Morgunblaðið - 12.06.1993, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993
C 3
rún Gunnarsdóttir, Gréta Mjöll
Bjamadóttir, Ingibjörg Hauksdótt-
ir, Kristinn Blöndal, Sveinbjörg
Hallgrímsdóttir, Sesselja Björns-
dóttir, Guðmundur Karl, Jón Sæ-
mundur, Magnús Unnar Jónsson
o.fl. sýna. í Faxaskála er áætlað
að um 50 listamenn sýni málverk,
skúlptúra, ljósmyndir, textíl, teikn-
ingar og skartgripi. I kaffistofu
skálans verða sýndar ljóðmyndir frá
17. júní til loka hátíðarinnar. í veit-
ingahúsinu Jónatan Livingstone
Mávi sýna Helga G. Óskarsdóttir
og Jónína Loftsdóttir verk sín, Haf-
liði Pétursson, Egill Sæbjömsson,
Rán Jónsdóttir og Sigurbjörg
Snorradóttir sýna á knæpunni 22,
Fjölnir Geir Bragason sýnir á veit-
ingastaðnum Pasta Basta, Inga
Hlöðversdóttir, Rakel Hermanns-
dóttir og Stefán Boulter sýna í
Djúpinu, Ásta Guðrún Eyvindar-
dóttir sýnir í Café Lizt, á Bræðra-
borgarstíg 7 verða opnar vinnustof-
ur Þóru Bjarkar Schram, Ingibjarg-
ar Hauksdóttur, Kristínar Blöndal,
Sveinbjargar Hallgrímsdóttur og
Sigríðar Valdimarsdóttur, Ása
Hauksdóttir og Öm Ingólfsson sýna
lágmyndir í Café Splitt og Kristrún
Gunnarsdóttir stendur fyrir uppá-
komum og innsetningu í turni
Slökkvistöðvarinnar í Öskjuhlíð
laugardaginn 12. júní kl. 18.00. Er
þá stiklað á stóru hvað varðar
myndlist hátíðarinnar, en synd er
að segja að hún sé skorin við nögl.
NÚTÍMATÓNLIST OG
SÍGILD
Breiður hópur ungra listamanna
plægja á hátíðinni þann akur tón-
listarlífsins sem almennt er skil-
greindur sem sígildur, þó hann end-
urnýji sig í sífellu eins og títt er
með gróðurmold. En endurnýjunin
er auðvitað sígild. Og ljóst að hlýir
vindar leika um íslenskt tónlistarlíf
og uppalendur þess, en fjöldi ungra
tónlistarmanna og tónskálda lætur
í sér heyra á Óháðri listahátíð að
þessu sinni. í kynningu hátíðarinnar
segir m.a. af „óskilgreinanlegum
hópi listamanna sem starfa saman
undir heitinu „Regnhlífasamtökin"
en um er að ræða „spunasamtök
sem hafa það markmið æðst í huga
að efla samstarf rriilli listgreina.“
Samtökin standa fýrir uppákomum
alla hátíðina, m.a. á opnunardag,
sl. miðvikudag, og einnig má nefna
„fijáls faðmlög“ þeirra næsta
þriðjudag, 15. júní, í Faxaskála og
Djass í djúpinu fímmtudaginn 24.
júní.
Á morgun, sunnudaginn 13. júní,
verða gítartónleikar í Tjarnarsal,
þar sem Arngeir Heiðar Hauksson,
Jón Guðmundsson, Kolbeinn Ein-
arsson, Hannes Guðrúnarson, Lárus
Sigurðsson og Guðmundur Péturs-
son leika verk eftir Jón Guðmunds-
son, Jóhann Sebastian Bach, Isaac
Albeniz, Luiz Milan, John Dowland,
S.L. Weiss, J. Turina og Hector
Villa Lobos.
Nútímaverk fýrir píanó og fíðlu
hljóma í Tjamarsal sunnudaginn
20. júní, þegar Ríkharður Þórhalls-
son, píanóleikari, og Una Svein-
bjamardóttir, fíðluleikari, spreyta
sig á Stravínskí-tilbrigði op. 37,
„Tempo di marcia", Vögguvísu op.
33, „Waltze lunatica op 20“, „Intro-
itus & Psalmus" o.s.frv. eða allt í
allt ellefu verkum eftir Ríkharð
Þórhallson. Tónleikarnir verða
endurteknir 22. júní á sama stað.
