Morgunblaðið - 11.06.1993, Blaðsíða 12
12 C
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993
Escort Van 60 er snotur atvinnubíll.
Morgunblaðið/jt
Burðarmikill
sendibíll fró Escort
Ford Escort Van 60 er einn bílanna úr hinni
nýju Escort/Orion fjölskyldu sem aftur eru
komnir á íslenskan bilamarkað af endurnýjuðum
þrótti og á góðu verði. Escort sendibíllinn bland-
ar sér í nokkuð harða samkeppni minnstu sendi-
bilanna, þ.e. fólksbíla með flutningskassa að aft-
an í stað hefðbundins aftursætis og farangurs-
rýmis. Með þessum búnaði fá menn ágætlega
lipra og góða fólksbíla en með sendibílaeiginleik-
um og innkaupsverð án virðisaukaskatts. Þetta
eru með öðrum orðum atvinnubílar.
Escort Van 60 er nokkuð snotur bíll og má segja
að kassinn eða flutningsrýmið tengist betur fram-
hluta bílsins en hjá öðrum svipuðum bílum. Straum-
línulögun framendans heldur sér ágætlega þar sem
kassinn tekur við en hjá bæði Sunny og Renault
er kassinn öllu klossaðri. Hæð flutningsrýmisins er
hins vegar ívið lægri í Escort.
Að innan er Escortinn eins og venjulegi fólksbíll-
inn, þ.e. ágætlega skýrt og gott mælaborð og sömu
þægilegu sætin en þar fyrir aftan tekur við vörurým-
ið. Grind aðskilur farþega- og vörurými eins og til-
skilið er um útbúnað þessara bíla. Það sem ökumað-
ur tekur fyrst eftir við notkun á slíkum bíl miðað
við hina venjulegu fólksbílaútgáfu er glymjandi eða
glamur frá vörurýminu en það er atriði sem notend-
ur þessara bíla hljóta að venjast og verður vart
hægt að fást mikið um - nema hliðarnar séu klædd-
ar sérstaklega.
Vélin í Escort sendibílnum er sú af minni gerð-
inni, þ.e. 1,4 lítra með hvarfakút, 71 hestafl og fjög-
urra strokka. Hún vinnur vel og hjálpar góð gírskipt-
ing þar mikið uppá en er ekki snögg í viðbragðinu.
Er hún 17 sekúndur að koma bílnum í 100 km hraða
úr kyrrstöðu en slíkt getur varla ráðið úrslitum í
vali manna á atvinnubíl, þar hljóta önnur atriði að
vega þyngra. Eyðsla í blönduðum akstri er kringum
10 lítrar en fer niður í 7,3 lítra á jöfnum 90 km hraða.
Beygjuradíus er 10 metrar og er bíllinn ágætlega
lipur og góður í borgarsnúningum. Afturhurðir opn-
Escort sendibíllinn ber heil 785 kg og er mun
duglegri en keppinautar hans hvað það varðar.
ast til hliðar og er hægt að ráða með því að losa
um stoppjárnið hvort þær glennast alveg upp á
gátt eða bara 90 gráður.
Gott burðarrými er það sem Escortinn getur stát-
að af en lengd þess er 1,82 metrar, breidd 1,62 m
og hæð 1,07 metrar. Breidd milli hjólaskála er 1,17
m. Burðargetan er 785 kg en Escort sendibíllinn
er búinn blaðfjöðrum að aftan og gefur það honum
yfir 200 kg meiri burðargetu en keppinautanna.
Kassinn er 2,54 rúmmetrar eða heldur minni en hjá
hinum gerðunum. Gólfið er gúmmíklætt og áður er
nefnd grindin milli burðar- og farþegarýmis en þann-
ig frágenginn kemur bíllinn frá verksmiðjunum.
