Morgunblaðið - 11.06.1993, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993
C 9'
Ævintýraferðir
fyrir krakka
í Edinborg
FJÖLSKYLDUFÓLK sem er á
ferðalagi og kemur við í Edinborg
getur nú keypt sérstakar ævin-
týraferðir fyrir börn sem eru frá
fimm ára. Meðan börnin eru í
ferðinni geta foreldrarnir því
haft fijálsari hendur. í boði er
hálfs eða heilsdagsferð. Er m.a.
farið með börnin í brúðuleikhús
og þau fá að gægjast bak við tjöld-
in. Þeim er sýnt fiðrildasafn og
rústir af skoskum kastala.
Fóstrur eru með í förinni og þess-
ar ferðir kosta frá 12-22 pund. Er
þá innifalið hádegissnarl fyrir krakk-
ana. Farið er frá Waverleybrú í mið-
borginni. ■
NORSKA leiguflugfélagið Braathen hefur tekið upp þá skemmtilegu
nýbreytni að fá börn á aldrinum fimm til ellefu ára gömul til að skreyta
flugvélar þess sem fljúga með farþega til sólarlanda í sumar. Vélin
hefur verið nefnd Sumarvélin og eins og sjá má af myndinni hefur
ímyndunarafl og sköpunargleði fengið hressilega útrás á vélinni. ■
Olíufurstar heita Líbönum íé
RAFIQ al Hariri forsætisráðherra Líban-
ons er nýkominn aftur til Beirút eftir
ferð um Flóaríkin þar sem hann óskaði
fjárhagsaðstoðar við Libanon til að hægt
sé að hleypa krafti í uppbyggingarstarf-
ið í Beirút en mikill hluti hennar eru enn
rústir einar síðan í borgarastyijöld sem
stóð með skömmum hléum í fimmtán ár.
Hariri fékk alls staðar konunglegar
móttökur og svo virðist sem allir þeir
þjóðhöfðingjar sem hann ræddi við í
Kúveit, Bahrein, Qatar og Óman hafi
tekið fúslega í að reiða fram milljónir
til aðstoðar.
Hariri sem er sjálfur milljarðamæringur
hefur einnig lagt fram gríðarlegar fjárhæð-
ir úr eigin vasa, m.a. til að unnt sé að rífa
og jafna við jörðu gömlu miðborgina, þar
sem ekkert hús sést heilt nema þinghúsið.
Hann segist vera þeirrar skoðunar að Líban-
ir muni ekki komast yfir stríðsharm sinn
fyrr en gamla borgin sem áður var hjarta
hennar sé horfin og menn þurfi ekki dag-
lega að hafa viðurstyggð eyðileggingarinnar
fyrir augum. ■
Hariri á
tali við
Qaboos
soldán
Ómans.
Frá gömlu
miðborg-
inni í Beir-
út.
Morgunblaðið/JK
Mifibæjarstemmning vii
Kaffi-Krfis á Selfossi
„ÞESSU hefur verið tekið nyög vel af heimafólki og öðrum gest-
um,“ sagði Anna S. Árnadóttir eigandi Kaffi-Krúsar kaffihúss í
miðbæ Selfoss í Núpi, einu elsta húsi bæjarins en það var byggt
1931. Rekstur hófst 16. okt. sl. og er nýjung í veitingarekstri í bæn-
um. „Ég rek þetta með dyggri aðstoð fjölskyldunnar, mamma bakar
og amma er í eldhúsinu,“ segir Anna.
„Það hefur aldrei verið
hægt að fá sérlagað kaffi
áður á Selfossi og fólk
kemur mikið til að prófa
alls konar tegundir sem
það hefur ekki bragðað
áður,“ segir Anna. í Kaffi-
Krús bjóðast 10 tegundir
af kaffi og aðrar tíu af
áfengu. Þá er boðið upp á
áfenga og óáfenga drykki,
heimabakaðar kökur og
grænmetisrétti, súpur og
salöt sem fólki líkar vel.
Á palli fyrir utan húsið
er hægt að sitja í góðu
veðri og njóta veitinganna.
Þar er fyrirhugað að vera
með uppákomur í sumar.
Tónlistarfólk mun leika,
málari málar gesti og leik-
listarfólk verður með
skemmtiatriði. Þá má í
góðu veðri búast við að sjá
listmálara mála kaffihúsa-
myndir á útveggi hússins
til skreytinga þegar gott
er veður. Innan dyra eru
alla daga málverkasýning-
ar myndlistarmanna sem
jafnframt eru sölusýning-
ar.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Anna S. Árnadóttir ásamt gestum á pall-
inum framan við Kaffi-Krús.
Fólk vill rólegheit
„Það jákvæðasta við þetta er að
fólk vill fá miðbæjarstemmningu
hér á staðnum, bæði heimafólk og
aðrir, maður finnur það vel á gest-
unum. Það er mjög algengt að sum-
arbústaðafólk í nágrenninu komi á
föstudögum og sunnudögum þegar
það er að koma og fara úr bústöðun-
um. Fólkið situr og spjallar, hér er
enginn hávaði.