Einar Kristján Einarsson, gítar-
leikari, er í dag í fremstu röð ís-
lenskra gítarleikara og er orðinn
vel kunnur af tónleikum sínum hér
og erlendis. Hann leikur nútímatón-
list fyrir gítar eftir ýmis tónskáld,
þ.á.m. Hvaðan kemur lognið? eftir
Karólínu Eiríksdóttur, Jakobsstig-
ann eftir Hafliða Hallgrímsson,
„Drei tentos" eftir Hanz Werner
Henze og „Elegy" eftir Rowsthome.
Á næstsíðasta degi hátíðarinnar,
26. júní, verður nútímatónlist í
Faxaskála þegar Pétur Jónasson,
gítarleikari, og Kjartan Ólafsson,
tónskáld, flytja verk þess síðar-
nefnda sem em annars vegar fyrir
einleiksgítar og tölvuhljómsveit, og
hins vegar fyrir Kurtzweil K-2000
tölvu. Verkið er unnið á tónsmíða-
forrit sem Kjartan hefur hannað
og nefnist Calmus og segir að gald-
urinn sé „fólginn í því að tengja
saman lifandi flutning, tölvustýrðan
flutning og spuna.“ Fyrra verkið
nefnist Tilbrigði við jómfrú en hið
seinna Tvíhljóð. Seinna þetta kvöld
stilla þeir Halldór Auðarsson, gítar-
leikari, Halldór Bragason, blúsari,
Hilmar Öm Hilmarsson, tölvumeist-
ari, Hjörtur Howser, hljómborðs-
leikari og Jens Hansson ásamt
blúsaranum KK Bing saman strengi
sína og standa fyrir blúsdjammi
fram á nótt. Ýmsir gestir munu
slást í för með þessum fríða hópi á
tregagöngu hans inn í lokanótt
Óháðu listahátíðarinnar.
Unnur Vilhelsdóttir bindur síðan
endahnút á Óháða listahátíð 1993
þegar hún sest við flygilinn í Tjarn-
arsal, sunnudaginn 27. júní, ogleik-
ur af fingrum fram Tokkötu í C-
moll eftir Jóhann Sebastinan Bach,
' Sónötu í E-moll eftir Mozart, Til-
brigði eftir Hróðmar Inga Sigurðs-
son og Fantasíu í F-moll op. 49
eftir Chopin.
Áhugasömum listunnendum er
einnig bent á að fylgjast með dag-
skrá hátíðarinnar sem Morgunblað-
ið mun birta reglulega til loka henn-
ar.
Samantekt/SFr
Morgunblaðið/Kristinn
Helslu aóstandendur listahátióar: Helgi Hauksson, Arndis Á*-
geirsdóttir, Rakel Hermannsdóttir, Sissa, Brynja Þorgeirsdóttir,
Halldór Auóarson, Friórik Róbertsson og Guórún Guójónsdóttir.
slagverksuppákoma Regnhlífar-
samtaka um almennan spuna, en
þá mættu allir sem það vildu á úti-
taflið í Bakarabrekkunni hver með
sitt slagverk og svo var spilað af
fíngrum fram á meðan menn
nenntu. Að mati Halldórs er þessi
uppákoma einmitt það sem að var
stefnt, að sameina sem flesta lista-
menn í einhveiju verkefni án tillits
til hefðbundinnar skiptingu í list-
greinar. Um kvöldið voru síðan
fyrstu rokktónleikarnir í Faxaskála,
sem er helsta aðsetur Óléttrar ’93,
en þar komu fram Hydema,
Slippidú, Reptilicus, Súkkat, Mis-
tök, The Dumb Blonde Brunette
Duet, Speni frændi og Sifjaspellam-
ir og Todmobile. í kvöld leika Vinir
Dóra með gestunum Deitru Farr
og Chicago Beau McGraw frá
Chicago og einhverjum íslenskum
gestum í Plúsnum.
ALMENN UNDARLEGHEIT
Ekki er nokkur leið að flokka
hljómsveitir eftir tónlistarstefnum,
en rokkfróðir geta giskað á hvaða
tegund tónlistar er í gangi eftir
nöfnum hljómsveitanna; hvort boðið
er upp á dauðarokk, popprokk með
enskum textum, danssveim, ný-
bylgju eða bara almenn undarleg-
heit, en rokkdagskrá Óléttrar ’93
er á þessa leið:
Sunnudagur 13.
Örkumla, Duttlungar Orra eim-
svala, Hinir demónísku Neander-
dalsmenn, Prófessor Finger, Niður,
The Fourth Crew, Lipstick Lovers
og Nýdönsk leika í Faxaskála. Heij-
ast tónleikamir kl. 20 og standa til
kl. 1.
