Morgunblaðið - 28.05.1993, Síða 12
12 0
íam táoMúNMÁ&ið f^flfðflÍ[3ii?AcÍkííþgðs1 fi-/'];); 111
Offita
hættulegra
fyrirbærí
en akstur?
DANSKIR bílstjórar telja að offita
eða gönguferð um bæinn séu
hættulegri fyrirbæri en akstur.
Þetta kemur fram í rannsókn sem
danska Umferðarrannsóknaráðið
gekkst fyrir. 600 Danir látast ár-
lega í bílslysum og yfir 10 þúsund
manns slasast.
Rannsóknin er hluti af samevr-
ópsku verkefni sem hlotið hefur
nafnið Sartre. Umferðarsérfræðing-
ar í fímmtán evrópskum löndum taka
þátt í verkefninu sem m.a. er ætlað
að varpa ljósi á þann mikla mun á
ij'ölda umferðarslysa eftir löndum og
að vera grunnur að samræmingu
ólíkra umferðarreglna sem í löndun-
um gilda.
Aðrir ökjpmenn ökufantar
I rannsókninni lýstu 1.269 danskir
ökumenn viðhorfum sínum til um-
ferðar og umferðaröryggis og svör-
uðu þeir 66 spurningum, m.a. um
áfengisneyslu, notkun bílbelta og
hraðakstur. Niðurstöðurnar leiða
m.a. í ljós að ökumenn hafa ekki
miklar áhyggjur af áhættunni sem
er samfara akstri. Margir aka of
hratt og án bílbelta en vega það
samt og meta hvar og hvenær þeir
gera það.
Samkvæmt rannsókninni aka 40%
ökumannanna hraðar en leyfilegt er
úti á þjóðvegum, en aðeins 3% þeirra
viðurkenna hraðakstur í íbúðahverf-
um. Hins vegar eru 93% ökumann-
anna á þeirri skoðun að aðrir öku-
menn en þeir sjálfír aki oftast eða
ávallt hraðar en leyfilegt er.
Strangarl reglur
Þriðjungur aðspurðra kvaðst aldr-
ei aka bíl eftir neyslu áfengis. 4%
viðurkenna að hafa ekið bíl undir
áhrifum áfengis síðastliðinn mánuð.
Helmingur aðspurðra var sáttur við
núverandi reglugerðir um leyfílegt
magn áfengis í blóði ökumanna, en
25% þeirra töldu að herða ætti regl-
urnar. ■
Hærri álögur á gamla
bíla sem menga meira
SAMTOK danskra ökutækjaeigenda, FDM, lét nýlega gera viða-
mikla könnun um magn mengandi lofttegunda í útblæstri bíla og
komst að þeirri niðurstöðu að bílar sem hvorki eru búnir hvarfa-
kút né rafstýrðri bensíninnsprautun eru mestu mengunarvaldarn-
ir. 10% bílaflotans, elstu bílarnir, eiga sök á 40% mengunarinnar
segir í niðurstöðum FDM. Samtökin leggja til að eigendur eldri
bíla greiði hærri álögur en eigendur nýrra bíla.
NYTT SKOÐUNAR-
KERFIHJÁ TOYOTA
Morgunblaðið/Kristinn
LOFTUR Ásgeirsson blaðafulltrúi P. Samúelssonar hf. (t.v.) og Jó-
hannes Jóhannesson þjónustustjóri fyrirtækisins.
Útblástur í 3.330 bílum var
mældur og . staðhæfír FDM að
þriðjungur bílanna standist ekki
kröfur um mengunarvarnir sem
nú gilda í Danmörku.
„Bílar með hvarfakúta eiga sök
á hverfandi litlum hluta meng-
unarinnar, en eldri bílar, sjö til
átta ára gamlir, eru mestu meng-
unarvaldarnir," segir aðstoðarfor-
stjóri FDM, Mogens Balling.