Af helsta búnaði öðrum má nefna að hliðarspegl-
ar eru stillanlegir innanfrá, lagnir eru fyrir útvarp
og hátalara og vökvastýri. Fyrir þetta þarf að stað-
greiða 875 þúsund krónur án virðisaukaskatts fyrir
bíl kominn á götuna og er það mitt á milli verða
keppinautanna. Endurtaka má að Escortinn er lipur
og þægilegur viðskiptis og stendur því vet að vígi
á þessum sérstaka hluta bílamarkaðarins. ■
Jóhannes Tómasson
Díselbíjar
vinsælir í
Frakklandi
FRAKKAR kaupa í sívaxandi
mæli díselfólksbíla og i janúar
sl. voru í fyrsta sinn þar í landi
skráðir fleiri nýir díselbílar en
bensinbilar. Af 112.659 bilum
sem seldust i þeim mánuði voru
58.502 með díselvél og 54.154
með bensínvél.
Franskir bílframleiðendur telja
að þessi þróun haldi áfram út þetta
ár. Nýjar reglur Evrópubandalags-
ins um leyfilegt magn mengandi
efna í útblæstri bíla er talin vera
helsta ástæða áhuga Frakka fyrir
díselbílum, sem menga mun minna
en bensínbílar.
Eina landið í Evrópu utan Frakk-
lands þar sem díselbílar eru vin-
sælli en bensínbílar er Belgía. I
Þýskalandi var gósentíð díselbíl-
anna um miðjan níunda áratuginn
en 1986 var ijórði hver bíll í Þýska-
landi með díselvél, en nú í hæsta
lagi sjötti hver bíll. Að meðaltali
eru fjórtán bílar af hveijum eitt
hundrað með díselvél í Evrópu.
Sígildur Saratoga
meö andlitslyftingu
Chrysler Saratoga, hinn ameríski, hefur á síðustu árum fengið
nokkrar viðbætur við tæknibúnað og ýmsan ytri búnað. Að vissu
leyti má telja hann allt að
því klassískan bíl, vel
búinn vagn si
þjónar hinum
hefðbundna
bílakaup-
anda sem vill
meðalstóran
og traustan
framdrifinn
kraftmikinn
sem þarf þó
elta ólar við
bíl,
og
en bíl
ekki að
framúr
Morgunblaðið/jt
Chrysler Saratoga er meðalstór og rúm-
góður, framdrifinn bandariskur bíll með
allgóðum búnaði og á þokkalegu verði.
stefnu og tískustrauma.
Þar er Saratoga góður kostur og við skoðum stöðu hans i dag en
Chrysler umboðið, Jöfur, hefur að undanförnu boðið árgerð 1992
á 1.700 til 1.900 þúsund en 1993 árgerðin kostar um hálfri milljón
betur.
Mælaborðið er mjög hefðbundið og dálítið kloss-
að en ökumaður getur látið fara vel um sig við
aksturinn.
Saratoga er
ekkert sérstaklega
framúrstefnulegur
í útliti, hann er eig-
inlega hvorki kant-
aður né mjög ával-
ur heldur mitt á
milli og nokkuð
sterklegur tilsýnd-
ar. Stuðarar eru
áberandi, sérstak-
lega afturstuðar-
inn sem gengur
dálítið langt aftur.
Framendinn er
langur og voldugur
með stórri vatns-
kassahlíf og síðan fer rísandi lína
aftur með bílnum og fínlegur listi
nær umhverfis allan bílinn. Rúður
eru stórar og hjólbarðar sömuleiðis.
Að innan er allt vel úr garði gert.
Framstólar veita góðan stuðning
og er ökumannsætið rafstillanlegt
í dýrari útgáfunni. Mælaborðið er
ferkantað og allt að því klunnalegt
með hefðbundinni niðurröðun. Gott
er að ná í öll stjórntæki, ökumaður
á ekki í vandræðum með að athafna
sig nema hvað hann situr heldur
of lágt. Höfuðrými leyfir alveg að
bílstjórasætið sé heldur hærra enda
veitir það meira öryggi og gefur
ggj betri yfirsýn að sitja sem hæst.