Miðvikudagur 16.
Fallega gulrótin, Synir Rasp-
útíns, Þór og Mjölnir, Óskýrt, Pand-
emonium, Mug, Bölmóður, Blimp
og SSSól leika í Faxaskála. Heíjast
tónleikarnir kl. 20 og standa til kl.
3.
Föstudagur 18.
Púff, trúabdúrinn Heiða, Yukat-
an, Dawn of the Dead, Tjajz Giss-
ur, Texas Jesus, Slip, Niður, SS
Span ásamt Brútal og Kolrassa
krókríðandi leika í Faxaskála. Hefj-
ast tónleikamir kl. 20 og standa til
kl. 3, en einnig verður tískusýning
og Birgir Þór flytur fýrirlestur um
tónkerfi.
Laugardagur 19.
Cataconic, Natassæ, Maunir,
Pulsan, Curver, Vin K, Bfllinn, Still-
uppsteypa, Maðurinn á kassanum,
Svið, Leiksvið fáránleikanas og
Sagtmóðigur leika í Faxaskála.
Heflast tónleikamir kl. 20 og
standa til kl. 3. Kl. 22 hefjast í
Gauki á Stöng tónleikar Bone China
og Deep Jimi and the Zep Creams,
sem standa einnig til kl. 3.
Miðvikudagur 23.
Hell Meat, Sexual Mutilations,
Funny Bone, Fokk Opps, Drop,
Stoned, Skrýtnir, Fitus Quo og
Bum leika í Faxaskála. Hefjast tón-
leikarnir kl. 20 og standa til kl. 1.
Fimmtudagur 24.
Lunch, Edearment, Baphomet,
Þrask, INRI, Superoldies, Rómeó
og Júlíus, Slip, Móðir, Opp Jors
leika í Faxaskála. Heijast tónleik-
amir kl. 20 og standa til kl. 1. Einn-
ig fremja Birgir Thor, Gunnar Rún-
ar og Bjöm gjörning. Kl. 21 heijjast
í Djúpinu jasstónleikar á vegum
Regnhlífarsamtaka um almennan
spuna.
Föstudagur 25.
Dawn of the Dead, Forgarður
helvítis, Kviklæstir, Jötunuxar,
Cranium, Strigaskór nr. 42, 13,
Sororicide, Bone China, Dos Pilas
og Deep Jimi and the Zep Creams
leika í Faxaskála. Hefjast tónleik-
amir kl. 20 og standa til kl. 3.
Laugardagur 26.
Síðasta tónleikarispan verður
blúshátíð Faxaskála þar sem fram
korpa Jökulsveitin, Halldór Braga-
son og Hilmar Örn, Hjörtur Howser
og Jens Hansson og KK Band og
síðan verður blúsjamm með óvænt-
um gestum til kl. 3, en herlegheitin
hefjast kl. 20.30. Á.M.
LIST AHÁTÍÐ
í HAFNARFIRÐI
Kolbeinn
Bjarnason
og Guórún
Óskars-
dúltir.
Morgunblaðið/Kristinn
Nýkomin heim
„VIÐ sýnum okkar bestu hliðar. Flytjum bæði barokkverk og nýja
tónlist frá Islandi og Asíu,“ segir Kolbeinn Bjarnason flautuleikari um
tónleika sem hann heldur ásamt Guðrúnu Óskarsdóttur semballeikara
í Hafnarborg á þriðjudagskvöld. Þau komu hingað utan úr Evrópu
fyrir viku og eru að byija að spila saman opinberlega í túnfætinum
heima.
Guðrún hefur verið í námi í
Hollandi og Sviss og Kol-
beinn á þönum milli konserta og
griðastaða til æfínga heima og heim-
an. Höfundar verkanna sem þau leika
nú eru misvel kunnir: Handel, Tele-
mann og Couperin, Þuríður Jónsdótt-
ir og Leifur Þórarinsson, Yun og
Takemitsu.
Tónleikamir, sem hefjast klukkan
20.30 á þriðjudaginn, eru liður í
Listahátíð í Hafnarfírði. Kolbeinn
segir aðal þeirra fjölbreytni frekar
en eina efnislind. „Guðrún hefur
mikið leikið gamla franska tónlist,"
segir hann, „en ég hef mest haldið
mig í nútímanum og þetta speglast
að hluta á tónleikunum í Hafnar-
borg. Þó spilar hún næstum nýtt
verk samið af íslendingi á Ítalíu og
ég þýskar barokksmíðar."