200 milljarðar í álögur
Þar sem ekki er hægt að setja
hvarfakúta í gamla bíla án mikils
tilkostnaðar, og einkabílar í Dan-
mörku eru að meðaltali níu ára
gamlir, hefur FDM tekið höndum
saman við Samtök bílasala í Dan-
mörku, um að finna leiðir til að
gera það fjárhagslega eftirsóknar-
vert fyrir bíleigendur að kaupa
nýrri og umhverfisvænni bíla.
Samtökin hafa sætt sig við opin-
berar álögur á eldsneyti sem renna
til umhverfismála og segir Balling
að þær séu óhjákvæmilegar.
Samtökin útlista ekki nánar
hvernig þetta verði útfært, en til-
lagan sýnir þá umræðu og viðhorf
sem uppi er í Evrópu um um-
hverfismál.
I Danmörku eru tæpar 1,6 millj-
ón einkabíla og um 200 þúsund
atvinnubifreiðar. 187.500 einka-
bílar eru 15-19 ára gamlir. Á
hveiju ári eru 80-90 þúsund bílar
afskráðir sem er um það bil svipað
magn og flutt er inn af nýjum
bílum árlega. ■
P. SAMÚELSSON hf. hefur gert
breytingar á svokölluðum tuga-
skoðunum ábyrgðatryggðra bíla.
I stað þess að hafa tvær mismun-
andi skoðanir fyrir bíla með
þri&gja ára ábyrgð var skoðun-
unum breytt í A, B, C og D-skoð-
anir. Eftirlits- og viðhaldsþáttum
var breytt eða þeir færðir til milli
skoðana. Með þessu móti getur
Toyota boðið upp á ódýrari skoð-
anir en áður var. Sem dæmi má
nefna að 10.000 km skoðun Toy-
ota Corolla kostaði áður 13.235
kr., en kostar nú 8.800 kr.
P. Samúelsson hf. selur alla bíla
með ábyrgð til þriggja ára eða upp
að 100.000 km aksturs. Til að halda
bílnum í ábyrgð þarf eigandi hans
að færa hann til skoðunar á 10.000
km fresti á viðurkennt Toyota-verk-
stæði. Jóhannes Jóhannesson þjón-
ustustjóri hjá P. Samúelssyni sagði
að bílar væru mun betri nú en áður
og auk þess með færri hreyfihluti
sem kalli á minna eftirlit og viðhald
en áður var. Þá hafi vegir landsins
batnað verulega og 80% af akstri
landsmanna fari fram á bundnu slit-
lagi. Af þessum sökum hafi Toyota
ákveðið að endurskoða eftirlits- og
viðhaldsskoðanir, svokallaðar tug-
skoðanir.
Reglubundfð viðhald
Jóhannes sagði að allmikil vinna
væri lögð í að skoða hvert og eitt
einstakt atriði sem framkvæmt er
við hverja einstaka skoðun, niður-
stöður hafi síðan verið metnar með
tilliti til fyrirmæla framleiðanda og
út frá faglegu sjónarmiði miðað við
íslenskar aðstæður.
Reglubundið viðhald og eftirlit
skal framkvæmt á 10.000 km fresti.
Sé bíl ekið meira en 2.000 km fram
yfir hveija viðhaldsskoðun (viðhalds-
skoðun fer fram á 20.000 km fresti)
án þess að hann sé færður til reglu-
bundins viðhalds hjá viðurkenndu
Toyota verkstæði fellur ábyrgð b.íls-
ins niður.
A-skoðun er svokölluð eftirlits-
skoðun sem er fljótleg en mikilvæg.
B, C og D-skoðanir eru svokallaðar
viðhaldsskoðanir, sem eru mikilvæg-
ar til að viðhalda ábyrgð bílsins.
Skipt er um slithluti í þessum skoð-
unum.
Til þess að viðhalda ábyrgð bílsins
verður eigandi hans að láta skipta
um olíu og oliusíu á 5.000 km fresti,
en aldrei mega meira en 6 mánuðir
líða á milli olíuskipta. Smurþjónusta
er innifalin í eftirlits- og viðhalds-
skoðunum. ■