Það sem einkum gerir Sara-
toga eftirsóknarverðan er
ríkulegur búnaður og ekki síst
SOjjj öflug vél og hljóðlát. Gefur
hún bílnum feikigott viðbragð
■3 úr kyrrstöðu, hljóðlegan og
þýðan akstur og góða vinnslu
J2 á hvaða hraða sem er. Meðal
Z staðalbúnaðar í SE útgáfunni
(þeirri ódýrari) eru rafdrifnar
JJJ rúður og læsingar en þeim er
stjórnað með rofa í hurð en
ekki með lyklinum. Þá er bíllinn
búin öryggispúða í stýri (eða líknar-
belg eins og hann er stundum
nefndur), hraðastilli, rafdrifnum og
hituðum hliðarspeglum, tvískiptu
aftursæti sem gefur möguleika á
meiri nýtingu farangursrýmis og
enn má nefna útvarp og segulband
með 4 hátölurum. Auk þessa búnað-
ar eru í dýrari gerðinni, LE, læsi-
varðir hemlar, álfelgur, aksturs-
tölva sem gefur ýmsar upplýsingar
um vegalengd bensín o.fl. og rafst-
illtur ökumannsstóll.
í borgarakstri og þrengslum er
bíllinn hinn meðfærilegasti enda er
hann ekki nema 4,60 m langur og
það eina sem setja mætti út á at-
hafnir í þrengslum og við að bakka
í stæði og slíkt er heldur slakt út-
sýni úr afturglugga.
Vélarnar í báðum útgáfunum eru
hinar sömu. Sex strokka, þriggja
lítra og 141 hestafl og sjálfskipting-
in er einnig hin sama. Hún er tölvu-
stýrð og mjög fullkomin með skynj-
urum sem taka við upplýsingum
um álag og hraðabreytingar 140
sinnum á sekúndu og gefur tölvan
skiptingarskipanir sínar í framhaldi
af því. Með þessu er eldsneytisnýt-
ingu haldið í hámarki. Eins og fyrr
segir er aflið yfirdrifið. Bensíngjöfin
er líka mjög næm, þannig að við
minnstu viðkomu er bíllinn rokinn
af stað og þarf raunar að venjast
dálítið þessu næma viðbragði.
Verðið er 1.698 eða 1.898 þúsund
krónur á 1992 árgerðinni en 2.345
og 2.562 á 1993. Munurinn er ekki
annað en skráningarárið og má
fullyrða að munurinn verði ekki svo
mikill á endursöluverði þessara bíla
eftir nokkur ár. Ætli kaupendur sér
því að eiga þá í 5 ár eða meira er
óhætt að spara sér mismuninn og
kaupa eldri árgerðina. Hann stend-
ur fyllilega fyrir sínu. ■
Jóhannes Tómasson
Japanir missa 62% tekna í
bílaiðnaði vegna samdráttar
HÆKKANDI gengi japanska jensins og almennur samdráttur
í bílasölu í heiminum olli á siðasta fjárhagsári mesta tekjutapi
í japönskum bílaiðnaði frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Sam-
tals urðu sjö af níu stærstu bílaframleiðendum í Japan fyrir
62% tekjuminnkun fyrir skatta
mars sl.
Tekjutapið á árinu varð tæpir 53
milljarðar ISK. Tvö fyrirtæki, Niss-
an og Daihatsu, skýrðu frá því að
taprekstur hefði verið á fyrirtækj-
unum á slðasta ári. Nissan, Fuji og
Mazda spá því að fyrirtækin verði
rekin með tapi á þessu ári.
Mitsubishi, Suzuki og Honda
urðu fyrir miklum tekjusamdrætti
á árinu og forsvarsmenn fyrirtækj-
anna spá því að reksturinn verði í
járnum á þessu ári.
fjárhagsárinu sem lauk 31.
Dökkt útlit
Talið er að hátt gengi jensins
miðað við bandaríkjadollar hafi
kostað fyrirtækin sjö samtals um
80 milljarða jena, eða sem samsvar-
ar 45,5 milljörðum ISK. Flestir jap-
anskir bílaframleiðendur byggja
spár sínar um sölu og hagnað á
þessu ári á því að gengi jensins
verði að meðaltali 110-115 á móti
hverjum dollar, en fjármálasérfræð-
ingar telja að mikil bjartsýni sé
fólgin í slíkum spám. ■