öskrandi 275 hestafla rokkur og leggur frá honum sterka bens- ínstybbu. Báðir eru í eldtraustum samfestingum og með hjálm á höfði, og til að geta haft tjáskipti í þessum vélarheimi hafa þeir talkerfi í hjál- munum. Þegar komið var að lokaða malar- veginum á Geithálsi gaf Ásgeir hraustlega í og við þeyttumst eftir bugðóttum veginum á undrahraða og var ekki laust við að ég bölvaði sjálfum mér í hljóði fyrir uppátækið. En þegar á leið og mér varð ljóst að Ásgeir var meira en ágætlega að sér í stjórn ökutækisins fylltist ég öryggiskennd og varð hlutlaus þátt- takandi í akstrinum, hætti að vera farþegi. Ásgeir Sigurðsson við stjórntækill. Morgunblaðið/GunnlaugurRögnvaldsson Metro-inn á fleygiferð á Geithálsi. Aftstoftarökumaðurinn Hlutverk þess sem í farþegasætinu situr í rallkeppni er að vera augu og hugur ökumannsins. Fyrir hverja keppni skrifa aðstoðarökumenn niður leiðarlýsingu á þeim keppnisleiðum sem eknar eru. Þegar í keppni er komið les aðstoðarökumaðurinn upp leiðarlýsinguna og segir ökumannin- um að framundan sé kröpp beygja og ökumaðurinn fer í beygjuna án þess að slá af. Fullkomið traust verð- ur að ríkja á milli félaganna og engu má skeika í mati á aðstæðum. Bíllinn tuskast til í beygjum samkvæmt miðflóttaaflinu en ökumaðurinn snýr á það með stýrinu. Aðstoðarökumað- urinn er einnig tímavörður á sérleið- um og hefur skikk á öllu sem viðkem- ur keppninni. Enginn fjölskyldubíll Metro-inn þeirra félaga er ekki sérlega sniðugur fjölskyldubíll en sem rallbíll í flokki breyttra bíla, með vélarafl af þessu tagi og drif á öllum hjólum, er hann foringi. Lancia bíll Ævar Sigdórssonar og Ægis Ármannssonar, sem keyptur var á þessu ári, á þó möguleika á verðlaunasæti, en það tekur tíma að læra á nýjan bíl og Ásgeir og Bragi eru líka þannig gerðir að þeim er illa við að vera ekki fyrstir í mark. Texti: Guðjón Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.