Tónleikamir hefjast á sónötu eftir
Hándel og svo kemur fantasía eftir
Telemann. Síðan stúdíó Þuríðar Jóns-
dóttur fyrir sembal. Hún hefur lagt
stund á tónsmíðar í Bologna og samdi
verkið þar 1991.
Á eftir fylgir samtímatónsmíð
Toros Takemitsu frá Japan, verk sem
þetta 63 ára japanska tónskáld samdi
fýrir fjóram áram fyrir flautu í minn-
ingu vinar síns og landa sem var
myndhöggvari. Síðan fá tónleika-
gestir að heyra annað nútímaverk
frá Asíu, Söng, eftir Kóreumanninn
Isang Yun. Síðasti hluti þess á það
sameiginlegt með verki Takemitsu
að vera tregaljóð um látinn vin.
Að svo búnu er stokkið aftur í
aldir og hlustað á Guðrúnu flytja
sembalsvítu eftir Couperin. í lokin
leikur hún með Kolbeini Sumarmál
Leifs Þórarinssonar.
„Eg hef mest fengist við að spila
nýja músík,“ segir Kolbeinn. “Nú
leita ég markvisst að nýjustu smíðum
bestu tónskáldanna og tel eiginlega
skyldu mína að flytja slík verk. Oft
líða margir áratugir frá því tónverk
er samið þar til það heyrist á ís-
landi. Mig langar að stytta þennan
tíma.“
Þ.Þ.
Cambrian
Brass Quintet
CAMBRIAN Brass Quintet frá Englandi var stofnaður 1981. Kvintett-
inn er skipaður tónlistarmönnum sem allir eru frá Mið-Englandi. Þeir
eru Richard Adams sem leikur á trompet, Andrew Stone-Fewings sem
einnig leikur á trompet, John Carvell sem leikur á horn, Kevin Pitt
sem leikur á básúnu og Melvyn Poore sem leikur á túbu.
eir félagar hafa leikið heima
fyrir og víða um heim. Þeir
hafa hlotið góðar viðtökur og til þess
hefur verið tekið að auk þess að
vera afbragðs tónlistarmenn hafí
þeir skemmtilega framkomu. Efnis-
val þeirra nær frá endurreisnartónl-
ist miðalda til nútíma jass og bítla-
tónlistar.
Fjölbrejdt efnisval kvintettsins
hefur vakið sérstaka athygli jafnt
heima fyrir og í löndum eins og
Frakklandi, Þýskalandi, Kanada,
Spáni og Austurríki. Þeir koma oft
fram á tónlistarhátíðum á Englandi,
m. a. á Cheltenham Intemational
Festival.
Kvintettinn hélt fyrstu Lundúna-
tónleika sína 1988 í Purcell Room.
Þar fluttu félagamir verk eftir Thea
Musgjave og var það frumflutningur
á Englandi, einnig fyrsta verk Step-
hens Olivers sem leikið var í London.
Nýlega héldu þeir tónleika þar sem
eingöngu var leikin ný tónlist og
nutu til þess styrks frá Arts Council.
ýmsir listamenn hafa unnið með
Cambrian Brass Quintet, meðal
þeirra Richard Baker, Ifor James og
John Amis. Þeir hafa oft leikið í
breska útvarpinu, BBC, og haft sér-
staka dagskrá í Yorkshire-sjónvarp-
inu. Þeir hafa leikið inn á nokkrar
plötur og fleiri eru á leiðinni.
Cambrian Brass Quintet leikur oft
við sérstök tækifæri, brúðkaup, í
opinberum boðum og einkasam-
kvæmum.
Að sögn Gunnars Gunnarssonar,
formanns Listahátíðar í Hafnarfírði,
em félagar Cambrian Brass Quintet
þekktir fyrir „glæsileik og hressilega
framkomu". Gunnar segir að ung
ensk tónskáld hafí sérstaklega samið
verk fyrir þá félaga. Þeir bjóði upp
á „skemmtilega blöndu tónlistar, með
klassískri músík, nútímatónlist og
léttmeti og nái með því til stórs
áheyrendahóps".
Það sem þeir munu leika hér eru
m. a. verk eftir ítalska framúrstefnu-
tónskáldið Berio, mars eftir Peter
Maxwell Davies og einnig frumflytja
þeir nýtt verk eftir Jonathan Dove.
Tónleikar Cambrian Brass Quintet
verða í Hafnarborg sunnudaginn 13
júní kl. 20.30.
J. H.