Það er greinilegt að fólk vill fínna
fyrir rólegheitunum og ég hef það
á tilfinningunni að því finnist það
vera í heimsókn hjá gamalli frænku
sinni. Hér myndast ótrúlega^
skemmtileg stemmning í kringum'
húsið þegar gott er veður og fólk
getur sest niður. Þá fáum við þessa
miðbæjarstemmningu sem fólk
sækist eftir,“ sagði Anna S. Árna-
dóttir veitingakona í Kaffí-Krús á
Selfossi. ■
Sig. Jöns. Selfossi
Morgunblaðið/Kári Jónsson
Bjarki Hilmarsson
Nýr greiðaskáli
opnar hjá Geysi
NÝENDURBYGGÐUR söluskáli
var tekinn í notkun á Geysi í
Haukadal í vor. Skálinn hefur
verið stækkaður í 360 fm og inn-
réttaður upp á nýtt á nyög smekk-
legan hátt.
Salemisaðstaða er stórbætt auk
minjagripasölu sem fengið hefur af-
markað pláss í skálanum. Erlendur
F. Magnússon hannaði og smíðaði
allar innréttingar sem skomar eru
út í tré, óreglulegar að lögun. Taka
þær form sitt af hveramóðunni sem
einkennir Geysisvæðið.
Á Geysi er einnig rekið hótel af
sömu aðilum og reka söluskálann.
Lögð er áhersla á að þjóna ferða-
manninum á sem breiðustu sviði því
hefur nýr metnaðarfullur meistara-
kokkur verið ráðinn að Hótel Geysi.
Það er Bjarki Hilmarsson frá Sel-
fossi sem sérhæfír sig í fiskréttum
ýmiskonar þó einkum réttum úr laxi.
Ráðning Bjarka hefur þegar farið
að laða ýmsa hópa til veisluhalda að
jGeysi en þar er borðpláss fyrir 450
manns og gistirými fyrir þijátiu. ■
Kárí Jónsson. Lauerarvatni
Gisting
Mennlngarmlðstöðin
Laugarland, Holtum
Tjaldstæði, svefnpokapláss, sundlaug,
heitur pottur, gufubað, íþróttahús, veit-
ingar. Góð aðstaða fyrir ættarmót og
stóra hópa.
Sími 98-76533.
Ævintýraslglingar
Náttúru- og fuglaskoðun, skelveiði og
smökkun. Lifandi leiðsögn. Gestir Hótels
Eyjaferða og Egilshúss fá afslátt í siglingar.
Eyjaferðir, Stykkishólmi,
sfmi 93-81450.
Viðlegu-
búnaður
Samkomutjöld
20-300 fm til leigu.
Kjörin fyrir ættarmót, fyrirtækja-
skemmtanir og aðra mannfagnaði.
Skátafélagið Hraunbúar,
simi 650900.
émmmmmmmmmmmmmmmmm—i
Veiði
Velðmenn - örfó veiðileyfi óseld
Til sölu veiðileyfi í Staðarhólsá og
Hvolsá í Dalasýslu. Mjög gott veiöihús.
Bæði lax- og silungsveiði. Verðið er
mjög hagstætt. Um er að ræða 2ja og
3ja daga holl, leyfðar eru 4 stangir á dag.
Upplýsingar og bókun í síma 93-41544
og fax 41543.
Veiðifélagið Laxinn.
Hestamenn athugiðl
Enn eru 6 pláss laus í 8 daga sérferð
Eldhesta hf. með íslendinga í Amarfell
hið mikla fimmtudaginn 12. ágúst.
Upplýsingar hjá Eldhestum í
SÍmum 98-34884/98-65560.
Hestaleigan Reykjakoti ofan vlð
Hveragerði. Leigjum hesta í 1-4 klst.
og dagsferðir í faUegu umhverfi.
Einnig grillferðir upp að Hengli.
Opið aUa daga, aUt árið.
Upplýsingar i símum 98-34462
og 98-34911.
HÓPFERÐIR VEGNA
ÆTTARMÓTA
; HÖFUM GÆDA HÓI’BIFREIÐAR
| FRA 12 TIL 65 FARÞEGA lí
LEITIÐ UPPLÝSINGA
Bíldshöfða 2a,
simi 685055, Fax 674969
HðPFERÐAMIÐSTÖÐIH
ODYRARIGISTING
Gisting og golf
Gisting, morgunverður innifalinn, aðgangur að níu holu golf-
velli, sauna sem staðsett er í hótelinu og sundlaug staðarins.
Gestir geta lagt bílum sínum á bílastæði hótelsins og þurfa
ekki að hreyfa hann fyrr en þeir fara.
Verð kr. 3.600 á mann í tveggja manna herb.
Gisting og Flateyjarferð
Gisting með morgunverði, sigling með ferjunni Baldritil Flateyj-
ar. Verð kr. 5.300 á mann í tveggja manna herb.
Flateyjarferó og útsýnisferð
um Vestureyjar
Gisting, morgunverður innifalinn, sigling með ferjunni Baldri
til Flateyjar og útsýnisferð frá Flatey um Vestureyjar.
Verð kr. 6.300 á mann í tveggja manna herb.
Gisting og eyjaferðir
Gisting, morgunverður innifalinn, sigling með Eyjaferðum um
Suðureyjar, ca. tvær klst.
Verð kr. 5.660 á mann í tveggja manna herb.
Hádegisverður frá kr. 795.
Kvöldverður frá kr. 1.195.
fMtaggmiliIfifrtfr
Meira en þú gelurímyndad þér!